Morgunblaðið - 22.11.2007, Side 39
og sæl þar lítur yfir farinn veg.
(V.Á.G.)
Takk fyrir allt, elsku mamma
Þín dóttir
Pálína Hildur.
Mig langar að minnast með örfáum
orðum kærrar tengdamóður minnar
og vinkonu sem horfin er á braut allt
of fljótt.
Ekki grunaði mig er við hjónin fór-
um á Vatnsnesveginn hinn 2. október
sl. að kveðja tengdaforeldra mína og
óska þeim góðrar ferðar til Tenerife,
að það yrði í síðasta skipti sem ég
hitti hana Lórý.
Lórý var vel gefin og greind kona,
falleg að utan sem innan. Kærleik-
urinn og ljúfmennskan geislaði af
henni og alltaf var hægt að treysta á
hana. Hún var mikil félagsvera og var
oft glatt á hjalla og mikið hlegið þar
sem hún kom og skopskyn hennar
naut sín.
Ég er þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast Lórý og eiga með henni
samleið í tæp 30 ár. Vel var tekið á
móti mér er ég kom fyrst í heimsókn
til tilvonandi tengdaforeldra minna
og fann ég strax að ég var velkomin.
Hefur sú tilfinning fylgt mér æ síðan
ásamt því að böndin hafa styrkst
jafnt og þétt.
Lórý var mjög annt um fjölskyldu
sína alla og barnabörnin hændust að
henni. Erfitt verður að fylla upp í það
tómarúm sem hún skilur eftir sig þar
sem hún var svo stór hluti af lífi okk-
ar. Á stórum stundum í lífi okkar fjöl-
skyldunnar, ánægjulegum sem erfið-
um, stóð Lórý við hlið okkar og veitti
okkur ómetanlegan stuðning og var
ávallt reiðubúin að aðstoða þegar á
þurfti að halda.
Lórý var afar smekkvís kona og
ber heimili þeirra hjóna þess merki.
Henni var umhugað um að líta vel út
og dáðist ég oft að því hvað hún gat
puntað sig þótt tilefnið væri lítið. Það
lýsir því kannski best þegar Svava
Margrét, dóttir mín, sagði lítil um
ömmu sína hvað hún væri alltaf fín og
allt væri í „stíl við stíl“ hjá henni.
Ég á ótal minningar um Lórý sem
rifjast upp og munu ylja mér um
ókomna tíð, svo sem um Bláa lóns-
ferðirnar, pitsukvöldin á föstudögum
og jólaboðin.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég kveð þig með þeim orðum sem
þú notaðir svo oft ef um ferðalag eða
lengri aðskilnað var að ræða. Guð
geymi þig, elsku Lórý mín.
Marta V. Svavarsdóttir.
Dýpsta sæla og sorgin þunga
svífa hljóðlaust yfir storð.
Þeirra mál ei talar tunga
tárin eru beggja orð.
(Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum.)
Í dag kveðjum við ömmu Lórý okk-
ar.
Okkur er orðafátt en söknuðurinn
er mikill. Við höldum áfram með það
að leiðarljósi að njóta lífsins eins og
amma hefði gert. Minningin um ást-
kæra ömmu lifir áfram í hjörtum okk-
ar.
Auður, Lórý og Guðmundur.
Yndisleg amma mín hefur kvatt
okkur, aðeins 72 ára að aldri. Þó svo
að við séum meðvituð um að lífið taki
enda þá er það mikið áfall þegar ein-
hver nákominn fellur frá. Ég er enn
að bíða eftir því að þú komir heim úr
fríinu en það gerist víst ekki. Við
verðum smátt og smátt að sætta okk-
ur við það að þú sért farin frá okkur
en einhvern veginn verður allt svo
öðruvísi með skyndilegu fráfalli
þínu. Lífið verður ekki samt án þín,
elsku amma mín.
Síðasta samverustundin okkar var
hinn 22. september sl. Það var dag-
inn áður en ég fluttist til Þýskalands.
Það má segja að sú máltíð hafi verið
táknræn fyrir okkur þar sem við
snæddum áramótamáltíðina saman.
Þetta kvöld kvaddi ég það liðna með
þér án þess að vita það. Að sjálfsögðu
hefði ég viljað koma heim við annað
og skemmtilegra tilefni en við erum
enn og aftur minnt á það að það er
einhver annar en við sem ræður
ferðinni í þessu lífi.
