Morgunblaðið - 06.12.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 15
ERLENT
Belgrad, Brussel. AFP. | Embættis-
menn í Belgrad segja að Serbar
muni verja Kosovo „með öllum til-
tækum ráðum“ ef leiðtogar Kosovo-
Albana lýsa einhliða yfir sjálfstæði
eftir fund öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í næstu viku, þar sem mál-
efni Kosovo verða rædd.
Agim Ceku, forsætisráðherra
Kosovo, segir sjálfstæði ekki um-
semjanlegt markmið en Aleksandar
Simic, ráðgjafi Vojislavs Kostunica
forsætisráðherra, sagði í gær að Ban
Ki-moon, framkvæmdastjóri SÞ,
yrði að ógilda hverja slíka sjálfstæð-
isyfirlýsingu enda myndi hún ganga í
berhögg við ályktun öryggisráðsins
nr. 1244 frá 1999 en Kosovo hefur
verið stjórnað á grundvelli þeirrar
ályktunar allt frá því að stríði NATO
og Júgóslavíu lauk. Í ályktuninni er
vísað til Kosovo sem héraðs í Serbíu.
Í fyrradag hafði Vuk Jeremic, ut-
anríkisráðherra Serbíu, greint frá
því að serbnesk stjórnvöld myndu
grípa til tiltekinna refsiaðgerða gegn
þeim ríkjum sem kunna að viður-
kenna sjálfstæði Kosovo. Artemije,
erkibiskup rétttrúnaðarkirkjunnar
serbnesku, taldi slíkt hins vegar ekki
ganga nógu langt. Skipuleggja þyrfti
mótmælaaðgerðir og „loka“ landa-
mærunum að Kosovo. „Við værum
ekki að lýsa yfir stríði gegn nokkrum
manni, bara að sýna að við erum til
alls líklegir,“ sagði hann.
Reuters
Spenna Loft er lævi blandið í
Pristina en rapparinn 50 Cent
hyggur þó á tónleika þar 17. des.
Ögurstund
nálgast
í Kosovo
BRETINN John Darwin, sem kom fram í síðustu viku
eftir að hafa verið saknað í fimm ár og talinn hafa
drukknað í róðri á barkarbáti [öðru nafni kanó], var
handtekinn á heimili sona sinna í Hampspire á þriðju-
dag, grunaður um svik. Breska blaðið The Daily Mirror
birti á þriðjudag mynd sem það sagði hafa verið tekna af
manninum og konu hans, Anne, í Panama í fyrra.
Darwin er 57 ára. Hann var talinn af eftir að brak úr
báti hans fannst í fjöru í mars 2002. En um síðustu helgi
skaut hann upp kollinum á lögreglustöð í London og
sagðist hafa misst minnið. Ekki hefur verið upplýst
hvers vegna hann hefur nú verið handtekinn en lög-
reglan segir að rannsókn hafi hafist á máli Darwins fyrir
þrem mánuðum.
Kona hans seldi fyrir skömmu tvö hús þeirra í Seaton
Carew í Teeside í Bretlandi og flutti til Panama. Hún
tjáði fjölmiðlum að hún hefði ekki vitað betur en að hann
væri dáinn og fengið líftryggingu manns síns greidda út
eftir að dómsstjóri lýsti hann látinn 2003 þótt ekki fynd-
ist neitt lík. Nú gæti farið svo að hún yrði að endurgreiða
féð, það yrði ekki auðvelt en hún myndi kljúfa það.
Man síðast eftir sér með konunni
í sumarleyfi í Noregi árið 2000
Maðurinn starfaði sem fangavörður er hann týndist en
hafði áður verið stærðfræðikennari og bankamaður.
Konan segir fjölskylduna himinlifandi yfir því að maður-
inn skuli vera á lífi og ætlar hún sjálf að fljúga heim við
fyrsta tækifæri. Sagðist hún hafa rætt við mann sinn í
síma á laugardag og hann hefði sagst hafa gleymt öllu
sem gerst hefði eftir að þau voru í sumarleyfi í Noregi
árið 2000. „Það hlýtur að hafa orðið slys þegar hann fór í
kanó-róðurinn. Hann hlýtur að hafa meitt sig í höfðinu
eða eitthvað annað gerst,“ segir eiginkonan.
Ekki hefur verið staðfest að mynd The Daily Mirror
sé af hjónunum. Myndin var tekin í leiguíbúð á vegum
fyrirtækisins Move to Panama og birt á vefsíðu þess. En
að sögn ráðamanna þess nefndu umrædd hjón sig að vísu
John og Anne en eftirnafnið var ekki Darwin.
Svik eða minnistap?
Miðaldra Breti birtist ljóslifandi eftir að hafa verið
úrskurðaður látinn í kjölfar róðurs á barkarbáti í Norðursjó
Reuters
Aftur heima John Darwin, kanó-ræðarinn sem hvarf.
Teheran. AFP, AP. | Mahmoud Ahmad-
inejad, forseti Írans, sagði í gær að
skýrsla bandarískra leyniþjónustu-
stofnana um kjarnorkumál Írana
væri „stórsigur“ fyrir klerkastjórn-
ina í Teheran.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði hins vegar að Íranar ættu
enn eftir að gera hreint fyrir sínum
dyrum og þyrftu að hætta að fram-
leiða auðgað úran, sem hægt væri að
nota í kjarnavopn, ella yrði gripið til
frekari refsiaðgerða gegn Íran.
Í skýrslu sextán leyniþjónustu-
stofnana Bandaríkjanna segir að Ír-
anar hafi hætt tilraunum til að þróa
kjarnavopn árið 2003 en haldi áfram
að framleiða auðgað úran og geti lík-
lega búið til fyrstu kjarnorku-
sprengjuna á árunum 2010-2015.
Bush sagði að skýrslan sýndi að
hætta stafaði enn af Íran og stjórn-
völd í Bretlandi og Þýskalandi sögðu
að skýrslan sýndi að Íranar hefðu
ekki orðið við þeirri kröfu öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna að hætta
auðgun úrans.
Minni líkur á hertum aðgerðum
Stjórnvöld í Rússlandi og Kína
sögðu hins vegar að nýja skýrslan
minnkaði líkurnar á því að herða
þyrfti refsiaðgerðirnar gegn Íran.
Ahmadinejad sagði að skýrslan
sýndi að það hefði verið rétt hjá hon-
um að hvika hvergi í deilunni við
vesturveldin og ef til stæði að hefja
herferð gegn Írönum að nýju myndi
„þjóðin spyrna við fótum og ekki
gefa þumlung eftir“.
Forseti Írans segir
skýrsluna stórsigur
Bush segir að herða þurfi refsiaðgerðirnar gegn Íran
Í HNOTSKURN
» Hans Blix, sem stjórnaðivopnaeftirliti SÞ í Írak,
kvaðst vera hissa á þeirri niður-
stöðu leyniþjónustustofnana að
Íranar hefðu hætt að þróa
kjarnavopn. Hann kvaðst telja að
þær vildu ekki bera ábyrgð á
nýju stríði.
FRÆGASTI ísbjörn heims, Knútur, fagnaði eins árs af-
mæli sínu í gær í dýragarðinum í Berlín með því að
gæða sér á gómsætri fiskiköku. Sýnt var beint frá af-
mælisveislunni í þýska sjónvarpinu og hundruð barna
lögðu leið sína í dýragarðinn til að fagna með Knúti.
Knútur varð heimsþekktur fyrir ári þegar móðir hans
hafnaði honum og þurfti að fjarlægja bjarnarhúninn úr
búri hennar. Hann var síðan heimalningur í dýragarð-
inum og lék tvisvar á dag við starfsmenn dýragarðsins
gestum til ánægju allt þar til í haust.
