Morgunblaðið - 10.01.2008, Síða 13
Nýju Delhí. AFP. | Indverska stórfyr-
irtækið Tata Group hyggst kynna
ódýrasta bíl heims á bílasýningu á
Indlandi í dag og bílasérfræðingar
segja hann geta valdið straum-
hvörfum í framleiðslu og verðlagn-
ingu á smábílum.
Auðkýfingurinn Ratan Tata, for-
stjóri fyrirtækisins, tók þátt í hönn-
un bílsins sem hann nefnir „bíl al-
þýðunnar“ og á að kosta sem svarar
tæpum 160.000 króna. Hann segir
að markmið sitt sé að fá indverskar
fjölskyldur til að hætta að nota bif-
hjól. „Ég vil leggja mitt af mörkum
til að gera líf þeirra öruggara.“
Búist er við sala á smábílum nær
tvöfaldist á Indlandi á næstu þrem-
ur árum vegna aukinnar velmeg-
unar. Um 1,5 milljónir bifreiða eru
framleiddar á Indlandi á ári og jafn-
gildir það um 5% landsframleiðsl-
unnar.
Stjórn Indlands áætlar að salan á
bílum fjórfaldist fyrir árið 2017.
Indverski bílasérfræðingurinn
Murad Ali Baig, spáir því að nýi
bíllinn valdi straumhvörfum í verð-
lagningu á smábílum og önnur fyr-
irtæki fari að dæmi Tata Group.
„Margir Indverjar vilja bíl sem flyt-
ur þá frá heimilinu á markaðinn,
ekki nein flottheit, eða mjög lítinn
aukabíl.“
Indverski bifhjólaframleiðandinn
Bajaj og franska fyrirtækið Renault
vinna nú að því að framleiða bíl, sem
gert er ráð fyrir að kosti sem svarar
190.000 krónum, fyrir indverska
markaðinn. Gert er ráð fyrir að bíll-
inn komist um 34 kílómetra á hverj-
um bensínlítra en bíll Tata um 25
kílómetra. Bíll Tata verður nær
helmingi ódýrari en ódýrasti bíllinn,
sem er á markaðnum, og veldur
ekki meiri mengun en bifhjól.
Ódýrasti bíll heims gæti
valdið straumhvörfum
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 13
ERLENT
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti kom í opinbera heimsókn til Ísr-
aels í gær og kvaðst vera vongóður
um að friðarsamkomulag næðist milli
Ísraela og Palestínumanna áður en
hann lætur af embætti í byrjun næsta
árs.
„Ég kem sem bjartsýnn og raun-
sær maður – raunsær að því leyti að
ég skil að það er lífsnauðsynlegt fyrir
heimsbyggðina að berjast gegn
hryðjuverkamönnum, takast á við þá
sem myrða saklaust fólk til að ná fram
pólitískum markmiðum sínum,“ sagði
Bush. „Ég kem með miklar vonir.“
Forsetinn ræddi fyrst við Shimon
Peres, forseta Ísraels, og Ehud Ol-
mert forsætisráðherra sem lýsti Bush
sem „öflugasta og traustasta banda-
manni Ísraela“. „Með stuðningi þín-
um við ísraelsku þjóðina hefur þú öðl-
ast ást og aðdáun allra Ísraela og við
álítum það heiður að fá þig í heim-
sókn,“ sagði Olmert. Bush virtist
snortinn af hlýlegum móttökum Ísr-
aela, enda ekki vanur að mæta svo al-
mennum stuðningi á ferðum sínum.
Bush sagði á blaðamannafundi með
Olmert að Palestínumenn yrðu að
sameinast um að hætta ofbeldisað-
gerðum gegn Ísrael, ella kæmist ekki
á friður. Er hann stóð við hlið Olmerts
var Bush spurður um ólöglegar land-
tökubyggðir sem harðlínumenn með-
al gyðinga hafa stofnað á Vesturbakk-
anum og ítrekaði forsetinn að þær
væru hindranir á vegi friðar, þær yrði
að fjarlægja.
