Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
BÍLGREINASAMBANDIÐ spáir
lítils háttar samdrætti í bílasölu á
þessu ári og
reiknar með að
um 14 þúsund ný-
ir fólksbílar muni
seljast. Til sam-
anburðar seldust
tæplega 16 þús-
und bílar í fyrra
og dróst salan þá
saman um 6,9%
miðað við 2006.
Samkvæmt
upplýsingum Bíl-
greinasambandsins var sala á lúxus-
bílum í fyrra með besta móti en hafa
ber í huga í slíkum samanburði að
um mjög lágt hlutfall er að ræða af
heildarsölu þó svo prósentan geti
verið há milli ára.
Sem dæmi var 126% söluaukning í
Land Rover-bílum á síðasta ári en
alls seldust 348 slíkir bílar sem er
2,2% af heildarsölu ársins.
Þrátt fyrir góða sölu í bílum síð-
astliðin þrjú ár er meðalaldur fólks-
bíla hár hér á landi eða um 9,5 ár,
segir Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins.
Segir hann að bílaframleiðendur
keppist nú um að framleiða bíla sem
losa sem minnst af óæskilegum loft-
tegundum og þurfi að beygja sig
undir mun strangari mörk í því sam-
bandi á allra næstu árum þannig að
þróunin verði gríðarlega hröð á
næstunni.
Spáir sam-
drætti í
bílasölu
Özur Lárusson
Lúxusbílar ruku
hreinlega út í fyrra
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
FRIÐARGÆSLULIÐARNIR níu
sem starfa á vegum Íslensku friðar-
gæslunnar í Srí Lanka verða kallaðir
heim á næstu dögum vegna vopna-
hlésrofs Tamíltígra og stjórnarhers-
ins í Srí Lanka, en ekki er ljóst hvað
tekur við hjá þeim við heimkomuna.
Friðargæsluliðarnir, fjórar konur
og fimm karlar, eru í vinnusambandi
við utanríkisráðuneytið og hafa gert
kjarasamninga við ráðuneytið. Að
sögn Önnu Jóhannsdóttur, forstöðu-
manns Íslensku friðargæslunnar, er
eftir að ræða við fólkið og tekur hún
fram að það eigi mismunandi mikið
eftir af samningsbundnum tíma í
landinu. „Þetta er mjög hæft fólk sem
við reiknum með að geta nýtt í önnur
verkefni ef því er að skipta,“ segir
hún. „Nokkrir í hópnum hafa verið í
friðargæsluverkefnum áður, bæði á
Srí Lanka og öðrum stöðum.“
Vilja standa við samninga
Anna bendir á að nú séu íslensk yf-
irvöld að hætta friðargæsluverkefn-
um í Srí Lanka, en sex ár eru liðin frá
því fyrstu friðargæsluliðarnir fóru
þangað fyrir Íslands hönd. „Við erum
í ýmsum öðrum verkefnum og ef fólk-
ið fer í önnur verkefni annars staðar
yrði það samningur um nýtt verkefni.
Við munum fara yfir þessi mál með
fólkinu þegar það hefur gengið frá
sínum málum í Srí Lanka og er komið
heim.“
Í landinu eru einnig starfsmenn
Þróunarsamvinnustofnunar Íslands
en þeir eru ekki tengdir friðargæslu-
störfum og hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvort þeir verða kallaðir
heim. „Við munum að sjálfsögðu, í
samvinnu við utanríkisráðuneytið,
skoða hvert framhaldið verður,“ segir
Sighvatur Björgvinsson, fram-
kvæmdastjóri ÞSSÍ. „Við höfum þeg-
ar skuldbundið okkur til að kosta
ákveðið verkefni og drögum okkur
ekki út úr samningum sem við höfum
gert í nafni Íslands. En það þarf að
skoða framhaldið og hvort ástæða er
til að hafa fólk að störfum á svæðinu.“
Á vegum ÞSSÍ í Srí Lanka eru Ís-
lendingar að störfum, bæði sem fastir
starfsmenn og einnig nokkuð margir
skammtímaráðgjafar. Einnig eru inn-
lendir starfsmenn að störfum í land-
inu.
Sighvatur bendir á að mál geti
þróast þannig að íslenskir starfsmenn
ÞSSÍ verði kallaðir heim en það bíður
ákvörðunar stofnunarinnar. Fari svo
blasir við að ÞSSÍ muni standa við þá
starfssamninga sem gerðir hafa verið
við fólkið þótt það verði kallað heim.
Það felur m.a. í sér að reynt verður að
útvega fólki vinnu annars staðar.
Tveir íslenskir fastráðnir starfs-
menn eru nú að störfum í landinu og
fimm innlendir. Þá kemur talsverður
hópur af íslenskum og erlendum
skammtímaráðgjöfum til landsins á
hverju ári.
Gætu nýst í önnur
friðargæslustörf
Ekki ákveðið hvort starfsmenn ÞSSÍ verða kallaðir heim
Morgunblaðið/Þorkell
Ófriðlegt Veður eru válynd á Sri Lanka og viðbúið að þar komi til átaka.
Anna
Jóhannsdóttir
Sighvatur
Björgvinsson
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur
með samþykki ríkisstjórnarinnar
ákveðið að skipa tvær nefndir til
að fjalla um leið-
ir til að styrkja
atvinnulífið og
samfélag á
svæðum þar sem
hagvöxtur er lít-
ill.
Önnur nefndin
á að fjalla um
Norðurland
vestra og skila
forsætisráðherra
tillögum eigi síðar en í lok mars
2008. Hin nefndin á að fjalla um
fámenn byggðarlög á Norðurlandi
eystra og Austurlandi, sem eiga
undir högg að sækja í atvinnulegu
tilliti, og skila forsætisráðherra til-
lögum eigi síðar en 1. maí 2008.
Í frétt frá forsætisráðuneytinu
kemur fram að atvinnu- og búsetu-
skilyrði í þessum byggðarlögum
séu afar veik og hagvöxtur nei-
kvæður.
Nefndirnar eiga meðal annars
að koma með tillögur um mögu-
lega styrkingu menntunar og
rannsókna, uppbyggingu iðnaðar
og þjónustu og flutning starfa frá
höfuðborgarsvæðinu til umræddra
svæða.
Í hvorri nefnd eiga sæti fimm
fulltrúar, þar af þrír fulltrúar
stjórnvalda og tveir fulltrúar frá
viðkomandi svæðum. Formaður
beggja nefndanna verður Halldór
Árnason, skrifstofustjóri í forsæt-
isráðuneytinu.
Leita leiða
til styrktar
atvinnulífi
Geir H. Haarde
HÆKKUN á verði bensíns og olíu
hefur ekki áhrif á tekjur ríkisins af
beinum gjöldum sem ríkið leggur á
eldsneyti vegna þess að gjaldið er
krónutala og hækkar ekki þó að
verðið hækki. Hins vegar hækka
tekjur ríkissjóðs af virðisaukaskatti
af eldsneyti eins og öðrum vörum
sem hækka í verði.
Mikil hækkun á ári
OLÍS og Skeljungur hækkuðu
verð á eldsneyti í gær til samræmis
við hækkun N1 í fyrradag. Algengt
verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu á
stöðvum félaganna er nú 134,40
krónur og algengt verð á dísilolíu er
136,90 krónur. Atlantsolía og Orkan
hafa ekki hækkað eldsneytisverð.
Fyrir ári var meðalverð á hverjum
bensínlítra um 111,70 kr. og þar af
voru tekjur ríkisins af virðisauka-
skatti tæplega 22 krónur. Nú kostar
bensínlítrinn um 134,40 og þar af er
virðisaukaskattur um 26,45 kr. Elds-
neyti sem selt er á 134,40 krónur
skilar ríkissjóði u.þ.b. 1,4 milljörðum
meira í tekjur á heilu ári en eldsneyti
sem selt er á 111,70 kr.
Bensínhækkun
skilar meiri tekjum
TVEIR bílstjórar lentu í vandræð-
um vegna hálku á Suðurlandsvegi í
gærkvöldi og misstu bíla sína út af,
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Hvolsvelli.
Í fyrra tilvikinu var um að ræða
jeppa sem fór út af við Land-
vegamót. Tvennt var í bílnum og
sakaði þau ekki, en bíllinn er, sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni, gjörónýtur.
Í hinu tilvikinu var um að ræða
fólksbíl sem fór út af rétt austan við
Hvolsvöll. Tveir erlendir ferða-
menn voru í bílnum og voru þeir
báðir fluttir á sjúkrahús vegna
meiðsla. Bílaleigubíll þeirra er að
sögn ónýtur.
Lögreglan á Hvolsvelli varar við
gríðarmikilli hálku á Suðurlands-
vegi og segir hana sérlega lúmska
þar sem hún sjáist illa. Samkvæmt
tilkynningu frá Vegagerð ríkisins
eru hálkublettir á Sandskeiði,
Hellisheiði, í Þrengslum sem og á
Suðurlandi. Vegir eru víðast hvar
auðir en þó er einhver hálka, fyrst
og fremst á fjallvegum, á Vest-
fjörðum og Austurlandi.
Mjög snarpar hviður eru við
Lómagnúp og eru vegfarendur
beðnir að fara þar með gát.
Vegna vegaskemmda er Flóka-
dalsvegur í Borgarfirði, vegur 515,
lokaður milli Varmalækjar og
Múlastaða og 7 tonna öxulþungi frá
Múlastöðum að Hrísum.
Veðurstofa Íslands spáir slyddu
eða rigning um landið austanvert í
dag, dálítil él verða norðvestantil
en heldur hægara og hálfskýjað um
landið suðvestanvert.
Tvö hálkuslys á Suðurlandi
ÞEGAR flytja á sjúklinga til og frá gjörgæsludeild
Landspítalans við Hringbraut þarf að beita mikilli út-
sjónarsemi. Lyftur sem sjúklingar eru fluttir í milli
t.d. skurðstofa og gjörgæslu eru svo litlar að ekki er
pláss fyrir bæði sjúkrarúm og lífsnauðsynlegar vélar
sem sjúklingunum fylgja. Starfsfólkið deyr þó ekki
ráðalaust, setur sjúklinginn í rúminu í eina lyftu, blæs
í hann lofti og hleypur svo með öndunarvélina í næstu
lyftu og tengir hana við sjúklinginn þegar á leiðarenda
er komið.
„Það sér hver maður að þessi aðstaða gengur ekki
upp,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra, sem heimsótti gjörgæsludeildina í gær.
Byggt verður við gjörgæsluna á næstu mánuðum en
lyfturnar bíða úrlausnar þar til nýr spítali rís á næstu
árum. | Miðopna
Tækin taka næstu lyftu
Þrengsli há gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut
Morgunblaðið/Ómar