Fréttablaðið - 11.04.2009, Qupperneq 4
4 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
18°
9°
7°
4°
3°
9°
7°
6°
4°
3°
20°
12°
12°
26°
1°
10°
15°
0°
5
PÁSKADAGUR
8-15 m/s með ströndum
annars 3-10 m/s.
-3
0
ANNAR Í PÁSKUM
13-18 S- og SV-
til annars 5-10 m/s
-2
-2
-2
-1
6
6
2
-1
5
5
6
10
13
15
5
13
6
6
8
-4
-5
34
-4 1 2
1
56
BJART MEÐ KÖFLUM
SYÐRA
Í dag verða norð-
vestan 13-18 m/s við
austur- og suðaust-
urströndina annars
yfi rleitt 5-10 m/s.
Snjókoma norðaustan
og austan til, stöku él
vestan til á Norður-
landi og Vestfjörðum
en yfi rleitt bjart með
köfl um á Vestur- og
Suðurlandi. Hiti 2-7
stig syðra annars frost
á bilinu 0-4 stig.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
STJÓRNMÁL Stefán Einar Stefáns-
son viðskiptasiðfræðingur hefur
sagt sig úr stjórn Sambands
ungra sjálfstæðismanna, SUS.
Ástæðuna segir hann að Geir
H. Haarde hafi brugðist sem for-
maður þegar hann tók við styrkj-
um frá FL Group og Landsbank-
anum. Þá sé ályktun SUS, þar
sem lof er borið á framgöngu
Geirs í málinu, úr öllum takti við
raunveruleikann. - sh
Segir sig úr stjórninni:
Siðfræðingur
hættir í SUS
STJÓRNMÁL Mikil ólga er í Sjálf-
stæðisflokknum vegna styrkja-
málanna sem skekið hafa flokk-
inn undanfarna daga. Andri
Óttarsson sagði af sér stöðu fram-
kvæmdastjóra í gær, en sór um
leið af sér að hafa haft forgöngu
um söfnun styrkjanna. Þingflokk-
ur Sjálfstæðisflokksins var boðað-
ur á fund klukkan 15 í gær, en sá
fundur var afboðaður með skömm-
um fyrirvara.
Kjartan Gunnarsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri flokksins,
lýsti því í gær yfir að hann vissi
hverjir hefðu haft forgöngu um að
fá styrkina frá FL Group og Lands-
bankanum. Það ætti hvorki við um
hann né Andra Óttarsson. Kjartan
vildi hins vegar ekki upplýsa um
hverjir hefðu verið að verki. Hann
hefði skýrt flokksforystunni frá
málinu og þeir sem í hlut eiga ættu
að stíga fram og axla sína ábyrgð.
Guðlaugur Þór Þórðarson er
einn þeirra sem hafa verið nefnd-
ir í því samhengi. Hann hefur hins
vegar neitað að hafa komið að mál-
inu að öðru leyti en að hafa feng-
ið nokkra einstaklinga í flokknum
til að aðstoða skrifstofuna við fjár-
söfnun. Komi í ljós að Guðlaugur
hafi haft meiri aðkomu að málinu
er það er ljóst að krafa um að hann
víki mun verða hávær. Stuðnings-
menn hans líta svo á að í gangi sé
aðför að honum. Formenn Sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík sendu
í gær frá sér yfirlýsingu til stuðn-
ings Guðlaugi Þór.
Formaður flokksins, Bjarni
Benediktsson, hefur lýst því yfir
að styrkjunum verði skilað. Það
verður þungur biti fyrir flokkinn
að kyngja, enda ekki seilst í 55
milljónir eins og að drekka vatn.
Flokkurinn fékk 317 milljónir í
tekjur alls á árinu 2007, þar af 140
frá ríkinu. Rekstur flokksins kost-
aði hins vegar 352 milljónir króna
og því var um 37 milljóna tap á
flokknum í fyrra. Til víðtækrar
fjársöfnunar verður að koma til að
ná saman 55 milljónum króna.
Erfitt reyndist að ná í þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í gær og þeir
sem í náðist vildu lítið segja. Ljóst
er að línunnar var beðið frá for-
ystunni en mikil pressa er á hana
um að upplýsa um málið. Þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins fund-
aði undir kvöld í gær og gilti trún-
aður um staðsetninguna.
Vilhjálmur Egilsson, formað-
ur fjármálaráðs flokksins, segir
nauðsynlegt að fá allt upp á borð-
ið; annars hætti þetta mál aldrei.
Öll nöfn þurfi að upplýsa og skýra
hvernig nákvæmlega vildi til að
styrkirnir voru þegnir. Mikil vinna
liggi fram undan hjá fjármálaráði
flokksins til að safna fyrir endur-
greiðslu styrkjanna.
kolbeinn@frettabladid.is
Vilja enn ekki upp-
lýsa um styrkina
Mikil ólga er í Sjálfstæðisflokknum og sú krafa gerist æ háværari að allt verði
upplýst er lýtur að styrkjum FL Group og Landsbankans til flokksins. Þing-
menn flokksins funduðu í gær. Krafa er um að þeir sæti ábyrgð sem um véluðu.
STJÓRNMÁL Andri Óttarsson sagði
í gær starfi sínu lausu sem fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins. Í yfirlýsingu sem hann sendi
frá sér segir hann mikinn styr
hafa staðið um styrkveitingu FL
Group og Landsbankans til flokks-
ins. Andri tekur fram að hann hafi
ekki haft frumkvæði að því að
haft var samband við fyrir tækin,
og ekki tekið ákvörðun um að
styrkjunum yrði veitt viðtaka.
