Morgunblaðið - 03.12.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 03.12.2007, Blaðsíða 29
SAMFOK, samband foreldra- félaga og foreldraráða í grunn- skólum Reykjavíkur hefur ákveðið að bjóða foreldrum grunnskólabarna til fundar þriðjudaginn 4. desember. Fundurinn verður haldinn í Vogaskóla við Ferjuvog, geng- ið inn frá Skeiðarvogi, og hefst hann kl. 20. Í fréttatilkynningu segir að undanfarnar vikur hafi komið fram í fjölmiðlum að sett hafi verið upp endurvarpsloftnet fyrir gsm-síma á þökum nokk- urra grunnskóla í Reykjavík. Vaknað hafa spurningar um áhrif slíks búnaðar á heilsu barnanna og verður leitað svara við þeim á fundinum. Síðara efni fundarins verður ,,Ókeypis grunnskóli – hvað þýðir það?“ Menntamálaráðu- neytið hefur ítrekað að grunn- skólinn á, skv. lögum, að vera foreldrum og nemendum að kostnaðarlausu en þetta hefur ennfremur vakið upp margar spurningar. Hvar og hver eru mörkin? Verður að leggja af allar vettvangsferðir? Er bann- að að borga? Má rukka og þá fyrir hvað? Hvað um frjáls framlög – má safna? Hvað um umbunarkerfi þeirra skóla sem senda reikninginn til foreldra? Hvernig hefur Reykjavík- urborg brugðist við þessari þróun? Stutt framsöguerindi verða en áhersla lögð á að foreldrar hafi gott tækifæri til að spyrja og fræðast um þessi málefni, segir í fréttatilkynningu. Fund- urinn er opinn öllum foreldrum grunnskólabarna í Reykjavík en staðfesta þarf þátttöku á samfok@samfok.is eða í síma 562-7720. Ræða ókeypis grunnskóla og geislun í umhverfi FJÓRIR nemendur, sem út- skrifast hafa úr eðlis- og efna- fræðiskorum raunvís- indadeildar Háskóla Íslands, hljóta verðlaun úr Verðlauna- sjóði Guðmundar P. Bjarna- sonar af Akranesi í ár. Verð- launin eru veitt fyrir framúrskarandi námsárangur árin 2006 og 2007. Verðlaunahafarnir eru Óm- ar Valsson, sem hlýtur við- urkenningu fyrir framúrskar- andi árangur í eðlisfræði árið 2006, og Elfa Ásdís Ólafsdóttir fyrir framúrskarandi náms- árangur í lífefnafræði árið 2007. Þeir Sigurður Ægir Jónsson og Gunnar Sigurðsson fá viðurkenningu fyrir af- burðaárangur í eðlisfræði árið 2007. Allir verðlaunahafarnir hafa hlotið háa fyrstu einkunn í BS-námi í eðlis- og efnafræði við Háskóla Íslands. Samtals nemur verðlaunaféð 1.700 þús- und krónum, en hver nemandi fær viðurkenningu að upphæð 400 eða 500 þúsund krónur Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands var Verð- launasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi stofnaður árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar, sem fæddist á Sýruparti á Akranesi 1909 og bjó um ára- bil á Höfða, dvalarheimili aldr- aðra á Akranesi og lést í febr- úarmánuði 2006. Tilgangur sjóðsins er að verðlauna efni- lega útskriftarnemendur í eðl- isfræði og efnafræði við Há- skóla Íslands. Guðmundur átti þess ekki kost að stunda há- skólanám en starfaði sem neta- gerðamaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður sinn. Guðmundur var einn af stofn- endum Knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness árið 1933. Guð- mundur hefur einnig stofnað sjóði til stuðnings við efnilega nemendur úr Brekkubæj- arskóla, Grundaskóla og Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Morgunblaðið/G.Rúnar Stolt Guðmundur G. Haraldsson, formaður sjóðsstjórnar (lengst t.h.), og Birgir Örn Arnarson, fulltrúi KB banka (lengst t.v.), ásamt verðlaunahöfum eða fulltrúum þeirra. Anna Kristín Gunnars- dóttir, móðir Gunnars Sigurðssonar, Elfa Ásdís Ólafsdóttir, Ómar Valsson, Sigurður Ægir Jónsson og Hafliði Pétur Gíslason. Afburðanemendur verðlaunaðir Verðlaun í eðlisfræði og efnafræði úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar ALÞJÓÐLEG hreysti- og vaxtarrækt- arkeppni var haldin í Búdapest í gær. Ljósmyndari þar í borg smellti þessari un og olíuáburði og nokkuð ljóst að ófáar stundir liggja að baki í líkams- ræktarstöðvum. mynd af keppendum í kvennaflokki skömmu fyrir keppni. Eins og sjá má var ekkert til sparað í brúnkuspraut- Bronslitaðar stálkonur MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 29 tár kl. 13.30, línudanskennsla kl. 18, samkvæm- isdans byrjendur kl. 19. og framhald kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leið- beinandi verður til hádegis. Botsía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og 13, lomber kl. 13, can- asta kl. 13.15, kóræfing kl. 17. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9,45 og 10.30, Garðabæj- armót í botsía kl. 8.30 í Ásgarði, málun kl. 10 og 13, glerskurðarhópur kl. 13, gönguhópur frá Jónshúsi, framhaldsnámskeið í bridds í Jónshúsi kl. 13, miðar á jólagleði seldir kl. 10-16. Hraunbær 105 | Handavinna og útskurður kl. 9, bænastund kl. 10, matur kl. 12, myndlist kl. 13, kaffi kl. 15. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, ganga kl. 10, hand- mennt – gler kl. 10-16, Gaflarakórinn kl. 10.30, fé- lagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, kertaskreytingar, handstúkuprjón o.fl. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Hádegisverður kl. 11.30. Frjáls spilamennska kl. 13-16. Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu kl. 9.30- 11.30 Uppl. í síma 554-2780. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30. Leshópur FEBK Gullsmára | Íslenzka stakan og ís- lenzk fyndni verða í öndvegi 5. desember. Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur, Ólafur G. Ein- arsson, fv. forseti Alþingis, og Steingrímur J. Sig- fússon, formaður VG, leiða. Enginn aðgangseyrir. Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin, vinnustofa í handmennt er opin kl. 9-16. Botsía Sjálfsbjörg | Bridds kl. 19, í félagsheimili Sjálfs- bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík | Jólafundur verður 6. desember á Grand hóteli við Sigtún kl. 20. Kaffihlaðborð, leiksýning, o.fl., munið jólapakk- ana. Verð 2.000 kr Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16, handavinna kl. 9.15-15.30, botsía kl. 9, leikfimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.45, kóræfing kl. 13 og kaffi kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Aðventu- og jólafagn- aður verður 6. desember kl. 18. Fagnaðurinn hefst með jólahlaðborði, síðan verður skemmtiatriði, söngur, dans, upplestur o.fl. Skráning og allar uppl. í síma 411-9450. Kirkjustarf Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með bænastund / morgunsöng á Dalbraut 27, kl. 9.30. Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára í Grafarvogs- kirkju og Húsaskóla kl. 17-18. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk í Grafarvogskirkju kl. 20. Laugarneskirkja | Jólafundur Kvenfélags Laug- arneskirkju kl. 20. dagbók Í dag er mánudagur 3. desember, 337. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. (I. Kor. 12, 4.) FRÉTTIR Hinn 6. desember næstkom-andi verður haldið fyrstakvöldnámskeið Ostabúð-arinnar á Bitruhálsi. Yf- irskrift námskeiðsins er Freyðivín og framandi fingrafæði og fá gestir að smakka á vínum, ostum og öðru góð- gæti um leið og sérfræðingar fræða þá um eiginleika, sögu og framleiðslu matvælanna. Eirný Ósk Sigurðardóttir er um- sjónarmaður Ostabúðarinnar og einn af kennurum námskeiðsins: „Ef næg þátttaka fæst standa vonir til að haldin verði námskeið af þessu tagi á sex vikna fresti, en námskeiðin eru haldin í samvinnu við valda víninn- flytjendur,“ segir Eirný. Hátíðarsnarl fyrir gamlárskvöld Þema fyrsta námskeiðsins verður fingrafæði sem fer vel með kampa- víni: „Á gamlárskvöld er við hæfi að skála í kampavíni eða freyðivíni, en oft er snúið að finna snarl sem pass- ar vel við slík vín,“ segir Eirný. „En með réttri leiðsögn má finna hið full- komna meðlæti, og lauma t.d. Frakk- ar á mörgum afbragðsostum, eins og Brillat-Savarin, sem fer einstaklega vel með kampavíni og kirsuberjum.“ Á léttu nótunum Eirný segir námskeiðið eiga að vera bæði fræðandi og skemmtilegt: „Tekið verður á móti nemendum með kampavínsglasi og sérvöldu smakki. Farið verður yfir hvernig útbúa má á einfaldan hátt smárétti sem slá í gegn, og því næst ætlar Sigurður Bjarkason frá Mekka að fjalla um valin freyðivín,“ segir Eirný. „Þátt- takendur fá svo tækifæri til að skrafa saman og skiptast á skoð- unum en ráðgert er að námskeiðið verði í heildina tvær klukkustundir að lengd.“ Örfá pláss laus Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í námskeiðinu, og fást nánari upplýs- ingar hjá Ostabúðinni í síma 569 1651. Þátttökugjaldi er stillt mjög í hóf: „Fá laus pláss eru eftir á námskeiðinu, en fyrir þá sem ekki komast að þann 6. desember von- umst við til að halda styttri kynn- ingu 28. desember,“ segir Eirný að lokum. Heimasíða Ostabúðarinnar á Bitruhálsi er á slóðinni www.ostar.is. Matur | Námskeið 6. og 28. desember um úrvalsfingrafæði og vín Freyðivín og freistingar  Eirný Ósk Sig- urðardóttir fæddist í Reykjavík 1973. Hún lauk BA-gráðu í hótelstjórnun frá Queen Margaret College, framhalds- gráðu í viðskiptum frá Napier Univers- ity og MSC-gráðu frá Chartered Institute of Marketing. Eirný starfrækti veisluþjónustu um langt skeið, eigin krá og kenndi um langt skeið við Edinburgh School of Food and Wine. Hún hóf störf hjá Osta- búðinni 2007. Fyrirlestrar og fundir Geðhjálp | Túngötu 7. Kvíðahópur Geðhjálpar kemur saman kl. 19.30-21. Allir sem eiga við viðhlítandi vandamál að stríða eru velkomnir. Kaffi Kúltúr | Mansal á Íslandi, erindi og umræður kl. 12, á vegum Alþjóðahúss og Kvenréttindafélagsins. Fréttir og tilkynningar AA-samtökin | Neyðarsími AA-samtakanna er 895-1050. Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, við- talstími hjúkrunarfræðings kl. 9-11. Viðtalstími hjúkrunarfræðings, botsía kl. 10, hádegismatur kl. 12, félagsvist kl. 14, kaffi kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, morg- unkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, búta- saumur, kaffi. Aðventuskemmtun verður 7. des. kl. 17. Söngur, gamanmál, jólasaga, hátíðarkór. Jóla- hlaðborð frá Lárusi Loftssyni. Miðaverð 3.500 kr. Skráning í s. 535-2760 f. 5. des. Félag eldri borgara í Kópavogi | Jólatvímenningur kl. 13 í Gullsmára. Fimm spiladagar. Konfektverð- laun. Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist í Gull- smára á mánudögum kl. 20.30, í Gjábakka á mið- vikudögum kl. 13 og föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Bridds kl. 13, kaffi-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.