Morgunblaðið - 05.01.2008, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.01.2008, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Sigurlaug Sveins- dóttir var jólabarn, heilsaði lífinu á Akur- eyri þriðja dag jóla 1929 og kvaddi það afmælisdaginn sinn síðasta. Um morguninn gekk hún til útidyra að gá til veðurs, taka læsinguna af og sækja blöðin eins og hún var vön, en hneig þá niður og var örend um náttmálaleytið. Henni og Snorra kynntist ég fyrst að gagni að loknum fyrsta dvalarvetri mínum í Reykjavík, vorið sem við Steinunn systir hennar, sem var henni náin frá bernsku, giftum okkur. Þá áttu þau heima þar, en byggðu sér nokkrum árum seinna hús í Kópavogi og áttu þar heimili upp frá því, síðast hjá dóttur sinni og tengdasyni. Silla ólst upp í foreldrahúsum í æskuglöðum hópi þeirra Bjarmans- systkina á Akureyri og lauk gagn- fræðaprófi þar sautján ára gömul. Þótt þræðir ættar og uppruna lægju víðar um land bundu hana ævilangt sterkar taugar við Skagafjörð, æsku- land foreldra hennar og eiginmanns sem hún kynntist fyrst þar og á skólaárum hans á Akureyri. Þau hjón áttu það sameiginlegt að bæði misstu annað foreldra sinna ung, hann móður sína á menntaskóla- árum, hún föður sinn tuttugu og tveggja ára, þá úti í Noregi. Meðan Snorri stundaði þar strangt nám í skógfræði, oft „ute på marken“, var hún þar með honum fjögur ár náms- tímans, vann þá einatt úti og sinnti jafnframt börnum og heimili á Kóngsbergi og í Ási. Heim til Íslands kom hún aldrei á þeim tíma, en lærði norsku með ágætum og leit sinn elsk- aða Noreg síðast augum á liðnu sumri. Heim komin hafði Silla fullar hend- ur, enda urðu börnin sex, en mikið var á fjölskylduna lagt þegar tvær dætur þeirra létust fyrir aldur fram, Sigurlaug Sveinsdóttir ✝ SigurlaugSveinsdóttir fæddist á Akureyri 27. desember 1929. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 27. desember síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Kópavogskirkju 4. janúar. sú eldri aðeins fjórtán ára. Af dótturvörum á dánarbeði heyrði Silla talað um ljós. Sjálf átti hún góða heimvon, en átti við heilsubrest að etja þegar á leið. Sú reynsla mótaði mjög áhugamál hennar og vinnu utan heimilis sem tengdist heilbrigð- isþjónustu, líknar- og félagsstarfi. Hún var í eðli sínu mannblendin og áhugasöm um jafn- rétti og félagsmál og vildi láta gott af sér leiða. Hún stóð fast á sínu, en róttækni hennar í víð- um skilningi var frá hjartanu runnin, og líklega hefur hún enga sælli þrá eða hugsjón átt sér um ævina en drauminn um að vera góð móðir og húsmóðir í anda móður sinnar. Tón- list var henni unaðsgjafi og um skeið söng hún með Pólýfónkórnum ásamt eldri syni sínum. Á kveðjustund þökkum við Nunna samfylgd systur og mágkonu. Stund- um hafði skammdegisþunglyndi sem ásækir margan á norðurslóðum gerst nærgöngult við mágkonu mína. Nú höfðu þau hjón þrátt fyrir dvínandi heilsu notið jólanna með börnum og barnabörnum. Síðasta afmælisdag hennar á jörðu vafðist mjúk og heið- gullin skammdegisbirta um höfuð- borgarsvæðið í frostkyrrðinni. Þá dó hún inn í ljósið handan harms og trega, sem áður var nefnt, á fæðing- arhátíð hans sem var „hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann“ og sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.“ Megi þau orð nú verða lampi fóta þeirra og ljós á veg- um þeirra sem hana trega. Hjörtur Pálsson. Það er skammt stórra högga hjá Bjarmanssystkinum á þessu ári. Önnur systirin er látin og rúmur mánuður á milli. Á afmælisdegi sín- um, hinn tuttugasta og sjöunda des- ember, dó hún Silla. Ætlunin var að halda svokallað Bjarmansjólaball þennan dag en því var frestað vegna veikinda Sillu. Silla var móðursystir mín og man ég fyrst eftir henni er hún kom ásamt manni sínum honum Snorra og börn- um á Skódanum til Akureyrar og fylgdu þeim gleði og fjör. Stefanía dóttir þeirra var jafnaldra mín og fannst mér afskaplega spennandi að vera með henni. Silla var einnig þann- ig að gleði og gæska fylgdi henni. Silla og Snorri voru óvenjulega samhent hjón og kærleikur og vinátta sterk. Stóri barnahópurinn í Hraun- tungu var uppátækjasamur og man ég er ég kom þangað fyrst hvað þar voru mörg herbergi og þá margar hurðir. Ég fluttist í Kópavoginn 1980 og bjó þá rétt hjá Sillu og þangað fór ég oft með elsta son minn og var hann á aldri við yngstu dóttur Sillu. Mikið var spjallað og farið um víðan völl og virtist sama um hvað við töluðum, alltaf var Silla með á nótunum. Snorri sat oft með okkur og gaman var að fylgjast með umræðum þeirra því þótt þau væru ekki alltaf sammála var samkomulag um að það væri hægt að vera ósammála um menn og málefni. Það er svo skrítið að þegar ég eltist urðu systur mömmu góðar vinkonur mínar og Silla þar engin undantekn- ing. Við hjónin bjuggum í nokkur ár á Selfossi og þangað kom Silla oft og í hvert sinn sem hún var í Hveragerði á Heilsustofnun NLFÍ kom hún og var þá boðið upp á kjöt og kaffi hjá mér. Drengirnir mínir, sem voru þriggja og fimm ára er þeir kynntust frænku sinni, höfðu mikið dálæti á Sillu og virtist hún vera sérfræðingur í að fara niður á þeirra plan. Hún spilaði, spjallaði og lék við þá og var alveg einstakt að fylgjast með því. Silla og Snorri voru þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í sambýli við Stein- unni dóttur sína og hennar fjölskyldu og var ég einhverju sinni að tala um þetta við Sillu. Silla vildi nú meina að þetta væri gott fyrir báðar fjölskyldur og seinna heyrði ég Steinunni segja það sama. Öll börnin hennar Sillu voru henni kær og gaman er hún tal- aði um þau og oft grínaðist hún meira en að vera með einhverja væmni í þeirra garð. Systkinum sínum var hún einnig nákomin og voru hún og móðir mín miklar vinkonur. Elsku Snorri, Siggi, Arnór, Stef- anía og Gunna Magga og ykkar fjöl- skyldur, innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Guðrún Vignisdóttir. Mig setti hljóða þegar mér barst sú harmafregn að æskuvinkona mín, hún Silla, væri dáin. Síðan hafa minn- ingar liðinna ára sótt að mér úr öllum áttum. Það var fyrir margt löngu að leiðir okkar lágu saman í Gagnfræða- skólanum á Akureyri. Eins ólíkar og við vorum myndaðist fljótt sú vinátta sem varaði alla okkar daga. Þar sem ég átti ekki heimili á Akureyri var svo dýrmætt að eignast athvarf á hemili hennar við Hamarstíg. Má segja að þar hafi alltaf verið pláss fyrir einn í viðbót. Guðbjörg móðir Sillu var ein- stök. Hún breiddi sig yfir sína stóru fjölskyldu og vini hennar alla. Samt fannst mér hún aldrei þreytt, alltaf glöð og tilbúin til að láta okkur öllum líða sem bezt, láta okkur finna að við værum svo velkomin. Oft var þröng á þingi við stóra matarborðið. Þar heima var líka búandi frænka hennar, Ragnheiður, alltaf