Morgunblaðið - 03.12.2007, Qupperneq 36
Johnny Solinger Söngvari Skid
Row er með tískuna á hreinu.
ÉG SKAL glaður játa að hlátur var
mér ofarlega í huga þegar ég gekk
fyrst inn á Nasa á fullveldisdaginn.
Mér fannst næstum eins og ég væri
að ganga inn í atriði úr kvikmyndinni
Wayne’s World, í öllu falli var eins og
ég væri kominn rúm fimmtán ár aft-
ur í tímann. Þungmálmssveitirnar (e.
heavy metal) Sign úr Hafnarfirði og
Skid Row frá New Jersey voru
komnar til þess að kenna lands-
mönnum nokkrar rokklexíur.
Það tók nokkur lög að komast á
bragðið – erfiðasti hjallinn að komast
yfir var hrópandi ósamræmið sem er
á milli ógnandi útlits þungmálmstón-
listarmannanna og tónlistarinnar
sjálfrar. Málaðir og síðhærðir virðast
þeir tilbúnir til að selja sál sína djöfl-
inum en tónlistin er afskaplega mein-
laus. Þrátt fyrir alla gítarbjögunina
eru lögin afskaplega hefðbundin og
ganga að miklu leyti til út á að sýna
hæfni hljómsveitarmeðlima. Þegar
mér hætti að þykja þetta ósamræmi
hjákátlegt varð virkilega gaman á
tónleikunum.
Ég náði þessu stigi snemma, í lag-
inu „Sweet Little Sister“ af fyrstu
plötu Skid Row, og það sem eftir var
naut ég sýningarinnar. Trommarinn
Dave Gara var til að mynda búinn að
ná fullkomnu valdi á því að snúa
kjuðanum í hringi svo lengi sem hann
þurfti ekki að slá með honum og með
hinni hendinni tók hann sítt hárið frá
andlitinu. Iðulega kom hvorutveggja
fyrir tvisvar í hverjum takti. Gít-
arleikarinn Dave „The Snake“ Sabo
gældi fagmannlega við efsta hluta
gítarhálsins og framkallaði vælandi
gítarsóló, teygð og toguð, meðan
hann rak út úr sér tunguna og starði
tryllingslega á viðstadda. Söngvarinn
Johnny Solinger var íklæddur erma-
lausum Skid Row-bol, með höfuðklút,
kúrekahátt og speglagleraugu og
söng oft af gríðarlegum krafti of-
arlega á tónsviðinu, og notaði „fokk“ í
þriðja hverju orði. Allir voru þeir
vopnaðir Budweiser-bjórdósum,
sannkallaðir Ameríkanar.
Drengirnir voru allir með þráðlaus
hljóðfæri og hreyfðu sig því frjáls-
lega um sviðið og komu iðulega fram
á sviðsbrúnina áheyrendum til mik-
illar skemmtunar. Raunar var sam-
bandið milli hljómsveitarinnar og
viðstaddra svo rosalegt að undirrit-
aður man í svipinn varla eftir öðru
eins. Eflaust hafa um þrjátíu manns
lagt það á sig að mannbrima (e.
crowd surf) alla leið upp á svið til
þess eins að stökkva aftur í salinn eða
til að láta draga sig (fullharkalega, að
mér fannst) af sviðinu. Þegar sveitin
bað viðstadda um að stökkva, var
stokkið; þegar sveitin sendi salnum
fingurinn í laginu „Get the Fuck Out“
brást salurinn eins við.
Mörg íslensk rokksveitin mætti
læra af líflegri sviðsframkomu Skid
Row, og íslenskir tónleikagestir
mættu sömuleiðis læra af þeim sem
þarna voru samankomnir til þess
eins að skemmta sér og rokka af lífs
og sálarkröftum. Þó að mér detti ef-
laust þúsund plötur í hug til að hafa
með mér á eyðieyju áður en röðin
kemur að Skid Row þá eru þær ekki
margar sem slá þessari tuttugu ára
gömlu þungarokkssveit við þegar
kemur að því að rokka.
Sign Það var heitt á Nasa og söngvarinn Ragnar Sólberg fór úr bolnum.
Allt er vænt... Litadýrðin var mikil á tónleikunum enda litríkir þungmálmsrokkarar.Blámi Strákarni í Skid Row voru allir með þráðlaus hljóðfæri og fóru því frjálslega um sviðið.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Stemningin Gagnrýnandi segir sambandið milli hljómsveitarinnar og við-
staddra hafa verið svo rosalegt að hann muni í svipinn ekki eftir öðru eins.
Óárennilegur Gítarleikari Skid
Row er enginn kórdrengur.
Rrrrroooookkkk!
TÓNLIST
Nasa
Skid Row ásamt Sign
Atli Bollason
36 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára 3D-DIGITAL
SYDNEY WHITE kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 B.i.16.ára
AMERICAN GANGSTER kl. 5:30 - 8:30 LÚXUS VIP
JESSE JAMES kl. 10:30 B.i.16.ára
30 DAYS OF NIGHT kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
MICHAEL CLAYTON kl. 8 B.i.7.ára
STARDUST kl. 5:30 B.i.10.ára
FORELDRAR kl. 6 Síðustu sýningar B.i.7.ára
„BEOWULF ER EINFALDLEGA
GULLFALLEG...“
ENTERTAINMENT WEEKLY
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
eeee
KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI