Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÁKVEÐIÐ hefur verið að verja 50 úthaldsdögum rannsóknarskipa Haf- rannsóknastofnunarinnar á þessu ári til loðnurannsókna og mælinga. 28 dagar verða nýttir nú í upphafi árs og 22 að hausti. Í upphafi síðasta árs var áætlunin að nýta 39 daga til þessara rannsókna en síðar var 20 dögum bætt við með sérstakri aukafjárveit- ingu. Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra kynnti þessa stöðu á ríkisstjórnarfundi nú í vikunni. „Það er auðvitað mjög þýð- ingarmikið fyrir okkur að ná núna áreiðanlegri mælingu á stöðu loðnu- stofnsins, bæði fyrir veiðarnar sjálf- ar, sem skipta mjög miklu máli, og líka til þess að sannfæra okkur um stöðu fæðuframboðsins á miðunum,“ segir Einar K. Guðfinnsson. Meiri áherzla á rannsóknir „Það er ljóst af þessu að stofnunin leggur meiri áherzlu heldur en gert var í fyrra á loðnurannsóknirnar. Við tókum að vísu þá ákvörðun þá að leggja til viðbótarfjármuni til Haf- rannsóknastofnunarinnar til þess að geta meðal annars farið í þessar loðnurannsóknir og í fjárhagsramma stofnunarinnar fyrir þetta ár er gert ráð fyrir aukningu frá því sem lagt var af stað með í upphafi síðastliðins árs. Það á sér nú stað heilmikil atferl- isbreyting, sem við sjáum, og við höf- um verið að reyna að svara því með því að verja auknu fé til þessara rann- sókna, en við vitum hins vegar að það veitir ekkert af þeim fjármunum og þó meira væri. Aðalatriðið við þessar aðstæður nú er að okkur takist að slá máli á stofninn. Það er jákvætt að sjá að menn hafa fundið loðnu þó þetta snemma. Það var líka jákvætt að árið 2006 tókst okkur í fyrsta skipti í nokkur ár að mæla loðnuna þannig að hægt væri að gefa út upphafskvóta þó lítill væri. Engu að síður er alltaf óvissa í kring- um loðnuna, sem er nauðsynlegt að eyða,“ segir Einar K. Guðfinnsson. Áhrif á aðrar rannsóknir Ráðherrann lagði á fundi ríkis- stjórnarinnar fram minnisblað, þar sem kemur fram að hátt olíuverð hafi aukið útgerðarkostnað rannsókna- skipanna verulega. „Vegna þess hve svigrúmið er takmarkað, mun þessi áætlun hins vegar hafa áhrif á aðrar mikilvægar rannsóknir svo sem áætl- aðar karfamerkingar, nauðsynlegar veiðarfærarannsóknir, fyrirhugaðar samstarfsrannsóknir á þorski við strendur Grænlands, auk annarra mikilvægra verkefna stofnunarinnar. Ekki er ólíklegt að áætlað úthald til loðnurannsókna muni engu að síð- ur ekki nægja til að skila nauðsyn- legum mælingum af loðnustofninum. Þess vegna þykir nauðsynlegt að vekja athygli á stöðunni á þessu stigi,“ segir meðal annars á minnis- blaðinu Ekki tókst að mæla ungloðnu í haust „Staðan varðandi loðnumælingar nú í byrjun árs 2008 er sú, að haustið 2006 tókst að mæla 1-árs loðnu og áætla veiðistofn á yfirstandandi ver- tíð (2007/2008) þannig að hægt var að leggja til takmarkaðan upphafskvóta á vertíðinni, 205 þúsund tonn. Ekki tókst hins vegar fyrir síðustu áramót að ná mælingu af veiðistofninum svo unnt yrði að leggja til endanlegt afla- mark á vertíðinni, en aðstæður voru óhagstæðar til mælinga, einkum af völdum íss. Ekki tókst hins vegar á sl. hausti að mæla ungloðnu, sem standa mun undir vertíðinni 2008/2009. Vænta má að mikill þrýstingur verði frá atvinnugreininni að gerðar verði frekari tilraunir til mælinga í vor eða sumar svo unnt verði að leggja til upphafskvóta fyrir sumar- ið,“ segir ennfremur á minnisblaðinu. Fimmtíu dögum varið til loðnurannsókna í