Fréttablaðið - 11.04.2009, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er laugardagurinn 11. apríl,
101. dagur ársins.
6.10 13.29 20.49
5.49 13.14 20.40
4.990,-/33 í pk.
Nú þegar páskahátíð er fyrir dyrum er kannski við hæfi að
staldra við og skoða hvernig tákn-
mál krossfestingarinnar hefur
birst í þjóðfélagsumræðunni upp
á síðkastið. Það er nefnilega ekki
langt síðan boðið var upp á nýstár-
legt tilbrigði við Golgata-myndina
í ræðu sem vakti töluverða athygli.
Þar var frelsaranum á krossin-
um, vannærðum og húðstrýktum
með ræningja til hvorrar handar,
skipt út fyrir stríðalinn ræningja á
eftir launaaldri með tvö vammlaus
jakkaföt til hvorrar handar. Guð-
lastið er náttúrulega svo æpandi
að umdeild símaauglýsing frá því
í hittiðfyrra er eins og hákirkju-
legur rétttrúnaður í samanburði.
AÐ vísu má hafa gaman af því
að klára að fylla upp í myndina.
Þannig mætti klappa Hólmsteini
frá Kýrene á kollinn fyrir dugn-
aðinn við að bera kross frelsara
síns þótt enginn hafi beðið hann
um það. Sömuleiðis er skemmti-
legur samkvæmisleikur að máta
Steingrím, Jóhönnu og Ingibjörgu
Sólrúnu sitt á hvað í hlutverk Her-
ódesar, Kaífasar og Pontíusar Píla-
tusar.
GALLINN er bara að líkingin
gengur alls ekki upp hjá ræðu-
manni. Til dæmis er nú orðið
deginum ljósara að það verður
ekki hann sem fær það hlutskipti
að taka saklaus á sig allar mis-
gjörðir flokksins. Fráfarandi for-
maður hans hefur nefnilega ekki
haft undan við að gangast undir
syndaklafa meðbræðra sinna
jafnóðum og upp um skandalana
kemst. Flokkurinn hefur orðið upp-
vís að því að ganga erinda stórfyr-
ir tækja sem á móti dældu tugmillj-
ónum króna í hann. Nýr formaður
hefur reyndar lýst því yfir að auð-
velt sé að draga rangar ályktanir
af því að þetta skuli einmitt vera
sömu fyrirtækin, í raun sé það
aðeins óheppileg tilviljun. Mynd-
in heldur nefnilega enn áfram að
skekkjast þegar að því kemur að
finna Júdas, þann sem seldi sál
sína fyrir 30 silfurmilljónir. Þar
er enginn skortur á kandídötum.
LOKS hrynur líkingin alveg þegar
haft er í huga að ræðumaðurinn
hafði nýlega talað fjálglega um
þann stuðning og traust sem hann
nyti hjá alþýðunni, yfirvöld væru
að ofsækja sig í óþökk hennar. Í
píslarsögunni á sú lýsing ekki við
um Jesú frá Nasaret, heldur morð-
ingjann Barrabas. En auðvitað er
það í fullkomnu samræmi við þann
málflutning frjálshyggjunnar að
græðgi sé góð, þ.e.a.s. að synd sé
dyggð, að morðinginn sé frelsar-
inn.
Hausaskelja-
staðarávarpið