Gréta Ingþórsdóttir, fyrrum
aðstoðarmaður forsætisráðherra,
hefur verið ráðinn framkvæmd-
arstjóri. Hún mun gegna starfinu
fram að kosningum. Hvorki náð-
ist í Andra né Grétu við vinnslu
fréttarinnar. - kóp
Framkvæmdastjóri hættir:
Andri segir
starfi sínu lausu
FJÁRMÁL Styrkir til stjórnmála-
flokka eru meðal þess sem Rann-
sóknarnefnd um bankahrunið
mun skoða við vinnu sína. Þetta
segir Tryggvi Gunnarsson, sem
sæti á í nefndinni.
„Okkar viðfangsefni er að
skoða rekstur bankanna og þau
atriði sem kunna að hafa haft
einhver áhrif á hvernig fór með
rekstur þeirra og auðvitað munum
við huga að því hvort um einhverj-
ar óeðlilegar styrkveitingar hefur
verið að ræða sem geta hafa haft
einhver áhrif,“ segir Tryggvi.
Hann tekur þó fram að slík
athugun tengist ekki sérstak-
lega því sem fram hefur komið í
fréttum liðinn-
ar viku um tug-
milljóna styrki
FL Group og
Landsbankans
til Sjálfstæðis-
flokksins.
Tryggvi bend-
ir á að athugun
nefndarinnar
snúi einkum að
bönkunum en
ekki að eignar-
haldsfélögum á borð við FL Group.
Þrátt fyrir að þau hafi mörg hver
eða flest verið nátengd bönkunum
hafi nefndin ekki sama aðgang að
gögnum þaðan og úr bönkunum.
Hann segir að ekki hafi verið
óskað eftir gögnum um þessi mál
sérstaklega vegna fréttaflutnings
vikunnar. „En upplýsingar um
styrki eru meðal þess sem nefndin
hefur til skoðunar og bæði óskar
og hefur óskað eftir frá bönkun-
um.“
Tryggvi bendir jafnframt á að
sérstakur siðfræðihópur starfi
á vegum nefndarinnar að því að
skoða siðfræðilega hlið mála í
aðdraganda hrunsins.
Nefndin hefur einnig óskað
eftir upplýsingum um hugsanleg-
ar fyrirgreiðslur banka og fyrir-
tækja til stjórnmála- og fjölmiðla-
manna. - sh
Rannsóknarnefnd um bankahrunið er með styrki bankanna til flokka í athugun:
Rannsakar styrki til flokka
TRYGGVI
GUNNARSSON
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkur-
inn þáði 30,3 milljónir króna frá
nokkrum tugum fyrirtækja árið
2006. Hæsti einstaki styrkur sem
flokknum var veittur það ár nam
5 milljónum króna. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu sem flokkur-
inn hefur sent frá sér.
Þar kemur fram að flokkurinn
muni ekki upplýsa hverjir ein-
stakir gefendur voru, enda hafi
í flestum tilfellum verið sam-
komulag um að styrkveitingarn-
ar væru trúnaðarmál. Sigfús
Ingi Sigfússon, framkvæmda-
stjóri flokksins, segir að verið
sé að ræða við gefendur með það
að leiðarljósi að upplýsingar um
stærstu gefendur verði birtar. - kóp
Framsóknarflokkurinn:
Hæsti styrkur-
inn 5 milljónir
FORYSTAN Framsóknarflokkurinn hefur
nú lýst því yfir að hafa þegið 30,3 millj-
ónir króna í styrki frá fyrirtækjum árið
2006. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FJÁRMÁL Hæsti styrkur sem
Frjálslyndi flokkurinn tók við árið
2006 nam einni milljón frá Sam-
vinnutryggingum. Guðjón Arnar
Kristjánsson, formaður flokksins,
upplýsti þetta á Vísi. Styrkurinn
væri sá langhæsti sem flokkurinn
hefði fengið það ár en alls hefðu
þeir numið fimm milljónum.
Í samtali við Fréttablaðið á
miðvikudag sögðu núverandi
framkvæmdastjóri og þáverandi
ólíklegt að borist hefðu styrkir
yfir 300.000 krónum. Fram-
kvæmdastjórinn Magnús Reynir
Guðmundsson kannaðist þá ekki
við styrk upp á milljón krónur frá
Samvinnutryggingum. - sh
Frjálslyndi flokkurinn:
Tók mest við
einni milljón
STJÓRNMÁL Formenn þrettán Sjálf-
stæðisfélaga í Reykjavík lýstu
í gær yfir fullum stuðningi við
Guðlaug Þór Þórðarson alþingis-
mann, en hann hefur verið nefnd-
ur vegna styrkja FL Group og
Landsbankans við flokkinn.
Formennirnir lýsa furðu á
málatilbúnaði vegna styrkjanna.
Ljóst sé hverjir tóku við styrkj-
unum og hverjir samþykktu þá af
hálfu flokksins og Guðlaugur Þór
hafi þar hvergi komið nærri. Því
hljóti annarleg sjónarmið að liggja
að baki því að draga hann inn í
þá umræðu. Formennirnir hvetja
flokksforystuna til að leiðrétta
þennan misskilning. - kóp
Formenn sjálfstæðisfélaga:
Styðja Guðlaug
GRÉTA
INGÞÓRSDÓTTIR
ANDRI
ÓTTARSSON
VIÐ VALHÖLL Í REYKJAVÍK Ragnheiður Ríkharðsdóttir kom að læstum dyrum í Valhöll
í gær þegar hún ætlaði á þingflokksfund. Ekki fékkst upplýst um fundarstað, en fund-
urinn var haldinn um kvöldmatarleytið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GENGIÐ 08.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,3746
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,63 127,23
186,43 187,33
167,71 168,65
22,505 22,637
18,829 18,939
15,396 15,486
1,2661 1,2735
188,85 189,97
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR