Morgunblaðið - 03.12.2007, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 03.12.2007, Qupperneq 26
26 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR                          ✝ Helena MarthaOttósdóttir fæddist í Pirna í Saxlandi í austur- hluta Þýskalands 14. september 1923. Hún lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi 22. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Karl Otto Hec- kel járnbraut- arstarfsmaður, f. 1.7. 1887, d. 12.5. 1945, og Martha Anna kona hans, húsmóðir, f. 14.5. 1898, d. 9.11. 1953. Systir Helenu er Hildegard Langwost, fædd Heckel í Pirna 4.6. 1929. Helena lauk verslunarskólaprófi í Pirna 1940 og starfaði í nokkur ár á skrifstofu flutningafyrirtækis þar í borg. Helenu tókst að komast til Eutin í Norður-Þýskalandi 1946, skömmu áður en ferðafrelsi var heft milli hernámssvæða. Árið 1947 giftist hún Horst Hülsdunk bifreiðarstjóra. Þau bjuggu í Eut- in þar til þau komu til Íslands með Esjunni í júní 1949 á vegum Bún- aðarfélags Íslands og réðu sig til landbúnaðarstarfa í Húnavatns- sýslum. Dóttir þeirra er Sólveig, f. 20.2. 1950, gift Hans Kristjáni sambýliskona Sólveig Guðmunds- dóttir. Börn Sigurðar eru a) Anný Mjöll, f. 24.10. 1992 (móðir hennar er Aldís Hreinsdóttir), og b) Garð- ar Rafn, f. 28.11. 1999. Stjúpdóttir Sigurðar er Sóley Guðmunds- dóttir, dóttir Sólveigar. Helena lauk prófi frá Ljós- mæðraskóla Íslands 1959, en hafði þegar verið ráðin héraðsljósmóðir á Skagaströnd er hún hélt til náms. Hún starfaði sem héraðs- ljósmóðir á Skagaströnd, og síðar á Blönduósi, 1958-1972. Á þessu tímabili leysti Helena af í rúmt ár sem ljósmóðir við Fjórðungs- sjúkrahúsið á Neskaupstað, og síðar einnig á Blönduósi á tíma- bilinu 1975-1979. Árið 1972 fór hún í Nýja hjúkrunarskólann og útskrifaðist 1974. Helena starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Hér- aðshælinu á Blönduósi 1975-1985, en á starfstíma sínum þar leysti hún af nokkrum sinnum sem hjúkrunarforstjóri og stóð enn- fremur fyrir skurðstofu. Hún starfaði síðar sem hjúkrunarfræð- ingur á heilsuhæli NLFÍ í Hvera- gerði 1985-1986 og loks á Hrafn- istu í Reykjavík 1986-1990, þar til hún hætti störfum fyrir aldurs sakir. Eftir lát Georgs flutti Helena aftur til Blönduóss og bjó þar til dauðadags. Útför Helenu verður gerð frá Blönduóskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 14. Guðmundssyni, son- ur þeirra er Gunnar Ólafur, f. 8.9. 1969, kvæntur Suzanne Gessner. Dætur Gunnars eru El- ísabet, f. 9.1. 1992 (móðir hennar er Ás- dís Þórhallsdóttir), og Yrsa Kristín Ella, f. 14.1. 2005. Helena og Horst skildu. Þann 17.11. 1956 giftist Helena Georg Rafni Hjartarsyni, múrara frá Skaga- strönd, f. 27.5. 1923, d. 13.9. 2001. Foreldrar Georgs voru Hjörtur Jónas Klemensson formaður, f. 15.2. 1887, d. 6.2. 1965, og Ásta Þórunn Sveinsdóttir húsfreyja, f. 21.7. 1891, d. 30.12. 1960. Georg gekk Sólveigu dóttur Helenu í föð- urstað og ættleiddi hana. Helena og Georg eignuðust saman þrjú börn, þau eru: 1) Ásta Hjördís, f. 12.6. 1957, sambýlismaður Ing- ólfur Birgisson. Börn hennar eru a) Egill Eydal, f. 7.10. 1984, og b) Aron Kári, f. 20.2. 