Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Viðskiptavinir, sem greiða með korti frá SPRON, fá 20% afslátt af miðaverði á myndina SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM Bobby Green snéri baki við fjölskyldu sinni, en þarf nú að leggja allt undir til að bjarga henni undan mafíunni. Dagbók fóstrunnar SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓI Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum frábæru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr Die Hard 4.0 í fantaformi. ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ. HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU! SÝND Í REGNBOGANUM Sími 564 0000Sími 462 3500 Sími 551 9000 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ* Duggholufólkið kl. 4 - 6 B.i. 7 ára Hitman kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára The Nanny Diaries kl. 5:40 - 8 - 10:20 The Golden Compass kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10 ára The Golden Compass kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS Alvin og íkornarnir m/ísl. tali kl. 4 - 6 Alvin and the C.. m/ensku tali kl. 8 - 10 I´m not there ath. ótextuð kl. 6 - 9 The Golden Compass kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 10 ára We own the night kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára Run fat boy run kl. 8 - 10:10 Dan in real life kl. 5:45 Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíó, Smárabíó og Regnboganum ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! - Kauptu bíómiðann á netinu - The Nanny Diaries kl. 8 - 10 The Golden Compass kl. 8 - 10 B.i. 10 ára Alvin og íkornarnirm/ísl. tali kl. 6 Duggholufólkið kl. 6 B.i. 7 ára eee - A.S. MBL eee - V.J.V., TOPP5.IS eee - T.S.K. 24 STUNDIR Stórskemmtileg gamanmynd með Scarlett Johansson í aðalhlutverki sem fóstra hjá ríka liðinu í New York og lífið á toppnum því ekki er allt sem sýnist! EITT STÓRFENGLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. eee FLAUELSMJÚK OG ÞÆGILEG - DÓRI DNA. D.V. eeee - H.J. MBL eee - A.F.B. 24 STUNDIR Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „ÉG get eiginlega ekki sagt að þetta sé innsetning, þetta er „object“, teikning og vídeó,“ segir Ingirafn Steinarsson myndlist- armaður um sýningu sem hann opnar í dag kl. 17 í D-sal Listasafns Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Teikn- ingin er stór, u.þ.b. sex metrar á lengd og 1,5 á hæð, í vídeóinu er fjallað um fagurfræði og pólitík og „object-ið“, eða hluturinn, er plex- íglerverk sem býr til sápufroðu. „Þetta er vél sem er tengd við helíum þannig að froðan leitar upp á við,“ útskýrir Ingirafn fyrir blaðamanni, ekki búinn að koma verkunum fyrir þegar viðtalið var tekið í gær. Í vídeóinu sést Ingirafn mála þekktasta hústökuhús Óslóar hvítt, eða þar til honum líst ekki á blikuna eftir samtal við hústöku- mann og ákveður að hætta því og yfirgefa svæðið. „Ég ræðst á fag- urfræði pönkaranna sem þeir tengja við hugmyndafræði sína og framkvæmi eiginlega þeirra hug- myndafræði á mínum fag- urfræðilegu forsendum. Þeir voru búnir að mála húsið svart og ég mála það hvítt.“ Stórt, handteiknað verk á sýn- ingunni byggist á frjálslegri tækni- teiknunaraðferð sem brýst út í ákaflega smágerðu flúri sem virkar skipulagt við fyrstu sýn. Hún er ekki unnin eftir stífum reglum en hefur þó tækniteiknunarútlit. Ingi- rafn segir fagurfræði þekkingar í sem víðustum skilningi vera inntak sýningarinnar. Bekenndu ekki verkið Ingirafn nam myndlist við fjöl- tæknideild Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands á árunum1996-9, þá við listaháskóla í Vín árið 2003 og fór þaðan beint til Malmö þar sem hann hlaut meistaragráðu í myndlist árið 2006. Ástæðan fyrir því að hann var þrjú ár í meist- aranámi en ekki hin hefðbundnu tvö er sú að lokaverkefni hans var ekki viðurkennt af skólayfir- völdum. „Þeir bekenndu ekki útskrift- arverkið mitt, ég þurfti að gera það aftur,“ segir Ingirafn kíminn. Hann hélt partí í galleríi skólans, það var útskriftarverkefnið, fjallað um partísögu skólans. Ingirafn segir það alltaf heilmikið mál að halda partí í skólanum, það sé eiginlega bannað. „Ég olli þeim svo miklum vandræðum að þeir vildu valda mér vandræðum í staðinn.“ Verkið hafi bara orðið betra fyrir vikið. Ráðist á fagurfræði pönkaranna Morgunblaðið/Árni Sæberg Svart og hvítt Myndlistarmaðurinn Ingirafn Steinarsson opnar í dag sýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur. TÓNLEIKARÖÐ Hins Hússins, Fimmtudagsforleikur, hefst að nýju í kvöld kl. 20. Þá stíga á svið hljóm- sveitir þrjár, allar skemmtilega skírðar: Narfur, Brimrót og Númer núll. Menn þurfa að hafa náð 16 ára aldri til að fá inngöngu og krafa gerð um að allir séu allsgáðir. Narfur var stofnuð 1. desember 2005 af þeim Teiti og Ella, sem líkt og svo margir ungir tónlistarmenn hömuðust á hljóðfærum sínum í bíl- skúr. Steini bættist síðar í hópinn sem gítarleikari, síðan bassaleik- arinn Fúsi og trommarinn Skúli, eins og segir á Myspace-síðu sveit- arinnar. Narfur segist þar spila „sto- ner/Indie/Psycadelic“ rokktónlist. Þá hefur fiðluleikari einnig slegist í hóp- inn. Sveitin keppti í Global Battle Of The Bands á Gauki á Stöng í fyrra. Hljómsveitin Brimrót keppti einn- ig í fyrra en þó í öðru, Músíktil- raunum, og þótti Árna Matthíassyni sveitin leyfa einfaldleikanum að ráða, „gera það sem þurfti og svo ekki meira“, eins og segir í umfjöllun hans í fyrra. Hann lýsir sveitinni sem klassísku rokktríói með fínum gít- arleik, þéttum bassa og traustum trommum. Hljómsveitin, eða tríóið, Númer núll spilaði á Iceland Airwaves í fyrra. Sveitin blandar saman á kraft- mikinn hátt poppi, pönki, metal og gamaldags rokki og róli. Sveitin var stofnuð árið 2004 og hefur leikið á börum og öðrum tónleikastöðum í Reykjavík upp frá því auk þess að spila í ýmsum plássum úti á landi. Á vefsíðu Iceland Airwaves segir að krafturinn hafi verið svo mikill í sveitinni á Hvammstanga að gestir á ónefndum tónleikastað hafi þurft að fara út með borð og stóla og beðið þar eftir að tónleikum lyki. Þó þótti þeim tónlistin góð, hörfuðu undan kraftinum. Að þessu sögðu ætti að vera ljóst að engin lognmolla verður í Hinu húsinu í kvöld og þá sakar heldur ekki að aðgangur er ókeypis. Tón- leikaröðin er hugsuð sem vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára til að koma tónlist sinni á fram- færi jafnframt því að fá reynslu í því að sjá um tónleika. Hitt Húsið útvegar aðstöðu og tækjabúnað til tónleikahalds og býr með því til vettvang í samstarfi við ungt tónlistarfólk þar sem að það getur öðlast reynslu í öllum hliðum þess að sjá um tónleika og því að koma tónlist sinni á framfæri. Gengið er niður í kjallara Austurstræt- ismegin. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Eyrbekkingar Narfur á Músíktilraunum í fyrra. Fimmtudagsforleikur hefst á ný

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.