Morgunblaðið - 05.01.2008, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.01.2008, Qupperneq 36
36 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát elskulegrar móður okkar, tengda- móður, systur, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, JÓNU HALLFRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR frá Árbakka, Dalvík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á Dalbæ. Kristinn Antonsson, Elínborg Elísdóttir, Áslaug Sigurjónsdóttir, Flóra Antonsdóttir, Felix Antonsson, Monika Sveinsdóttir, Ingvi Antonsson, Elín Guðjónsdóttir, Ragnhildur Antonsdóttir, Guðbjartur Björnsson, Sesselja Antonsdóttir, Bergur Höskuldsson, Jónas Antonsson, Anna Stella Marinósdóttir, Guðlaug Kristjánsdóttir, barnabörn og langömmubörnin. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem veittu okkur styrk, hlýju og auðsýnda samúð við veikindi, andlát og útför elskulegs sonar okkar og bróður, HÖGNA KRISTINSSONAR, JÖRUNDARHOLTI 33, AKRANESI. Sérstakar og innilegar þakkir til starfsfólks krabba- meinsdeildar 11 E Landspítalans við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll. Eva Björk Karlsdóttir, Alfreð Örn Lilliendahl, Sindri Snær Alfreðsson, Aron Máni Alfreðsson, Kristinn Richter, Sigríður María Gísladóttir, Tinna Richter, Ari Richter. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR EINARS ÞÓRISDÓTTUR (Lillýjar), Kringlumýri 29, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Handlæknis- og Bæklunardeilda Sjúkrahúss Akureyrar. Tryggvi Gestsson, Þórir Ó. Tryggvason, Kristín Hallgrímsdóttir, Lára H. Tryggvadóttir, Ómar Ólafsson, ömmu- og langömmubarn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinsemd vegna veikinda og andláts BJARNE PETTERSEN, Tromöy, Noregi. Linda Antonsdóttir Pettersen, Dan Pettersen, Lene Pettersen og Atle Pettersen. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegrar systur minnar, GERÐAR STEFÁNSDÓTTUR frá Ekru, Selási 5, Egilsstöðum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkra- hússins á Egilsstöðum og öllum þeim sem hafa reynst henni vel fyrir einstaka umönnun og umhyggju. Guð blessi ykkur öll. Jóna S. Stefánsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, RÓSU HJALTADÓTTUR. Hugi Kristinsson, Anna Guðrún Hugadóttir, Guðmundur Hallgrímsson, Hjalti Hugason, Ragnheiður Sverrisdóttir, Kristinn Hugason, Guðlaug Hreinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra SIGÞÓRS SIGURÐSSONAR, Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Fyrir hönd aðstandenda, Valgerður K. Kristjánsdóttir, Erla F. Sigþórsdóttir, Yngvi Geir Skarphéðinsson, Anna K. Sigþórsdóttir, Einar Sigfússon, Sigurbjörg Sigþórsdóttir, Sveinn Valþór Sigþórsson, Baldvina Sverrisdóttir, Einar Sigþórsson, Eyrún Ingibj. Sigþórsdóttir, Tryggvi Ársælsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þórunn Sigurð-ardóttir fædd- ist í Hvammi við Fáskrúðsfjörð 4. júní 1920. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Uppsölum 29. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Þuríð- ur Elísabet Magn- úsdóttir, f. 22. jan- úar 1893, d. 10. maí 1950, og Sig- urður Oddsson, f. 16. júlí 1896, d. 4. janúar 1948 . Þórunn var þriðja barn foreldra sinna og sú sem síðust kveður. Systkini hennar voru Elínbjörg, f. 1917, d. 1949, Magnús, f. 1918, d. 2004, Oddur, f. 1922, d. 1991, Þorbjörg, f. 1923, d. 1993, Kristinn, f. 1925, d. 1997, og Gróa, f. 1929, d. 1998. Þórunn giftist Jóni Karli Úlf- arssyni frá Vattarnesi árið 1942 og hófu þau búskap á Vattar- nesi. Börn þeirra eru Ingigerð- ur, f. 1945, Sigríður Elísa, f. 1947, Úlfar Kon- ráð, f. 1950, Elín- björg, f. 1951, og Þóra Jóna, f. 1957. Barnabörnin eru 13 og langömmu- börnin eru 20. Árið 1947 fluttu þau að Eyri og bjuggu þar blönd- uðum búskap og voru með trilluút- gerð og fiskverk- un. Þórunn vann jöfnum höndum við búskapinn og út- gerðina ásamt því að sinna barnauppeldi og umönnun eldra fólks sem dvaldi á heimilinu um lengri eða skemmri tíma. Árið 1984 flutti Þórunn til Horna- fjarðar og var þar í tæp 20 ár en hún flutti á hjúkrunarheimilið Uppsali á Fáskrúðsfirði 13. febr- úar 2004. Útför Þórunnar verður gerð frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Kolfreyju- staðarkirkjugarði. Einu sinni hélt ég að ég gæti aldr- ei orðið almennileg mamma. Ég hélt að allar mömmur þyrftu að vera eins og mamma mín. Mamma, sem var eins og klettur- inn í hafinu sem haggast ekki á hverju sem gengur. Mamma, sem alltaf fann einföld- ustu lausnina á öllum vandamálum. Mamma, sem var hrókur alls fagnaðar þegar þannig stóð á en átti líka dýpstu samúðina þegar á bját- aði. Mamma, sem alltaf var eins, hvort sem hún setti plástur á meiddan putta eða sat opinbera móttöku með æðstu mönnum þjóðarinnar. Mamma, sem bakaði bestu kök- urnar, eldaði bestu sunnudagskóte- letturnar og saumaði fallegustu dúk- ana og flíkurnar. Mamma, sem kenndi börnunum sínum að syngja, dansa gömlu dans- ana, biðja bænirnar, lesa og skrifa og gera allt sem gera þurfti. Já, kenndi okkur allt sem við kunnum nú. Mamma, sem alltaf var hægt að leita til og var svo stolt af hópnum sínum. Mamma, sem var eins og greni- tréð, bognaði aldrei, hélt reisn sinni til hinstu stundar þrátt fyrir allt sem yfir dundi. Seinna sá ég að það eru ekki allar mömmur svona. Sumar eru bara venjulegar og þurfa ekki að geta allt. Þær gera bara sitt besta og ég gat alveg verið svoleiðis mamma. Mamma mín, takk fyrir samfylgd- ina. Ég bið Guð og góðu englana að fylgja þér inn í eilífa lífið og ljósið. Elísa (Lísa). Þegar við setjumst niður og látum hugann reika þá flæða minningarnar fram um okkar elskulegu mömmu, sem á okkar heimili var alltaf kölluð amma Tóta. Við rifjum upp árin sem við áttum saman eftir að hún flutti til okkar á Hvannabrautina fyrir 23 árum. Það var ómetanlegt að hafa ömmu á heimilinu sem var alltaf til staðar fyrir okkur og oftar en ekki var hún búin að baka lummur eða annað góð- gæti þegar krakkarnir komu heim úr skólanum, enda var hún lista kokkur og bakaði bestu kökur í heimi. Ömmu sem hafði endalausa þolin- mæði og ánægju af að spila eða lesa og var alltaf tilbúin til að passa ef við foreldrarnir þurftum að vinna eða skreppa eitthvað út. Ömmu sem sá alltaf um að þvott- urinn væri nýstrokinn og ilmandi af útilykt, í stöflum í skápunum og sinnti öðrum heimilisstörfum með ánægju. Við gerðum ótalmargt skemmti- legt saman, til dæmis allar ferðirnar í sumarbústaði á Einarsstöðum og í Lóninu. Þá vorum við stórfjölskyld- an oftast saman og blásið til fagnaðar og ættingjar og vinir ömmu Tótu flykktust að og það var oft glatt á hjalla og mikið spilað og spjallað. Við enduðum oft dagana á að skrifa í dagbók það sem gerst hafði þann daginn og seinna skemmtum við okk- ur við að lesa ferðasögurnar og hlóg- um heil ósköp að því sem gerst hafði. Einu sinni ákváðum við að drífa okkur í tjald-útilegu