Morgunblaðið - 03.12.2007, Side 32
... meðan hann rak út
úr sér tunguna og
starði tryllingslega á við-
stadda … 36
»
reykjavíkreykjavík
N
ú er dagur eitt í komast-í-
kjólinn-fyrir-jólin-átakinu sem
lýkur með hátíðlegri athöfn á
Þorláksmessu; þ.e. í skötu-
veislu Sægreifans hér niðri við
Reykjavíkurhöfn. Herþjálfunin í Baðhúsinu
er tekin föstum flugutökum á hverjum
morgni og að henni lokinni er lýsis-sport-
þrennunni sporðrennt ofan í sveittan skrokk-
inn með hálfum lítra af norskum birkisafa,
blönduðum vatni. En þótt líkaminn sé bók-
staflega í hers höndum er andinn frjáls sem
fyrr … og hann þarf líka að næra með hæfi-
legu félagslífi og barhoppi. Í þeim tilgangi var
litið inn á Boston við Laugaveg, á hæðinni
fyrir ofan Rokk&Rósir, en það er eitt nýjasta
hreiður fallega og fræga fólksins. Nokk
,,stælí“ staður enda á myndlistarkonan Gabrí-
ela Friðriksdóttir heiðurinn af hönnun bar-
borðsins, gildar gylltar súlur eru á víð og
dreif um salinn og hippalegt – en þó elegant
kögur blaktir í gluggunum. Það langbesta við
Boston er samt baðherbergið sem er eins og
nautnalegur draumur, í eins konar gotneskum
barokkstíl. Pottþétt eftirlíking af klósettinu
heima hjá leikstjóranum og myrkhuganum
Tim Burton. Á heimfluginu tók fluga eftir að
víðs vegar um borgina húktu skjálfandi en
söngglaðir reykingamenn í litlum hópum,
hálfdapurt að sjá spariklæddar sprundir
norpa í andstyggilegri norðanáttinni fyrir ut-
an skemmtistaðina. Og á gangstéttinni fyrir
utan Café Victor sat þungbrýnn dyravörður
ofan á meðvitundarlausum manni, sem líklega
hafði tekið jólahlaðborðsgleðinni af aðeins of
miklum ákafa.
En þótt fluga hugi vel að heilsu sinni er
henni verulega í nöp við njólaétandi, indíána-
tjaldssvett grænmetisætur og þeirra soja
latte heimspeki. Og einmitt þess vegna fór
hún og lét setja tattú á mjóbakið á sér, nú
rétt fyrir helgi:
Síðhærði, ameríski tattúmeistarinn frá
New Orleans: ,,Ég vanda mjög til verka. Hef
til dæmis bara notað þessa nál 9 sinnum.“
Við Blíðhildur vinkona horfumst skelfdar í
augu. Tattúmeistarinn: ,,Nálin er enn volg, ég
var að klára að tattúa útlifaðan handrukkara
úr Keflavík.“
,,Verður þetta sárt?“
Dúndrandi rokkmúsík blastar úr tæki í
glugganum. Ameríkaninn byrjar verkið. Með
tilheyrandi hávaða og sprittlykt. Hættir
skyndilega og spyr umhyggjusamlega: ,,Líður
þér illa?“
,,Það er að líða yfir mig.“
,,OK. Þá sendum við vinkonu þína út í búð
að kaupa súkkulaði, bíðum róleg á meðan.“
Fluga æðir yfir í verslunina Vínberið við
hliðina á Litlu hryllingsbúðinni, kaupir upp
lagerinn af belgísku konfekti, ryðst framhjá
leðurklæddum tattúkörlum á tröppunum og
treður súkkulaðinu upp í Blíðhildi sem liggur
á magnum í aftökustólnum.
Hún hressist.
Og tattúið … það er snilldarverk.
Kári Kristinn Bjarnason, Sesselía
Auður Eyjólfsdóttir og Pétur Ágústsson.
Árni Þorvaldsson og Eiríkur Smith.
Svava Sigurjónsdóttir og Elín Pálmadóttir.
Björgólfur Guðmundsson og Hafþór
Yngvason virtu myndlistina fyrir sér.
Knútur Bruun og Sigríður Jóhannsdóttir.
Morgunblaðið/ Jón Svavarsson
Alma Hrönn Ágústsdóttir og
Rakel Unnur Thorlacius.
Skúli Sigvaldason Svanhildur
Einarsdóttir og Þórarinn Ólafsson.
Heimir Pétursson, Hafþór Valur Guðjónsson,
Vilmar Sævarsson og Andri Valsson.
Víkingur Hjartarson, Hjörtur Helgason
og Elín Ólafsdóttir.
Karen Grétarsdóttir og Guðmundur
„Gúndi“ Þorsteinsson.
Flugan
… Skjálfandi og söng-
glaðir reykingamenn …
… Tattútilraunir og soja latte
heimspeki …
Kolbrún Oddsdóttir og Ingibjörg Gunnlaugs-
dóttir voru kátar á Korpúlfsstöðum.
Jóhanna Gylfadóttir, Halla Ólafsdóttir
og Lilja jónsdóttir
Ólöf Björk Þorleifsdóttir og
Helga Steinunn Guðmundsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Þórunn Kristinsdótttir og sýningarstjórinn
Elli, Erlingur Jón Valgarðsson.
»Rokkið lamdi hlustir gestaá Nasa á fullveldisdaginn,
hljómsveitirnar Sign og Skid
Row trylltu sveittan lýðinn.
» Sýningin Falinn fjársjóðurvar opnuð í gær á Kjarvals-
stöðum. Margir skoðuðu þar
Hvítasunnudag Kjarvals.
» Á laugardag opnuðu 22 listamenn sýninguna Meter áKorpúlfsstöðum. Sýningin stóð aðeins yfir helgina.