Morgunblaðið - 10.01.2008, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Það var kominn tími á að ryðja brautina fyrir 1 stk. pýramída til handa útrásinni.
VEÐUR
Húsafriðunarnefnd ríkisins hefurbeint þeim óskum til mennta-
málaráðherra að húsin við Laugaveg
4-6 verði friðuð.
Að sögn Niku-lásar Úlfars
Mássonar, for-
manns nefnd-
arinnar, vó einna
þyngst að ný-
byggingin sem á
að rísa rýrir mjög
varðveislugildi
hins friðaða húss
á Laugavegi 2.
Hann gagnrýnir
borgaryfirvöld fyrir seinagang; ekki
hafi verið hægt að taka afstöðu til
niðurrifs fyrr en ljóst væri hvaða
byggingar kæmu í staðinn. Borg-
arstjóri segir að nefndin hafi verið
að fullu upplýst.
Víst er málið klúður. Undirbún-ingur hefur staðið yfir árum
saman, teikningum margsinnis verið
breytt til að mæta óskum opinberra
aðila og framkvæmdirnar eru á gild-
andi deiliskipulagi. Auðvitað er
gagnrýnivert að menn vakni ekki af
værum blundi fyrr en kúbeinin eru
komin á loft og það á að rífa húsin.
Borgarstjóri segir niðurstöðu núóvænta og Svandís Svav-
arsdóttir segir greinilegt að það hafi
orðið „breyting á pólitískri og al-
mennri umræðu um þessi hús og
fleiri hús“. Kannski er Húsafrið-
unarnefnd að grípa inn í af því að
meirihlutinn tók ekki af skarið og
setja má spurningarmerki við hvort
það sé hlutverk nefndarinnar.
Ólafur F. Magnússon getur ekkileynt því hve feginn hann er nið-
urstöðunni „enda ráðherra mjög
skynsöm kona“. En meirihlutinn er
ekki laus allra mála ef marka má orð
menntamálaráðherrans skynsama í
fréttum Sjónvarps í gær: „Ég tel afar
mikilvægt í þessu máli að það sé al-
veg ljóst t.d. hver hugur borgarinnar
í þessu máli er, áður en að þetta mál
og ef það kemur inn á borð til mín.“
STAKSTEINAR
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Af friðun, húsum og yfirvöldum
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"
#
"$#"#$
%"
"$#"#$
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
!
&
& !
*$BC
!
"
# $
%
*!
$$B *!
'() "(" % *
<2
<! <2
<! <2
' )"#$+#,-. $ #/"
2
D
B
"2
&
"
'
"
/
&
#%
!
"
(
%
)
*
+
"
% <7
)
,
"
'(
" 01$$ 22
"#$ 3% +#,
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Guðmundur Auðunsson | 9. janúar
Síðasta tækifærið?
Ég er á þeirri skoðun að
þessi tilraun til að ná
samningum um tveggja
ríkja lausn í Ísrael/
Palestínu sé síðasta
tækifærið til að ná slíku
fram, allavega í langan
tíma. Ef ekki næst samkomulag (sem
hlýtur að verða byggt á Taba nið-
urstöðunum, sem gróflega gerir ráð
fyrir að Ísrael skili öllum herteknu
svæðunum og palestínskt ríki væri
„viable“) þá er hætta á að palest-
ínsku svæðin hrynji saman og einu
„sigurvegarar“ slíkrar niðurstöðu yrðu
íslömsk og ísraelsk öfgaöfl. ...
Meira: thjalfi.blog.is
Jens Guð | 9. janúar
Minnisleysi
... Einu sinni sem oftar
leigði ég mér bíl og átti
erindi í Kringluna rétt
fyrir lokun. Eftir að hafa
útréttað í Kringlunni fór
ég út á bílastæði að
leita að bílnum. Ég var
alveg búinn að gleyma hvar bílnum
var lagt, eins og oft hendir. Ég vissi þó
fyrir víst að ég hafði lagt bílnum á 1.
hæð og ekki í bílaskýlunum til hliðar
við aðalstæðin. Hvernig sem ég labb-
aði fram og til baka meðfram öllum
bílaröðum þá fann ég ekki bílinn. Það
var ekki um annað að gera en bíða
eftir að bílum fækkaði ...
Meira: jensgud.blog.is
Vodafone | 9. janúar
Það sem
sannara reynist ...
Margt áhugavert kemur
fram í bloggheimum,
enda hefur margt flug-
gáfað og skemmtilegt
fólk komið sér og skoð-
unum sínum vel fyrir á vefnum. Blogg-
ið er þó ekki laust við staðreyndavillur
og við viljum gera okkar besta til að
leiðrétta það sem missagt er um
Vodafone, vöruframboð okkar og
þjónustu.
Frásögn Kára Harðarsonar frá því í
gær er fróðleg (http://kari-hardar-
son.blog.is/blog/kari-hardarson/
entry/409048/) en ástæða er til að
leiðrétta einn reginmisskilning sem
þar kemur fram.