ár Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Vinnsla Ólafur Stefánsson fylgist með í flokkunarsal Hraðfrystistöðvar Þórshafnar. Loðnan sem veiðist nú fer ýmist í frystingu eða bræðslu. Í HNOTSKURN »Í upphafi síðasta árs varáætlunin að nýta 39 daga til þessara rannsókna en síðar var 20 dögum bætt við með sérstakri aukafjárveitingu »Það er heilmikil atferl-isbreyting að eiga sér stað og við höfum verið að reyna að svara því með því að verja auknu fé til þessara rannsókna »Ekki er ólíklegt að áætlað út-hald til loðnurannsókna muni engu að síður ekki nægja til að skila nauðsynlegum mælingum af loðnustofninum „Mjög þýðingarmikið að ná áreiðanlegri mælingu nú“ ÚR VERINU Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Í KJÖLFAR fjölmargra válegra eldsvoða undanfarið vill Öryggismiðstöðin benda fólki á nokkur mikilvæg atriði er varða eldvarnir. Ef upp kemur eldur á heimili getur hann tvöfaldast á 30 sekúndum og hitastig hækkað um hundruð gráða á fáeinum sekúndum. Frá slíkum eldi kemur kol- svartur lífshættulegur reykur sem getur skaðað lungu við einn einasta andardrátt. Íbúðin getur orðið alelda á innan við 5 mínútum og tíminn skiptir því höfuðmáli. Að sögn Ómars Arnar Jónssonar, markaðsstjóra Öryggis- miðstöðvarinnar, er algengast að eldur í heimahúsum komi upp á milli kl. 2 og 6 að næturlagi og því lífs- nauðsynlegt að hafa reykskynjara til að vekja íbúa. „Reykskynjarar ættu að vera á öllum hæðum húsa og rétt staðsettir samkvæmt leiðbeiningum sem þeim fylgja,“ bendir hann á. „Einnig er mælt með að reykskynjarar séu í öllum herbergjum þar sem rafmagnstæki eru til staðar og eins í svefnherbergjum. Rétt staðsettir reykskynjarar, sem skynja eld snarlega eftir að hann kemur upp, veita íbúum lengstan tíma til flótta úr íbúð.“ Mælt með að hafa dyr lokaðar heima við að næturlagi og æfa viðbrögð við eldsvoða Ómar Örn mælir einnig með því að dyr séu hafðar lok- aðar að næturlagi en það getur lengt þann tíma sem tekur eld að magnast og þann tíma sem íbúar hafa til að bregð- ast við eftir að reykskynjari vekur þá. „Það væri mjög gagnlegt fyrir fjölskyldur að æfa við- brögð við eldsvoða og skilgreina flóttaleiðir úr íbúðum sín- um,“ segir hann. „Í svona æfingum þyrfti fólk að ákveða hvar skuli hittast utan við íbúð ef upp kemur eldur.“ Reykskynjarar endast almennt um 10 ár og þarf að skipta þeim út fyrir nýja að endingartíma loknum. Tryggja þarf að reykskynjarar virki með því að prófa þá reglulega, t.d. vikulega, með því að þrýsta á próf- unarhnapp. Skipta þarf um rafhlöðu í flestum tegundum reykskynjara árlega og gott að festa þá athöfn við ein- hverja aðra uppákomu. Eins þarf að þrífa reykskynjara t.d. með ryksugu, að lágmarki árlega þar sem ryk og óhreinindi sem safnast fyrir í þeim geta skert virkni þeirra verulega. Margir flaska á að þrífa reykskynjarana „Ég held að margir flaski á að þrífa reykskynjarana sína reglulega. Einnig grunar mig að fólk átti sig ekki fylli- lega á því að reykskynjarar hafa ekki ótakmarkaðan líf- tíma og margir séu með gamla reykskynjara. Á hinn bóg- inn held ég að fólk sé almennt nokkuð duglegt að skipta um rafhlöður.“ Ómar segir að tvær gerðir reykskynjarar séu á mark- aðnum, þ.e. svokallaðir optískir og jónískir. „Þessir fyrr- nefndu eru algengastir í dag og við mælum með þeim. Þeir skynja fyrr glóðarbruna sem eru algengari í íbúðum. Jón- ískir reykskynjarar bregðast fyrr við snöggum opnum eldi vegna olíu eða annars. Báðar tegundir bregðast þó við reyk, þótt á mismunandi forsendum sé.