Fréttablaðið - 11.04.2009, Blaðsíða 33
Harpa Heimisdóttir viðskiptastjóri
er mikill matgæðingur. „Ég elda
flesta daga og grúska milli þess
í matreiðslubókum til að fá hug-
myndir,“ segir Harpa sem breytir
uppskriftunum eftir sínu höfði.
Innt eftir uppáhaldsmatnum er
Harpa fljót til svars. „Humar er í
miklu uppáhaldi en annars finnst
mér léttir og einfaldir réttir mjög
góðir,“ segir Harpa sem einnig
er mjög hrifin af spænskri mat-
argerð. „Ég bjó á Spáni um tíma
og svo eigum við fjölskyldan íbúð
þar,“ segir Harpa en hugmyndina
að uppskriftinni sem hún gefur
lesendum Fréttablaðsins er ein-
mitt fengin af veitingastað sem
Harpa sækir mikið á Spáni.
„Ég held ég nái þessari upp-
skrift nokkurn veginn. Á veitinga-
staðnum eru reyndar bara sveppir
með en ég vildi hafa svolítið græn-
meti til viðbótar,“ segir Harpa sem
er oftast með andarbringur á jól-
unum. „Þá er annaðhvort önd eða
humar, og stundum bæði,“ segir
hún glettin en andarbringurnar
verða einnig á borðum um pásk-
ana á heimili Hörpu og konu henn-
ar, Önnu Jóhannsdóttur. „Við erum
bara tvær í heimili svo það getur
vel verið að við bjóðum einhverj-
um í mat,“ segir Harpa sem er ekki
fastheldin á hefðir um páska.
Sósan sem fylgir öndinni er all
sérstæð. „Þarna blandast sætleiki
og pínu súrt með hráa sykrinum
og berjunum. Svo kemur sterka
bragðið með sinnepinu,“ útskýrir
Harpa og bætir við að á veitinga-
staðnum hafi þjónninn sett sinnep-
ið út í sósuna við borðið þannig að
hver og einn gæti ráðið styrkleika
hennar. solveig@frettabladid.is
3 andarbringur
Sveppir
Brokkolí
Grænn spergill
200 g hindber
50 g hrásykur
1 msk. Dijon-sinnep
Hita ofninn í botn á
grilli og setja grindina
mjög ofarlega. Um
3 andarbringur eru
þerraðar og hreinsaðar
þannig að það verði
250 g á mann.
Skera mjóar rendur
í fituna og passa að
skera ekki í kjötið. Salta
og pipra fituna, best
er að nota Maldonsalt.
Loka kjötinu á pönnu
með fituna upp í um
1 mín. setja bringurn-
ar í fat og inn í ofn í
um 7-10 mín., fer eftir
stærðinni, bíða smá
með að skera kjötið eða
í um 3 mín. og skera þá
í þunnar sneiðar.
Meðlæti:
Steiktir sveppir og
brokkolí eða grænn
spergill.
Sósa:
200 g hindber og 50
g hrásykur látið malla
við vægan hita og sett í
skál, þá er bætt við einni
matskeið af Dijon-sinnepi
og hrært vel saman.
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Spænsk önd með berjum
Harpa Heimisdóttir ætlar að elda andarbringur um páskana. Uppskriftina bjó hún til út frá rétti sem hún
smakkaði á veitingahúsi á Spáni, en spænskur matur er í miklu uppáhaldi hjá Hörpu.
Harpa Heimisdóttir eldar flest kvöld og þykir skemmtilegt að skoða uppskriftir og breyta þeim eftir eigin höfði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GRILLAÐAR ANDARBRINGUR
með hindberjasósu FYRIR FJÓRA
KRÆKLINGATÍNSLA fer fram í fjörunni við Bjart-
eyjarsand í Hvalfirði í dag frá klukkan 13.00. Að tínslu
lokinni verður boðið upp á kaffisopa og fróðleik um
vistfræði kræklings og matreiðslu á honum.
Nýttu tímann
Skráning og nánari upplýsingar í síma 554 6626
eða á www.redcross.is/kopavogur
Kópavogsdeild, Hamraborg 11, sími 554 6626, kopavogur@redcross.is
Námskeið Fyrirlestrar Samverur
Viðburðirnir eru frá kl. 10 - 13 og eru fyrst og fremst ætlaðir
atvinnulausum og þeim sem hafa þurft að minnka við sig
vinnu, þeim að kostnaðarlausu. Verkefnið er unnið í
samvinnu við Kópavogsbæ.
Dagskrá
15. apríl Hreyfing 4 - Tai chi og jóga
20. apríl Fatasaumur 4
21. apríl Internetið til afþreyingar og skemmtunar
22. apríl Opið hús - fyrirlestur um heilsufar og matarræði
27. apríl Ræktun kryddjurta
28. apríl Stofnun fyrirtækja
29. apríl Nýsköpun
04. maí Taflkennsla
05. maí Óhagganleg lögmál markaðarins
06. maí Briddskennsla
11. maí Ljósmyndakennsla
12. maí Gerð viðskiptaáætlana
13. maí GPSkennsla - kennsla á GPS-tæki
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir