Fréttablaðið - 11.04.2009, Side 35
LAUGARDAGUR 11. apríl 2009 3
Listakonan Hulda Halldór sýnir
þrettán listaverk í jafn mörgum
kirkjum á höfuðborgarsvæðinu.
Sýningin hófst á skírdag og stend-
ur fram á uppstigningardag, en hún
er tileinkuð þeim sem hafa látist í
umferðinni.
„Hvatinn að sýningunni var sá
að faðir minn, Halldór Axel Hall-
dórsson, lést í bílslysi á Reykjanes-
brautinni í nóvember 2003. Þá hélt
ég að hið eilífa augnablik væri upp-
runnið og tíminn myndi stöðvast.
En auðvitað varð það ekki raunin
og þá gerðist eitthvað inni í mér.
Ég fór að sjá hlutina í nýju ljósi og
tilveran blasti öðruvísi við,“ segir
Hulda. Hún fór að skapa listaverk
úr kopar, járni og ýmsu öðru sem
öll hafa trúarlega tilvísun.
„Ég var að leita að svari og það
var eitthvað sem tók mig og leiddi
mig áfram. Mér fannst ég ekki
ráða ferðinni og lét af stjórn, sem
er nú ekki mín sterkasta hlið,“ segir
Hulda. „Ég vaknaði svo einn morg-
uninn og áttaði mig á því hvernig
ég vildi hafa sýninguna, hringdi í
kirkjurnar sem tóku allar vel á móti
mér,“ segir Hulda sem er ánægð
með lendinguna enda stækkar
það sýningarrýmið svo um munar
að dreifa verkunum á svo marga
staði.
Verkunum þrettán hefur Hulda
komið fyrir inni við altari hverr-
ar kirkju fyrir sig. Þau má virða
fyrir sér í Fríkirkjunni í Reykja-
vík, Neskirkju, Breiðholtskirkju,
Dómkirkunni, Digraneskirkju, Sel-
tjarnarneskirju, Grafarvogskirkju,
Grensáskirkju, Árbæjarkirkju, Guð-
ríðarkirkju, Krossinum, Kópavogs-
kirkju og Vídalínskirkju.
vera@frettabladid.is
List tileinkuð þeim sem
hafa látist í umferðinni
Þrettán verk tileinkuð þeim sem hafa látist í umferðinni eru nú til sýnis í jafn mörgum kirkjum á höfuð-
borgarsvæðinu. Hvatinn að sýningunni var sá að faðir listakonunnar lést í bílslysi á Reykjanesbrautinni.
Hulda leggur
lokahönd á verkið
Minning sem
verður sett upp í
Neskirkju. Kross-
arnir tákna alla þá
sem hafa látist í
umferðinni.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Tr y g g v a g ö t u 19 • 101 R e y k j a v í k
S í m i 5 62 5 0 3 0 • w w w . k o l a p o r t i d . i s
Kolaportið er OPIÐ
laugardaga og
sunnudaga
frá kl. 1100-1700
Kristinn Valur Wiium
Sölumaður, sími: 896 6913
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími: 896 4090
TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA
SÍMI 533 4040
kjoreign@kjoreign.is
OPIÐ MÁN.-FIM. 9-18 OG FÖS. 9-17
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALA • Ármúli 21, Reykjavík • www.kjoreign.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki