Morgunblaðið - 10.01.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 15
LANDIÐ
ars Rögnvaldssonar um söngv-
arann í kringum þekkt lög Stefáns,
sem á einhvern hátt vörðuðu leið
hans frá æskustöðvum í Skagafirði
til nokkurra ára söngnáms á Ítalíu.
Síðar var rakinn þrjátíu ára starfs-
ferill hans við Konunglega leik-
húsið í Kaupmannahöfn, en þar var
hann útnefndur konunglegur hirð-
söngvari, en sú nafnbót er mesti
heiður sem söngvara getur hlotnast
þar í landi. Stefán fluttist síðan
heim til Íslands árið 1966 og var
meðal annars söngkennari í
Reykjavík um nokkurra ára skeið.
Stefán andaðist árið 1994 og var
borinn til grafar á Sauðárkróki.
Með karlakórnum komu fram
einsöngvaranir Þorgeir J. Andr-
ésson, svo og bræðurnir frá Álfta-
Eftir Björn Björnsson
Skagafjörður | Árleg Þrett-
ándagleði Karlakórsins Heimis,
undir stjórn Stefáns R. Gíslasonar
og við undirleik Thomas R. Higger-
son var að þessu sinni helguð minn-
ingu stórsöngvarans Stefáns Ís-
landi, en í október á síðasta ári voru
eitt hundrað ár liðin frá fæðingu
hans. Löngu áður en tónleikarnir
áttu að hefjast var hvert sæti skip-
að í íþróttahúsinu í Varmahlíð og
voru gestir á sjöunda hundrað.
Í dagskránni var stiklað á stóru í
ferli Stefáns, sem hiklaust má telja
einn af mestu listamönnum þjóð-
arinnar. Það voru þeir Agnar H.
Gunnarsson og sr. Hannes Örn
Blandon, er fluttu samantekt Gunn-
gerði þeir Óskar, Pétur og Sigfús
Péturssynir en einnig lék Málm-
blásarakvintett Norðurlands með í
mörgum lögum. Sýningarstjórn
annaðist Guðbrandur Ægir Ás-
björnsson myndlistarmaður, en auk
þess komu að sýningunni Sigríður
Sigurðardóttir safnvörður og Unn-
ar Ingvarsson skjalavörður.
Í lok tónleikanna tók til máls Sig-
rún, dóttir Stefáns Íslandi, og þakk-
aði kórnum og flytjendum öllum
fyrir glæsilega tónleika og kynnti
gjöf afkomenda söngvarans, sem er
afsteypa brjóstmyndar af lista-
manninum og verður henni komið
fyrir í menningarhúsinu Miðgarði.
Verkið verður næst flutt 19. jan-
úar í Glerárkirkju á Akureyri en
síðan í Borgarfirði og Reykjavík.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Söngdagskrá Karlakórinn Heimir ásamt sögumönnum. Fyrir framan stendur brjóstmynd af Stefáni Íslandi.
Minning stórsöngvarans
heiðruð með söng og sögum
Eftir Sigurð Sigmundsson
Flúðir | Fimm heiðursfélagar í
Hestamannafélaginu Smára sem
starfar í Hreppum og á Skeiðum,
tóku fyrstu skóflustunguna að reið-
höll sem byggð verður á Lamba-
tanga á Flúðum, skammt frá verk-
smiðju Límtrés.
Fjölmargir möguleikar
Reiðhöllin verður 22 sinnum 50
metrar að grunnfleti. Gert er ráð
fyrir áhorfendabekkjum fyrir um
150 manns, hesthúsi fyrir 10-12
hross, félagsaðstöðu fyrir Smára-
félaga, snyrtingum ásamt geymslu.
Burðarvirkið verður úr Límtré sem
klætt verður svokölluðum yleining-
um.
Eignarhaldsfélag hefur verið
stofnað um húsið og eru eigendur
auk hestamannafélagsins, sveitar-
félögin á þessu svæði, búnaðar- og
hrossaræktarfélög Hrunamanna og
fleiri. Í ávarpi sem Guðni Árnason,
formaður félagsins, flutti við þetta
tækifæri sagðist hann finna fyrir
vakningu hjá félagsmönnum. Fólk
er spennt að sjá húsið rísa en það
mun lyfta hestamennsku og hrossa-
rækt á félagssvæðinu á annað stig.