1990. 2) Georg Ottó, f. 30.3. 1962, sambýliskona Linda Velander. Börn þeirra eru a) Mikaela Helena, f. 18.3. 1995, og b) Mark Örn, f. 20.7. 1999. 3) Sigurður Arinbjörn, f. 2.5. 1964, Það var óvænt að mamma mín kvaddi okkur 22. nóvember, enda þótt hún hefði átt við erfið veikindi að stríða um árabil. Hún var ein af þeim fjölmörgu sem flúðu örbirgð og atvinnuleysi í Þýskalandi eft- irstríðsáranna og fóru til Íslands á vegum Búnaðarfélagsins í leit að betra lífi. Mamma var fyrst um sinn vinnukona í Húnavatns- sýslum, hún starfaði þar lengst af og þar vildi hún enda ævina. Hún bjó á Blönduósi síðustu árin og naut samvista við góða nágranna á Flúðabakkanum. Við vorum tvær einar fyrstu árin sem ég man eftir mér, þá var mamma farin að vinna í Reykjavík. Á sumrin fórum við stundum að Leysingjastöðum þar sem mamma fór í heyskap. Þar kynntist hún Georg sem seinna varð pabbi minn. Mömmu langaði frá unga aldri að læra ljósmóðurfræði, en það gat ekkert orðið af náminu því náms- gjöldin voru allt of há. Með miklu harðfylgi tókst henni að láta þenn- an draum verða að veruleika mörg- um árum síðar. En starfið sem hér- aðsljósmóðir á Skagaströnd fól í sér stöðuga bakvakt því hún þurfti að sinna öllu mögulegu sem við kom heilbrigði fólks. Alltaf gat ein- hver komið fyrirvaralaust sem þurfti að láta fjarlægja öngul úr fingri eða járnsvarf úr auga. Mamma barðist áfram alla ævi í leit að því sem hún trúði að gæfi betra líf. Hún greip tækifærið þeg- ar boðið var upp á hjúkrunarnám fyrir starfandi ljósmæður. Hún las öll ósköp, kynnti sér lífræna rækt- un, lærði að knippla og í fyrra sagðist hún vera orðin leið á að sitja bara og lesa. Hún fékk sér tölvu og fylgdist síðan með fréttum utan úr heimi á netinu og gladdist yfir tölvupósti. Íslenski veturinn fór alltaf illa í mömmu. Á efri árum dvaldi hún í Eutin frá febrúar fram í maí með- an heilsan leyfði. Mamma átti lengi erfitt með að ræða fortíðina og reynslu sína, einkum stríðsárin í Þýskalandi og árin strax þar á eftir. Mér er minn- isstæð þriggja ættliða ferð um fjöl- skylduslóðir mömmu, sem við fór- um sumarið 1989. Mamma steinþagði meðan á vegabréfaskoð- un stóð við austur-þýsku landa- mærin, af ótta við að það heyrðist að hún væri þýsk og að landa- mæraverðirnir færu að spyrja óþægilegra spurninga. Þetta var ekki lengur áhyggju- efni síðustu skiptin sem mamma fór austur til Pirna. Ógleymanlegt er þegar hún bauð okkur öllum systkinunum þangað fyrir tveimur árum. Við þræddum steinlagðar göturnar með hjólastólinn hennar, hún sýndi okkur gamla skólann sinn, hvar afi og amma ræktuðu grænmeti og hvar langamma okkar hafði búið. Við gistum í húsinu sem fjölskyldan bjó í á stríðsárunum. Mamma sat oft á bekk og naut þess að horfa á garðinn sem var í blóma. Húsið stendur við Maríu- kirkjuna, þar sem mamma var bæði skírð og fermd. Síðustu ferðina til Eutin fór mamma í júní í fyrra. Hún mátti til að komast einu sinni enn í uppá- haldsbókabúðina sína. Það er ein- kennilegt að hugsa til þess að við mamma eigum aldrei meir eftir að sitja á torginu í Eutin og drekka kaffi eða að gleðjast saman yfir hve gamli