“ Bent er á að leita má frekari upplýsinga og ókeypis ráð- gjafar um eldvarnir heimila hjá Öryggismiðstöðinni og fleiri aðilum er sérhæfa sig í öryggismálum. Fólk hugi vel að eldvörnum Eldur í heimahúsum getur magnast alveg ótrúlega fljótt og framkallað kolsvartan og lífshættulegan reyk sem skaðar lungu í fólki við einn einasta andardrátt Morgunblaðið/Sverrir Öryggi Reykskynjari og slökkvibúnaður eru gagnleg tæki á heimilum sem og vinnustöðum. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÞAÐ er samfélagsleg ábyrgð for- eldra að taka á lúsavandamálinu og treysta ekki á aðra. Ef foreldrar bregðast ekki við þegar tilkynning kemur frá skólahjúkrunarfræðingi, eru þeir að skemma fyrir samvisku- sömum foreldrum sem ef til vill hafa eytt einhverjum fjárhæðum í lúsalyf og tíma í erfiðar kembingar því þeirra börn smitast einfaldlega aft- ur,“ segir Ása Atladóttir, verkefn- isstjóri sóttvarnarsviðs hjá Land- læknisembættinu. Ása segir lúsavandamálið viðvar- andi í íslenskum skólum og að vand- inn sé alfarið á höndum foreldranna, „það er sífellt verið að reyna að fá foreldra til að taka á þessu, því þetta er vandamál heimilanna og verður ekki leyst neins staðar ann- ars staðar,“ segir Ása. Hún segir kembingarnar elsta og besta vopnið, en nú sé einnig komið á markaðinn nýtt lyf sem heitir He- drin og hafi gefið góða raun í ná- grannalöndunum. Ása segir mikil- vægt að góðir kambar séu á boðstólum og að ekki væri úr vegi að staðlar væru settir um þá, til að sem bestur árangur fengist með kembingunum. Erfitt að eltast við lúsina Bergljót Þorsteinsdóttir, skóla- hjúkrunarfræðingur í Grafarvogi, segir miklar annir fylgja lúsagang- inum. „Það er mikilvægt að fylgjast vel með því hvaða börn koma kembd og hver ekki. Við verðum að hringja og leiðbeina sumum foreldr- anna ofan í kjölinn, sumir þeirra eiga hreinlega erfitt með að lesa og fylgja leiðbeiningum,“ segir Berg- ljót. Hún segist vera með tvo skóla í Grafarvoginum á sínum snærum og geta sinnt hvorum þeirra í tvo daga í viku og því geti verið erfitt að fylgja lúsinni eftir, „en það hefur þó tekist með góðri samvinnu foreldra og starfsfólks í mínum skólum,“ segir Bergljót. Hún segir að almennt séu skóla- hjúkrunarfræðingar undir miklu álagi og komist ekki yfir að sinna þeim verkefnum sem af þeim sé krafist. Löngum skóladögum barnanna fylgi kvíði, streita og erf- iðleikar í samskiptum, sem þarfnist mun meiri athygli innan skólakerf- isins en nú sé. Lúsin á ábyrgð foreldranna Óvelkomin Lúsin er hvimleið. ÚTKÖLLUM á þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar fjölgaði verulega milli áranna 2006 og 2007. Árið 2007 voru útköll á loft- för Landhelgisgæslunnar samtals 182 en voru 142 árið 2006. Þetta er um 28% heildaraukning á milli ára, sem er töluvert meiri aukning en árin á undan. Frá árinu 2004 og fram til síðasta árs fjölgaði útköll- um flugdeildar jafnt, um 11% á ári. Af þessum 182 útköllum voru 76 útköll á láglendi, 54 útköll í óbyggðir og 52 útköll á sjó, þar af sex lengra út en 150 sjómílur. 121 einstaklingur var fluttur í þessum 82 útköllum í fyrra. Flutningur fólks er ekki nauðsynlegur í öllum útköllum þar sem oft er um að ræða leitarflug eða annars konar aðstoð. Aukningin er nokkuð jöfn í útköllum í leit og björgun annars vegar og sjúkraflutningi hins veg- ar. Mikil fjölgun útkalla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.