Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 14

Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 14
14 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                              !                   !!"     " #$%# &'() $$*+#%# &'() ,-"() .%# &'() %/-"-#0$-() 1)-2$-')3/4 / 56/-#%# &'() &'7-4 $() .0$- /() "#&2&#8 &#9#: ;0() <2-() =&#()  !"#   >?() /)6() "/"-6-#< "/"-6@"# /&2@A -$ $- /4%# &'() B# < $ 56/-6%# &'() #/() C(#;-() @  #<44-42-9"+9-() -/&"+9-()  $%!& ' D"&#</&2-&2D  1 %#-() 12'-9;() ( #) * ,#                                                                                      -9$-'"- 4- -/0 9E/ $4F &' / G  H I I!I>G !I>?!H> IGG JI!> IIGH> GJ JJ JG! IIGG? > H >I JHI?HGH  HHGG> I?J>?!J! IHG!! HH! !?!! GIJI  J!!J?  GIHI H ? I?!! H>HGIG JJ!> ?J>>GJ!?J 8 ?>?JH 8 8 GH !!!! 8 8 JK?H K!! GK> >K! I!KH >>KJ! I?K HI!K!! >>K?!  KG KH! JHKH! KJJ ?KHH IIK! JI>K!! J!K!! !KHI ?K!! KH! !K! I>KI! HK!? 8 8 >J!K!! 8 8 JKG! K! GK ! >KJ I!KJ > KI I?K? HIK!! >>KH  K? KHG JJK! IK! ?KJ IIHK! J?!K!! K!! !KH> GK!! KHG !IK! 8 HK! GK!! 8 >IIK!! !K!! ?K!! ;+/- *-9$-'"   H G IJ I G G GI G! > G >  >H > > H ! H 8 !J 8 8 H 8 8 4"-4 *-9$*#9 I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H I!!H IGII!!G I!!H ?II!!G IIHI!!G I!!H GII!!G II!!G MARKAÐIR í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum féllu í gær eftir að nýjar tölur um atvinnuþróun í Bandaríkjunum voru birtar. Sýna þær að fjöldi nýrra starfa í desember var töluvert minni en greiningarað- ilar höfðu gert ráð fyrir. Nikkei-hlutabréfavísitalan jap- anska varð fyrst til að finna fyrir titringnum á mörkuðum og féll hún um 4,03%. Ekki var mikið um hreyf- ingar upp eða niður á helstu mörk- uðum Evrópu í gærmorgun, þótt helst hefðu þeir sigið niður á við, þar til bandarískar kauphallir voru opn- aðar. Bandarískar vísitölur lækkuðu hratt strax frá byrjun og fylgdu evr- ópsku vísitölurnar með og var áber- andi lækkun á helstu vísitölum á þeim tímapunkti. Samnorræna vísitalan lækkaði um 3,33% í gær, sænska OMXS30 um 3,43% og danska OMXC20 um 2,49%. Lækkanir annars staðar í Evrópu voru ekki jafn afgerandi en þó töluverðar. Breska FTSE-vísital- an lækkaði um 2,02%, þýska DAX um 1,26% og franska CAC40 um 1,79%. Í Bandaríkjunum lækkaði Dow Jones um 1,96% og Nasdaq um 3,77%. Mikilvægi einkaneyslu Í Wall Street Journal er fjallað um ástæður þess að atvinnutölur valda svo miklum usla nú. Telja greining- araðilar að einkaneysla og þar með hluti hagvaxtar í Bandaríkjunum muni á næstu mánuðum einkum ráð- ast af því hve tekjur launafólks aukast hratt. Sé einkaneysla nógu sterk, geti hún fleytt hagkerfinu í gegnum nokkurra mánaða erfið- leikatímabil. Tekjur almennings ráðast jú af því hve viljugir vinnuveitendur eru til að ráða fólk í vinnu en reynist þeir treg- ir til, þá hefur það áhrif á atvinnu- leysi, launaþróun og þar með einka- neyslu. Því eru viðbrögðin svo harkaleg á mörkuðum þegar í ljós kemur að nýsköpun starfa er undir væntingum. Bandarískar tölur valda lækkunum Í HNOTSKURN » Fjöldi nýrra starfa í Banda-ríkjunum í desember nam 18.000 en hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir 50-70.000 nýjum störfum. » Eru þessar tölur taldarmerki um kólnun á banda- rískum atvinnumarkaði. » Fjárfestar forðuðust í gærfyrirtæki í geirum sem venju- lega fara illa út úr krepputímum, svo sem bifreiðaframleiðendur. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is ● SKIPTI hf., móðurfélag Símans, gerði í gær tilboð í slóvenska fjar- skiptafélagið Telekom Slovenije. Til stendur að selja 49,13% hlut í félag- inu í þessari umferð til kjölfestufjár- festis, sem mun í kjölfarið þurfa að gera öðrum hluthöfum í félaginu yf- irtökutilboð, að undanskildu slóv- enska ríkinu sem halda mun eftir 25% hlut. Samtals er því um að ræða allt að 75% hlut í Telekom Slovenije. Hjá Telekom Slovenije starfa um 4.400 starfsmenn. Hagn- aður fyrir skatta fyrstu 9 mánuði árs 2007 nam 9,4 milljörðum króna. Skipti býður í slóv- enska símafyrirtækið ● NÝR undirmarkaður hefur verið opnaður í kauphöll OMX á Íslandi fyr- ir hlutabréfatengd réttindi (e. equity rights). Með honum verður mögulegt að eiga kauphallarviðskipti með ým- is réttindi sem algengt er að skapist í tengslum við útgáfu hlutabréfa, s.s. áskriftarréttindi. Að sögn Þórðar Friðjónssonar, for- stjóra kauphallarinnar, mun þessi undirmarkaður bæta umhverfi hluta- bréfaviðskipta til muna. Nú sé mögu- legt að eiga viðskipti sem lúta reglum kauphallarinnar og selj- anleiki muni batna verulega, til hagsbóta fyrir útgefendur og eig- endur hlutabréfa. Allir kauphallaraðilar á íslenska hlutabréfamarkaðnum fá sjálfkrafa aðgang að undirmarkaðnum, er nefnist OMX ICE Equity Rights. Markaður með hluta- bréfatengd réttindi ● ANNAR af tveimur fram- kvæmdastjórum Kaupþings í Lúx- emborg, Johnny W. Brøgger, hefur látið af störfum að eigin ósk til að sinna öðrum viðfangsefnum, segir í tilkynningu til Kauphallar. Brøgger hefur undanfarin tíu ár gegnt stöðu framkvæmdastjóra bankans í Lúx- emborg, við hlið Magnúsar Guð- mundssonar. Þá tilkynnti Kaupþing um áramótin að starfsemin í Fær- eyjum hefði verið seld til Eik banka. Greiddi Eik með reiðufé og yfirtók innlán Kaupþings í Færeyjum, en ekki var upplýst um kaupverð. Áhrif sölunnar á efnahag Kaupþings voru sögð óveruleg. Breytingar í Lúx- emborg og Færeyjum VÖRUSKIPTI í nóvember síðast- liðnum voru óhagstæð um 2,5 millj- arða króna, en á sama tíma árið áður nam vöruskiptahallinn 15,5 milljörð- um króna. Í nóvember voru fluttar út vörur fyrir 30,9 milljarða króna og inn fyrir 33,4 milljarða króna sam- kvæmt útreikningum Hagstofunnar. Samkvæmt bráðabirgðatölum var halli á vöruskiptum í desember 16,1 milljarður króna. Fyrstu ellefu mán- uði ársins 2007 voru fluttar út vörur fyrir 269,3 milljarða króna en inn fyrir 353,4 milljarða króna. Sam- kvæmt því nam vöruskiptahalli yfir árið í heild 100,2 milljörðum en árið 2006 var hallinn tæpir 150 milljarð- ar. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2007 jókst verðmæti vöruútflutnings um 50 milljarða króna eða 22,9% á föstu gengi miðað við sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 41% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 35,2% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og aukinnar sölu á skipum og flugvélum. Vöruinnflutningur fyrstu ellefu mánuði ársins dróst saman um 0,3% miðað við sama tíma árið áður. Mest- ur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Vöruskiptahallinn dregst vel saman ALMENNT millilandaflug um Keflavíkurflugvöll árið 2007 jókst um 7,3% frá árinu áður. Farþegum fjölgaði um 8%, úr 2.019.470 í 2.182.232, en vöruflutningar voru um 61.500 tonn eins og árið áður. Flugumferð í heild jókst um 4,2% en viðkoma herflugvéla hefur dreg- ist saman um 36% eftir brottför varnarliðsins, að því er segir í til- kynningu. Ellefu flugfélög stund- uðu farþegaflug á Keflavík- urflugvelli á árinu og þrjú vöruflutninga. Sem kunnugt er halda Icelandair, Iceland Express, SAS og British Airways uppi reglu- bundnu áætlunarflugi með farþega en síðastnefnda félagið hefur til- kynnt að það hætti Íslandsfluginu í mars næstkomandi. Þrjú félög ann- ast vöruflutninga um flugvöllinn. Aukið flug um Keflavíkurflugvöll Ljósmynd/Oddgeir Karlsson ÞETTA