Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 17
BAN Ki-moon, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær
deiluaðila í Kenía til að semja um
friðsamlega lausn. Á fjórða hundrað
manns hefur fallið í átökum síðan
umdeildar forsetakosningar fóru
fram 27. desember. Talsmenn al-
þjóðastofnana segja að minnst
180.000 manns hafi flúið heimili sín
og hálf milljón manna sé í brýnni
þörf fyrir neyðargögn.
Stjórnin hafnaði í gær ósk stjórn-
arandstæðinga um nýjar kosningar
innan þriggja mánaða en hinir síð-
arnefndu segja að svikum hafi verið
beitt við talninguna. Eftirlitsmenn
Evrópusambandsins segja einnig að
brögð hafi verið í tafli.
Átökin milli fylkinga hafa að hluta
til snúist í þjóðavíg, einkum í vest-
urhéruðunum. Keníamenn skiptast í
yfir 40 þjóðflokka og er Mwai Ki-
baki, sitjandi forseti, úr röðum þess
fjölmennasta, Kikuyu, sem eru um
22% allrar þjóðarinnar. Næstir eru
Luhya, um 14% og í þriðja sæti eru
Luo. Keppinautur Kibakis, Raila
Odinga, er Luo-maður.
Um 180 þúsund
flýja heimili sín
Reuters
Óeirðir Maður hleypur með fötu til að ná í vatn sem nota á til að slökkva í
brennandi húsi og verslun í fátækrahverfi í höfuðborginni Nairobi.
HÓPUR rann-
sóknarlögreglu-
manna frá
bresku lögregl-
unni, Scotland
Yard, er kominn
til Pakistans að
ósk þarlendra
stjórnvalda til að
rannsaka morðið
á Benazir
Bhutto. Forseti landsins, Pervez
Musharraf, segist ekki sáttur við
rannsókn innlendra lögreglu-
manna. Mistök eins og þau að gatan
þar sem tilræðið átti sér stað skyldi
vera spúluð áður en búið var að
rannsaka hana vandlega hafi verið
gerð vegna vankunnáttu lögreglu
en ekki haft það að markmiði að
hylja merki um aðild ráðamanna að
morðinu.
Fá aðstoð
frá Bretum
Benazir Bhutto
LÆKNAR í New York segja það
einsdæmi að gluggaþvottamað-
urinn Alcides Moreno skyldi lifa af
nær 150 metra fall í byrjun desem-
ber. Hann er kominn til meðvit-
undar og talið að hann muni ná sér.
Mikil mildi
FJÓRÐA stærsta smásölufyrirtæki
Breta á sviði orku, Npower, boðar
allt að 27% hækkun á raforkuverði í
dag auk mikilla hækkana á gas-
verði. Ástæðan er að sögn hærra
verð framleiðenda orkunnar.
Orka hækkar
JÓHANN Karl Spánarkonungur
verður sjötugur í dag. Í könnunum
segjast 69% landa hans álíta að
þingbundið konungdæmi sé besta
fyrirkomulagið og þorri aðspurðra
þakkar honum að lýðræðið sigraði.
Reuters
Í höfn Jóhann Karl heilsar aðdá-
anda eftir siglingakeppni í fyrra.
Sátt við kóng
HELSTI keppinautur Mikhail Saa-
kashvilis, fráfarandi forseta
Georgíu, Levan Gachechiladze,
segist óttast svindl í kosningunum í
dag. Þær verði ekki frjálsar enda
hafi fjölmiðlum verið beitt fyrir
vagn Saakashvilis og reynt að
sverta stjórnarandstöðuna. Hundr-
uð erlendra eftirlitsmanna fylgjast
með kjörinu, þ. á m. þrír frá Íslandi.
Reuters
Ósáttur Gachechiladze á fundi.
Óttast svindl
DAKAR-rallinu, sem átti að hefjast
í dag, hefur verið aflýst af öryggis-
ástæðum en fjórir franskir ferða-
menn voru myrtir í Máritaníu um
jólin. Al-Qaeda-menn hafa fordæmt
Máritaníu fyrir að leyfa rallið.
Ralli aflýst
STUTT
Sími: 414 4000
hreyfing@hreyfing.is
www.hreyfing.is/nyhreyfing
Ný og enn betri námskeið í glæsilegu nýju húsnæði
Hreyfingar í Glæsibæ.
Stott Pilates kerfið þjálfar flata og sterka kviðvöðva.
Jafnvægi á milli styrk- og teygjuæfinga framkallar langa, granna
vöðva og auðveldar hreyfingar.
Stöðug áhersla á öndun bætir súrefnisflæði í blóði og bætir
blóðflæði til heilans sem eykur einbeitingu og vellíðan.
Frábært æfingakerfi sem hefur slegið rækilega í gegn um allan heim.
Byrjenda- og framhaldshópar
Einnig boðið upp á einkatíma í Reformer
Hafðu samband í síma 414-4000 eða
með tölvupósti afgreidsla@hreyfing.is
Allar nánari upplýsingar á www.hreyfing.is
Hefst 14. janúar
NÝ HREYFING
& ný Stott Pilates námskeið