Fréttablaðið - 11.04.2009, Síða 37
Alþingiskosningar 2009 Laugardagur 11. apríl 2009 Framsóknarflokkurinn
Heildarframlög 2006 30,3 mkr.
Framsóknarflokkurinn beitir sér fyrir opnum og lýðræðislegum vinnubrögðum.
BIRTIR UPPLÝSINGAR UM FJÁRMÁL SÍN Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að sömu skilyrði gildi um frambjóðendur flokksins í efstu sætum og þingmenn hans um að gera opinber fjárhagsleg tengsl.
LJÓSMYND/GUNNAR GUNNARSSON
RÉTTLÆTISMÁL
20% niðurfelling
húsnæðisskulda
er raunhæf og
áríðandi fyrir
heimilin í landinu
FRÉTT 2
ENDURREISN
HEIMILANNA
Vigdís
Hauksdóttir
vill róttækar
aðgerðir
REYKJAVÍK SUÐUR 6
GJALDÞROT FRJÁLS-
HYGGJUNNAR
Steingrímur
Hermannsson allar
um hagstjórn síðustu
áratuga
ORÐ Í TÍMA TÖLUÐ 4
Heildarframlög lögaðila til
Framsóknar flokksins árið 2006 voru
30,3 milljónir króna og komu þau frá
nokkrum tugum fyrirtækja. Hæsti
einstaki styrkur sem veittur var til
flokks ins á árinu 2006 nam 5 milljón-
um króna.
„Framsóknarflokkurinn beitti sér
fyrir því á þessum tíma að öll fram-
lög til stjórnmálaflokka yrðu gerð
opinber eins og nú er raunin,“ segir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins. „Af hálfu
Framsóknarflokksins er ekkert því til
fyrirstöðu að viðkomandi lögaðilar geri
grein fyrir framlögum sínum til flokk-
sins. Eðli málsins samkvæmt getur
flokkurinn þó ekki einhliða birt opin-
berlega frá hverjum framlög komu
árið 2006, enda var í flestum tilfellum
samkomulag um að farið yrði með
styrkveitingarnar sem trúnaðarmál.“
Hversu háa styrki fékk Framsóknar-
flokkurinn almennt á árinu 2006?
„Langflestir styrkjanna eru um eða
undir 1 milljón króna, aðeins tveir
yfir 2,5. Í samtölunni eru allir styrkir
meðtaldir, líka þeir lægstu.“
Fjármál flokkanna og aukið gagnsæi
í störfum þeirra hefur verið í deigl-
unni að undanförnu og ekki síst eftir
fréttir um samtals 60 milljóna króna
styrk Landsbankans og FL Group í
þágu Sjálfstæðisflokksins á árinu 2006.
Undir lok þess árs var sett 300 þús-
und króna þak á slíkar styrkveiting-
ar og stjórnmálaflokkunum gert skylt
að birta opinberlega hvaða lögaðil-
ar styrkja þá og hversu hátt framlag
þeirra er. Þá var jafnframt kveðið á um
að opinberir aðilar mættu ekki styrkja
stjórnmálaflokka og settar reglur um
birtingu reikninga.
Upplýsingar úr samstæðureikningi
Framsóknarflokksins fyrir árið 2007
hafa verið birtar opinberlega af hálfu
Ríkisendurskoðunar í samræmi við
lög um fjármál stjórnmálaflokk-
anna. Framsóknarflokkurinn lagði
ríka áherslu á að þessi lög yrðu lög-
fest á Alþingi fyrir rúmum tveimur
árum. Þessar upplýsingar má finna
á heimasíðu Framsóknarflokksins
www.framsokn.is.
Upplýsingar um fjárhagsleg tengsl
þingmanna Framsóknarflokksins
má sömuleiðis finna á heimasíðu
Framsóknarflokksins. Þær hafa verið
aðgengilegar um nokkurra ára skeið.
„Við höfum ákveðið að ganga skref-
inu lengra,“ segir Sigmundur Davíð.
„Þessar sömu fjárhagsupplýsingar
verða birtar á heimasíðunni um fram-
bjóðendur flokksins í efstu sætum
framboðslistanna í öllum kjördæmum.
Auðvitað verða þar á meðal upplýsing-
ar um sjálfan mig eins og kallað hefur
verið eftir.“
Hafa orðið einhverjar breytingar
hvað snertir þau hagsmunatengsl sem
þú nú gerir opinber frá því að þú tókst
ákvörðun um að hasla þér völl á vett-
vangi stjórnmálanna?
„Nei, ekki að öðru leyti en því að ég
tók mér launalaust leyfi frá Skipulags-
ráði Reykjavíkurborgar.“
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
Launuð stjórnarseta .............................0
Launað starf
Skipulagsráð Reykjavíkur
(launalaust leyfi)
Önnur starfsemi
Ritun kennslubókar og
gerð heimildamyndar um
skipulagshagfræði. Vegna
stjórnmálaþátttöku er óljóst hvenær
verkefninu lýkur og þ.a.l. hvort og
hvenær greitt verði fyrir það.
Fjárhagslegur stuðningur ..................0
Eign í félagi
Menning ehf. 50% eign í félagi
um fyrrgreint verkefni á sviði
skipulagshagfræði. Félagið er ekki
starfandi og hefur hvorki tekjur né
gjöld.
Trúnaðarstörf
Skipulagsráð Reykjavíkur (í leyfi)
Í stjórn Oxbridge-félagsins
Félagi í “In Defence of Iceland” hópnum
sem berst fyrir hagsmunum Íslands á
alþjóðavettvangi
Oxford University Heritage Society
Sjá nánar á vef Framsóknarflokksins
www.framsokn.is
NÝJA ÞJÓÐARSÁTT
Birkir Jón leggur
áherslu á
næga atvinnu
fyrir alla
NORÐAUSTUR 5