Morgunblaðið - 06.12.2007, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.12.2007, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÁ því var greint fyrir skemmstu að nem- endur Finnbogastaðaskóla hefðu gert rann- sókn á kisum í hreppnum og komist að því að það væru eingöngu læður í sveitinni. Heldur hefur ræst úr því á dögunum fluttu búferlum í hreppinn tveir fresskettir sem áttu áður lögheimili í Kattholti í Reykjavík, að því er fram kemur á www.strandastelp- ur.blog.is. Bernharð og Óskar, en svo heita högnarnir, komu fljúgandi að sunnan og eru nú sex kisur í Árneshreppi. Fyrir í sveitinni voru fjórar læður, þær Branda í Litlu-Ávík, Písl á Finnbogastöðum, Ögn í Bæ og Gloría á Krossnesi. Fress á Strandir Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is KLÓRMENGUNARSLYSIÐ í Varmá er mikið áfall, að mati Aldís- ar Hafsteinsdóttur, bæjarstjóra Hveragerðisbæjar. Hún telur þetta vera mesta mengunarslys sem orð- ið hafi í Varmá. Bæjaryfirvöld í Hveragerði fréttu fyrst af því að um 800 lítrar af klór hefðu lekið frá sundlauginni í Laugaskarði í Varmá þegar bæj- arbúar hringdu á bæjarskrifstof- una á þriðjudagsmorgun til að spyrja hvers vegna dauðir fiskar væru í ánni. Aldís taldi mannleg mistök hafa valdið því að bæjaryf- irvöld voru ekki látin vita strax á föstudaginn var þegar starfsmenn sundlaugarinnar sáu hvers kyns var. Hún sagði að það hefði í sjálfu sér engu breytt varðandi aðgerðir þótt strax hefði verið tilkynnt um slysið. Svo virðist sem klórgeym- irinn hafi tæmst á skammri stund. Engin ráð séu til að bregðast við mengun sem þessari komist hún út í árvatnið. Þá sé skaðinn skeður. „Við lítum þetta grafalvarlegum augum,“ sagði Aldís. „Varmá er stolt okkar! Við höfum stært okkur af því hvað áin er hrein og krakk- arnir okkar synda í henni. Stanga- veiðifélag Reykjavíkur (SVFR) er með ána á leigu og það er búið að fjárfesta hundruð milljóna í full- komnasta fráveitumannvirki lands- ins til að vernda ána og svo gerist þetta.“ Fullkomin hreinsistöð Aldís sagði að nálægð byggðar- innar við ána hefði alltaf valdið ákveðinni hættu fyrir lífríki henn- ar. Meðan ullarþvottastöðin var starfrækt í Hveragerði barst frá henni mikil mengun í ána vegna hreinsiefna sem þar voru notuð. Eftir að stöðinni var lokað hefðu verið tekin stór skref varðandi frá- veitumál. „Við erum með lífræna hreinsun á öllu skólpi og fráveituvatni. Hveragerði er eina sveitarfélagið á landinu sem er með svo fullkominn búnað til hreinsunar á frárennsli. Áin er mjög hrein og við höfum ver- ið í fararbroddi sveitarfélaga hvað þetta varðar. Þess vegna svíður enn sárar að lenda í þessu,“ sagði Aldís. föstudaginn var. Þess vegna er mikilvægt að rannsaka vel það sem þá gerðist og afleiðingar þess. Hvaða áhrif mengunin hafði á fiskana, botndýralífið og gróður- inn. Þetta verður allt skoðað,“ sagði Aldís. Hún kvaðst einnig vona að áhrif þessa slyss yrðu aðeins tíma- bundin og að lífríki árinnar mundi ná sér að fullu með tíð og tíma. Starfsmenn áhaldahúss Hvera- gerðisbæjar gengu með ánni á þriðjudag og fundu þá um 20 stóra dauða fiska. Aldís taldi