Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 6

Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 6
6 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR N ú hverfur hver jólasveinn- inn á fætur öðrum til síns heima, burt frá okkur í mannabyggð og heim í fjöllin til Grýlu. Sá síðasti fer á morgun. Ég er ein þeirra fjölmörgu Íslendinga sem er með gullfiskaminni. Ég velti því reglulega fyrir mér hvort ég sé komin með snert af minnisleysi um leið og ég reyni að rifja upp hvar ég lagði bílnum. Mín helsta huggun í þessum ósköpum er að heyra og skynja að ég er ekki ein á báti, það líður ótrúlega mörgum Íslend- ingum einmitt svona. Við erum dæmd til skammtímaminnis. Markaðsöflin allt í kringum okkur, hraðinn, fyrirsagnamergðin, áreitið, hlaupin, fréttir sem verða úreltar um hæl: Allt þetta býr til slíkan þankagang þjóðar, þankagang gullfisksins, og ein- mitt þarna hreiðrar stjórnmálamenning nútímans um sig. Reyndar er það ekki bara stjórnmálamenningin sem lifir þarna ljúfu lífi heldur mýmörg svið mannlífsins önnur. Í vor voru kosningar og allir í óða önn að útdeila pökkum úti um allt á alla. Það vantaði bara að frambjóðendur væru klæddir við hæfi. Góður jólasveinn á kosningaári veit nákvæmlega hvað hver vill fá í skóinn og hjá honum fer enginn í jólaköttinn. Í framhaldinu treystir hann svo á skammtímaminnið. Nú eru enda flestir búnir að gleyma öllu því sem var lofað síðastliðið vor. En það virðist ekki skipta máli af því að fréttir gærdagsins eru liðin tíð, það er þreytt og úrelt að rifja þær upp. Við minnumst ekki á gamla jólapakka, við kaupum nýja. Þau sem ekki eru alveg jafn minn- islaus skulu gjöra svo vel að hysja upp um sig og hætta að vera fúl á móti. Pólitísk loforð og yfirlýsingar virðast á stundum jafngilda veruleika og fram- kvæmdum. Ef hamrað er nógu vel og lengi á fyrirsögnum um breytta tíma – m.a. í gegnum upplýsingastýringu, frétt- ir og slagorð – þá virðist sem eiginlegar breytingar eigi sér stað. Stoðin í raun- veruleikanum fellur fyrir ofan garð og neðan, umbúðir verða innihald, slagorð verða ígildi framkvæmda. Í heilbrigðum heimi eru það verkin sem tala en í heimi gullfiskaminnis og kapphlaups, á „upplýsingaöld“, þá eru það yfirlýsingarnar sem samsvara verk- um. Allar þjóðir skrifa undir Kyoto- bókun gegn loftslagsbreytingum, fá und- anþágur þar sem við á og húðskamma Ameríku fyrir að vera ekki með. En við hvað hafa hin yfirlýsingaglöðu staðið, hvað hefur í raun breyst? Skítt með það: undirskrift jafngildir framkvæmd í heimi sem nærist á loforðum. „Útrýmum biðlistum á 18 mánuðum!“ Jahá, gerum það. „Ísland best í heimi!“ Yfirlýsingin hefur sín áhrif, hún virk- ar. Við fáum á tilfinninguna að allt sé í lukkunnar velstandi, eins gott og það geti nú orðið, þrátt fyrir einhverja hnökra sem þyrfti að laga við tækifæri. Það er mun þokukenndara og erfiðara að átta sig á því sem á sér raunverulega stað í samfélaginu, enda er umbúðalaus veruleiki flókinn og margslunginn og ekkert sérstaklega jólapakkalegur. Standa nýir tímar jafnvel í stað eða liðast þeir bara áfram eins og vanalega? Við Íslendingar erum gjörn á að þykj- ast vilja breyta og gera betur þegar eitt- hvað kemur upp sem veldur almennri hneykslan. En þegar á reynir föllum við gjarnan fyrir ígildi nýrra jólapakka og glitrandi kosningavíxlum. „Hver býður best daginn fyrir jól? Kjósum hann!“ Tja, annaðhvort hann eða bara þann sem við erum vön. „Ef þú vilt komast langt í þessum heimi skaltu lofa öllu en ekki standa við neitt“ er haft eftir Napóleón Bonaparte, þeim sem sigraði Evrópu. Þótt það sé gott að vera jólasveinn inn við beinið þá þurfum við öll á aðhaldi að halda. Hvert og eitt okkar ber ábyrgð á heilbrigðari stjórnmálamenningu, heið- arlegri viðskiptum, sjálfstæðari fjöl- PISTILL » Pólitísk loforð og yf- irlýsingar virðast á stundum jafngilda veru- leika og framkvæmdum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Jólapakkapólitík miðlum, eðlilegra verðlagi, sjálfsagðara jafnrétti. Það er ekki bara á ábyrgð þess- arar stofnunar eða hinnar, þessa stjórn- málaflokks eða hins, að halda uppi lýð- ræðislegu samfélagi. Það er ábyrgð hvers og eins okkar að sjá í gegnum um- búðirnar og krefjast innihalds, það er okkar að þyrsta í staðreyndir en sættast ekki á upplýsingastýringu þægilegra þagna, hvirfilvind slagorða eða viðtekin hagsmunatengsl. Það er okkar að taka afstöðu í stað þess að sofa í gegnum flauminn. Á þrettándanum flytja álfar og huldu- fólk búferlum, kýr tala og jólasveinar skunda heim á leið. Eða svo er sagt, við brennum út jólin. Megi jólasveinar allir sem einn komast heim heilu á höldnu þessa nótt og Grýla taka vel á móti þeim í fjöllunum. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is SAMKOMULAG náðist í gær milli Reykjavíkurborgar og Eignarhalds- félagsins Kaupangurs, eiganda Laugavegar 4-6, um að fresta niður- rifi húsanna í 14 daga, en þann tíma hyggst borgin nota til að flytja þau af lóðinni og gera upp á öðrum stað. Hljómskálagarðurinn kemur til greina en einnig aðrir staðir, að sögn borgarstjóra. Eigendur hússins hafa fengið öll til- skilin leyfi til að rífa húsin, raunar fyr- ir allöngu síðan. Inntur eftir því hvers vegna gripið hefði verið til þess í gær- morgun að óska eftir fundi með eig- endunum og freista þess að semja um að niðurrifi yrði frestað, sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, að hann hefði frétt af því í fyrrakvöld (fimmtu- dagskvöld) að húsafriðunarnefnd ætl- aði ekki að beita skyndifriðun til að friða húsin, líkt og Torfusamtökin höfðu farið fram á að yrði gert. Einnig að til stæði að hefja niðurrif húsanna að morgni. Í kjölfarið hefði hann ósk- að eftir að rætt yrði við eigendur hússins um frestun. „Sú spurning sem við stóðum frammi fyrir í gær [fimmtudag] var í raun sú hvort við vildum halda í þessi hús og gera þeim sóma á nýjum stað. Og það varð sem sagt niðurstaðan, í stað þess að láta gröfurnar hjóla í þau,“ sagði hann. Það hefði verið til umræðu í nýjum meirihluta að flytja húsin og láta gera þau upp en beðið hefði verið eftir nið- urstöðu húsafriðunarnefndar. Samkvæmt upplýsingum frá húsa- friðunarnefnd liggur formleg ákvörð- un um að beita ekki skyndifriðun reyndar ekki fyrir og mun væntan- lega ekki gera það fyrr en á fundi hennar á þriðjudag. Niðurrif húsanna er heimilað í deiliskipulagi sem var samþykkt árið 2003 og byggingaleyfi og leyfi til nið- urrifs voru gefin út í sumar og haust, að sögn Dags. Málið væri úr höndum borgarinnar. Aðspurður sagði Dagur að borgin gæti í sjálfu sér keypt húsin. Það væri á hinn bóginn alltaf spurning hversu miklum fjármunum væri verjandi að yrði varið til slíks. Engin tilboð hafa þó gengið á milli borgarinnar og eig- enda húsanna en Dagur sagði að það blasti við að hugsanlegt kaupverð myndi hlaupa á hundruðum milljóna. Jóhannes Sigurðsson hjá Kaup- angri sagði við Morgunblaðið í gær að félagið hefði engan áhuga á að selja lóðina og þar hefðu menn ekkert velt hugsanlegu söluverði fyrir sér. Vel yfir 100 milljónir Að sögn Dags er gert ráð fyrir að flutningur húsanna kosti 4-5 milljónir króna og það kosti á annað hundrað milljónir að gera