Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 53

Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 53 Á MEÐAN Tommy Lee ákveður hverju hann á að pakka fyrir Ís- landsheimsókn sína síðar í mán- uðinum leggur fyrrverandi eig- inkona hans og barnsmóðir, Pamela Anderson, lokahönd á skilnað sinn við Rick Solomon. Turtildúfunum tókst að róta í öskustó ástareldsins í heila tvo mánuði áður en þau upp- götvuðu að nú væri mál að linnti en upphaf sambands þeirra mun hafa verið herramannsleg uppástunga Solomons um að fella niður pók- erskuld Anderson gegn kynlífs- greiða. Þá ku hin barmmikla kyn- bomba hafa sagt: „Ég borgaði skuld mína með kynlífi og féll svo kylliflöt fyrir honum. Þetta er svooooo róm- antískt.“ Anderson var á þessum tíma að- stoðarkona töframannsins Hans Kloks í Las Vegas og í klukkustund- arlöngu hléi á milli sýninga giftist hún Solomon. Solomon þessi hefur helst unnið sér það til frægðar að vera einkar lunkinn pókerspilari en þar fyrir utan hefur honum tekist að giftast bæði Shannen Doherty og Elizabeth Daily. Þá „lék“ hann aðal- hlutverkið í myndbandinu „One Night in Paris“ sem ekki skal á nokkurn hátt ruglað við tónlistar- myndband Antons Corbijns með De- peche Mode. Þetta hjónaband Pa- melu er það þriðja sem siglir í strand en þar áður hefur hún verið gift fyrr- nefndum Tommy Lee og rokk- aranum Kid Rock. Nóg komið Pamela Anderson og Solomon leysa hjónahnútinn á næstunni. Áhættan borgaði sig ekki EF maður hefur gaman af púslu- spilum þá má skemmta sér ágætlega yfir nýjustu fjársjóðsleitinni með Nicolas Cage í hlutverki Bens Gates. Í þetta skipti þarf hann að verja heið- ur ættarinnar þegar forfaðir hans er ásakaður um að hafa plottað morðið á Lincoln. Til að afsanna þetta leggst hann í Trivial Pursuit-rannsókn á bandarískri sögu. Hann þarf að leita fanga víða til að finna sönnunargögn. Í fantasíuheimi myndarinnar telst ekki tiltökumál að brjótast inn í Buckinghamhöll og keyra síðan um miðborg London skjótandi í allar átt- ir – allt án afskipta lögreglu! En þetta er hasarævintýri þar sem allt sem telst fjölskylduvænt, blóðlaust ofbeldi er greinilega leyfilegt. Maður yrði ekki hissa ef Ben Gates fengi Nancy Drew í lið með sér til að finna fjár- sjóðinn. Hún passar alveg inn í púslin með borðin, kóngulóarvefina í göng- unum og gullborgina. Vandi National Treasure: Book of Secrets er að þótt hún eigi góðar sen- ur inn á milli er heildarmyndin þung- lamaleg og of löng. Hana vantar hörku og fjör. Drifkrafturinn er nán- ast enginn. Það er þá helst Jon Vo- ight og Helen Mirren í vanþakklátum hlutverkum foreldra Bens Gates sem lyfta myndinni aðeins upp. Einnig er Harvey Keitel skondinn sem FBI- maðurinn sem eltist við Gates. Púsl og þjóðargersemi Blóðlaus hasar „[Þ]etta er hasarævintýri þar sem allt sem telst fjöl- skylduvænt, blóðlaust ofbeldi er greinilega leyfilegt.“ KVIKMYNDIR Sambóin Laugarásbíó Leikstjóri: Jon Turtletaub. Leikarar: Nicolas Cage, Diane Kruger, Justin Bartha, Helen Mirren, Jon Voight, Ed Harris, Harvey Keitel. Bandaríkin. 2007. National Treasure Book of Secrets  Anna Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.