Morgunblaðið - 05.01.2008, Qupperneq 24
lifun
24 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að er heimarík chihua-
hua-tík sem tekur á móti
blaðamanni og ljós-
myndara í glæsilegu
húsi í fúnkis-stíl í Graf-
arholtinu. Ekki kannski að furða þar
sem fjögurra daga gamlir hvolpar
kúra inni í hlýju fataherbergi. Log-
andi arineldur í stílhreinni stofu
býður gesti velkomna inn á votviðra-
sömum janúardegi. Út um glugga
sem allir ná niður í gólf blasir svo við
náttúran fyrir utan – ómetanlegt
listaverk sem tekur stöðugum breyt-
ingum og kallast vel á við einfald-
leikann inni fyrir.
Húsið var byggt af hjónunum
Hannesi Frímanni Sigurðssyni og
Svandísi Sturludóttur sem þar búa
ásamt fjórum börnum sínum og þau
höfðu ákveðnar skoðanir á því
hvernig heimili þau vildu.
„Við lögðum upp með að byggja
þægilegt en um leið nútímalegt
heimili þar sem okkur liði vel,“ segir
Svandís. „Heimili sem væri einfalt í
þrifum, en þar sem manni liði samt
vel. Heimili sem ekki væri bara upp
á punt.“
Heimili fyrir
stórfjölskyldu
Það er ekki hægt að segja annað
en að þeim hafi tekist ætlunarverk
sitt – nútímalegt og einfalt eru orð
sem lýsa húsinu vel. Neðri hæðin
geymir svefnherbergi, bókastofu og
sjónvarpsrými, en efri hæðin er eitt
stórt alrými. Þar flæðir stofa yfir í
borðstofu sem síðan rennur átaka-
laust saman við eldhúsið. Þetta er
góður staður fyrir stórfjölskyldur að
koma saman á líkt og sextán manna
sérsmíðað borðstofuborð staðfestir.
„Svandís orðaði þetta mjög
skemmtilega þegar hún sagði að við
vildum ekki borðstofuborð við vild-
um samfélag,“ segir Hannes, en auk
fimm barna eiga þau þrjú barnabörn
og því mannmargt á heimilinu þegar
fjölskyldan er þar öll saman komin.
Húsið var hannað sem framtíðar-
heimili, heimili þar sem líka myndi
fara vel um þau hjónin þegar börnin
verða farin að heiman. Áður bjuggu
þau í stóru einbýlishúsi á Akranesi
með mörgum rúmgóðum her-
bergjum sem hentaði vel stórfjöl-
skyldu, en síður smærra heimili. Þá
bjuggu þau líka í húsi sem þau völdu
stærðarinnar vegna, en með flutn-
ingnum í Grafarholtið leyfðu þau sér
að byggja hús sem félli fyllilega að
þeirra smekk.
Greiðslumat á einum degi
Þau gáfu sér líka góðan tíma til að
ákveða hvernig hús þau vildu reisa
eftir snögga byrjun. „Það var þannig
að við vorum á leið í sumarfrí eftir
tvo daga þegar við sáum auglýstar
síðustu lóðirnar í Grafarholti í end-
urúthlutun. Við höfðum því einn dag
til að setja saman umsókn og skila
inn fullbúnu greiðslumati,“ segir
Hannes. „Svarið beið okkar síðan
þegar við komum til baka úr fríinu.
Við vorum númer eitt á listanum og
gátum því valið úr þeim lóðum sem í
boði voru.“ Það tók þau ekki langan
tíma að velja lóðina, sem er í útjaðri
byggðar með góðri náttúrusýn.
Næsta hálfa árið veltu þau því svo
vandlega fyrir sér hvernig húsið ætti
að vera. „Á þessu tímabili fórum við í
marga bíltúra um borgina og þegar
við sáum hús sem okkur líkaði þá
fengum við teikningarnar hjá bygg-
ingafulltrúum og aftur og aftur kom
upp nafn arkitektastofunnar Úti –
Inni. Við ákváðum því að fá þá til að
teikna húsið,“ segir Svandís og
kveður hafa verið gaman að vinna
með þeim Baldri Ó. Svavarssyni og
Jóni Þóri Þorvaldssyni. „Þeir teikn-
uðu húsið miðað við staðsetningu.
Þess vegna gátu þeir leyft sér að
hafa það svona opið – það horfir
nefnilega beint upp í brekkuna.“
Og samvinnan gekk vel þó ekki
væru allir alltaf sammála. „Við vor-
um alveg ákveðin í að allir gluggar
næðu niður í gólf nema eldhúsglugg-
inn, sem af hagkvæmisástæðum er
hafður öðruvísi,“ segir Hannes.
„Síðan voru þeir búnir að gera ráð
fyrir hefðbundnum hurðum eins og
gengur og gerist. Við vorum hins
vegar á annarri skoðun og þeim
fannst virkilega spennandi að breyta
þeim í rennihurðir,“ segir Hannes.
Sú skemmtilega leið hefur verið far-
in við hönnun hússins að gengt er út
á svalir eða verönd úr vel flestum
herbergjum sem skapar góða teng-
ingu milli úti- og innirýmis. „Við
drógum þó mörkin við herbergi
stelpnanna enda skemmtilegra að
vita hvort þær eru að koma eða fara
þegar að þær ná unglingsaldrinum.
Annars eru átta útgönguleiðir úr
húsinu.“
Gaman að gera hlutina sjálf
Frágangur hússins innandyra
hefur verið unnin í áföngum og þau
tekið sér góðan tíma í að velta skipu-
laginu fyrir sér.
„Það er okkar reynsla að maður
Fjölskyldurýmið Hér safnast fjölskyldan oft saman á kvöldin og horfir á
sjónvarpið. Myndir af börnunum gefa rýminu hlýlegt yfirbragð.
Útilist Listaverkin í borðstofunni eiga sér skemmtilega sögu. Upphaflega gegndu þau hlutverki hliðs hjá dag-
mömmu, síðar urðu þau stofuborð hjá systur Svandísar og nú sóma þau sér vel á vegg í Grafarholtinu.
Stílhreint Hreinar línur í fúnkis-stíl gefa húsinu stílhreint yfirbragð. Stórir gluggar og rennihurðir skapa síðan
skemmtilega tengingu við garðinn og náttúruna fyrir utan.
Samfélag, ekki
borðstofuborð
Nútímalegt og stílhreint fúnkis-hús í Grafarholt-
inu með flæðandi alrými á efrihæð hentar vel
stórfjölskyldunni sem þar býr. Anna Sigríður
Einarsdóttir brá sér í heimsókn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Síbreytilegt Náttúran blasir við út um stóra glugga og setur mikinn svip á heimilið, sem arininn gerir raunar líka.
Um er að ræða bæði úti- og inniarinn sem hentar því vel á öllum árstímum.