kölluð Radda Sól, hún var með okkur í bekk. Við vorum feikilega góðar saman við þrjár. Á sumrin kom Silla oft heim til mín að Möðruvöllum og dvaldi til lengri eða skemmri tíma. Stundum datt okkur í hug að skreppa í Skagafjörð og heim- sækja Röddu í Sólheimum. Við köll- uðum það að fara í ævintýraleit. Áfram liðu árin. Til Reykjavíkur lá leiðin þar sem við áttum börn og bú. Söm var vinátta okkar. Minninga- brotin hrannast upp. Mér er ógleym- anlegur 4. sept. 1957. Svo hagaði háttum hjá mér að ég átti von á næst- yngsta syni mínum í heiminn. Eitt- hvað hef ég verið ein, því ég hringdi í Sillu og hún vissi strax um hvað málið snerist. Stuttu seinna var ég í örugg- um höndum hjá henni á Birkimel. Frá henni fór ég svo á fæðingardeild- ina, þar gekk allt að óskum. Svona var þessi góða vinkona mín, hún leysti vanda á svo einfaldan hátt. „Nostalgían“ heldur áfram. Þegar fjölskyldan flutti í Kópavog, líklega ’71, fékk ég símtal frá henni. Hvort ég gæti komið – með saumavélina og hjálpað henni að setja upp gardínur! Ekki stóð á því, við brösuðum í þessu heila nótt, það voru jú að koma jól og engan tíma mátti missa. Ég var glöð að geta gert henni greiða og hún hamingjusöm með gardínurnar. Dag- inn eftir stóð fallegt jólatré á tröpp- unum hjá mér. Ég fékk tár í augun. Hvað er dýrmætara en æskuvinátta sem endist ævina út? Ég fékk hring- ingu frá henni í desember, sem oft áð- ur, til að segja mér að þau væru flutt í næsta nágrenni við mig. Ákváðum að hittast sem fyrst – sem ekki varð úr. Líklega er óralangt síðan við vorum táningsstelpur í gaggó sem reyndum að komast sem léttast frá lærdómn- um! Guð blessi öll árin okkar og þakklát er ég fyrir vináttu sem aldrei bar skugga á. Við munum hittast á þeim stað sem okkur öllum er ætl- aður. Snorri minn, mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Sigrún frá Möðruvöllum. Við vorum báðar frá Akureyri – ég af Syðri-brekkunni – hún af Ytri- brekkunni. Leiðir okkar lágu þó ekk- ert saman fyrr en seint á mennta- skólaárum mínum, þegar hún og Snorri Sigurðsson bekkjarbróðir minn fundu hvort annað. Eftir það gengu þau saman í sorg og gleði veg- inn allt þar til að dauðinn þau að- skildi. Við hittumst í gegnum árin þegar bekkjarsystkini og makar komu sam- an – en það var við störf með Rauða- krossdeildinni í Kópavogi sem ég kynntist Sillu. Hún hafði starfað fyrir deildina meðal annars með heim- sóknum í Dvöl – athvarf fyrir geðfatl- aða og ýmsa einstæðinga sem þangað komu – en einnig stytt öldruðum stundir í Gullsmára. Svo var það einn daginn að það vantaði einhvern með henni og þá kom ég til liðs við hana. Augljóst var að konunum sem sóttu samverustundirnar þótti vænt um hana og fögnuðu henni þegar hún kom – og hve Silla náði vel til þeirra með gleði, háttvísi og hlýju. Ég er þakklát fyrir kynni mín af Sillu – hún var kærleiksrík, umhyggjusöm og viðkvæm kona. Blessuð sé minning hennar. Vilhelmína Þorvaldsdóttir. Í dag kveðja ættingjar og vinir Sig- urlaugu Sveinsdóttur. Í mínum huga er hún alltaf Silla Bjarman, en við vorum um tvítugt þegar við kynnt- umst gegnum systur hennar Stein- unni sem var skólasystir mín. Ég hafði verið boðin velkomin inn á stóra Bjarmansheimilið á Hamarstígnum á Akureyri, þar sem Guðbjörg og Sveinn Bjarman réðu húsum með börnin sín átta. Þau voru bæði Skag- firðingar. Kvöld eitt haustið 1949, þegar