Efast um að árangur náist
Um 5.000 stuðningsmenn íslömsku
hreyfingarinnar Hamas á Gaza-svæð-
inu mótmæltu Ísraelsferð Bush með
því að kveikja í brúðumyndum af hon-
um. Stuðningsmenn Mahmouds Ab-
bas, forseta Palestínumanna, fögnuðu
hins vegar heimsókn Bush sem mik-
ilvægu tækifæri til að greiða fyrir
samkomulagi um frið og stofnun sjálf-
stæðs Palestínuríkis. Bush hyggst
ræða við Abbas á Vesturbakkanum í
dag. Margir arabar eru þó efins um að
friðarumleitanir Bush beri árangur.
Meginmarkmiðið með ferð forsetans
er að sannfæra leiðtoga arabaríkj-
anna um að honum sé full alvara með
tilraunum sínum til að knýja fram
friðarsamkomulag áður en hann læt-
ur af embætti í janúar 2009.
Bush fer einnig til Kúveit, Barein,
Sameinuðu arabísku furstadæmanna,
Sádi-Arabíu og Egyptalands. Þetta er
fyrsta heimsókn Bush til Ísraels síðan
hann varð forseti fyrir sjö árum og
fyrsta heimsókn sitjandi Bandaríkja-
forseta frá því að Bill Clinton fór til
Ísraels árið 1998. Sama ár fór Bush í
fyrstu heimsókn sína til Ísraels, en
hann var þá ríkisstjóri Texas.
Reuters
Hlýjar móttökur George W. Bush með skólabörnum í bústað forseta Ísraels í Jerúsalem í gær.
Vongóður um friðar-
samkomulag innan árs
Bush heimsækir Ísrael í fyrsta skipti síðan hann varð forseti
BRESK stjórnvöld hafa skorað á
lækna að hætta nú þegar að gefa
fólki, sem er aðeins með kvef eða
einhver eymsl í hálsi, fúkkalyf. Er
ofnotkun slíkra lyfja sögð ein helsta
ástæðan fyrir aukinni útbreiðslu
fjölónæmra baktería.
Alan Johnson, heilbrigð-
isráðherra Bretlands, segir, að
kominn sé tími til að binda enda á
óþarfa notkun á penisillíni og öðr-
um slíkum lyfjum en útgjöld breska
ríkisins vegna þeirra eru rúmlega
40 milljarðar ísl. kr.á ári.
Johnson bendir á, að það sé veira,
sem valdi kvefi, hósta og inflúensu
og því hafi fúkkalyf engin áhrif á
þessa kvilla. Samt sé algengt, að
fólk troði í sig fúkkalyfjum og það
sé ein meginástæðan fyrir upp-
komu fjölónæmra baktería á borð
við MRSA-sjúkrahúsabakteríuna.
Segir hann, að verði ekki tekið í
taumana nú sé hætt við, að læknar
muni brátt standa ráðþrota frammi
fyrir algengum sjúkdómum.
Bresk stjórnvöld mæla gegn
fúkkalyfjagjöf við kvefi
REGNHLÍFARSAMTÖK uppreisnarhópa úr röðum
súnníta í Írak vöruðu í gær Norðmenn við því að reka úr
landi umdeildan íslamista, Mullah Krekar, sem stofnaði
á sínum tíma ofstækishópinn Ansar al-Islam. Krekar er
Kúrdi frá Írak og hefur verið flóttamaður í Noregi frá
1991. Samtök hans eru á lista Bandaríkjamanna yfir
hryðjuverkasamtök.
Krekar segist hafa sagt af sér formennsku í samtök-
unum árið 2002. Hann hefur lýst yfir stuðningi við „heil-
agt stríð“, jihad, í Írak og líkt Bandaríkjamönnum við
hernámslið Þjóðverja í Evrópulöndum í seinni heims-
styrjöld. Hæstiréttur Noregs staðfesti í nóvember dóm um brottvísun. Í
staðfestingu súnnítasamtakanna í Írak er Norðmönnum tjáð að efnt verði
til herferðar gegn norskum vörum ef Krekar verði rekinn úr landi. „Ef
ekki verður stigið varlega til jarðar í þessu máli mun það verða mjög sárs-
aukafullt fyrir norsku stjórnina og hún mun iðrast gerða sinna,“ segir í yf-
irlýsingunni.