og skoða suður- landið. Okkur þótti það lítið mál, þótt fjölskyldubíllinn væri lítill Austin Mini og við værum orðin 4 í fjölskyld- unni. Ekki kvartaði Amma Tóta und- an þrengslum í aftursætinu þótt hún deildi því með Þóreyju og stórum hluta af farangrinum, enda var hún ekki þekkt fyrir að kvarta undan smámunum. Hún var afskaplega vinamörg enda mjög félagslynd og skemmtileg kona og hún fékk sem betur fer tæki- færi til að gera ýmislegt fleira en að sinna okkur litlu fjölskyldunni á Hvannabrautinni. Hún var virk, í fé- lagi eldriborgara á Höfn og sá meðal annars um kaffiveitingar fyrir hóp- inn í hverri viku þegar þau hittust og spiluðu. Gleðigjafarnir, kórinn þeirra, voru sko gleðigjafar í orðsins fyllstu merkingu. Þar eignaðist hún marga góða vini og með þeim söng hún bæði hér heima og fór líka með þeim í söngferðir og þau sungu t.d einu sinni í Hallgrímskirkju. Þetta var samheldinn hópur og þau mættu óvænt í 80 ára afmælið hennar og sungu henni til heiðurs. Þar voru líka mættir gömlu góðu vinirnir og fjöldi ættingja og þetta var ógleymanleg stund. Við erum innilega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að eyða þess- um góðu árum saman. Hún Amma Tóta var svo sterk og heilsteypt kona með óendanlegt langlundargeð og æðruleysi. Hún haggaðist ekki, hvað sem á dundi og lét ekki utanaðkomandi aðstæður koma sér úr jafnvægi, eða raska sinni hugarró. Þetta eru kostir sem við vildum svo gjarnan öðlast og reynum að líkj- ast henni af fremsta megni. Guð blessi minningu hennar. Þóra Jóna, Sigfús, Þórey og Júlíus. Þegar ég sit hérna og skrifa þessi fátæklegu minningarorð um mömmu mína er efst í huga mínum þakklæti. Ég er innilega þakklát fyrir sam- fylgdina gegnum árin og allt það sem hún kenndi okkur systkinunum um lífið og tilveruna. Henni var það mik- ið kappsmál að við gætum bjargað okkur sjálf og alltaf gátum við leitað til hennar ef við sigldum í strand. Mamma var líka hrókur alls fagnað- ar á góðum stundum og lagði niður störf ef eitthvað var verið að grínast og tók fullan þátt í gamninu. Mamma elskaði tónlist og söng í litlu kirkj- unni okkar þegar ég var ung og kunni ógrynni af sálmum og ljóðum. Mamma var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd og var yndisleg amma og langamma. Nú þegar komið er að leiðarlokum er þakklæti efst í huga mínum, til allra þeirra sem önnuðust hana af umhyggju og kærleika. Ég bið algóðan guð að varðveita hana, alla góðu vinina hennar og fjöl- skylduna. Elínbjörg. Okkur langar að kveðja okkar elskulegu ömmu Tótu sem við eigum svo margt að þakka. Við eigum í hjörtum okkar margar yndislegar minningar sem við munum geyma með okkur um ókomna tíð. Okkur leið alltaf vel þegar við komum til ömmu og var okkur alltaf vel tekið, svo og börnum okkar þegar þau bættust í hópinn. Takk fyrir allt, elsku amma. Minn- ingin um þig mun ætíð fylgja okkur. Á hendur fel þú honum, sem himna stýrir borg, það allt, er áttu í vonum, og allt, er veldur sorg. Hann bylgjur getur bundið og bugað storma her, hann fótstig getur fundið, sem fær sé handa þér. Mín sál, því örugg sértu, og set á Guð þitt traust. Hann man þig, vís þess vertu, og verndar efalaust. Hann mun þig miskunn krýna. Þú mæðist litla hríð. Þér innan skamms mun skína úr skýjum sólin blíð. (Björn Halldórsson) Guð geymi þig, elsku amma Tóta. Þínar Fjóla, Hanna, María og Anna Jóna. Þórunn Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.