Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 52

Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 52
52 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Besta sjónvarpsefni sem ég sáá síðasta ári var hiklaustbreska þáttaröðin The Thick Of It, eða Mæðst í mörgu eins og hún var skírð svo glæsi- lega upp á hið ylhýra af þýðendum Ríkissjónvarpsins en þeir hafa átt magnaða spretti í þeim fræðunum í gegnum tíðina (Prúðuleikararnir, Beðmál í borginni o.s.frv.).    Þættirnir voru sýndir í sumar íRíkissjónvarpinu en þeir eru runnir undan rifjum BBC og voru fyrst sýndir þar 2005. Um er að ræða eitursnjalla pólitíska háðsá- deilu, setta upp í hinum nýja og hráslagalega „fluga á vegg“-stíl og minnir þannig á gamanþættina The Office enda hefur þáttunum verið lýst sem blöndu af þeim þátt- um og Já ráðherra-þáttunum (Yes minister) sem nutu mikilla vin- sælda hérlendis um miðjan níunda áratuginn. Mæðst í mörgu skilur sig þó frá þessum viðlíkingum með hárbeittum húmor, sem verður vart lýst á annan hátt en sem „hvössum“. Handritið er djúphug- ult og hreint ótrúlega vel skrifað, hver einasta setning og áhersla skiptir máli. Raunveruleikaáhrifin eru mögnuð upp með handheldri kvikmyndatöku og engin tónlist né dósahlátur er til staðar.    Segir af lánlausum ráðherra,Hugh Abbot (Chris Langham), sem þekkir ekkert annað en inn- viði stjórnkerfisins og hangir því á stöðu sinni eins og hundur á roði, án sjálfsvirðingar og siðlegrar vit- undar. Út í gegn þarf hann svo að mæta spunameistara ríkisstjórn- arinnar, hinnum illvíga og orðljóta Malcolm Tucker (frábærlega leik- inn af Peter Capaldi), sem minnir helst á Svarthöfða sjálfan þegar best/verst lætur, svo ógnvekjandi er hann. Tucker ku vera sniðinn eftir Alistair Campbell, hinum fræga spunameistara Tonys Blairs, sem er skoskur líkt og skáldsagnapersónan en handrits- höfundurinn, Armando Iannucci, hefur neitað þessu (hann er og skoskur).    Við fylgjumst svo með þvíhvernig hvert klúðrið rekur annað og hvernig Malcolm og Ab- bot reyna að hylma yfir það með öllum ráðum. Hugsjónir eru engar, lygarnar algerar og ruglið og subbuskapurinn yfirgengilegur. Ég var hvað dýpst sokkinn í þessa þætti er REI-málið ótrúlega reið yfir og þegar það bar hæst, með öllum þeim trúðslátum, loðnu svör- um, bakstungum og lygum sem því fylgdi, sá maður glögglega að skil á milli skáldskapar og raunveru- leika virðast stundum sáralítil. Styrkur Mæðst í mörgu liggur í þessum realisma, í raun fjalla þættirnir um nákvæmlega það sama og var að gerast í REI- ruglinu, en með grínslæðuna yfir verða skilaboðin beinskeytt og stingandi. Er stjórnkerfið og bless- að lýðræðið, sem við höfum öll svo óskaplega mikla trú á, rotið inn að beini? Já, og við værum fífl að halda annað er mórallinn. Hún er skrítin tík, þessi pólitík AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen » Segir af lánlausumráðherra, Hugh Ab- bot (Chris Langham), sem þekkir ekkert ann- að en innviði stjórnkerf- isins og hangir því á stöðu sinni eins og hundur á roði, án sjálfs- virðingar og siðlegrar vitundar. Ráðherrann Hugh Abbot (Chris Langham), horfir út í tómið. arnart@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.