Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Til leigu í Skútuvogi 1
lager / skrifstofuhúsnæði - 174 fm
Frábær staðsetning
Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali
Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is
tákn um traust
Gæti hentað vel fyrir
skrifstofu eða léttan lager.
Rýmið er opið og býður
uppá mikla möguleika.
Góðar aðkeyrsludyr.
Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu Hóls, Þverholti 14.
Upplýsingar gefur Stefán Bjarni í síma 694 4388.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍSA, GRETTIR ER ENNÞÁ
AFBRÝÐISAMUR ÚT Í
ÞIG... OG ÁSTANDIÐ ER
ORÐIÐ SLÆMT
HANN ER HÆTTUR
AÐ BORÐA
ÉG DRÍF MIG
TIL ÞÍN NÚNA
ÞAÐ ÞÝÐIR AÐ VIKAN ER AÐ
VERÐA BÚIN OG ÉG ÞARF AÐ
BYRJA AÐ HAFA ÁHYGGJUR
AF VEGAGERÐINNI AFTUR
AF HVERJU
Á ÉG ENGA
VALDAMIKLA VINI?
ÞAÐ ER
KOMINN
FÖSTUDAGUR
ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI!
ÉG ÞOLI ÞETTA EKKI!
ÉG NÁÐI AÐ SMYRJA
NOKKRAR SAMLOKUR EN ÉG
HELD AÐ MÖMMU SÉ FARIÐ
AÐ GRUNA EITTHVAÐ! VIÐ
VERÐUM AÐ
DRÍFA OKKUR!
HVORT ÆTTI
ÉG AÐ TAKA
MEÐ MÉR
JÓJÓ EÐA
SÁPUKÚLUR?
HOBBES,
DRÍFÐU ÞIG!
EF VIÐ
BÍÐUM
HÉRNA
MIKIÐ
LENGUR
KOMUMST
VIÐ EKKI ÚT
LIFANDI!
MAMMA HLÝTUR AÐ LÍTA ÚT
UM GLUGGANN BRÁÐUM OG
ÞÁ SÉR HÚN AÐ BÍLLINN ER
FASTUR Í SKURÐINUM! EF
VIÐ NÁUM EKKI AÐ KOMAST
ÚR LANDI FYRIR ÞANN TÍMA
ÞÁ ER ÚTI UM OKKUR!
HVAR ER VÖRULEST
ÞEGAR MAÐUR ÞARF Á
HENNI AÐ HALDA
HVAÐ MÁ
BJÓÐA ÞÉR?
EITTHVAÐ SEM ER NÓGU
STERKT TIL AÐ SLÁ MIG Í ROT
VARAÐU ÞIG! HANN VAR EINU
SINNI ATVINNU BOXARI
ÉG HEF
ÁHYGGJUR AF
ÞESSUM SÖLU-
FYRIRLESTRI
VIÐ ÞURFUM BARA
AÐ VERA ÞARNA Í
NÍUTÍU MÍNÚTUR OG
SÍÐAN HELDUR FRÍIÐ
ÁFRAM
MUNDU BARA AÐ SÝNA
ALDREI NEINN ÁHUGA...
SAMA HVAÐ GERIST
ÞETTA ER
FRÁBÆRT HLAÐBORÐ! ER HERRANNSVANGUR?
ÞÚ NÁÐIR MÉR!
NÚNA GETUM VIÐ
ANDAÐ RÓLEGA
EKKI ENNÞÁ!
SJÁÐU!
LYFTAN ER AÐ
FALLA Í ÁTT TIL
JARÐAR...
OG Í
ÁTTINA AÐ
TÖKULIÐINU
dagbók|velvakandi
Samskiptavandamál
á vinnustöðum
Samskiptavandamál og einelti á
vinnustöðum hefur aukist verulega
á síðari árum, en lítið verið gert til
að lagfæra vandann.
Í Morgunblaðinu 24. desember
hvöttu þau Inga Rún Ólafsdóttir
og Bragi Skúlason til umræðu um
málið, sem var löngu tímabært. En
það er ekki sama hvaða forsendur
menn gefa sér sem umræðugrund-
völl. Hjá fyrirtækjum hefur sama
aðferð verið notuð til lausnar á
samskiptavandanum og notuð hef-
ur verið hjá grunnskólunum og
víðar, að skilgreina ekki vandann,
heldur vísa þeim frá sem fyrir
áreitinu verða. Þetta er svona
álíka skynsamlegt og ef þjófur
brytist inn, þá væri íbúðareiganda
vísað út, vegna þess að brotist var
inn hjá honum.
Það er ekki nóg að til séu lög og
reglur um réttindi starfsmanna, ef
þeim er ekki fylgt eftir og réttur
þeirra lægra settu er vanvirtur eða
jafnvel svívirtur. Rétt er að hafa
það í huga að mannréttindi þess
lægsta eru þau sömu og þess
hæsta. Einnig ætti að hafa í huga
þegar starfsmanni er sagt upp, að
hann er sviptur framfærslutekjum
og jafnvel fjölskyldan.
Undir verndarvæng verkalýðs-
forustunnar hefur það þróast að
starfsfólk sé sett á stall með
vinnutækjum og því skipt út með
sama hætti og tækjunum eftir
þörfum.
Það er sífellt verið að birta yf-
irlýsingar um tap fyrirtækja ef
laun hækka, en aldrei minnst á tap
fjölskyldu þegar fyrirvinna missir
vinnu vegna uppsagnar. Þetta er
áróður sem miðar að því að halda á
lofti hagsmunum annars aðilans.
Stéttafélögin bera ábyrgð á því,
er samskiptavandamál koma upp,
ef sök er færð yfir á rangan aðila,
eins og mér fannst nokkuð oft ger-
ast á þeim tíma sem ég var trún-
aðarmaður og einnig formaður
starfsmannafélaga, að uppsagnir
vegna samskiptavandamála væru
teknar gildar, án athugasemda, þó
svo að fyrir lægi vafi á réttmæti
uppsagnarinnar. Svona vinnubrögð
stéttarfélaga eru hneisa.
Kjör trúnaðarmanna eru eitt af
vandamálunum í þessum sam-
skiptum. Trúnaðarmenn þurfa að
vera kjörnir, eingöngu af starfs-
fólki, án afskipta fyrirtækja. Ef
upp koma vandamál yfirmanna við
trúnaðarmann eiga yfirmenn að
kvarta til stéttarfélags og það á að
leysa vandann með trúnaðarmanni
eða láta fram fara kjör á nýjum
trúnaðarmanni, ekki eins og nú er,
að fyrirtæki hafi íhlutun um val á
trúnaðarmanni.
Verkafólk ætti að gæta þess að
hafa ekki í forustu menn sem eru
eigendur eða hluthafar í fyrirtæki.
Verkalýðsforingi sem situr á miðju
samningaborði hlýtur að hallast
meira að eigin hagsmunum.
Ef endurskoðun fer fram á sam-
skiptum manna innan fyrirtækja
verður hún að byggja á því að sá
eða þeir seku séu gerðir ábyrgir
fyrir ástandinu.
Guðvarður Jónsson,
Valshólum 2
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
SKOTGLEÐI Íslendinga er mikil um áramótin. Það kom í hlut starfsmanna
á vegum Orkuveitunnar að hirða tómar tertur og flugelda hjá Perlunni.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Tómar tertur hjá Perlunni