Við munum ekki hlæja oftar sam-
an, amma mín, en hlátur þinn, húmor
og lífsgleði lifir í hjörtum okkar. Fyr-
ir mig er nóg að hugsa um skemmti-
lega hláturinn þinn og þá er ég farin
að hlæja. Það var alltaf svo gaman að
vera í kringum þig og það sást langar
leiðir hversu gaman þú hafðir af að
vera innan um fólk og skemmta þér.
Það má segja að nú hafi fjölskyldan
misst aðalskemmtikraftinn sinn
ásamt auðvitað manneskjunni sem
hefur haldið henni saman.
Þú varst engin venjuleg amma.
Það var hægt að gera allt með þér.
Ég hef oft hugsað það í gegnum tíð-
ina að svona amma myndi ég vilja
verða. Ég stend við það. Bláa lóns-
ferðirnar verða ekki fleiri með þér en
þær voru ófáar ferðirnar okkar sam-
an og þær munu seint gleymast.
Ættfræði var eitt af áhugamálum
þínum og var ótrúlegt hversu líflegar
umræðurnar gátu orðið eingöngu út
frá ættfræðinni. Ég vona auðvitað að
ég hafi lært eitthvað af þér þar.
Orð eins og umhyggja og vænt-
umþykja koma upp í hugann þegar
ég hugsa um ömmu. Það var sama
hvort hún var að tala um fjölskyld-
una eða vini sína, hún bar hag fólks-
ins síns fyrir brjósti. Alltaf hafðir þú
líka ráð handa mér þegar svo bar
undir. Nú segir mér enginn t.d. að
setja silkiklút um hálsinn þegar ég
verð veik.
Það er sárt að missa þig en jafn-
framt svo óendanlega gott að hugsa
um allar stundirnar með þér. Þær
voru svo góðar og við áttum svo mik-
ið með því að hafa þig á meðal okkar.
Þú naust lífsins líka út í ystu æsar
sem sést kannski best á því að þú átt-
ir tvær flugferðir bókaðar þegar þú
féllst frá.
Það er ekki hægt að segja annað
en að maður sé ríkari eftir að hafa
kynnst þér, amma mín, og ég mun
reyna að hafa það að leiðarljósi að
brosa í gegnum tárin. Það verður
erfitt en þú hefðir ekki viljað hafa
það öðruvísi. Elsku afi minn, missir
þinn er sárastur en við styðjum
hvert annað í þessari miklu og
skyndilegu sorg og yljum okkur við
ljúfar og skemmtilegar minningar.
Elsku amma mín, takk fyrir sam-
veruna og allt sem þú gerðir fyrir
mig.
Þín
Svava Margrét.
Elsku amma mín.
Ég á ótrúlega bágt með að skilja
að þú sért farin frá okkur. Þetta er
allt svo óraunverulegt enda átti eng-
inn von á því að þú færir strax. Við
eigum þó margar góðar minningar
sem gott er að rifja upp á þessum
erfiðu tímum.
Ég er ólýsanlega þakklát fyrir það
að þú skyldir hafa náð fermingunni
minni nú í vor. Þú varst svo fín og
flott og hélst m.a.s. smá ræðu sem
pabbi tók á vídeó. Myndirnar sem
teknar voru í veislunni á ég eftir að
passa vel alla ævi, af mér á milli ykk-
ar afa og líka bara af mér og þér. Í
fermingargjöf gáfuð þið mér m.a. fal-
legan kross sem er mér ákaflega
dýrmætur, og Biblíu með fallegri
áletrun fremst. Þú hafðir alltaf mik-
inn áhuga á því sem aðrir voru að
gera, spurðir mikið og kunnir að
samgleðjast. Gott dæmi um það er að
þið afi komuð nánast alltaf á tónleika
í kirkjunni þegar ég spilaði á fiðluna.
Við eigum eftir að sakna þín svo
sárt, en trúum því að þú sért á góð-
um stað. Það huggar okkur að vita að
þú varst trúuð og vissir að það væri
eitthvað meira eftir þetta líf. Nú ert
þú verndarengillinn okkar, elsku
amma. Guð geymi þig og varðveiti.
