Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 21 ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | „Fjöl- brautaskóli Suð- urlands er frá- bær skóli þar sem skemmtilegt var að vera námsmaður. Nú tekur hins vegar allt annað við hjá mér, ég legg af stað í ellefu mán- aða heimsreisu 11. janúar þar sem ég ætla að heimsækja allavega tólf lönd,“ segir Sara Kristín Finn- bogadóttir á Selfossi sem náði best- um heildarárangri á stúdentsprófi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Árangur Söru Kristínar er einkar glæsilegur þar sem hún lauk í raun stúdentsprófinu á fimm önnum eða tveimur og hálfu ári. „Ég hef ekki hugmynd um hvað tekur við þegar ég kem heim, hvort það verður meira nám eða eitthvað annað, tím- inn einn verður leiða það allt í ljós.“ Sextíu og sex nemendur voru brautskráðir frá skólanum nú. Þetta var jafnframt síðasta brautskráning skólameistarans, Sigurðar Sig- ursveinssonar, sem ráðið hefur sig til starfa í menntamálaráðuneytinu. Beint í heimsreisu Sara Kristín Finnbogadóttir Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Hveragerði | „Það er mjög áhuga- vert viðfangsefni að skipuleggja byggð í þessu landslagi. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir því að það tekur tíma að byggja þetta upp og fer eftir markaðnum. Ég tel að tímaáætl- unin sé nokkuð raunhæf,“ segir Páll Guðjónsson, framkvæmda- stjóri byggðaþróunarsviðs hjá Eykt hf. Auglýst hefur verið deili- skipulag á landi félagsins, Sólborg- um, austan Varmár í Hveragerði. Eykt eignaðist landið með samn- ingum við Hveragerðisbæ í byrjun árs 2006 og síðan hefur verið unnið að þróun þess og skipulagningu. Ágreiningur var um samninginn í bæjarstjórn Hveragerðis og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á síð- asta ári. Páll segir að góð sam- vinna hafi tekist við nýjan meiri- hluta enda hafi ágreiningurinn verið innan bæjarstjórnar en ekki gagnvart Eykt. Hann leggur áherslu að fyrirtækið hafi eignast landið tímabundið til að þróa það og byggja upp og skili síðan meg- inhluta þess aftur til sveitarfé- lagsins. Stuðst er við svipaða hug- myndafræði og við uppbyggingu Norðlingaholts í Reykjavík sem Eykt átti hlut að. Tvöföldun Hveragerðis PK-arkitektar hafa unnið að skipulagi Sólborga á grundvelli verðlaunatillögu í arkitektasam- keppni. Frágangur deiliskipulags hefur dregist vegna breytinga sem gera þurfti á aðalskipulagi en hon- um er nú lokið og er Páll ánægður með niðurstöðuna. Þarna rís liðlega tvö þúsund manna hverfi og þegar það verður fullbyggt verða íbúar um það bil jafnmargir og nú eru í Hveragerði. „Skipulagið miðast við að end- urspegla þarfir samfélagsins fyrir mismunandi húsagerðir og þjón- ustu,“ segir Páll. Næst Suður- landsvegi verða lóðir fyrir atvinnu- húsnæði sem skýla íbúðabyggðinni fyrir umferðarhávaða. Á sléttlend- inu þar á bak við verða fjölbýlis- hús og síðan verða sérbýli meira áberandi þegar ofar dregur í byggðinni, sérstaklega einbýlis- hús. Gert er ráð fyrir að hverfið verði sjálfstætt skólahverfi. Í miðju þess er þriggja hektara lóð fyrir grunnskóla, leikskóla og íþróttahús og önnur lóð fyrir verslunar- og þjónustumiðstöð hverfisins. Samkvæmt samningum við Hveragerðisbæ mun Eykt byggja fyrsta áfanga leikskólans. Valkostur fyrir borgarbúa „Sérstaða þessa svæðis felst í landslaginu,“ segir Páll. Suður- landsvegurinn er í um 20 metra hæð yfir sjávarmáli en efstu húsin eru í 80 til 90 metra hæð. Þetta er nýtt á Suðurlandi þar sem byggðin er á sléttlendi. „Efsti hluti lands- ins er lagður inn í stórbrotið landslag þar sem íbúar munu njóta einstakrar staðsetningar og mikils útsýnis. Við skipulagn- inguna