að megnið af seiðum og smærri fiskum sem drápust hefði skolast burt með ár- vatninu. Aldís kvaðst vona að Verkfræði- stofa Sigurðar Thoroddsen, sem falið var á þriðjudag að koma með tillögu að úrbótum fyrir klór- geymslu sundlaugarinnar, skilaði niðurstöðu sem fyrst. Þangað til ný klórgeymsla verður til á að gæta þess að í klórtankinum í sundlaug- inni verði ekki meira af klóri en notað er jafnóðum. Rannsóknum haldið áfram Magnús Jóhannsson, fiskifræð- ingur hjá Veiðimálastofnun, sagði ástand lífríkisins í Varmá hafa ver- ið allt annað þegar Veiðimálastofn- un kannaði ána með rafveiðum árið 1999. Þá var töluvert af seiðum í ánni þar sem í gær var ördeyða. Magnús sagði það ætlun starfs- manna Veiðimálastofnunar að halda áfram rannsóknum í dag og fikra sig niður eftir ánni. Þá sagði hann að Háskólasetrið í Hvera- gerði mundi rannsaka botndýralíf- ið í Varmá og hvort mengunin hefði haft áhrif á það. Hún sagði að áin gæti orðið mjög vatnslítil á stundum og svo beljandi stórfljót þess á milli. Það gæti einn- ig haft einhver áhrif á fiskistofna hennar. Vonar að áin nái sér að nýju „Fiskadauða hefur orðið vart í Varmá öðru hvoru. Það hefur orðið vegna súrefnisþurrðar í vatninu og hún hefur orðið of heit, enda hverir í ánni. En fiskistofnarnir hafa alltaf jafnað sig. Við höfum þó ekki lent í neinu viðlíka og því sem gerðist á Hveragerðisbær með fullkomna frárennslishreinsun til að vernda Varmá Morgunblaðið/RAX Fiskur Kjartan Björnsson og Haraldur Eiríksson, sölustjóri SVFR, með dauða fiska úr Varmá. Engin ráð til að bregðast við eftir að áin mengast VIÐSKIPTAVINUM nokkurra verslana hér á landi hefur komið á óvart að sjá innkaup sín skráð sem erlend viðskipti á greiðsluyfirlitum vegna greiðslukorta. Leifur Steinn Elísson, sviðsstjóri þró- unar- og kynning- arsviðs Valitors Visa, sagði að nokkur fyr- irtæki hér á landi hefðu samið við danska fyrirtækið PBS um færsluhirðingu, það er innheimtu á við- skiptum. Færslur sem verða til við viðskipti hjá þessum fyr- irtækjum fara til færsluhirðisins í Dan- mörku og þaðan til London í greiðsluskil og greiðsluskipti. Þaðan eru viðskipti með Visa-kortum send í gegnum al- þjóðakerfi Visa inn í kerfi Valitors. Leif- ur Steinn sagði að kerfi Valitors hefði til þessa litið á færslur sem kæmu frá út- löndum sem erlendar. Hann sagði að nú hefði verið tekin ákvörðun um að breyta kerfinu þannig að viðskipti sem fram fara hér á landi yrðu flokkuð sem inn- lend viðskipti þó að færsluhirðirinn væri erlent fyrirtæki. Það hefur engin áhrif á fjárhæðina í íslenskum krónum þótt færsluhirðirinn sé erlendur. Leifur Steinn sagði að þeg- ar fólk t.d. keypti fyrir þúsund krónur hér á landi þá væru innheimtar þúsund krónur. Innlend viðskipti færð sem slík Ólafsvík | Hrafnar virð- ast ekki hafa skipt sér á bæi. Þeir koma nokkrir saman og þiggja æti við kindakofann. Mýsnar hlaupa óboðnar um allt. Það er varla friður til að leysa hrútinn Hreggnasa sem vill vera leystur og það strax. Hreggnasi lætur mýsnar ekki trufla sig. Hann hefur séð hættulegri dýr. Gekk úti lambsveturinn. Þrátt fyrir músagang er freistandi