Það er rangt sem fram kemur í
færslunni og haft er eftir starfsmanni
Símans, að ADSL nettenging frá Sím-
anum sé forsenda þess að fólk geti
nýtt sér sjónvarpsþjónustu fyrirtæk-
isins. Viðskiptavinir Vodafone, þeirra
á meðal Kári sjálfur, geta notað þá
þjónustu án annarra viðskipta við
Símann eins og ótal margir hafa kosið
að gera. Nánari upplýsingar eru veitt-
ar í þjónustuveri Vodafone, í síma
1414.
Meira: vodafone.blog.is
Magnús Þór Hafsteinsson | 9. janúar
Uppgjöf ESB-sinna
í Noregi
Í síðasta mánuði skrif-
aði ég færslu hér undir
fyrirsögninni „Hörð ESB
andstaða í Noregi“. Þar
vakti ég athygli á því að
skoðanakannanir í Nor-
egi benda til þess að
andstaða meðal borgara þar við að
Noregur gangi í Evrópusambandið
mælist nú í algerum meirihluta og hef-
ur sjaldan eða aldrei verið jafnsterk.
Norðmenn sjá einfaldlega að Evr-
ópusambandið gerir sig ekki og ekki
hefur það batnað með stækkun sam-
bandsins austur á bóginn. Stöðugt
fleiri telja að hag þjóðarinnar sé betur
borgið með því að verja fullveldið og
sjálfsákvörðunarréttinn, en afhenda
alls ekki valdið umfram það sem orð-
ið er í hendurnar á ótilgreindum
skuggaaðilum í Brussel eða annars
staðar í skúmaskotum Evrópusam-
bandsins. Í athugasemdum ...
Meira: magnusthor.blog.is
BLOG.IS
FRÉTTIR
STJÓRN HRFÍ hefur falið Lög-
fræðistofu Reykjavíkur ehf., Ólafi
Garðarssyni, hæstaréttarlögmanni,
að sjá til þess að einkaleyfisskráning
Hundaræktunarfélagsins Íshunda á
skammstöfuninni HRFÍ verði aft-
urkölluð eða felld niður. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að það sé
mat stjórnarinnar að Einkaleyfa-
stofan hafi gert mistök með því að
skrá HRFÍ sem einkaleyfi hjá Ís-
hundum, en það hefur verið í notkun
sem skammstöfun á nafni Hunda-
ræktarfélags Íslands, frá stofnun
þess 4. september 1969.
„Í lögum um vörumerki nr. 45, frá
22. maí 1997 er m.a. tekið á vöru-
merkjarétti, skilyrði skráningar og
hvenær megi ekki skrá vörumerki.
Hundaræktarfélag Íslands á lénið
hrfi.is og hrfí.is. Félagið hefur
merkt fatnað sinn með þessari
skammstöfun,“ segir í tilkynningu
og þar er bætt við að skammstöf-
unin hafi einnig verið notuð ímerkj-
um á vegum félagsins og auk þess
hafi það haldið bæði opinberar ís-
lenskar og alþjóðlegar sýningar
undir merkjum HRFÍ.
„Hundaræktarfélag Íslands hefur
á tæplega 39 ára ferli sínum barist
fyrir úrbótum á flestu því er varðar
hundahald, ræktun hunda og vel-
ferð. Mikið hefur áunnist á ferlinum
sem vissulega hófst allnokkru áður
en félagið var stofnað. Svo er fyrir
að þakka þrotlausri baráttu og
þrautseigju ótalinna félagsmanna að
HRFÍ nýtur orðið trausts og virð-
ingar bæði hér á Íslandi og erlendis.
Það er öllum ljóst sem eitthvað
þekkja til hundahalds og hunda-
ræktunar á Íslandi að HRFÍ stend-
ur fyrir HUNDARÆKTARFÉLAG
ÍSLANDS. Þeir aðilar sem að
Hundaræktunarfélaginu Íshundum
standa vita fyrir hvað HRFÍ stendur
og því ef til vill eðlilegt að þeir vilji
baða sig í þeim ljóma sem fylgir því
að tilheyra HRFÍ. Það verður þó að
gerast með öðrum hætti en þessum,“
segir í tilkynningu.
Vísar til Íshunda
Á heimasíðu Íshunda segir að í all-
nokkurn tíma hafi félagið átt og haft
einkaleyfi fyrir félagsmerkinu
H.R.F.Í
„Félagamerkið er skráð hjá
Einkaleyfastofunni. Með skráningu
á félagamerki geta félög eða samtök
öðlast einkarétt fyrir félagsmenn
sína til að nota í atvinnustarfsemi
sameiginlegt auðkenni fyrir vörur
eða þjónustu. Hver sá sem notar það
eða auglýsir sig undir merkjum þess
er að vísa til Hundaræktunarfélags-
ins Íshundar,“ segir þar.
Fá sér lögmann
gegn Íshundum
Dögg Pálsdóttir | 9. janúar
Vonandi komin
á sigurbraut
Ég hef ekki leynt því að
ég myndi eindregið
styðja Hillary Clinton,
væri ég kjósandi í
Bandaríkjunum. Ég
vona innilega að hún
haldi áfram á þessari
sigurbraut og nái útnefningu fyrir
demókrata. Sigurinn er athyglisverður
ekki síst í ljósi skoðanakannana sem
bentu til allt annars. Það verður
spennandi að fylgjast með framhald-
inu.
Meira: doggpals.blog.is