Við biðjum góðan Guð að blessa
afa og styrkja okkur öll í sorginni.
Við hittumst seinna, elsku amma
mín.
Þín
Elva Björk.
Gegnum Jesú helgast hjarta
í himininn upp ég líta má.
Guðs míns ástar birtu bjarta
bæði fæ ég að reyna og sjá.
Hryggðarmyrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.
(Hallgrímur Pétursson.)
Í dag kveðjum við elskulega syst-
ur okkar og mágkonu, Stefaníu Lórý
Erlingsdóttur.
Óvænt og ótímabær brottför
hennar úr þessum heimi skilur eftir
sig mikinn söknuð og sorg, en stutt
ferð í sólina til undirbúnings fyrir
veturinn endaði á annan veg en til
stóð. Hún undi sér í sólinni og hit-
anum og til sólarlanda fóru þau
hjónin svo oft sem auðið var, bæði
með fjölskyldu og vinum.
Eftir standa minningarnar ljúfar
og kærleiksríkar, þar sem elskusemi
og glaðværð var ríkjandi. Góða
skapið, hlýja og áræði voru eigin-
leikar sem alltaf fylgdu henni í öllu
því sem hún tók sér fyrir hendur og
náði til allra þeirra sem hún átti
samskipti við á lífsleiðinni.
Lórý og Siggi fundu hvort annað,
eignuðust fimm yndisleg börn og
eiga stóran hóp afkomenda, og
þeirra er missirinn mestur. Við biðj-
um algóðan Guð að gefa þeim styrk
og huggun í sorginni.
Í friði leggst ég til hvíldar og sofna,
því að þú, Drottinn,
lætur mig búa óhultan í náðum.
(Davíðssálmur 4:9)
Systur, fóstursystir og mágkona.
Elsku frænka mín.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Jákvæðni, glettni og góða skapið
voru þitt aðalsmerki. Minningarn-
arnar um þig sýna hversu gæfurík
og yndisleg manneskja þú varst, og
geymi ég þær um alla ævi. Ég kveð
þig, elsku frænka mín, með söknuði.
Elsku Siggi og fjölskylda, Guð gefi
ykkur huggun og styrk.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
(Hákon Aðalsteinsson)
Kristín Hannesdóttir.
Það voru forréttindi að fá að
kynnast manneskju eins og Lórý.
Ég var svo lánsöm að fá að hafa
hendur í hári hennar til fjölda ára og
milli okkar þróaðist mikil og einlæg
vinátta. Hún var mikill orkubolti,
tók þátt í öllu mögulegu félagsstarfi
og var mjög virkur þátttakandi,
þrátt fyrir að líkaminn væri undir-
lagður í verkjum vegna mikillar gigt-
ar. Það skipti hana miklu máli að
vera fín um hárið við hin ýmsu tilefni
og kom hún því mjög oft til mín .Það
vakti ávallt hjá mér tilhlökkun að vita
að Lórý ætti pantaðan tíma því létt-
leikinn hennar smitaði svo út frá sér
og kætti alla. Dillandi hlátur og gam-
ansemi var hennar einkenni og um-
hyggja fyrir okkur öllum á stofunni.
Hennar er sárt saknað en minningin
um einstaka konu yljar okkur öllum
og fyllir gleði. Megi Guð blessa og
styðja fjölskyldu hennar og aðstand-
endur í sorginni.
F.h. Hársnyrtingar Harðar,
Halla Harðardóttir.
Miðvikudaginn 7. október síðast-
liðinn lést Stefanía Lórý Erlingsdótt-
ir, Lórý, á spítala á Tenerife. Hér
verður ekki rakinn ferill hennar að
öðru leyti en því að minnast frábærra
kynna af henni síðastliðin 15 ár eða
svo. Ég hafði að vísu þekkt til henn-
ar.
Fyrstu beinu kynni mín af Lórý
voru þegar hún hafði safnað í hópferð
með Svenna hjá Tannaferðum á
Eskifirði um Austurland þar sem
gist var í Svartaskógi og farið þaðan í
dagsferðir. Upp úr þessu myndaðist
hópur í kringum Lórý sem á góðum
stundum var kallaður Svartaskógar-
gengið eða jafnvel Lórýjarklíkan.
