Morgunblaðið - 05.01.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 9
UMHVERFISRÁÐHERRA hefur
skipað nefnd sem á að gera tillögu
til ráðherra um aðgerðir til að
minnka úrgang og auka endur-
vinnslu á dagblöðum, tímaritum og
öðrum óumbeðnum prentpappír.
Nefndin á að kanna mögulegar
lausnir, þar á meðal framleiðendaá-
byrgð.
Gert er ráð fyrir að nefndin skili
tillögum sínum til ráðherra fyrir 1.
júlí.
Fram hefur komið að magn fjöl-
pósts hafi aukist um 76% frá árinu
2003 til 2007.
Nefndina skipa Sigurbjörg Sæ-
mundsdóttir, deildarstjóri í um-
hverfisráðuneytinu, formaður, Gló-
ey Finnsdóttir, lögfræðingur í
umhverfisráðuneytinu, Ari Edwald
forstjóri, tilnefndur af Samtökum
atvinnulífsins, Björn Halldórsson,
tilnefndur af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Bryndís Skúladóttir,
tilnefnd af Samtökum iðnaðarins,
Guðrún Tryggvadóttir, tilnefnd af
félagasamtökum, Gunnlaug Ein-
arsdóttir, tilnefnd af Umhverf-
isstofnun, Ólafur Kjartansson, til-
nefndur af Úrvinnslusjóði, og
Sigurður Örn Guðleifsson, til-
nefndur af Félagi íslenskra stór-
kaupmanna.
Nefnd um
óumbeðinn
prentpappír
20% afsláttur
af öllum vörum í dag
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Stórútsala
Allar vörur
í versluninni á útsölu
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
iðunn
tískuverslun
Laugavegi, s. 561 1680
Kringlunni, s. 588 1680
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
Laugavegi 25
sími 533 5500
ÚTSALA
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
ÚTSALA ÚTSALA
MIKIL VERÐLÆKKUN
Dansnámskeið
Þjóðdansafélags
Reykjavíkur
Gömludansanámskeiðin hefjast 7. janúar.
Opið hús 9. janúar.
Upplýsingar í síma 587 1616
Þjóðdansafélag Reykjavíkur Álfabakka 14a
ÚTFÖR Björns Þórhallssonar við-
skiptafræðings var gerð frá Lang-
holtskirkju í Reykjavík í gær. Séra
Jón Helgi Þórarinsson jarðsöng,
Bergþór Pálsson söng ásamt fé-
lögum úr Karlakórnum Fóst-
bræðrum og Jón Stefánsson lék
undir á píanó.
Líkmenn voru frá vinstri Gunn-
ar Þór Þórhallsson, Knútur
Björnsson, Sverrir Haraldsson,
Sverrir Hermannsson, Davíð
Oddsson, Ásmundur Stefánsson,
Ingi Kristinsson og Þorbergur
Þórhallsson.
Morgunblaðið/Golli
Útför Björns Þórhallssonar
VERÐSKRÁ Símans hækkaði í
nokkrum þjónustuflokkum um ára-
mótin. Mínútuverð farsímaþjónustu,
þegar hringt er í heimasíma, hækk-
aði um 1 krónu í öllum áskriftar-
flokkum fyrir utan GSM-samband 2,
3 og 4. Upphafsgjaldið hækkaði um
0,25 kr. í öllum áskriftaflokkum.
Mánaðarverð fyrir grunnþjónustu
í GSM hækkaði um 40 kr., en hækk-
unin á þó ekki við um Betri leiðir í
GSM. Mánaðarverð fyrir sérþjón-
ustu hækkaði um 9 kr. og verð á SMS
til útlanda í Frelsi hækkaði um 5 kr.
GSM-samband 2 hækkaði um 40
kr. og GSM-samband 3 um 70 kr.
Mánaðarverð heimasíma hækkaði
um 50 kr. og sérþjónustu um 9 kr.
Grunnáskriftarverð fyrir ADSL
hækkaði um 10%.
Hækkunin á ekki við um Betri
leiðir í Interneti eða fjarvinnu-
grunna, þar sem verðið helst
óbreytt. Mánaðarverð fyrir ATM-
þjónustu á fyrirtækjamarkaði hækk-
aði um 15%. Mánaðarverð NMT-
þjónustu hækkaði um 10% og mán-
aðarverð sérþjónustu hækkaði um 9
kr.
Verðskrá Símans hækkar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti