Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 29
Morgunblaðið/Ómar
eymslupláss er lítið á gjörgæsludeildinni við Hringbraut.
öllu sem nauðsynlegt er að bæta.
T.d. vöktu starfsmenn deildarinnar
athygli heilbrigðisráðherra á því að
fjölgun leguplássa fylgdi óhjá-
kvæmilega fleira starfsfólk en þeg-
ar væri deildin undirmönnuð. Benti
Helga Kristín Einarsdóttir, sviðs-
stjóri hjúkrunar-, svæfinga-, gjör-
gæslu- og skurðstofusviðs, á að
hverju legurými á gjörgæslu fylgdu
rúmlega 4,2 stöðugildi hjúkr-
unarfræðinga á sólarhring. Þó telur
starfsfólkið að bætt aðstaða geri
deildina meira aðlaðandi og bindur
því vonir við að auðveldara verði að
ráða í lausar stöður.
Tækin taka næstu lyftu
Fleiri þættir lagast ekki þrátt fyrir
viðbyggingu. Lyftur sem sjúklingar
eru fluttir í milli t.d. skurðstofa og
gjörgæslu eru svo litlar að ekki er
pláss fyrir bæði sjúkrarúm og lífs-
nauðsynlegar vélar sem sjúkling-
unum fylgja. Starfsfólkið deyr þó
ekki ráðalaust, setur sjúklinginn í
rúminu í eina lyftu, blæs í hann lofti
og hleypur svo með öndunarvélina í
næstu lyftu og tengir hana við sjúk-
linginn þegar á leiðarenda er kom-
ið. Þessi aðstaða er auðvitað al-
gjörlega óviðunandi og ógnar
öryggi sjúklinga. Gamli Landspít-
alinn er friðað hús, tekið í notkun
1930, og því erfitt að koma við mikl-
um breytingum á lyftunum. Ýmsar
hugmyndir hafa þó verið nefndar
en líklega mun þetta úrlausnarefni
bíða þar til nýr spítali rís. Lyft-
urnar í nýja húsinu verða a.m.k.
þrisvar sinnum stærri en lyfturnar
sem nú eru notaðar. Og það er að-
eins einn af mörgum plúsum sem
fylgja munu byggingunni.
aður að þessi
ekki upp“
pítala við Hringbraut í gær Viðbygging mun
gsli og mannekla viðvarandi á deildinni
r við starfsfólk gjörgæsludeildar.
ð Lyfjaherbergið er um tveir fermetrar að
ð en verður sjö í nýju byggingunni.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 29
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Kosningarnar í Kenía í loksíðasta árs hafa dregiðdilk á eftir sér. Ástandiðhefur farið hríðversn-
andi í þessu ríki sem verið hefur
fyrirmynd margra annarra Afríku-
ríkja í efnahagsþróun. Fréttir und-
anfarinna daga gefa mynd af ríki
sem rambar á barmi hungursneyð-
ar og borgarastríðs. Keníamaður-
inn Thomas Mboya Agengo fluttist
til Íslands fyrir tveimur árum.
Hann er 37 ára, fæddur og uppalinn
í Naíróbí, höfuðborg Kenía. Þar
lærði hann lífeindafræði og starfar
eftir komu sína hingað sem lífeinda-
fræðingur á rannsóknarstofu blóð-
meinafræðideildar Landspítalans í
Fossvogi. Aðspurður segist hann
hafa komið hingað til lands vegna
eiginkonu sinnar, en fjölskylda
hennar var hér fyrir. Hann segir að
sér líki vel hér og hyggst hann búa
hér á landi til langframa, þótt taug-
in til heimalandsins sé römm.
Thomas fylgist náið með fréttum
frá Kenía og hefur reglulega sam-
band við systkini sín í Naíróbí en
þar á hann tvo bræður og tvær syst-
ur. Síðast talaði hann við bróður
sinn í fyrradag og ræddi við hann
um mótmælafundi stjórnarand-
stæðinga og lögregluaðgerðir gegn
þeim. Aðspurður segist hann hafa
miklar áhyggjur af systkinum sín-
um, nú þegar fréttir berast af því að
skotið sé á óbreytta borgara á göt-
um úti og fólk brennt inni. Fjöl-
skylda hans hefur áður orðið fyrir
barðinu á átökum í landinu, en ekki
með jafnmiklum hætti og nú.