þau upp. Þá á eftir að taka lóðarverð inn í reikninginn. Dagur sagði ljóst að ekki væru allir húsafriðunarmenn ánægðir með þessa lausn og margir hefðu viljað að þau yrðu gerð upp á sínum stað. Hann hefði á hinn bóginn heyrt úr þeirra röðum að flutningur væri illskárri kostur en niðurrif. Um hugsanlega staðsetning húsanna í Hljómskálagarðinum sagði Dagur að það væri aðeins einn mögu- leiki. Ekkert skipulag um byggð í garðinum lægi fyrir en fyrir nokkru hefði verið sett í gang skipulagsvinna og meðal þess sem átti að kanna var hvort fýsilegt væri að láta reisa þar kaffihús. Fengu 14 daga frest til að flytja Reykjavíkurborg samdi um að niðurrifi húsanna við Laugaveg 4-6 yrði frestað Morgunblaðið/Frikki Gálgafrestur Undirbúningur var hafinn að niðurrifi húsanna, m.a. höfðu staurar fyrir framan húsið verið teknir niður. Niðurrifi var frestað. „MINJAGILDI húsanna og verðgildi þeirra yfirleitt er á þeim stað þar sem þau standa. Ef þú fjarlægir þau eyðileggur þú þetta gildi þeirra. Það er bara algjört rugl að mínu mati. Ég skil ekki í nokkrum manni að láta sér detta þetta í hug,“ sagði Hjörleif- ur Stefánsson arkitekt um þá ákvörðun Reykjavíkurborgar að láta flytja húsin við Laugaveg 4 og 6 á nýja lóð. Að ósk borgarminjavarð- ar skoðaði Hjörleifur húsin í haust með hliðsjón af þeirri spurningu hvort unnt væri og fýsilegt að láta flytja húsin og endurbyggja þau nærri upprunalegri mynd á öðrum stað. Í minnisblaði sem hann gerði í kjölfarið sagðist hann sammála því mati borgarminjavarðar að húsin hefðu verulegt minjagildi þrátt fyrir að þeim hefði verið mikið breytt og þeim misþyrmt. Gildi þeirra væri þó fyrst og fremst fólgið í því að þau, ásamt öðrum húsum, mynduðu elsta og mikilvægasta hluta Laugavegar. Þá væri ljóst að byggingarlóðin hlyti að vera afar dýr, enda yrðu húsin að standa í miðbænum til að þau væru í einhverju samhengi við umhverfið. „Þessum fjármunum væri miklu bet- ur varið í að kaupa húsin af núver- andi eigendum og stokka upp í mál- inu. Sú ráðstöfun myndi gagnast málstað almennings en ef Reykja- víkurborg leggur til fjármuni í að flytja húsin af staðnum er hún að kosta niðurlægingu Laugavegar til að auka á gróða núverandi eig- enda,“ segir í minnisblaði Hjörleifs Stefánssonar arkitekts. Misskilningur borgarstjóra Snorri Freyr Hilmarsson, formað- ur Torfusamtakanna, sagði að deil- an um húsin hefði aldrei snúist um að húsin yrðu flutt, heldur um að ein elsta göturöð bæjarins yrði ekki höggvin í tvennt með nýju og stóru hóteli. „Þannig að ég held að hann [borgarstjórinn] misskilji alveg út á hvað málið gengur,“ sagði Snorri. Borgarstjóri ætti að hafa kjark til að stíga skrefið til fulls og vinda ofan af fyrirhuguðum framkvæmdum með því að kaupa húsin og lóðina. Borgin gæti t.d. náð í fjármuni úr skipulags- sjóði en sjóðurinn hefði rifið hús og látið rýma lóðir með ágætum arði undanfarin ár. „Það er nýbúið að selja Fríkirkjuveg 11 fyrir 400 millj- ónir þannig að það er ekki eins og gömul hús hafi ekki verið tekjulind fyrir borgarsjóð,“ sagði hann. Aðspurður sagði Snorri að það væri illskárra að flytja húsin en rífa. „Það er búið að flytja hús í burtu frá 1962. Það er gamla lagið,“ sagði hann. Gera ætti upp hús á staðnum og vinna með götumyndina og láta heildina njóta sín. Stíll Tillaga Torfusamtakanna. Núverandi hús endurbætt og stækkuð með hliðsjón af upphaflegum stíl Minjagildi lítils virði á nýrri lóð Hótel Gert er ráð fyrir að 2/3 hlutar á götuhæð hótelsins verði verslunarrými. Það verður fjórar hæðir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.