ég var nýbyrjuð í 5. bekk í MA, var barið á dyrnar mínar. Þar var komin Silla Bjarman og sagðist eiga erindi við mig. Hún hafði lokið gagnfræðaprófi vorinu áður og var ráðin til að hjálpa móður sinni við heimilishaldið þenn- an vetur. „Heyrðu Blaka,“ sagði hún, Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku amma, Guð og englar vaki yfir þér. Andrea og Hrannar. „Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma“ stendur í hinni helgu bók. „Að fæðast og deyja hefur sinn tíma“, en Jónína Friðbjörg Tómasdóttir ✝ Jónína FriðbjörgTómasdóttir fæddist í Auðsholti í Biskupstungum 4. febrúar 1923. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík að morgni aðfanga- dags, 24. desember s.l. og var jarðsung- in frá Víðistaða- kirkju 4. janúar. þá verður maðurinn að nota tímann vel, sér og öðrum til framdráttar, þroska og kunnáttu. Það má sanni segja að mágkona mín og vin- kona Jónína Tómas- dóttir kunni á því lagið, hún kunni vel til verka en þurfti að heyja marga óblíða glímuna. Hún var af dugmikilli bændaætt komin, yngst af níu systkinum frá Auðsholti. Þar er sagt, að þetta hafi verið kátur hópur sem kunni að taka til hendinni og hjálpa til við búskapinn, enda veitti ekki af. Þarna var ferjustaður yfir Hvítá og áttu margir Hreppamenn er- indi í Laugarás til læknis þar og allar aðrar samgöngur voru yfir óbrúaða Hvítá. Við nútímafólk eigum erfitt með að skilja hvernig þetta gat gengið. Jónína gekk í barnaskólann í Reyk- holti og síðar í héraðskólann á Laug- arvatni. Leiðin lá svo til Reykjavíkur í þá vinnu sem til féllst. Hún söng með Templarakórnum og kynntist þar ungum manni norðan úr Þingeyjar- sýslum, Stefáni Steinþórssyni, sem hún svo giftist. Hefur það hjónaband enst vel. Þetta voru erfiðir tímar þegar hörg- ull var á öllum hlutum og skömmtun- artími, erfitt var að fá leigt og ná end- um saman, eins og sagt er þó að bæði hjónin ynnu úti. Ekki bætti úr skák að nokkrum árum liðnum, að Stefán veiktist og var vart hugað líf og hefur hann aldrei náð sér til fulls. Jónína hjúkraði honum af bestu getu og fluttu þau á Vitastíg 20 til Sigríðar systur Jónu og manns hennar Ísleifs Ólafssonar og voru þar í mörg ár. Það var þá sem ég kynntist þessu ágæta fólki þegar ég giftist Tómasi, einum úr systkinahópnum. Þarna áttum við athvarf þegar komið var í bæinn og var þá tekið á móti okkur með veislu á báðum hæðum, uppi hjá Sigríði og niðri hjá Jónínu. Þær voru báðar frá- bærar húsmæður. Jónína var dugleg, snyrtileg og bjó til góðan mat og skapaði fallegt heimili. Seinna fluttu þau hjónin í sín eigin húsakynni við Njálsgötuna, þar sem Jónína naut sín vel og skreytti heimilið með útsaumi og fallegum húsgögnum. Jónína var oftast kát og hress en gat verið hryss- ingsleg í svörum og kom sumum til að fyrtast, en allt var það vel meint. Hún var ein af þeim alþýðukonum sem litl- ar sögur fara af en mynda þær samt hornsteininn að því þjóðfélagi sem við njótum í dag. Hún átti náðuga daga á Dalbrautinni í lok ævi sinnar þótt heilsan væri oft ekki nógu góð. Hún naut þess að sjá sonum sína farnast vel á fallegum heimilum sínum með góðum og duglegum konum og efni- legum barnabörnum. Sinna verka nýtur seggja hver, sæll er sá sem gott gerir. (Úr Sólarljóðum.) Ég sendi Stefáni, Steinþóri, Frið- berg og þeirra fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Helga Þórðardóttir. Ég