Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 27 Í SUÐUR-SERBÍU er að finna litla „dýnamítstúbu“, sem heitir Kosovo. Þar voru haldnar kosn- ingar fyrir skömmu, en í þeim sigr- aði flokkur Hacim Thaci, fyrrum skæruliðaforingja. Hann er nú orð- inn forsætisráðherra Kosovo og bíða hans erfið verkefni. Íbúar Kosovo eru alls um 2,2 milljónir og af þeim eru um 95% Albanir. Kosovo var fram til ársins 1999 stjórnað af Serbum, sem álíta sig ,,eiga“ þetta bláfátæka, en auðæfaríka hérað. Serbar álíta Kosovo vöggu serbneskrar menningar og á það rætur sínar að rekja til mikils bardaga sem háður var á Svart- þrastavöllum í Kosovo árið 1389. Þar féll prins nokkur að nafni Lazar fyrir hendi Tyrkja og hafði andlát hans örlagarík áhrif á Serba og er svo enn. Dauði Lazars ýtti undir þá sál- fræðilegu afstöðu margra Serba til umheimsins að þeir séu sífelld fórn- arlömb, hvað sem á gengur, og að allt sé meira eða minna samsæri gegn þeim. Serbar mega því ekki heyra á það minnst að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu á nokkurn hátt, það er líkt og að rífa úr þeim hjartað og skilja eftir gapandi svöðusár. En Serbar hafa farið illa með Kosovo, kúgað albanska þegna þess og litið á þá sem undirsáta. Í Kosovo voru Serbar forréttindastétt. Í gömlu Júgóslavíu kommúnismans, sem var við lýði frá 1945-1995, og var lengst af stjórnað af einsræðisherr- anum Jósep Bros Tító (lést 1980) nýttu Serbar sér Kosovo á ski- puagðan hátt og sóttu þangað ýmis auðæfi. Félagsleg aðstaða Albana í héraðinu, sem smám saman fékk stöðu sjálfstjórnarhéraðs, var þó af- ar slæm. Til dæmis var mennta- kerfið og heilbrigðiskerfið meðal Albana rekið neðanjarðar, m.a. fyr- ir fjármagn frá Albönum, búsettum erlendis. Eftir upplausn Júgóslavíu, sem átti rætur að rekja til hugmynda Slobodan Milosevic um Stór-Serbíu og gegndarlausrar þjóðern- ishyggju, voru lýðveldin sem mynd- uðu landið; Slóvenía, Króatía og Bosnía/Hersegóvína, orðin sjálf- stæð ríki. Svartfjallaland (einnig lýðveldi!) fylgdi lengi Serbíu að málum og lýsti ekki yfir sjálfstæði fyrr en á síðasta ári. Hrun Júgó- slavíu kostaði hryllilegar blóðs- úthellingar, dauða og hörmungar. Um var að ræða mannskæðustu átök frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Staða Kosovo var hins vegar óleyst, en frelsisþrá Albana engu að síður sterk. Skæru- liðar Albana hófu árás- ir á serbneska emb- ættismenn og til átaka kom árið 1996. Réðist her Júgóslavíu (les. Serbíu) inn í Kosovo árið 1998 til þess að brjóta frelsisher Kos- ovo (KLA) á bak aftur. Serbar stunduðu þar sk. þjóðernis- hreinsanir og frömdu grimmdar- verk. Leiddi það til loftárása NATO á Serbíu, sem stóðu í nokkra mán- uði árið 1999. Eftir þetta tóku svo Sameinuðu þjóðirnar við stjórn Kosovo og er svo enn. Hacim Thaci, fyrrum leiðtogi KLA, sagði eftir kosningasigurinn það vera áætlun sína að gera líkt og áðurefnd lýðveldi, þ.e. að lýsa yfir sjálfstæði. Olli þetta strax mikilli spennu og reiði í Serbíu, þar sem sterk öfl, sem lifa á þjóðern- ishyggju, eru enn til staðar. Málið er afar flókið, allar sátta- tillögur hafa farið út um þúfur og vann Martti Ahtisaari, fyrrum for- seti Finnlands og fulltrúi Samein- uðu þjóðanna um málefni Kosovo, lengi að tillögu um ,,sjálfstæði und- ir eftirliti“ sem ekki hlaut samþykki í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Lausn Serba á málefnum Kosovo er hins vegar ,,sjálfsákvörð- unarréttur undir eftirliti“, nokkuð sem Kosovo-Albanir hafna alfarið. Þeir vilja sjálfstæði strax, atvinnu og lífsgæði, en atvinnuleysi, spilling og eymd einkenna daglegt líf í hér- aðinu. Þá verður einnig að tryggja ör- yggi þeirra 50.000 Serba sem enn búa í Kosovo. Þegar mest lét bjuggu um 200.000 Serbar í Kos- ovo, en 75% þeirra hafa verið hraktir á brott eða yfirgefið hér- aðið. Hræðsla er meðal þeirra, enda álitnir vera fulltrúar nýlenduherra og kúgunarkerfis. Ástandið í Kosovo er í raun af- leiðing þeirrar þjóðfélagstilraunar sem ríkjasambandið Júgóslavía var, þar sem reynt var að halda mjög mismunandi þjóðarbrotum undir einum hatti í nafni sósíalisma. Þeg- ar það sýndi sig ekki vera mögulegt blossaði hatrömm þjóðernishyggja upp með hörmulegum afleiðingum. Serbar eru því enn að glíma við af- leiðingar eigin gerða. Þeim reynist það hins vegar þrautin þyngri, en reiða sig á stuðning Rússa á marg- an hátt, m.a. vegna sameiginlegrar menningar og trúarhefða. Ætlunin er að Evrópusambandið taki á næstunni við að gæta öryggis Kosovo, en þar eru nú um 17.000 hermenn á vegum NATO. Utanrík- isráðherra Serba sagði í samtali við BBC World að sjálfstæðisyfirlýsing Kosovo-Albana væri ólögleg, rétt eins og sjálfstæðisyfirlýsingar Sló- vena, Króata og Bosníumanna, hefðu verið á sínum tíma. Segjast þeir muni beita öllum lög- fræðilegum aðgerðum til þess að hindra sjálfstæði Kosovo. Þá hóta þeir að slíta öllum viðræðum við ESB um aðild að sambandinu. Spurningin er hvort þeir grípi til annarra aðgerða. Samskipti Serba og Albana hafa ekki verið góð, en nú virðist frostið vera algjört milli þessara aðila. En það sem skiptir máli verða viðbrögð Serba í þessari deilu, lýsi Kosovo yfir sjálfstæði. Þau geta haft mikil áhrif á stjórn- málaástandið á Balkanskaga. Springur í Kosovo? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar um stjórnmálaástandið á Balkanskaga » Lýsi Kosovo yfirsjálfstæði hefst í raun nýr kafli í stjórn- málasögu Balkanskaga. Viðbrögð Serba verða afgerandi varðandi þró- un mála. Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Höfundur er MA í stjórnmálafræði. - kemur þér við Pólverjar á Íslandi löghlýðnari en Íslendingar Örn Árnason sér eftir líkamsræktar- peningunum Keypti Jón Ásgeir snekkju eða ekki? Útlendingar skulda LSH 110 milljónir Leiðinlegasta desem- berveður sögunnar Í form eftir jólin Hvað ætlar þú að lesa í dag?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.