Reuters
Knútur fagnar eins árs afmæli
BYSSUMAÐUR skaut a.m.k. átta
manns til bana í verslunarmiðstöð í
bænum Omaha í Nebraska í Banda-
ríkjunum í gærkvöldi áður en hann
fyrirfór sér, að sögn lögreglunnar
seint í gærkvöldi. A.m.k. fimm til
viðbótar særðust í skotárásinni, þar
af tveir lífshættulega. Skelfingu
lostnir viðskiptavinir og starfs-
menn flúðu út úr byggingunni eða
læstu sig inni í verslunum þegar
þeir heyrðu skothríðina.
Níu biðu bana
RÚSSNESKI sjóherinn hóf í gær
heræfingar í Norður-Atlantshafi og
Miðjarðarhafi og þær eiga að
standa til 3. febrúar, að sögn rúss-
neskra fjölmiðla í gær. Fjögur orr-
ustuskip og sjö önnur herskip eiga
að taka þátt í æfingunum, auk 47
flugvéla og tíu þyrlna. Hermt er að
markmiðið sé að tryggja að Rússar
geti haldið úti herskipum til að
vernda mikilvægar siglingaleiðir.
Hefja heræfingar
DÖNSKU stjórnarflokkarnir,
Venstre og Íhaldsflokkurinn, hafa
ekki lengur öruggan meirihluta á
þingi en Pia Christmas-Møller, fyrr-
um þingflokksformaður íhaldsmanna,
hefur sagt sig úr þingflokknum vegna
óánægju með núverandi forustu.
Christmas-Møller segist þó styðja
áfram ríkisstjórnina en skilgreinir sig
sem óháða. Í þingkosningum í nóv-
ember sl. fengu Venstre, Íhaldsflokk-
urinn og Danski þjóðarflokkurinn,
sem styður stjórnina á þingi, samtals
90 þingmenn af 179.
Anders Fogh Rasmussen forsætis-
ráðherra sagði er stjórnarsamstarfið
var endurnýjað eftir kosningar að
hann myndi leita eftir breiðri sam-
stöðu á þinginu um mikilvæg mál.
Hann harmaði í gær ákvörðun
Christmas-Möller, sem hann sagðist
telja að stafaði af persónulegum
ástæðum en taldi stöðuna á þingi vera
óbreytta. Þess má geta að Nýtt
bandalag, nýr miðjuflokkur sem hlaut
fimm sæti, hefur lýst stuðningi við
stjórn Fogh.
Christmas-Möller var um hríð for-
maður Íhaldsflokksins en hún hefur
reifað svipaðar skoðanir á málefnum
innflytjenda og skattamálum og Nýtt
bandalag. En hún olli einnig írafári
fyrir landsfund Íhaldsflokksins í sept-
ember er hún studdi hugmyndir um
að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu
um endurskoðaða stjórnarskrá Evr-
ópusambandsins, þvert á stefnu
flokksins.
Meirihluti Fogh í hættu
BRESKA dagblaðið The Independ-
ent velti því fyrir sér á forsíðu í gær
hvort sérlega djúp lægð væri í nánd
í bresku efnahagslífi. Blaðið segir
margar blikur á lofti: bankarnir séu
hættir að lána, neytendurnir farnir
að spara, fjárfestar hættir að fjár-
festa, fyrirtæki ráði ekki nýtt
starfsfólk og húsnæði seljist ekki.
Enginn þessara þátta er mjög skað-
legur einn og sér en þegar allar
þessar blikur hrannast upp er útlit
fyrir aftakaveður í efnahagslífinu,
kreppu eða hægari hagvöxt ásamt
aukinni verðbólgu.
Djúp lægð
í nánd?
USB minnislyklar með rispufríu lógói.
Frábærir undir myndir og gögn.
Ódýr auglýsing sem lifir lengi.
www.alltmerkt.is sala@alltmerkt.is
S: 511 1080 / 861 2510
(512 MB, 1 GB, 2 GB og 4 GB)