miðbærinn í Pirna er orðinn fallegur. Ég kveð elsku mömmu mína, þakklát fyrir allt sem hún hefur gefið mér. Sólveig. Elsku mamma. Kallið er komið, komin er nú stundin. Ég kveð þig nú í sárum söknuði. Þó að við systkinin vissum að það gæti komið að því að þú kveddir okkur brátt, kom það okkur samt á óvart þegar hringt var og okkur tilkynnt að það væri orðið tvísýnt um þig. Það var sárt fyrir okkur Ottó að ná ekki til þín í tæka tíð áður en þú sofnaðir svefninum langa. En samtímis gleðjumst við yfir því að þú varst ekki ein og Sól- veig og Sigurður náðu að komast til þín, ásamt Hans, og halda utan um þig er þú kvaddir þennan heim sátt við þitt. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Fyrstu árin á Skagaströnd ein- kenndust af harðri baráttu við fá- tækt og mótlæti. Ekki var alltaf auðvelt að vera þýskur innflytjandi á þessum árum, en þú mættir því með æðruleysi og jafnaðargeði og í vegarnesti gafstu okkur krökkun- um sanngirni og sterka réttlæt- iskennd. Þú varst ströng við okkur og fylgdir því eftir að við gerðum eins og þú bauðst. Matartímar og háttatímar voru fastir og ekkert þýddi að sífra um það. Þú sagðir alltaf að föst regla í uppeldi væri mikilvæg svo maður lenti ekki í óreglu og vitleysu síðar á lífsleið- inni. Við vorum snemma látin hjálpa til. Strákarnir fengu líka sinn skammt af jafnréttissjónar- miðum og voru látnir taka þátt í að vaska upp eða taka til og þrífa. Þegar fátækt og auraleysi hrjáði ykkur pabba drýgðir þú tekjurnar með því að sauma sjálf fötin á okk- ur krakkana, oft upp úr eldri föt- um. Fyrir jólin bjóstu til heimsins besta jólasælgæti, ljúffengt mar- sípan úr kartöflum. Þá kom sér vel sú reynsla sem þú fékkst á erfiðum tímum stríðsáranna. Þegar þið pabbi byggðuð húsið okkar á Odda- götu hannaðir þú nýtískustofuljós úr þvolbrúsum sem þú skarst botn- inn úr. Síðan lágu leiðir inn á Blönduós. Við fluttum nokkrum sinnum á milli leiguíbúða sem voru í misgóðu ástandi, en þó barst þú alltaf höf- uðið hátt og gerðir þitt besta og hélst ótrauð áfram að berjast fyrir aðbúnaði okkar. Þér var alltaf um- hugað um framtíð okkar allra og þegar þú ákvaðst að fara í fram- haldsnám í hjúkrunarfræðum leist þú á það sem tryggingu fyrir af- komu fjölskyldunnar, með föst laun í stað stopulla tekna sem héraðs- ljósmóðir. Ég var svo stolt af þér, að hafa dug, kjark og þor til að fara í nám komin fast að fimmtugu. En árin liðu og við ungarnir flugum úr hreiðrinu, hver í sína áttina. Seinna er þið pabbi fluttuð til Reykjavíkur var það mér ómet- anlegt að geta komið með litlu kút- ana mína á Langholtsveginn í pöss- un til ömmu og afa. En efst í huga mér nú er ég lít til baka er þó ferðin sem þú bauðst okkur systkinunum í til þinna heimaslóða í Þýskalandi sumarið 2005. Þrátt fyrir að þú ættir orðið erf- itt með allar hreyfingar sökum MND-sjúkdómsins sem hrjáði þig stóðst þú þig eins og hetja. Það var bara að taka með hjólastólinn þinn og þá voru þér allir vegir færir. Þú fórst með okkur um þínar æsku- stöðvar og sýndir okkur og sagðir frá. Þessi ferð mun verða mér ógleymanleg og dýrmæt í minning- unni um þig elsku mamma mín. Hafðu