Klíkan var þó engum lokuð. Kjarninn
í þessum hópi var fjórtán til tuttugu
manns. Eftir þetta áttum við eftir að
fara margar ferðir með Svenna, inn-
anlands og utan. Flestar urðu þá
ferðirnar til Grand Kanarí.
Lórý var alltaf boðin og búin til að
aðstoða hópinn sinn og reyndar
miklu fleiri. Ófáar ferðir átti hún með
sitt fólk og miklu fleiri á einkarekna
heilsugæslustöð á Grand Kanarí. Það
er algengt að ýmsir kvillar koma upp
í slíkum ferðum. Lórý var einstak-
lega lagið og ljúft að aðstoða sam-
ferðamenn sína, fyrir það verður
henni aldrei fullþakkað. En lengst
verður Lórýjar minnst fyrir störf
hennar í Púttklúbbi Suðurnesja. Þar
var hún sálin og driffjöðrin nánast frá
upphafi. Þótt hún væri ekki alltaf for-
maður klúbbsins þá var hún sú sem
dreif starfið áfram. Í þessum klúbbi
eru um eitt hundrað meðlimir og alla
virka daga mæta 30 til 40 manns til að
pútta og spjalla. Mót eru yfirleitt
tvisvar í mánuði, í þau mæta gjarnan
um fimmtíu manns. Lórý hefur öllum
öðrum fremur staðið í því að afla
verðlauna til að veita fyrir árangur í
þessum mótum. PS hefur verið for-
dæmi fyrir stofnun margra pútt-
klúbba hér á suðvesturhorninu.
Við vorum á Tenerife í október-
mánuði er Lórý veiktist og var lögð
inn á spítala. Við heimsóttum hana á
spítalann og vorum svo lánsöm að
koma til hennar líklega síðasta sæmi-
lega daginn sem hún átti. Hún var á
fjögurra manna stofu þar sem fólk
stoppaði stutt, einn og tvo daga. Hún
lýsti þessum herbergisfélögum fyrir
okkur, þar á meðal voru danskar og
enskar konur og ein frá Nígeríu, sem
henni þótti allfurðuleg. Einhverju
sambandi náði hún við þær flestar.
Fyrst og fremst ræddi Lórý þó um
púttklúbbinn, hún hafði áhyggjur af
því hvort búið væri að afla verðlauna
fyrir næsta púttmót. Daginn eftir var
Lórý flutt á gjörgæslu og eftir það
var ekki kostur að heimsækja hana.
Sigurður eiginmaður hennar og dæt-
ur þeirra, sem komu í skyndi, máttu
heimsækja hana tvisvar á dag.
Það er sárt að sjá eftir slíkri gæða-
manneskju, að okkur finnst á góðum
aldri. Mikill er missir Sigga og allrar
fjölskyldunnar þeirra. Um leið og við
þökkum fyrir einstök og góð kynni
vottum við Sigga og allri fjölskyldu
þeirra innilega samúð okkar. Biðjum
góðan Guð að styrkja þau og styðja í
þessu mótlæti.
Ólafur og Hrefna.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2007 39
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Minningargreinar
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs föður, tengda-
föður, afa og langafa,
KARLS JÓHANNS GUNNARSSONAR,
Fannborg 8,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Þórður Karlsson, Þórsteina Pálsdóttir,
Jón Ólafur Karlsson, Elísabet Sigurðardóttir,
Gunnar Már Karlsson, Matthildur Jónsdóttir,
Ása Kristbjörg Karlsdóttir, Þröstur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURÐUR PÉTUR BJÖRNSSON,
Silli á Húsavík,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 24. nóvember kl. 14.00.
Arnviður Ævarr Björnsson,
Einar Örn Björnsson, Laufey Bjarnadóttir,
Hulda Björnsdóttir,
systkinabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
RAGNHEIÐUR INGIBJÖRG ÁSMUNDSDÓTTIR,
Bröttugötu 4 b,
Borgarnesi,
andaðist miðvikudaginn 21. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ásmundur Jóhannsson, Rúna Didriksen,
Jóhannes Gylfi Jóhannsson, Ása Guðmundsdóttir,
Björn Jóhannsson, Sæunn Jónsdóttir,
Jóhann Már Jóhannsson, Guðrún Sigurbentsdóttir,
Gísli Margeir Jóhannsson,
Tryggvi Jóhannsson, Sesselja Björnsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.