Þá býður reiðhöllin upp á fjölmarga
möguleika sem fjölnota menningar-
hús.
Búið er að skipuleggja keppn-
isvöll ásamt beinni braut og æf-
ingavelli skammt frá væntanlegri
reiðhöll en þær framkvæmdir munu
bíða um sinn.
Vakning í hesta-
mennsku í uppsveitum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Framkvæmdir Heiðursfélagar Hestamannafélagsins Smára, Jóhanna B.
Ingólfsdóttir, Haraldur Sveinsson, Rosemarie Þorleifsdóttir, Þorsteinn
Vigfússon og Magnús Gunnlaugsson, hófu framkvæmdir við reiðhöllina.
Framkvæmdir hafnar við byggingu reiðhallar
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði á Höfðatorgi.
Vegna flutninganna eru afgreiðsla og skrifstofur lokaðar fimmtudag og föstudag.
Við opnum aftur mánudaginn 14. janúar í Borgartúni 10-12 og biðjum viðskipta-
vini að sýna biðlund.
Erindum verður svarað í þjónustusíma Reykjavíkurborgar: 411 1111.
Helstu verkefni Umhverfissviðs eru: Heilbrigðis- og mengunarvarnaeftirlit,
náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli
Reykjavíkur, Staðardagskrá 21 og umferðar- og samgöngumál.
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is og í síma 411 1111
Umhverfissvið
Hvolsvöllur | SS á Hvolsvelli var útnefnt fyrirtæki
ársins 2007 á Suðurlandi af héraðsfréttablaðinu
Dagskránni.
Í rökstuðningi fyrir valinu kemur fram að SS
hafi verið að gera góða hluti á Hvolsvelli og nú
einnig á Hellu eftir að það keypti kjúklingavinnslu
Reykjagarðs. Þá standa miklar framkvæmdir til á
nýbyrjuðu ári þar sem fyrirtækið hafi ákveðið að
flytja afgreiðsludeild sína úr Reykjavík á Hvols-
völl. Við það skapast tíu til fimmtán ný störf á
svæðinu.
SS er langstærsti atvinnurekandinn á Suðurlandi
með 150 starfsmenn á Hvolsvelli, 30 á Selfossi og
nú 80 starfsmenn á Hellu í tengslum við kaupin á
Reykjagarði. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, sagð-
ist líta á þetta sem viðurkenningu til eigenda fyr-
irtækisins, bændanna á félagssvæðinu, sem og
starfsfólks þess, þegar hann tók við viðurkenningu.
SS valið fyrirtæki ársins á Suðurlandi
Heiðrun Magnús Hlynur Hreiðarsson ritstjóri afhenti
Steinþóri Skúlasyni, forstjóra SS, og Guðmundi Svav-
arssyni framleiðslustjóra viðurkenningu.
Breiðafjörður | Óvanalega margir
fuglar eru nú á Breiðafirði, sérstak-
lega tegundir sem sækja í uppsjáv-
arfisk. Á svæðum við sunnanverðan
Breiðafjörð sáust til dæmis sjö sinn-
um fleiri svartbakar og þrisvar sinn-
um fleiri hvítmávar en áður hafa sést
í árlegum fuglatalningum Náttúru-
fræðistofnunar Íslands að vetri. Er
fjölgunin rakin til mikillar síldar-
gengdar í Breiðafirði í vetur.
Náttúrustofa Vesturlands í Stykk-
ishólmi tekur að venju þátt í fugla-
talningunni sem fram hefur farið vítt
og breitt um landið að undanförnu.
Talið var á þremur svæðum við
sunnanverðan Breiðafjörð. Sem
dæmi má nefna að nítján fuglateg-
undir sáust á talningarsvæði í Kol-
grafarfirði og Hraunsfirði, samtals
3.554 fuglar og eru það fleiri fuglar
en áður hafa sést við talningu þar.
Á vefsíðu Náttúrustofunnar kem-
ur fram að mikið hafi sést af fugla-
tegundum sem sækja í síld, svo sem
mávum, skörfum, toppöndum og
teistum. Einnig er vakin athygli á
því að æðarfugli hefur fjölgað jafnt
og þétt á talningarsvæðunum á síð-
ustu átta árum.
Fuglum fjölgar á Breiða-
firði með síldargengd