var ákveðið að nýta þetta umhverfi í stað þess að fletja það út og hafa arkitektar möguleika á að hanna húsin inn í landslagið,“ segir Páll. Á næstunni verður boðin út hönnun á götum og lögnum í öllu hverfinu. Uppbyggingu þess verð- ur síðan skipt í áfanga. Páll reikn- ar með að hægt verði að bjóða út verklegar framkvæmdir við götur og lagnir á vordögum og að ef allt gangi vel verði fyrstu lóðirnar til- búnar til ráðstöfunar með haust- inu. Í samningum Eyktar og Hvera- gerðisbæjar er gert ráð fyrir að uppbygging svæðisins taki allt að tólf árum. Páll telur þann tíma- ramma raunhæfan miðað við fjölg- un íbúa á Suðurlandi og möguleika svæðisins til að laða til sín íbúa. „Við teljum að markaðurinn sé fyr- ir hendi. Að bæta við um 60 til 80 íbúðum að meðaltali á ári er vissu- lega í efri mörkunum miðað við íbúaþróun á Árborgarsvæðinu en með bættum samgöngum og tvö- földun Suðurlandsvegar styrkist markaðurinn fyrir höfuðborgar- búa. Ekki þarf mikinn hluta af markaðnum þar til þess að þetta gangi allt út á stuttum tíma,“ segir Páll og bætir við: „Það gerist ekk- ert sjálfkrafa. Við þurfum að sýna fram á að við höfum framúrskar- andi vöru að bjóða.“ „Sérstaðan felst í landslaginu“ Við Kliflæk Húsin í efri hluta Sólborgahverfisins verða í landslagi sem er óvenjulegt fyrir þéttbýli á Suðurlandi. PK arkitektar skipulögðu svæðið og á teikningunni sést frá Kliflæk og yfir húsin á sléttlendinu við Suðurlandsveg. Í HNOTSKURN »Sólborgahverfið verður á77,4 hektara svæði. Deili- skipulag hefur verið auglýst og frestur til að gera athugasemdir rennur út 7. febrúar. » Í Sólborgum verða 850 til 900íbúðir. Þar af er rúmur helm- ingur í sérbýli, mest einbýlis- húsum, og tæpur helmingur í fjölbýlishúsum. Möguleiki er á að hafa litlar aukaíbúðir í sumum einbýlishúsunum. »Á svæðinu verða tólf athafna-lóðir auk verslunar- og þjón- ustumiðstöðvar og skólalóðar miðsvæðis. Deiliskipulag fyrir Sólborgahverfið hefur verið auglýst Páll Guðjónsson SUÐURNES Reykjanesbær | Bæjarráð Reykja- nesbæjar hefur samþykkt ráðningu nýs fólks í tvær stöður fram- kvæmdastjóra hjá bænum, auk þess að ráða nýjan starfsþróunarstjóra. Um áramót gengu í gildi skipu- lagsbreytingar hjá Reykjanesbæ. Þannig var fjármála- og þjónustu- sviði skipt í fjármála- og rekstrarsvið og upplýsingasvið. Auglýst verður á næstunni eftir framkvæmdastjóra upplýsingasviðs. Þá hefur menning- arsvið verið gert sjálfstætt og Val- gerður Guðmundsdóttir menningar- fulltrúi er framkvæmdastjóri þess. Þórey Ingveldur Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Hún lauk meistara- gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2007. Þórey hefur áður starfað sem fjármálastjóri Lána- sjóðs íslenskra námsmanna og for- stöðumaður fjárhags- og rekstrar- sviðs Umhverfisstofnunar. Guðlaugur Sigurjónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri um- hverfis- og skipulagssviðs Reykja- nesbæjar. Guðlaugur lauk BSc- gráðu í byggingafræði árið 2004 frá Vitus Bering í Danmörku. Hann hef- ur undanfarið ár starfað sem verk- efnastjóri hjá Þróunarfélagi Kefla- víkurflugvallar og þar áður starfaði hann hjá Verkfræðistofu Suður- nesja. Guðrún Þorsteinsdóttir hefur ver- ið ráðin starfsþróunarstjóri Reykja- nesbæjar. Hún hefur starfað sem rekstrarstjóri Karenar ehf. og stundar nám í Mannauðsstjórnun við Endurmenntun Háskóla Íslands. Stjórnendur hjá bænum Vallarheiði | Íþróttavellir í háskóla- hverfinu á Vallarheiði eru að mark- aðssetja íþróttahöllina á Keflavík- urflugvelli. Þar er góð aðstaða í mörgum sölum og enn sem komið er er hún lítið notuð af íbúum hverf- isins. Almenningur á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu getur feng- ið þar tíma til íþróttaiðkunar á kristilegum tíma. Þegar varnarliðið yfirgaf Kefla- víkurflugvöll stóðu eftir mikil íþróttamannvirki. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar eignaðist mannvirkin og hefur stofnað félag með háskólamiðstöðinni Keili og Reykjanesbæ um reksturinn, undir heitinu Íþróttavellir. Íþróttahúsið var opnað undir lok síðasta árs, einkum í þeim tilgangi að skapa nemendum Keilis og íbúum aðstöðu til líkamsræktar, að sögn Tómasar Tómassonar, sem hefur umsjón með starfseminni. Sundlaugin hefur ekki verið opnuð og er óvíst hvenær það verður en Tómas bendir á að góðar sundlaugar séu í Reykjanesbæ. Íþróttahús á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu eru almennt yfirfull og erfitt fyrir almenning að fá tíma, nema þá helst seint á kvöld- in. „Okkar sérstaða felst í því að geta boðið almenningi tíma þegar aðrir salir eru yfirleitt uppteknir vegna kennslu eða æfinga íþrótta- félaga,“ segir Tómas. Vel búið íþróttahús Í íþróttahöllinni á Vellinum er stór salur sem hægt er að skipta í tvennt og nota fyrir allar bolta- íþróttir. Fjórir salir eru fyrir vegg- tennis, badminton og fleira, salur fyrir jóga, karate, dans og annað, vel búinn lyftingasalur og upphit- unarsalur. Aðstöðunni fylgir sána og gufuböð og góð búningsaðstaða. „Ég held að mér sé óhætt að full- yrða að þetta sé eitt best búna íþróttahús landsins,“ segir Tómas. Starfsemin fór rólega af stað en þó tryggðu nokkrir hópar sér tíma. Nú er meira líf í húsinu enda hugur í mörgum að auka hreyfinguna eftir hátíðirnar. Þá eru Íþróttavellir að kynna starfsemina fyrir fyrirtækj- um, og bjóða meðal annars upp á íþróttadag vinnustaðarins. Þá hefur verið tekið upp samstarf við Hóp- bíla um viðkomu þar í óvissuferð- um. Bjóða starfsmanna- hópum góða tíma Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Þrek Líf er að færast í íþróttahúsið á Keflavíkurflugvelli, þar sem margir eru með fögur áform eftir áramótin. Tómas Tómasson er í þreksalnum. Íþróttavellir kynna íþróttaaðstöðuna Selfoss | Ráð- herra mennta- mála hefur skip- að Örlyg Karls- son í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla- Suðurlands til fimm ára. Örlygur hefur starfað við skól- ann frá árinu 1981 sem kennari og aðstoðarskólameistari. Sex umsókn- ir bárust. Skólanefnd Fjölbrauta- skólans mælti með ráðningu Ör- lygs. Skipaður skólameistari Örlygur Karlsson ♦♦♦ Grindavík | Alls sóttu 407.620 gestir Bláa lónið heim á liðnu ári. Er það rúmlega 7% aukning frá árinu á undan og hafa gestir Bláa lónsins aldrei verið fleiri á einu ári. Umfangsmiklar breytingar og endurbætur voru gerðar á baðstað Bláa lónsins á sl. ári. Öll búnings- og baðaðstaða var endurhönnuð og Betri stofa þar sem m.a. er boðið upp á einkaklefa var tekin í notkun. Lava, nýr veitingastaður byggður inn í hraunið, hóf einnig starfsemi á árinu. 7% fjölgun gesta Bláa lónsins Vallarheiði | Stefanía Katrín Karls- dóttir hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri íþrótta-, heilsu- og heilbrigðisklasa Keilis, háskóla- miðstöðvarinnar á Keflavíkur- flugvelli. Stefanía var rektor Tæknihá- skóla Íslands og hefur verið bæj- arstjóri í Árborg, starfað við fyr- irtækjaráðgjöf hjá sparisjóðnum Byr og verið sjálf- stætt starfandi rekstrarráðgjafi. Undir íþrótta-, heilsu- og heil- brigðisklasa Keilis fellur Íþrótta- akademían en auk þess mun Stef- anía leiða frekari uppbyggingu og þróun náms og rannsókna innan klasans í samstarfi við háskóla, fyr- irtæki og stofnanir á þessu sviði. Ráðin til Keilis Stefanía K. Karlsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.