Má ekki verða varanlegt hatur
„Kenía er eitt þeirra Afríkuríkja
sem fólk bjóst hvað síst við að yrði
ófriði að bráð. Þetta er gullfallegt
land og mér þykir mjög vænt um
það. En nú eiga sér stað fjöldamorð
þar og fólk er brennt inni í kirkjum í
nafni stjórnmála. Þetta er eitthvað
sem hefur verið að byggjast upp
inni í fólki í langan tíma og ef þetta
heldur svona áfram er mesta hætt-
an sú að það leiði af sér varanlegt
hatur á milli þjóðarbrota,“ segir
Thomas, sem kveður það sorglegt
hversu afrískir forsetar séu hallir
undir valdbeitingu. Þeir kunni ein-
faldlega ekki að vera diplómatískir.
„Fyrir mér er það að skjóta ein-
hvern spurning um röklega hugsun.
Af hverju í ósköpunum skyldi mað-
ur skjóta vopnlaust fólk? Lögreglu-
og hermenn í Kenía hafa svarið
þess eið til að vernda þjóðina. Samt
spyr maður sig hvort þeir séu lög-
regla Kibakis eða lögregla fólksins.
Þegar þeir fá skipun um að drepa
fólk þurfa þeir að spyrja sig af
hverju þeir ættu að hlýða henni. Við
þá langar mann að segja: Leggið frá
ykkur byssurnar og reynið að
hugsa rökrétt! En ég óttast að þeir
séu of tregir til þess að átta sig á
þessu,“ bætir hann við.
Afleiðingar yfir landamærin
Thomas tekur undir að ástandið
hafi mjög slæm áhrif á efnahag
Kenía en bætir við að ófriður í land-
inu hafi slæm áhrif víðar. „Þetta
keyrir upp verðbólgu, vinna liggur
niðri og margir fá ekki daglegar
máltíðir. En athugaðu líka að þegar
ófriður er í Kenía, hefur það áhrif út
fyrir landamærin. Mombasa er
mikilvæg hafnarborg. Vörur, elds-
neyti, vélbúnaður og fleira sem er á
leið til Súdan, Úganda, Rúanda,
Búrúndí og fleiri landa koma með
skipum til Mombasa og eiga leið í
gegnum Kenía. Einnig flytja þessi
lönd landbúnaðarvörur sínar út í
gegnum Mombasa. Þannig er Kenía
hálfgerð brú á milli þessara ríkja og
erlendra markaða. Áhrifin á þau
geta því orðið mikil.“
Ekki ættbálkadeila
Thomas vill ekki lýsa átökunum í
Kenía sem ættbálkadeilu (e. tribal
conflict), þótt hún tengist slíkum
hópum að rótinni til. Kenía sé stórt
land sem geymi 46 þjóðarbrot í átta
héruðum. „Þegar Bretar réðu yfir
landinu deildu þeir og drottnuðu.
Þeir aðgreindu þjóðirnar, settu t.d.
Luo-fólkið í Nyanza-hérað og Ka-
lenjin-fólkið í Rift-dalinn. Fyrsti
forseti Kenía, Jomo Kenyatta, við-
hélt þessu kerfi og alveg frá byrjun
lýðveldistímans hafði þjóð hans,
Kikuyu, forréttindastöðu í stjórn-
kerfinu. Þar liggur upphaf spilling-
arinnar. Völdin héldu svo áfram að
safnast á eitt svæði með mikið efna-
hagslegt vægi en lítið land. Það
varð á endanum nauðsynlegt fyrir
valdhafana að fjárfesta meira í öðr-
um héruðum landsins.“ Við þetta
segir hann að skipting valda og
hagsmuna hafi orðið flóknari en
landfræðileg skipting þjóðarbrota
segi til um. Thomas lýsir framhald-
inu þannig að arftaki Kenyatta,
Daniel arap Moi, sem var við völd
1978-2002, hafi beitt svipuðum að-
ferðum og hann en skipt Kikuyu-
fólki algerlega út fyrir fólk af sínu
eigin kyni, Kalenjin. Kibaki, sem er
af Kikuyu-fólki kominn, hafi gert
það sama eftir valdatöku 2002.