vil kveðja móðursystur mína, Jónínu Friðbjörgu Tómasdóttur, með fáeinum orðum. Hún var bóndadóttir frá Auðsholti í Biskupstungum, yngst af níu systkinum. Ég man fyrst eftir Jónu í Auðsholti í glaðværum og framkvæmdasömum systkinahópi, sem sat í kringum stóra matborðið í kjallara nýja hússins í Vesturbænum. Þá var bjartsýni í byggðum landsins, búið að borga kreppulánin upp í topp – til þess að öngla saman upp í afborganir fóru bræðurnir á vertíð, en systurnar réð- ust í vist í Reykjavík. Traktorinn var nýkeyptur og við frænkurnar keyrð- um hann þvers og kruss um túnin í heyönnunum. Jóna var svo elskuleg að leyfa 4 ára telpukorni að sitja með sér við stjórnvölinn á þessu dýrindis landbúnaðartæki – og telpan fann til sín. Heiðríkja þessara tíma, gleði og samheldni þessa frændfólks míns hef- ur verið mér og fleirum veisla í far- angri allt fram á þennan dag. Frænka mín var söngelsk og það var einmitt í Templarakórnum, sem hún kynntist Stefáni, tilvonandi eig- inmanni sínum. Hann átti bíl og er mér minnisstætt, þegar ég fékk að fljóta með þeim suður; í þá daga var atburður að sitja í drossíu. Þau hjóna- leysin leyfðu mér að skottast með sér, t.d. að fara með að taka upp kartöflur í Kringlumýrinni á góðum degi. Frænka kunni til sauma og þegar lítil stúlka þurfti að fá saumaðan á sig fyrsta skólakjólinn úr köflóttu skosku ullarefni, þá var gott að eiga hana að. Við áttum saman marga notalega eft- irmiðdaga við saumaskap í eldhúsinu á Grettisgötunni meðan frumburður- inn Steinþór svaf í glæsilegu barna- rúmi með innlagðri mynd af tveimur dádýrum. Móðursystir mín hafði dýr- an smekk. Sjötti áratugurinn var ungu fólki á mölinni erfiður; það ríkti kreppa og húsnæðisleysi og hvunndagsleiki dag- anna lagðist yfir sálirnar eins og grátt vaðmál. Við bjuggum 13 ár í sama húsi á Vitastígnum og þá fæddist Friðberg, augasteinninn hennar. „Er hann ekki fallegur?“ sagði Jóna og lyfti honum upp til að sýna mér. Hann brosti til mín tannlausu brosi; hafði erft munn- svip móður sinnar. „Jú, hann er ósköp fallegur.“ Svo passaði ég Friðberg fyr- ir Jónu. Í kvæðinu „Þjóðvísu“ eftir frænda okkar Tómas Guðmundsson segir: „Því meðan hjörtun sofa býst sorgin heiman að, og sorgin gleymir engum“ – og síst af öllu henni móðursystur minni. Um það verður ekki fjölyrt hér. Móðursystir mín átti stórt og gott hjarta. Hún var höfðingi í lund, sem bjó yfir skaplyndi skáldsins og söngv- arans. Þröngur efnahagur og and- streymi komu í veg fyrir að þessir eðl- isþættir fengju að blómstra. Engu að síður færði lífið henni ríkulegan ávöxt. Það er afmæli frúarinnar. Í kringum kringlótta skrautborðið sitja synir hennar og tengdadætur, unglingarnir Þórdís, Atli og Hrannar og litla stelpu- skottið hún Andrea, sem kom með seinni skipunum. Það eru uppi hlátur og gamanmál og mannleg hlýja. Já, það var ekki til einskis barist. Ég kveð frænku mína með þakklæti fyrir samfylgdina í rösk 60 ár. Orð norsku skáldkonunnar Sigrid Undset er gott að hugleiða á rugluðum tímum, sem gengisfella orð og athafnir manna, ef þeim verður ekki í skyndingu breytt í silfur, gull og verð- bréf. „Því siðir og venjur breytast mjög, eftir því sem tímar líða og trúin breytist og menn hugsa um marga hluti á annan veg. En hjörtu mann- anna breytast aldrei.“ Vilborg Auður Ísleifsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.