Fréttablaðið - 11.04.2009, Side 60

Fréttablaðið - 11.04.2009, Side 60
40 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Víða sáust áberandi hálsfestar á tískusýningum fyrir næsta haust og vetur og lítur út fyrir að þetta verði vinsælt. Perlufestar sáust aftur í stórum stíl, sérstaklega hjá Moschino, Chanel og Givenchy en einnig mikið af stuttum, þykkum hálsfestum sem minntu á drottningar fyrri alda. - amb PERLUR OG HÁLSFESTAR: Öll athygli á háls- inum næsta haust > FACEHUNTER GEFUR ÚT BÓK Yvan Rodic, betur þekktur sem Facehunter, hefur eina undarlegustu vinnu í heimi: að taka ljósmyndir af „töff“ fólki. Rodic, sem hefur margoft heimsótt Ísland og myndað Íslendinga, hefur öðlast frægð í gegnum bloggsíðu sína en áformar nú að gefa út bók næsta haust hjá forlaginu Thames & Hudson. Í bókinni verða sýnishorn af myndum hans hvaðanæva úr heiminum. Heimur klæðanna virðist hafa snúist aðallega um tvo hluti í aðdrag- anda páska. Sá fyrri, og sá mun áhugaverðari, eru fréttir um möguleg líkklæði Jesú Krists sem Vatíkanið veitti nýlegar upplýsingar um og sá síðari er fataskápur bandarísku forsetafrúarinnar Michelle Obama. Bresk blöð hafa varla fjallað um annað en Evrópuheimsókn Obama- hjónanna eða hvor forsetafrúin hafi verið glæsilegri, hin franska og fagra Carla Bruni eða Michelle, sem þykir minna um margt á Jackie Kennedy. Fyrir utan hvað mér finnst það einstaklega karlrembulegt að virt blöð séu að fjalla um forsetafrúrnar og fatastíl þeirra þá á ég bágt með að skilja um hvað allt málið er. Michelle Obama er sæt kona sem gengur í ansi kerlingarlegum drögtum með perlufestar um háls- inn. Ég persónulega hélt að allar forsetafrúr fylgdu þessari uppskrift hiklaust því það virðist ekki vera upp á pallborðið að vera töff í diplómatískum kreð- sum. Þar er aðalatriðið að vera penn og prúður og styggja engan með fríkuðu fatavali. Synd, því Carla Bruni er svo miklu sætari í galla- buxum og leðurjakka heldur en einhverjum gráum tweeddrögtum, þó að merkið innan í sé Dior. Michelle Obama minnir kannski eitt- hvað á Jackie Kennedy en hún gæti líka alveg eins minnt á Bretlandsdrottningu sem hefur ætíð þrammað um í hnésíðum bláum kápum með stórar handtöskur. En franska og breska pressan hafa farið fögrum orðum um klæðnað frú Obama en hún sást meðal annars í hönnun eftir Alaia, Moschino og Etro. Mikið þætti mér það frísk- andi ef þessar konur sem fórna eigin frama fyrir valdamikinn eiginmann myndu nú rokka aðeins upp klæðaburðinn og taka nokkrar áhættur. Uppgötva nýja og spennandi unga hönnuði, vera pæjulegar og mæta jafnvel í leðurbuxum í kokk- teilpartí. Og þó … gerði hún Dorrit okkar ekki einmitt það? Penar og fínar forsetafrúr PÍFUR Svartur kjóll úr hrásilki við drapplitaðar perlur hjá Givenchy. DRAPPLITAÐAR Flottar stórar perlur hjá Givenchy við svartan klassískan flauelskjól. PÖNKAÐ Bleik hálsfesti við leður og tjull hjá Marc Jacobs fyrir Louis Vuitton. GAMALDAGS Kjóllinn minnir á þriðja áratuginn hjá Lanvin með stóru og áberandi hálsskrauti. Koparbrúnn og seiðandi augnblýantur frá Chanel skapar flott sixtís-lúkk. 9. HVER VINNUR! KOMIN N Í ELKO! WWW.SENA.IS/GODFATHER FULLT AF AUKAVINNINGUM: TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRA! SENDU SMS EST GFM Á NÚMERIÐ 1900 - ÞÚ GÆTIR UNNIÐ eintak! Corleone fjölskyldan vill fá þig til að taka völdin! 199 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Æðislegan rósrauðan kinnalit frá Estée Lauder til að fríska upp á andlitið í vor. OKKUR LANGAR Í … Dökkblár augnskuggi er tilvalinn í sumar og þessi er frá nýju Estée Lauder-línunni.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.