Morgunblaðið - 10.01.2008, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 10.01.2008, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 21 ÞAÐ stóð ekki á því. Í áramótaávarpi for- sætisráðherra voru ein mikilvæg skilaboð send þjóðinni. Það er almenningur sem ber ábyrgð á efnahags- legum stöðugleika. Það eru almennir launamenn sem skulu axla byrðarnar, eins og venjulega, og það er þeirra að sjá til þess með hóflegum kjara- kröfum að viðunandi stöðugleiki náist í efnahagsmálum. Ekki skal gert lítið úr því að komandi kjarasamningar eru mikilvægir og af- drifaríkir hvað varðar m.a. efnahagslegan stöðugleika. En stöð- ugleiki snýr að fleiru en efnahagsmálum einum. Það er líka til hugtak sem nefna má „félagslegan stöð- ugleika“. Á því sviði stöðugleika hefur einnig sigið mjög á ógæfuhliðina og ekki er síður ástæða til að hafa áhyggjur af vaxandi mis- skiptingu og því jafnvægisleysi sem myndast hefur í lífskjörum og hvað varðar hinar félagslegu aðstæður. Ef maður nálgast málið frá þeim sjónarhóli má alveg eins segja: Það er lífsnauðsyn að endurheimta fé- lagslegan stöðugleika í landinu með jafnari kjaraskiptingu og jafnari lífs- kjörum. Þá snýst málið auðvitað um að bæta kjör þeirra sem verst eru settir. Ná þarf fram umtalsverðri hækkun dagvinnulauna fyrir fasta umsamda og hóflega vinnuviku og hlífa lægri launum við skattlagn- ingu. Annars er þess ekki að vænta að sátt verði um hlutaskiptin í samfélaginu. „Litli maðurinn“ kunni sér hóf Skilaboð forsætisráð- herra Geirs H. Haarde eru hins vegar af allt öðrum toga. Þau eru hinn hefðbundni söngur hægrimanna og tals- manna atvinnurekenda sem jafnan í aðdrag- anda kjarasamninga varpa allri ábyrgðinni af efnahagsástandinu, stöðugleikanum, bar- áttu við verðbólgu, við- skiptahalla og erlendar skuldir, yfir á herðar hins almenna launa- manns. Skilaboð for- sætisráðherra voru ekki til stórfyrirtækj- anna, þau voru ekki til fjármagnseigenda. Skilaboðin voru ekki til auðmanna sem borist hafa blygðunarlaust á og sýnt þjóð- inni inn í nýjan heim með afmæl- isveislum sem kosta hundruð millj- óna og með einkaþoturekstri þannig að örtröð myndast á stæðunum við Hótel Loftleiðir um helgar. Skilaboð forsætisráðherra voru ekki til topp- anna í fjármálalífinu sem hafa hækk- að laun sín svo að þau nema nú í viss- um tilfellum nokkur hundruðföldum launum verkamanna. Þau voru ekki til útvarpsstjórans nýja, ekki til æðstu embættismanna sem Kjara- dómur hefur úrskurðað ríflegar hækkanir á undanförnum misserum. Nei, skilaboðin voru til hins al- menna launamanns. Þau voru eins og stundum er sagt í umræðunni til „litla mannsins“ í samfélaginu. Slík eru skilaboðin þegar forsætisráð- herra loksins vaknar af sínum værð- arblundi. Nú liggur fyrir að um eiginlega kaupmáttaraukningu hefur ekki ver- ið að ræða undanfarin misseri hjá þeim sem eingöngu hafa notið fastra umsaminna kauphækkana sam- kvæmt almennum kjarasamningum. Því veldur ósköp einfaldlega að verðbólga hefur étið upp hinar föstu umsömdu og hógværu hækkanir samkvæmt gildandi kjarasamn- ingum. Að sjálfsögðu hafa ýmsir hópar notið launaskriðs og mikilla umsvifa í þjóðfélaginu, en því er mjög misskipt eins og kunnugt er. Flóttinn úr umönnunarstéttum og vandræðin við að manna hefðbundin launamannastörf af margvíslegum toga eru vel þekkt og eiga þó þar í hlut lífsnauðsynleg störf við umönn- un og uppeldi, við sjálfan rekstur velferðarsamfélagsins. Það eru engu að síður þessir hópar m.a. sem for- sætisráðherra er sérstaklega að senda kveðju sína. Óbreytt „hægri“stefna En var við öðru að búast? Mitt svar er nei. Forsætisráðherra er ósköp einfaldlega talsmaður hægri- sinnaðrar ríkisstjórnar sem fram- fylgir óbreyttri stjórnarstefnu rík- isstjórna Sjálfstæðisflokksins að þessu leyti. Önnur athyglisverð um- mæli sem forsætisráðherra end- urtók í umræðuþáttum og greinum um áramótin staðfesta þetta. Þar á ég við lýsingar hans á því hversu auðveldlega hafi gengið saman með Samfylkingunni og Sjálfstæð- isflokknum við myndun ríkisstjórn- arinnar, hversu lítill ágreiningurinn hafi reynst þegar á hólminn var komið. Með þetta er forsætisráð- herra að sjálfsögðu hæstánægður og að því er virðist Samfylkingin líka. Það var sem sagt engum umtals- verðum hugmyndafræðilegum ágreiningi til að dreifa þegar þessir tveir flokkar settust niður við samn- ingaborðið. Nú er ástæða til að ætla að hveiti- brauðsdögum stjórnarinnar sé lokið. Verður fróðlegt að sjá hvernig and- rúmsloftið þróast í garð ríkisstjórn- arinnar á næstu mánuðum. Þar skipta kjarasamningar vissulega máli, en ekki síður viðmót og viðhorf stjórnvalda í garð hins almenna launamanns sem finnur á eigin skinni kjaraskerðinguna sem fólgin er í mikilli verðbólgu og svimandi háum vöxtum, stórhækkuðum hús- næðiskostnaði og þar fram eftir göt- unum. Í þessum efnum aðhefst rík- isstjórnin ekkert en skellir eins og venjulega skuldinni á launalið al- mennra kjarasamninga. Litli mað- urinn er ábyrgur og á að bera her- kostnaðinn af klúðri og mistökum núverandi og fyrrverandi rík- isstjórna í efnahagsmálum. Ríkisstjórnin stikkfrí – launamenn ábyrgir Steingrímur J. Sigfússon fjallar um kjaramál og áramótaávarp forsætisráðherra Steingrímur J. Sigfússon » Það er lífs-nauðsyn að endurheimta fé- lagslegan stöð- ugleika í landinu með jafnari kjaraskiptingu og jafnari lífs- kjörum. Höfundur er formaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. SÍÐASTA aldarfjórðung hefur Davíð Oddsson verið valdamesti maður landsins og ráðskast með flest svið þjóðlífsins. Það er eðli- legt að orð slíks manns og gerðir sæti gagnrýni og raunar inngróið í það lýðræðiskerfi sem við aðhyll- umst að um menn í hans stöðu geisi stormar. En það vekur æ meiri efasemd- ir að Þorsteinn Davíðsson megi hvergi sjást eða heyrast án þess að því sé hnýtt við, til þess að gera hann tortryggilegan, að hann sé sonur föður síns. Mér finnst það í rauninni jafn lítilmannlegt og hallærislegt og þegar Hannes Hólmsteinn var ítrekað að reyna að gera þýðingarstörf Hjörleifs Sveinbjörnssonar tortryggileg vegna þess að hann væri eig- inmaður Ingibjargar Sólrúnar. Það er sjálfsagt að skamma ráðherra fyrir orð þeirra og gerð- ir og auðvitað á að gagnrýna emb- ættisveitingar með málefnalegum hætti. En getum við ekki gert með okkur þjóðarsátt um að sýna dálitla tillitssemi fjölskyldum þeirra sem í eldlínunni standa? Einar Kárason Stjórnmálamenn og þeirra nánustu Höfundur er rithöfundur. MAÐUR deilir ekki við dóm- arann og maður á ekki heldur að þurfa að deila um dómarann og skipan hans. Ég tel að það sé óbærilegt fyrir dómstólana og þá sem sækjast eftir dómarastörfum að búa við þetta úrelta skip- unarkerfi. Það deilir enginn um rétt dómsmálaráðherrans til að skipa hvern þann mann úr hópi um- sækjenda sem hann telur hæf- astan en umræðan um að dómari sé merktur stjórnmálaflokki vegna skipunar pólitísks ráð- herra er ekki í samræmi við hlut- leysiskröfur og eða hæfni hans, hvað þá þrískiptingu ríkisvalds- ins. Nú þegar sami stjórn- málaflokkurinn hefur farið með skipunarvaldið í áratugi og nær allir dómarar landsins eru með skipun frá sjálfstæðisráðherra vex tortryggnin, og ekki síst þeg- ar umsagnaraðilarnir, dómarar og lögmenn, telja valið rangt. Ég tel því að nú beri að stíga skref sem skera á þessa umræðu og þessar deilur. Þorsteinn Dav- íðsson er skipaður dómari. Ég efast ekki um hæfni hans til að takast á við dómstörf og óska honum velfarnaðar í starfi. Deil- an snýst um að aðrir umsækj- endur hafi verið hæfari að mati matsnefndar og ráðherra ekki farið eftir því. Sambærilegar um- ræður hafa komið upp áður. Ég ítreka hins vegar að það er fyrst og fremst fyrirkomulag þessara ráðninga sem er ómögu- legt. Það er óheppilegt að vald safnist um of á einn þátt rík- isvaldsins. Ég tel því að þrískipt- ing ríkisvaldsins eigi að vera skýrari og að dómarar, bæði við Hæstarétt og í héraðsdómi, eigi í framtíðinni að vera skipaðir með samþykki Alþingis. Fyrir Alþingi liggur nú frum- varp þessa efnis flutt af Lúðvík Bergvinssyni og fleirum. Ég tel að nú beri að stíga það skref til að skapa sátt um dómstóla lands- ins. Framsóknarflokkurinn mun beita sér fyrir slíkum sáttum um nýja leið sem verði hafin yfir alla pólitíska gagnrýni og tekur í meginatriðum undir frumvarpið sem fyrir Alþingi liggur. Guðni Ágústsson Deilur um skipan dómara veikja dómstólana Höfundur er formaður Framsóknarflokksins. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100 · skoðað álagningarseðilinn í Rafrænni Reykjavík fyrir árið 2008 (eftir 20. janúar nk.) og alla breytingaseðla sem koma þar á eftir. · afpantað álagningarseðilinn og breytingaseðla í pósti. · skráð sig í boðgreiðslu fasteignagjalda. · valið hvort maður vilji einn eða sex gjalddaga á fasteignagjöldunum. · gefið upp reikningsnúmer fyrir Reykjavíkurborg að leggja inn á ef maður ofgreiðir gjöldin eða þau lækkuð einhverra hluta vegna. Upplýsingar og aðstoð í síma 411 1111 www.reykjavik.is Reykjavíkurborg Umhverfisvæn þjónusta fyrir Reykvíkinga Rafræn birting álagningarseðla fasteignagjalda 2008 á Á heimasíðu Reykjavíkurborgar geta fasteignaeigendur: www.reykjavik.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.