Spilling og misskipting auðs
Thomas segist hiklaust myndu
hafa kosið Raila Odinga í kosning-
unum í desember. Hans ósk sé að
gengið verði aftur til kosninga og
umboðið endurnýjað með löglegum
hætti. „Þegar Odinga og Kibaki
tóku saman höndum í kosningunum
2002 gerðu þeir með sér samkomu-
lag. Samkvæmt því skyldi Odinga
styðja Kibaki í forsetaembættið
gegn því að Kibaki kæmi í gegn
stjórnarskrárbreytingum, tæki á
spillingu og drægi úr atvinnuleysi
og fátækt. Hann hefur hins vegar
aldrei tekið á spillingunni og í raun
ekki minnkað fátækt heldur. Hag-
vöxtur hefur verið nokkur í hans tíð
en bilið á milli ríkra og fátækra hef-
ur líka breikkað mikið,“ segir
Thomas og bætir við, að þingmenn
hafi um 500.000 keníska skildinga í
mánaðarlaun (um 450.000 krónur)
en stórir hópar fólks lifi á andvirði
eins bandaríkjadals á dag.
Þá hafi Kibaki ekki hreinsað til í
spillingarmálum forvera síns, sem
skaut að sögn hundruðum milljarða
skildinga undan. Einnig sé það á
flestra vitorði að núverandi ráð-
herrar stundi sömu iðju. Það geri
þeir ekki síst í gegnum opinber út-
boð á verkefnum. Stjórnvöld taki
tilboðum frá erlendum fyrirtækjum
sem svo komi í ljós að séu drauga-
fyrirtæki. Ekkert verði úr verk-
áætlunum þótt greiðslur hafi borist
viðkomandi fyrirtækjum úr opin-
berum sjóðum. „Þeir ræna miklum
peningum af fólki,“ segir hann.
Allt of mikil völd
„Vandamálið er að afrískir for-
setar eru, út af völdunum sem þeir
hafa og þeim glæpum sem þeir
fremja, hræddir við að láta af emb-
ætti. Kibaki hefur of mikil völd.
Hann getur boðið flest embætti, til
dæmis embætti ráðherra og dóm-
ara. Hann getur útvegað hvaða lít-
ilvæga embætti sem er, gegn því að
þiggjendurnir ráðfæri sig svo við
hann um hin smásmugulegustu at-
riði,“ segir Thomas að lokum.
Morgunblaðið/Frikki
Á rannsóknarstofunni Thomas Mboya Agengo starfar sem lífeindafræðingur á Landspítalanum í Fossvogi.
Hann fylgist náið með fréttum frá heimalandi sínu, Kenía, þar sem ófriðarbál logar eftir kosningar.
Spillingin hefur lengi
magnað upp spennu
Í HNOTSKURN
»Kenía var bresk nýlendafram til 1964 þegar stofnað
var lýðveldi. Fyrsti forseti
landsins var Jomo Kenyatta, af
Kikuyu-þjóðarbrotinu. Hann
hélt völdum til 1978.
»Arftaki hans var Danielarap Moi, sem var við völd
til 2002, þegar núverandi for-
seti, Mwai Kibaki, náði kjöri.
Hann er nú sakaður um kosn-
ingasvindl og neitar að eftirláta
mótframbjóðanda sínum völdin.
Keníamaður á Íslandi fylgist með ástandinu í heimalandinu
Viðbygging við gjörgæsludeild
Landspítala við Hringbraut
verður um 80-100 m² en fyrir er
deildin 243 m². Með henni mun
aðstaðan batna til muna:
»Leguplássum fjölgar úr níuí ellefu.
»Rými í kringum 5 af legu-plássunum eykst.
»Lyfjaherbergi stækkar úr2,4 m² í um 7 m².
»Geymsluaðstaða fyrirtækjakost batnar og sömu-
leiðis lageraðstaða.
»Fundaherbergi og kennslu-aðstaða bætist við.
»Aðstaða fyrir starfsfólkstækkar í 24 m².
Úrbætur á
gjörgæslu