Morgunblaðið - 10.01.2008, Qupperneq 8
JÓHANNA Sigurðardóttir, félags-
og tryggingamálaráðherra, hefur
skipað fimm manna stjórn Trygg-
ingastofnunar
ríkisins, en stofn-
unin heyrir frá 1.
janúar undir fé-
lags- og trygg-
ingamálaráðu-
neytið.
Nýir í stjórn
Tryggingastofn-
unar ríkisins eru
Stefán Ólafsson
prófessor og Kristinn Jónasson
bæjarstjóri. Aðrir stjórnarmenn
eru Margrét S. Einarsdóttir vara-
formaður, Sigríður Jóhannesdóttir
og Sigursteinn Másson. Varamenn í
stjórn eru Bryndís Friðgeirsdóttir,
Svala Árnadóttir, Elsa Ingjalds-
dóttir, Signý Jóhannesdóttir og Ey-
rún Ingibjörg Sigþórsdóttir.
Hlutverk stjórnarinnar er að
hafa eftirlit með starfsemi TR og
gæta þess að rekstur hennar sé inn-
an ramma fjárlaga. Stjórnin stað-
festir skipulag stofnunarinnar,
starfs- og fjárhagsáætlun hvers árs
og markar henni stefnu.
Stefán formað-
ur stjórnar TR
Stefán Ólafsson
LEIKSKÓLASVIÐ Reykjavík-
urborgar hefur opnað nýjan vef á
slóðinni www.allirmed.is. um
hvernig megi skipuleggja fjölmenn-
ingarlegt leikskólastarf. Á vefnum
eru hagnýt ráð um foreldra-
samstarf þegar barn af erlendum
uppruna byrjar í leikskóla og þegar
örva þarf málskilning tvítyngdra
barna. Kynnt eru fjölbreytt verk-
efni og leikir sem miða að því að
rækta umburðarlyndi og virðingu
fyrir margbreytileika mannlífsins.
Þar er unnið með menning-
arbakrunn barna af ólíkum upp-
runa, ólíkar fjölskyldur, samskipti,
samvinnu og samfélagsskilning.
Fjölmenning
í leikskólum
8 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ALLS sóttu 134 um fjórar stjórn-
unarstöður sem félags- og trygg-
ingamálaráðuneytið auglýsti lausar
til umsóknar samkvæmt nýju skipu-
riti ráðuneytisins. Skipað verður í
stöðurnar síðar í mánuðinum eftir
að Capacent og ráðuneytið hafa
farið yfir umsóknir og tekið viðtöl
við umsækjendur.
Félags- og tryggingamálaráðu-
neytið skiptist samkvæmt hinu nýja
skipuriti í þrjú fagsvið; velferð-
arsvið, tryggingasvið og jafnréttis-
og vinnumálasvið og þrjú stoðsvið;
stjórnsýslu- og stefnumóturnarsvið,
fjármálasvið og þjónustu- og mann-
auðssvið.
Marmiðið með breytingunum er
að auka áherslu á stefnumótun inn-
an ráðuneytisins og efla innri starf-
semi þess og starfsmannamál.
134 umsóknir
hjá ráðuneytinu
LANDSAMBAND kúabænda held-
ur málþing á Hótel Loftleiðum
föstudaginn 1. febrúar n.k. kl. 13-16
undir yfirskriftinni „Íslensk mjólk-
urframleiðsla árið 2020“. Markmið
þess er að varpa ljósi á framtíð-
arsýn og horfur í nautgriparækt og
mjólkurframleiðslu hér á landi á
næstu árum. Frummælendur verða
Einar Sigursson, framkvæmda-
stjóri Árvakurs, Gylfi Arnbjörns-
son, framkvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands, Jafet Ólafsson
athafnamaður og Vilhjálmur Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Mjólk árið 2020
STUTT
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 17
ára pilt í hálfs árs fangelsi, þar af þrjá mánuði
skilorðsbundið, fyrir sérstaklega hættulega lík-
amsárás í Garðastræti á nýársdag 2007. Hann
var sakfelldur af ákæru ríkissaksóknara fyrir að
hafa slegið 29 ára mann í höfuðið með flösku með
þeim afleiðingum að flaskan brotnaði og brota-
þolinn féll niður í tröppur húss við götuna. Við
árásina hlaut hann m.a. þrjár sprungur í höf-
uðkúpu og mar í heilavef. Lýst var eftir árás-
armanninum og félögum hans og gáfu þeir sig
fram síðar.
Ákærði sagðist hafa verið að verja félaga sinn
fyrir árás mannsins, sem hefði upphaflega reitt
flöskuna til höggs. Sagðist ákærði hafa tekið
flöskuna af manninum og slegið hann með henni.
Tvö vitni sögðust hafa séð hið sama og tók dóm-
urinn mark á þessu. Á hinn bóginn var sannað að
ákærði hefði ekki látið sér nægja að taka flöskuna
af manninum og afstýra þannig hættunni, heldur
líka slá hann með henni. Að mati dómsins féll því
viðbára ákærða um sjálfa sig og var hann dæmd-
ur fyrir árásina. Hún var talin bæði fólskuleg og
mjög hættuleg og olli alvarlegu heilsutjóni sem
maðurinn hefur enn ekki náð sér af.
Læknir sem annaðist hinn slasaða á sjúkrahúsi
sagði sjúkling sinn hafa hlotið heilamar af því að
heilinn kastaðist til inni í höfuðkúpunni við höf-
uðhöggið. Gætu slíkir áverkar í sumum tilvikum
haft hörmulegar afleiðingar fyrir viðkomandi.
Eðlilegt væri að gera ráð fyrir að áverki af þessu
tagi myndi hafa varanlegar afleiðingar fyrir
manninn og gera hann veikari fyrir. Læknirinn
sagði þó að maðurinn virtist ætla að sleppa til-
tölulega vel frá meiðslum sínum.
Í niðurstöðu sinni tók dómurinn tillit til þess að
ákærði var aðeins 16 ára þegar atburðurinn átti
sér stað og jafnframt var litið til þess að hann
hafði ekki áður gerst sekur um refsilagabrot.
Auk fangelsisrefsingar var ákærði dæmdur til
að greiða manninum1,1 milljón kr. í skaðabætur.
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari dæmdi málið.
Verjandi ákærða var Sveinn Andri Sveinsson hrl.
og sækjandi Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir,
fulltrúi ríkissaksóknara.
Dæmdur fyrir hættulega árás
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
DÓMNEFND sem mat hæfni um-
sækjenda um embætti héraðsdóm-
ara við Héraðsdóm Norðurlands
eystra og Héraðsdóm Austurlands
hefur sent frá sér greinargerð, að
því er segir af því óvenjulega tilefni
að settur dómsmálaráðherra, Árni
Mathiesen, hafi skipað í embættið
þvert gegn rökstuddri umsögn dóm-
nefndarinnar, þegar hann skipaði
Þorstein Davíðsson í embættið.
Segja nefndarmenn ákvörðunina
ómálefnalega og langt utan þeirra
marka sem ákvörðunarvaldinu séu
sett.
Í greinargerðinni er tekið fram að
hún snerti á engan hátt persónu þess
einstaklings sem hlaut skipun í emb-
ættið, og að dómnefndin óski honum
farsældar í vandasömum störfum.
Veitingarvaldinu takmörk sett
Því er lýst að nefndin hafi verið
stofnsett til að styrkja sjálfstæði
dómstólanna og auka traust almenn-
ings á því að dómarar séu óháðir
handhöfum framkvæmdavaldsins.
Enn fremur kemur fram að í þau
sextán ár sem dómnefndin hafi starf-
að hafi „dómsmálaráðherrar iðulega
virt rökstudda niðurstöðu nefndar-
innar þótt þeir hafi ekki ævinlega
valið þann umsækjanda, sem dóm-
nefnd setti í fyrsta sæti, ef slíkri röð-
un var beitt, heldur valið annan úr
hópi þeirra, sem taldir voru hæfast-
ir.“ Óhjákvæmilegt sé að ætla, út frá
upphaflegum tilgangi nefndarinnar,
að veitingarvaldinu séu einhver tak-
mörk sett við val sitt, með hliðsjón af
góðum og vönduðum stjórnsýslu-
háttum og sjálfstæði dómstólanna.
Þá segir: „Dómnefndin telur að
settur dómsmálaráðherra hafi við
skipun í embætti héraðsdómara nú
farið langt út fyrir slík mörk og tekið
ómálefnalega ákvörðun, sem er eins-
dæmi frá því að sú tilhögun var tekin
upp að sérstök nefnd legði rökstutt
hæfnismat á umsækjendur. Með
þessari ákvörðun hefur ráðherra
ekki aðeins vegið að starfsheiðri og
tilverugrundvelli dómnefndarinnar
heldur einnig gengið í berhögg við
það yfirlýsta markmið með stofnun
hennar á sínum tíma að styrkja sjálf-
stæði dómstólanna og auka traust al-
mennings á því að dómarar séu
óháðir handhöfum framkvæmda-
valdsins og einvörðungu valdir sam-
kvæmt hæfni.“
Störfin metin einskis
Kveðast nefndarmenn munu
starfa áfram í trausti þess að ákvörð-
unin sé einsdæmi, þótt til greina
komi að þeir leggi niður störf þegar
jafn óvönduð stjórnsýsla og nú sé
raunin sé viðhöfð. Ljóst sé að ráð-
herra meti störf hennar einskis.
Sérstaklega er það sagt vekja at-
hygli að í rökstuðningi Árna fyrir
ákvörðuninni sé engin tilraun gerð
til að rökstyðja hvers vegna þau at-
riði sem hann tilgreinir sérstaklega
á ferli Þorsteins eigi að vega þyngra
í mati á hæfni umsækjenda en allt
það sem hinir umsækjendurnir hafi
til brunns að bera. Ekki sé minnst á
35 ára starfsferil eins þeirra, sem all-
ur tengist dómstólum, eða margra
ára framhaldsnám annars umsækj-
anda við erlenda háskóla þar sem
hann hafi uppskorið tvær meistara-
gráður í lögum. Þá hafi Þorsteinn
ekki lagt fram höfundarverk sín svo
meta megi tök hans á íslensku máli
og rökhugsun við úrlausn vanda-
samra lögfræðilegra verkefna.
Ákvörðunin ómálefnaleg
Skipunin langt utan marka sem veitingarvaldinu eru sett, segja nefndarmenn
Gengur í berhögg við markmið um sjálfstæði dómstóla og aukið traust til þeirra
Í HNOTSKURN
»Undir greinargerðina skrifaPétur Kr. Hafstein, formað-
ur, Eggert Óskarsson, aðal-
maður og Bjarni S. Ásgeirsson.
»Fram kemur að Lára V. Júl-íusdóttir, aðalmaður, sem
vék sæti í málinu, sé samþykk
greinargerðinni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Héraðsdómur Dómnefnd er ósátt við vinnubrögð við skipan héraðsdómara.
Meira á mbl.is/ítarefni