þökk fyrir allt. Blessuð sé minning þín. Þín, Ásta. Eftir áralanga baráttu við illvíg- an sjúkdóm, MND, kvaddi Helena okkur í friði og ró eftir stutta legu á Heilbrigðisstofnun Blönduóss. Lífsferill hennar var einstakur þar sem skiptust á skin og skúrir, erf- iði og ánægja, vonbrigði og við- urkenning. Það eru rúm 40 ár síð- an við hittumst fyrst þegar við Sólveig vorum í tilhugalífinu á Blönduósi. Vegna langra dvala okkar erlendis hittumst við Helena ekki oft framan af en þegar leið að lokum ævistarfs og hún gaf sér tíma til að sinna áhugamálum sín- um áttum við margar ánægju- stundir á meginlandinu, þar sem hún leiddi okkur á heimaslóðir sín- ar og brá upp myndum af Þýska- landi stríðsins og eftirstríðsáranna. Hún var kjarnorkukona, sjálf- stæð, einbeitt og hiklaus við að láta æskudrauma sína um menntun og starf rætast. Fróðleiksþorsti og þekkingarleit veitti kraft sem fleytti henni í gegnum erfiðan öldugang lífsins. Það er til marks upp kjark hennar að fyrir rúmu ári fékk hún sér fartölvu og tengdi sig vefnum. Eftir það fengum við stöð- ugt fréttir og fróðleik úr Spiegel og fleiri fréttaritum á vefnum. Helena var ein þessara Íslend- inga sem eiga uppruna á erlendri grund og auðga íslenska menningu og samfélag. Hún kom til Íslands 1949 í stærsta hópi erlends vinnu- afls sem við höfum sótt til starfa, að miklum meirihluta konur. Hel- ena fór til starfa í sveitum Hún- vetninga áður en hún fór til Reykjavíkur. Hún mætti þar mis- jöfnu viðmóti eins og margar þess- ara þýsku kvenna en hún minntist oft með mikilli hlýju dvalar sinnar á Leysingjastöðum hjá Oktavíu og Halldóri, en þar kynntist hún seinni manni sínum, Georg Hjart- arsyni. Eftir að hafa upplifað hörmung- ar stríðsins, misst föður sinn á fyrstu dögum friðarins, flúið hörm- ungarnar til vesturs og upplifað þrengingar, hungur og atvinnu- leysi eftirstríðsáranna, var vinnuá- lagið í landbúnaðarstörfum Hún- vetninga eflaust ekki það erfiðasta og hún talaði oft um hvað var gott að borða á Íslandi þar sem hún meðal annars smakkaði rjóma í fyrsta sinn. Það er til marks um kraft Helenu að hún tók sig upp frá ungum börnum og heimili og lærði til ljósmóður og síðar hjúkr- un. Af þeim frásögnum sem lifa í samfélaginu á Blönduósi, Skaga- strönd og byggðunum í kring átti hún farsælan feril og sængurkonur hafa sagt okkur hve traust og örugg hún var í starfi. Á síðari árum sótti hún til rót- anna á meginlandinu og þreyði þorrann og góuna í Þýskalandi þegar skammdegið og kuldinn urðu henni þungbær. Langt er þó síðan hún gerði upp við sig að Þýskaland væri ekki lengur heima, heldur Ís- land, þar sem hún vildi eldast og að lokum hvíla við hlið Georgs undir Borginni við Skagaströnd. Síðustu árin bjó hún á Blönduósi sem var hennar samastaður og starfsum- hverfi, þar átti hún vini og þar lauk hún ævinni í tryggri umönnun starfsfólks sjúkrahússins. Andlátið var friðsæll endir á einstefnuferli erfiðs sjúkdóms að lokinni marg- brotinni en farsælli ævi. Það voru forréttindi að fá að kynnast henni. Innileg samúð til ykkar allra, elsku Sólveig, Ásta, Ottó og Sigurður. Minning hennar lifir með okkur. Hans. Helena