Súnnítar vara Norðmenn við
að reka Krekar úr landi
Mullah Krekar
FJÓRTÁN vísindamenn í Banda-
ríkjunum, Ástralíu, Kanada,
Frakklandi og Svíþjóð hafa reikn-
að út, að til að halda líkamsþung-
anum réttum megin við strikið
þurfi karlmenn á aldrinum 18 ára
til fimmtugs að ganga 12.000
skref á dag en 11.000 eftir það.
Fyrir konur eru skrefin 12.000
fyrir 18 til 40 ára, 11.000 40 til
50, 10.000 50 til 60 og 8.000 eftir
það.
Fæstir þeirra, sem þó ganga
reglulega, ná því að uppfylla
skrefafjöldann en hér getur
skrefamælirinn komið að góðu
gagni. Hann er oftast festur í belti
og stilltur þannig, að hann mælir
skref í hvert sinn, sem mjaðm-
irnar hreyfast upp eða niður.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjallganga Þetta fólk er á leið á
Esju en óvíst er um skrefafjöldann.
12.000 skref á
degi hverjum
SPÆNSKA lögreglan handtók um síðustu helgi tvo fé-
laga í basknesku aðskilnaðarsamtökunum ETA en þeir
eru sagðir hafa staðið fyrir mikilli sprengingu í bílakjall-
ara í flughöfninni í Madríd 30. des. 2006. Varð hún
tveimur innflytjendum frá Ekvador að bana.
Alfredo Perez Rubalcaba, innanríkisráðherra Spánar,
segir að hinir handteknu séu þeir Igor Portu og Martin
Sarasola og hafi sá síðarnefndi sagt lögreglunni allt af
létta um hryðjuverkið og önnur tilræði. Hafi hann veitt
lögreglunni ýmsar mikilvægar upplýsingar um starf-
semi ETA.
Við handtökuna fann lögreglan um 150 kíló af
sprengiefni og öðru til sprengjugerðar. Portu er á sjúkrahúsi vegna
meiðsla er hann hlaut er hann reyndi að komast hjá handtöku.
Tveir ETA-menn handteknir
Sprengiefni í fór-
um ETA-manna.
FORSETI Súdans, Omar al-Bashir,
hyggst neita að taka á móti evr-
ópskum hermönnum til friðargæslu
og leggur sérstaka áherslu á Norð-
urlöndin þar sem fjölmiðlar hafi
birt skopmyndir af Múhameð.
Á móti Evrópu
MWAI Kibaki, forseti Kenýa, sagði
í gær að stjórnarandstæðingar
gætu fengið sæti í nýrri ríkisstjórn
landsins en hann hefur þegar skip-
að í nokkur ráðherraembætti.
Býður sæti í stjórn
LOKATÖLUR úr forsetakjörinu í
Georgíu voru birtar í gær og hlaut
Mikhail Saakashvili 52,2% og þarf
því ekki að halda aðra umferð. Að-
alkeppinautur Saakashvilis, Levan
Gachechiladze, fékk 25,2%.
Sigur staðfestur
TALIÐ er að ný lög gegn kynferð-
islegu ofbeldi í Suður-Afríku séu
svo ströng að þau geri refsivert fyr-
ir ungling að kyssa annan á munn-
inn, jafnvel þótt báðir séu sam-
þykkir atlotunum.
Kossar bannaðir?
STUTT
FRANSKI bílasmiðurinn Guy Negre vonast til þess að indverska fyrirtækið
Tata hefji bráðlega framleiðslu á bíl sem knúinn er þrýstilofti.
Negre fann þessa tækni upp og hefur þróað hana síðustu fimmtán árin.
Hann vonast til þess að hátt bensínverð verði til þess að draumur hans um
fjöldaframleiðslu rætist og segir að Tata ætli að hefja undirbúning fram-
leiðslunnar á árinu. Hann segir að bíllinn valdi ekki neinni mengun og
hægt verði að aka honum um 200 km á allt að 110 km hraða á klst. án áfyll-
ingar. Hún tekur nokkrar mínútur og gert er ráð fyrir að eldsneytiskostn-
aðurinn nemi aðeins sem svarar tæpum 100 krónum á hverja 100 km.
Reuters
Bíll knúinn þrýstilofti