Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 36
■ Í kvöld kl. 19.30 Ungir einleikarar Sigurvegarar í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og Sinfóníu- hljómsveitarinnar þreyta frumraun sína með hljómsveitinni. Flutt verða verk eftir Prókofíev, Debussy, Sibelius og Wieniawski. Einleikararnir eru Arngunnur Árnadóttir, klarinettuleikari, Theresa Bokany, fiðluleikari, Hákon Bjarnason, píanóleikari og J. Páll Palomares, fiðluleikar. Stjórnandi er Kurt Wahlander. ■ Fim. 17. janúar kl. 19.30 Söngvar ástar og trega Rannveig Fríða Bragadóttir syngur hina óviðjafnanlegu Rückert-söngva Mahlers. ■ Fim. 24. janúar Tónleikar á Ísafirði í tilefni af 60 ára afmæli tónlistarskólans. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Ég held að við séum flest margar persónur í einni … 39 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG var heiðursgestur á tónleikum Sálarinnar og Stuðmanna í fyrra, og þetta er í rauninni framhald af því,“ segir Björgvin Halldórsson sem ætl- ar að halda tónleika í Cirkusbygn- ingen í Kaupmannahöfn á sum- ardaginn fyrsta, 24. apríl. „Þarna eru allar helstu sýningarnar í Kö- ben, og þarna eru meira að segja stí- ur fyrir fíla og gíraffa sem henta mjög vel fyrir okkur. Þannig að í lok- in á sýningunni get ég sent inn fílana og tígrisdýrin,“ segir Björgvin og hlær. „En tónleikarnir verða helvíti flottir, þetta verður svona sérhönn- uð útgáfa af tónleikunum mínum með Sinfóníunni. Þarna verður hell- ingur af gestum, meðal annars Svala dóttir mín, Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson. Svo verður sama ryþmasveit og var með mér á jóla- tónleikunum, auk 20 manna strengjasveitar úr Konunglegu óp- erunni í Köben. Við megum ekki flytja allt inn, við verðum að vinna eitthvað með Dönunum líka.“ Hljómsveitarstjóri á tónleikunum verður Þórir Baldursson, en boðið verður upp á þriggja rétta matseðil, og dansleik á eftir. Miðasala er hafin og segir Björgvin að allt stefni í að uppselt verði á tónleikana. „Það er stór hópur Íslendinga að koma frá Íslandi, en líka frá Noregi og Sví- þjóð, og auðvitað frá Danmörku. Svo ætla einhverjir Danir að koma, og meira að segja Íslendingar frá Spáni.“ Allar nánari upplýsingar má finna á www.koben.is. Bó dregur að í Köben Morgunblaðið/Eggert Dúett Sigga Beinteins er á meðal þeirra sem koma fram með Bjögga.  Sú ráðlegging fylgdi frétt um yf- irvofandi heim- sókn kvennaflag- arans Tommy Lee, að feður landsins ættu að halda dætrum sínum innanhúss á meðan á heimsókn hans stæði. Nú þykir þeim sem þetta ritar líklegt að kvenpeningur landsins blindist ekki af stjörnubjarmanum, því tæp- ast telst Lee til vænlegs karlsefnis ef marka má íslenska rokkstjörnu, sem kynntist trommaranum ágæt- lega. Hið sama verður þó ekki sagt um hinn hug- prúða mexíkóska leikara Gael García Bernal sem væntanlegur er til landsins í dag til að taka þátt í æfingum fyrir leikritið Tillsammans sem Vesturport sýnir í samstarfi við LR í febrúar. Nú þegar er hin ægifagra spænska leikkona, Elena Anya mætt til æfinga með leikhópnum en hana má m.a. sjá í ævintýramynd- inni Van Helsing þar sem hún leik- ur eina af blóðþyrstum hjákonum Drakúla greifa. Í gær var á þessum stað í blaðinu sagt frá for- dæmalausri út- rás Vesturports. Svo mörg verk eru á dagskrá hópsins að ekki er furða þó ým- islegt skolist til. Þannig var ranglega sagt frá því að Woizeck yrði sýnt í London í næstu viku þegar það er í raun sýningar á Hamskiptunum sem hefjast í The Lyric Hammersmith-leikhúsinu í vesturhluta London. Í sömu borg verður söngleikurinn Ást einnig sýndur með enskum leikurum í maí en þar fyrir utan fyrirhugar Vest- urport leikferðir til Írlands, Mexíkó og Tasmaníu svo eitthvað sé nefnt. Gael García Bernal til landsins í dag Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is NEMENDUR Menntaskólans við Sund ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í leik- ritavali þetta skólaárið. Um miðjan febrúar frumsýnir Thalía, leikfélag skólans, leikritið Stjörnustríð í leikstjórn Halldórs Gylfasonar og Orra Hugins Ágústssonar. „Ég leikstýrði nemum í Menntaskólanum við Sund í fyrra ásamt Sigurjóni Kjartanssyni. Þá var sett upp verkið Rómeó og Júlíus sem nem- endur sömdu sjálfir frá grunni. Á einni æfing- unni kom einhver með þá hugmynd að setja upp Star Wars en það var bara hlegið að því. Svo báðu þau mig aftur að leikstýra í vetur og þá kom þessi Star Wars-hugmynd upp aftur og allir sögðu bara auðvitað,“ segir Halldór Gylfason spurður út í hvaðan hugmyndin að því að setja upp leikverk byggt á Star Wars kvikmynd kom. Handritið að verkinu var unnið af hópi nem- enda með aðstoð Halldórs. „Við einbeittum okkur að elstu Star Wars- myndinni, þeirri sem var gerð árið 1977. Við tök- um atriði og söguþráð úr henni en einblínum meira á mannlega þáttinn en er í sjálfri mynd- inni. Við sýnum jafnvel tilfinningahlið á Svart- höfða. Bardagar og geimurinn eru aukaatriði, verkið gerist samt auðvitað í geimnum og bar- dagasenur koma fyrir. Star Wars er í raun og veru svolítið eins og grískur harmleikur og við erum að sjá söguna í því,“ segir Halldór og tekur fram að þau séu samt að fíflast svolítið með þetta. „Stefnan er að gera verkið skrítið og skemmtilegt. Við vildum ekki setja upp hefð- bundinn strákur hittir stelpu menntaskólasöng- leik heldur frekar einbeita okkur að baráttu hins góða og illa.“ Uppsetningin verður þó í áttina að söngleik því inn í allt saman fléttast svo lög og dansar. „Þetta eru lög héðan og þaðan, frá ýmsum ára- tugum sem við búum til nýjan texta við sem passa inn í söguna í leikverkinu. Tónlistin verður svo- lítið stafræn og geimleg.“ Ekki mikill aðdáandi Um þrjátíu nemendur MS taka þátt í uppfærsl- unni og segist Halldór hafa mjög gaman af því að leikstýra þeim. „Þetta eru skemmtilegir krakkar sem eru til í allt. Þau vinna líka uppsetninguna sjálf, ég og Orri erum einu atvinnumennirnir sem koma að þessu.“ Aðspurður segist Halldór ekki vera mikill Star Wars-aðdáandi. „Ég verð að játa það að áður en ég tók þetta að mér hef ég forðast svona myndir utan úr geimi, mér finnst þær svo mikil vitleysa. Ég sá reyndar fyrstu Star Wars-myndina í bíó á sínum tíma, ekki orðinn tíu ára, og smitaðist smá af Star Wars-æðinu sem gekk þá en ég óx upp úr því.“ Söngleikurinn Stjörnustríð Tilfinningahlið Svarthöfða dregin fram í uppsetningu Menntaskólans við Sund Morgunblaðið/Árni Sæberg Stjörnustríðshópurinn Orri og Halldór leikstýra nemendum Menntaskólans við Sund í skólaleikritinu í ár sem er byggt á Star Wars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.