HELST ... ● ENN lækkuðu hlutabréf í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísitalan lækkaði um 3,27% og er 5.943 stig, en vísitalan hefur ekki endað undir 6.000 stigum frá því í ágúst 2006. Hlutabréf Marels hækk- uðu um 0,99% í gær og Össurar um 0,40%. Krónan veiktist um 0,21% í gær, en gengisvísitalan var 119,50 stig þegar viðskipti hófust en var 119,75 stig þegar viðskiptum lauk. Velta á millibankamarkaði nam 28,30 milljörðum. Gengi Bandaríkja- dals er 61,67 krónur, punds 121,85 krónur og evru 91,15 krónur. Enn lækka hlutabréf BANDARÍSKI bifreiðaframleiðand- inn Ford Motor Company féll á síð- asta ári úr öðru sæti á lista yfir þá framleiðendur sem selja flesta bíla í Bandaríkjunum og var það japanski bílarisinn Toyota sem velti Ford úr sessi. General Motors trónir þó enn á toppi sölulistans þrátt fyrir að sala hjá fyrirtækinu hafi dregist saman um ein 6% á árinu. Seldi General Motors 3,8 milljónir bifreiða á síðasta ári, samanborið við 2,6 millj- ónir hjá Toyota. Stærstir í heimi? Ford hélt sterkri stöðu sinni á pallbílamarkaðnum, en stór hluti vaxtar Toyota kemur til vegna 69% aukningar á sölu á tvinnbílnum Prius. Í frétt Financial Times segir að jafnvel sé búist við því að Toyota taki fram úr GM sem stærsti bílaframleiðandi heims, en sölutölur fyrir heim- inn allan verða birtar í lok þessa mánaðar. Toyota tekur fram úr Ford GENGIÐ var á gamlársdag frá sölu allra hluta- bréfa Sparisjóðs Mýrasýslu í Borgarnes kjöt- vörum ehf. sem rekin er við Vall- arás í Borgar- nesi. Kaupandi fyrirtækisins er fyrirtækið Sundagarðar hf. í Reykjavík. Fram kemur á fréttavef Skessu- horns að samhliða kaupunum verði ráðist í mikla endurskipulagningu rekstrar enda hafi fyrirtækið verið rekið með umtalsverðu tapi síðast- liðin ár. Haft er eftir Gunnari Þór Gísla- syni, framkvæmdastjóra Sunda- garða og einum af eigendum fyr- irtækisins, að níu starfsmönnum úr öllum deildum Borgarnes kjötvara hafi verið sagt upp störfum frá og með síðustu mánaðamótum og hafa þeir frá einum upp í þrjá mánuði í uppsagnarfrest. Alls starfa 38 manns hjá fyrirtækinu. Meðal fyrirhugaðra breytinga á rekstri er að salatgerð verður aukin sem og slátrun og grófvinnsla á stórgripum. Sauðfjárslátrun verður hætt í Borgarnesi og fullvinnsla ýmissa kjötafurða flutt suður. Þegar haft var samband við Gunnar í gær sagðist hann ekki vilja tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Kaupa Borgarnes kjötvörur Níu starfsmönnum sagt upp Gunnar Þór Gíslason FYRRVERANDI starfsmaður í greiningardeild Goldman Sachs hefur verið dæmdur í tæplega fimm ára fangelsi í New York. Var hann dæmdur fyrir hlutdeild í innherjaviðskipum, jafnframt því sem hann lak innherjaupplýs- ingum í tímarit um hlutabréfa- markaðinn. Eugene Plotkin, 28 ára, baðst afsökunar á framferði sínu áður en dómari kvað upp úrskurð yfir honum, fjögurra ára og níu mán- aða fangelsi. Var honum jafnframt gert að greiða 10 þúsund dali, 630 þúsund krónur, í sekt og allt að 6,7 milljónir dala í févíti, sömu upphæð og hagnaðurinn af ólög- legu viðskiptunum nemur. Dæmdur fyrir innherjasvik ♦♦♦ ● Á FUNDI yfirtökunefndar í gær var ákveðið að nefndin tæki sér frest til fimmtánda þessa mánaðar til að ákveða hvort mál Baugs Group, Fons og FL Group yrði tekið til efnislegrar meðferðar. Málið snýst um það hvort þau eignatengsl séu milli Baugs Group og Fons, stórra eigenda í FL Group, að myndast hafi yfirtökuskylda í síð- astnefnda félaginu. Á fundinum var lagður fram nýr hluthafalisti í FL Gro- up og ákveðið að skoða málið betur. Ákvörðun liggi fyrir eftir rúma viku

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.