að spá snjóléttum vetri eftir að hafa dreymt sig vetrarmann við fjárgæslu. Í draumnum var komið að fjárhúsunum opnum og voru kindurnar horfnar til fjalls. Þótti nokkuð víst að þær kæmu ekki meira að húsi þenn- an veturinn. Freistandi að spá snjóléttum vetri HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri til 12 mánaða fangelsisvistar fyrir fjölmörg brot. Honum var að auki gert að greiða rúmar 436 þúsund krónur til Vátrygg- ingafélags Íslands í skaðabætur og rúmar 440 þúsund krónur í málsvarnarlaun. Maðurinn á að baki langan sakarferil, eða allt frá árinu 1985, og nánast sam- felldan. Alls hefur hann verið dæmdur þrjátíu sinnum fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lög- um um ávana- og fíkniefni. Í þessu tilviki var hann sakfelldur fyrir fíkniefnabrot, hylmingu, nytjastuld, umferðarlagabrot og þjófnað. Flest brot mannsins í gegnum tíðina eru auðgunarbrot og í mörgum ef ekki flest- um tilvikum eru þau framin til að fjár- magna fíkniefnaneyslu. Héraðsdómarinn Símon Sigvaldason kvað upp dóminn. Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborg- arsvæðinu sótti málið af hálfu ákæru- valdsins og Kristján Stefánsson hrl. varði manninn. Brotaferill frá 1985 „ÞETTA er alveg dautt hér,“ sagði Haraldur Eiríksson, sölustjóri SVFR. Hann gekk í gær með Stöðvarhyl í Varmá sem hann sagði vera með bestu veiðistöðum í ánni. Haraldur hafði fundið reytur af stórum sjóbirtingi á eyri ofan við hylinn og annan minni nokkru neðar. Hrafn- inn var búinn að éta allt nema roðið af stærri fiskinum og byrjaður að narta í þann minni. „Ástandið á ánni var orðið mjög gott,“ sagði Haraldur. „Stórir fiskar og gamlir. Hér voru að veiðast 12-14 punda silungar. Þetta setur spurn- ingarmerki við framhaldið.“ Haraldur taldi það geta einhverju bjargað að helstu hrygning- arstöðvar í ánni eru í Reykjadal, ofan við mengunarstaðinn. „Er alveg dautt hér“ F Y R IR F Ó L K S E M G E R IR K R Ö F U R NÝJAR VÖRUR KOMNAR KRINGLUNNI / SMÁRALIND Í KRINGUM 7.500 börn lifðu undir fátæktarmörkum hér á landi árið 2004 en nýrri upplýs- ingar liggja ekki fyrir enn sem komið er, að því er fram kom í svari Geirs H. Haarde, forsætis- ráðherra, við fyrirspurn Helga Hjörvar á Alþingi í gær. Ólíkar reikningsaðferðir Í skýrslu forsætisráðherra sem var gefin út í fyrra, og náði einnig til ársins 2004, voru fátæk börn talin í kringum fimm þús- und en í máli Geirs kom fram að mismuninn megi rekja til ólíkra reikningsaðferða. Hagstofa Ís- lands notist nú við útreikninga samræmdra lífskjararannsókna EES-ríkjanna sem gefi mögu- leika á mun nákvæmari saman- burði við önnur lönd en í áður- nefndri skýrslu var notast við aðferðafræði OECD. „Ekki er teljandi munur á stöðu Íslands og annarra Norðurlanda en hins vegar er talsverður munur á stöðu Norðurlandanna og ann- arra Evrópuþjóða í þessum efn- um,“ sagði Geir og áréttaði að Ís- land væri í hópi þeirra landa þar sem fátækt barna mælist hvað minnst. Fátæk börn á Íslandi um 7.500 Morgunblaðið/Ómar Leikskólabörn Nýjustu tölur um fátækt barna eru frá 2004.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.