Ottósdóttir er látin og stórbrotin lífssaga þar með á enda. Helena var eiginkona Georgs föð- urbróður míns og góður vinur minn. Þegar ég kom í heimsókn til hennar sagði hún mér frá ýmsu sem á daga hennar hafði drifið. Og við það fékk ég sífellt meiri skiln- ing á henni sem manneskju. Og mér varð það fljótlega ljóst að það hefðu býsna margir fallið á þeim reynsluprófum sem hún hafði þurft að taka í lífinu. Hingað til Íslands kom hún eftir stríðið í hópi landa sinna sem leit- uðu eftir atvinnu og viðunandi lífs- skilyrðum. Þá kunni hún ekki neitt í íslensku og hafði ekki á annað að treysta en eigin hæfni til varnar og viðgangs. En sú hæfni var ekki af skornum skammti. Helena var skynsöm í besta máta, viljasterk og ákveðin og harðdugleg til verka. Þær eig- indir hennar komu sér vel og voru henni veganesti til sóknar og sigra í lífinu. Svo kom að því að vegir hennar og Georgs frænda míns lágu sam- an. Það leiddi til þess að þau áttu síðan samleið í lífinu uns hann lést fyrir 6 árum. Þar varð tryggðin sterk á báða bóga þó bæði væru stór til lundar og gæti gustað af þeim báðum ef svo bar undir. En væntumþykjan var söm fyrir því og þar biluðu aldrei þeir strengir sem mestu máli skipta í samskipt- um hjóna. Helena hafði snemma mikla löngun til að fræðast og læra eitt- hvað og varð það til þess að hún hóf að nema ljósmóðurfræði og síð- ar meir varð hún hjúkrunarfræð- ingur. Hún var síðasta yfirsetukon- an sem starfaði á Skagaströnd en þar þjónaði hún sem ljósmóðir 1959-1966. Á þessum árum fæddu konur yfirleitt heima og var því starfsábyrgð ljósmóðurinnar mikil og ekki fyrir neina aukvisa að sinna slíkri stöðu. En Helena var í hvívetna þeim vanda vaxin. Í starfi sínu sem ljósmóðir vann hún mörg afreksverk við erfiðar fæðingar og víst er að stundum skipti framganga hennar sköpum um líf og dauða. Ein ágæt móðir sagði það í mín eyru, að Helena hefði bjargað lífi dóttur hennar þegar hún fæddist. "Mér þykir svo vænt um Helenu, hún á lífið í telp- unni," sagði þessi kona með tárin í augunum. Það er ekki lítið að fá slíkan vitnisburð. Síðustu æviárin átti Helena við ólæknandi sjúkdóm að stríða og hún glímdi við hann með vökulum huga. Það var aldrei nein uppgjöf til í hennar orðabók og hún kynnti sér því strax það sem um þennan sjúkdóm var vitað og gerði sér fulla grein fyrir þeirri baráttu sem hún stóð frammi fyrir. Og svo sannarlega háði hún þá baráttu með reisn til hinstu stundar. Í byrjun nóvember talaði ég síð- ast við hana í síma og þá sagði hún mér að hún fyndi að það færi að styttast í þessu hjá sér. Og glögg- skyggni hennar varðandi það brást ekki. Ég sakna þess að geta ekki leng- ur spjallað við hana um mannlífið fyrr og nú, um allt það sem þokar mannsandanum upp á við. Helena var mikilhæf manneskja, trölltrygg þeim sem hún batt vinabönd við, heilsteypt og þroskuð í viðhorfum sínum til lífsins. Eftirlifandi ástvinum Helenar færi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur vegna andláts hennar og bið þeim blessunar. Rúnar Kristjánsson. Meira: www.mbl.is/minningar Helena Ottósdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.