Morgunblaðið - 10.01.2008, Qupperneq 16
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
KNATTSPYRNUFÉLAG Akur-
eyrar varð 80 ára á þriðjudaginn, 8.
janúar, og því var fagnað með opnu
húsi í KA-heimilinu. „Þetta var frá-
bær stund, mjög margir mættu og
samkoman var vel heppnuð í alla
staði. Hápunkturinn var þegar til-
kynnt var um kjör íþróttamanns
ársins hjá KA,“ sagði Árni Jóhanns-
son, formaður félagsins, í samtali við
Morgunblaðið. Íþróttamaður KA
fyrir árið 2007 var Davíð Búi Hall-
dórsson blakmaður, eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær.
„Ég held að staða KA sé býsna
sterk í sögulegu samhengi. KA er
stórt og virt félag og við höfum náð
góðum árangri í gegnum tíðina þó
svo ekki sé sérstaklega bjart yfir
meistaraflokkunum nákvæmlega
núna. En ég hef mikla trú á því að
við eigum eftir að eflast mjög á
næstu árum – ég hef ekki trú á öðru
en framtíðin sé björt,“ sagði Árni.
Stofnuðu eigið félag
KA var stofnað 8. janúar 1928.
Fyrsti formaður þess var Tómas
Steingrímsson, síðar umsvifamikill
heildsali á Akureyri, og aðrir í
stjórn Jón Sigurgeirsson ritari, sem
síðar varð skólastjóri Iðnskólans á
Akureyri, og gjaldkeri var Helgi
Schiöth, lengi lögregluþjónn og síð-
ar bóndi. Allir voru þeir innan við
tvítugt þegar félagið var stofnað.
Í sögu KA, sem kom út á 60 ára
afmælinu 1988, segir höfundurinn
Jón Hjaltason sagnfræðingur svo
frá: „Undir báti eða í skjóli af timb-
urstafla kviknaði hugmyndin að
stofnun Knattspyrnufélags Akur-
eyrar. Ungir piltar úr strákafélag-
inu Fálkanum, sem hvorki átti sér
formlega stjórn né viðurkennda
fundargerðabók, stóðu nánast í upp-
reisn gegn sér eldri og reyndari. Til-
efnið var fastheldni Ungmenna-
félags Akureyrar, sem þá var
öflugasta íþróttafélagið í bænum, á
nauðsynleg tæki til íþróttaiðkana,
spjót, kringlu, en þó helst fótknött-
inn.“
Jón segir piltana hafa haft slíkt
yndi af iðkun knattspyrnu „að þeir
létu jafnvel ekki stórhríðar halda
aftur af sér ef á annað borð tókst að
útvega bolta. Flestir voru þeir einn-
ig félagar í Íþróttafélaginu Mjölni,
en vagga þess stóð í innbænum og á
suðurbrekkunni. Sumir voru í Ung-
mennafélaginu, mest til að eiga
hægara um vik að útvega fótbolta.
En þegar það gerðist sífellt erfiðara
að fá boltann lánaðan byrjaði
óánægja að grafa um sig meðal pilt-
anna og þar kom að þeir ákváðu að
stofna formlega sitt eigið félag.“
Vendipunkturinn 1989
Árni Jóhannsson, formaður KA,
hefur verið í félaginu frá barnsaldri
eins og ættin öll og hefur fylgst vel
með sínum mönnum í gegnum tíð-
ina.
Þegar spurt er hvað standi upp úr
í minningunni nefnir Árni fyrst þeg-
ar KA varð Íslandsmeistari í knatt-
spyrnu sumarið 1989.
„Ég held það hafi verið þá sem
KA komst fyrir alvöru á kortið. Áð-
ur hafði félagið eignast Íslands-
meistara í blaki og júdó en það eru
ekki eins stórar greinar. Frjáls-
íþróttir og skíði voru líka sterkar
greinar í KA á sínum tíma – en ég
held að meistaratitillinn í knatt-
spyrnu hafi verið ákveðinn vendi-
punktur fyrir félagið,“ segir Árni. „Í
framhaldi af því hófst svo uppgang-
urinn í handboltanum, sem var í
raun alveg ótrúlegur tími.“ Félagið
var mjög sigursælt í handboltanum í
nokkur ár og varð t.d. tvisvar Ís-
landsmeistari og þrívegis bikar-
meistari.
Árni, sem verið hefur formaður
síðan 2005, lítur björtum augum til
framtíðar. Fullkomin aðstaða til
keppni í knattspyrnu verður komin
á KA-svæðið innan fárra ára; gervi-
grasvöllur, áhorfendastúka og flóð-
ljós „og svo standa vonir til þess að
við fáum æfingasvæði í Nausta-
hverfinu“, segir formaðurinn.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Formenn Formenn KA sem voru í afmælishófinu. Frá vinstri: Árni Jóhannsson, núverandi formaður, Stefán Gunnlaugsson, Knútur Otterstedt, Guðmund-
ur Heiðreksson, Haraldur M. Sigurðsson, Magnús Björnsson, Haraldur Sigurðsson, Jón Arnþórsson, Sigmundur Þórisson og Hermann Sigtryggsson.
KA er stórt og virt félag
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Afreksmenn Björg Finnbogadóttir ásamt þremur af ólympíuförum KA á
skíðum. Frá vinstri: Ívar Sigmundsson, Árni Óðinsson og Tómas Leifsson,
en hann er sonarsonur fyrsta formannsins, Tómasar Steingrímssonar.
Í HNOTSKURN
»Afmælishátíð verður haldin íKA-heimilinu á laugardags-
kvöldið í tilefni 80 ára afmæl-
isins. Veislustjóri verður Frið-
finnur Hermannsson sem lengi
lék með knattspyrnuliði KA og
ræðumaður kvöldsins verður
Ragnar „Sót“ Gunnarsson, sem
þekktur er sem söngvari Skrið-
jöklanna. Hætt er við að þeir fé-
lagar kitli hláturtaugar við-
staddra.
»Ýmsir KA-menn verða heiðr-aðir fyrir störf sín, bæði af
forráðamönnum félagsins sjálfs
sem og ÍSÍ og sérsamböndunum.
»KA-bandið spilar fyrir hátíð-argesti og Óskar Pétursson
tekur lagið. Þá mun Páll Óskar
Hjálmtýsson spila fyrir dansi.
Það voru 12 piltar sem komu saman
til fundar á heimili hjónanna Mar-
grétar og Axels Schiöths bakara, að
Hafnarstræti 23
og stofnuðu
Knattspyrnu-
félag Akureyrar
8. janúar 1928. Í
bók Jóns Hjalta-
sonar, sagnfræð-
ings, um sögu fé-
lagsins sem kom
út á 60 ára af-
mælinu, eru
strákarnir allir
nafngreindir.
Auk þeirra þriggja sem mynduðu
stjórn félagsins, og nefndir eru í
greininni hér til hliðar, voru það Al-
freð Lilliendahl, Arngrímur Árna-
son, Eðvarð Sigurgeirsson, Einar
Björnsson, Georg Pálsson, Gunnar
H. Kristjánsson, Jónas G. Jónsson,
Karl L. Benediktsson og Kristján
Kristjánsson.
Vernharð Þorleifsson júdókappi hef-
ur oftast allra verið kjörinn íþrótta-
maður KA, sjö sinnum.
Erlingur Kristjánsson lék í mörg ár
bæði knattspyrnu og handknattleiks
með KA. Hann er sá eini sem verið
hefur fyrirliði Íslandsmeistaraliðs
félagsins í báðum greinum; hampaði
fótboltabikarnum 1989 og hand-
boltabikarnum 1997, þegar KA varð
fyrst Íslandsmeistari.
Helga Steinunn Guðmundsdóttir er
eina konan sem verið hefur formað-
ur KA. Hún gegndi embættinu frá
1998 til 2005. Alls hafa 22 verið for-
menn, þar af Tómas Steingrímsson
þrívegis. Hann var fyrsti formað-
urinn, 1928-1933, aftur 1935-1937 og
loks 1949-1950.
Fjölskylduskemmtun verður í KA-
heimilinu á morgun, föstudag, kl. 16-
19 í tilefni 80 ára afmælisins. Páll
Óskar Hjálmtýsson stjórnar sam-
komunni og er aðgangur ókeypis.
Um kvöldið verður Páll Óskar með
dansleik á sama stað fyrir 16 ára og
eldri frá kl. 23 og er aðgangseyrir
1.000 kr.
Til viðbótar afmælishaldinu nú í jan-
úar er stefnt að fjölskylduhátíð á
KA-svæðinu í júní í sumar.
Tólf stofn-
félagar KA
Tómas
Steingrímsson
16 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
AUSTURLAND
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri, sími 462 3505
ÚTSALA - ÚTSALA
Christa
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Egilsstaðir | Leikararnir Pálmi
Gestsson og Sólveig Guðmundsdóttir
sækja Austurland heim um helgina
og sýna leikverkið Svartur fugl, eftir
skoska leikskáldið David Harrower í
Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Harro-
wer hlaut Olivier-verðlaunin fyrir
leikrit sitt í fyrra.
„Þetta er glænýtt skoskt verk sem
var frumsýnt á Edinborgarhátíðinni
árið 2005 og er verið að sýna núna
um allan heim,“ segir Sólveig. „Það
hefur fengið gríðarmikla athygli,
ekki síst vegna þess um hvað það
fjallar og hvaða áhrif það hefur á
áhorfendur.“
Sólveig segir verkið vera um Unu
og Ray sem hafi átt í ástarsambandi
fyrir 15 árum og ekki sést síðan þá. Í
byrjun leikritsins leitar Una Ray
uppi og leikritið spinnst svo um sam-
skipti þeirra. „Sagan er mjög ögr-
andi og fjallar um forboðna ást á
mjög mannlegum nótum. Verkið er
rosalega vel skrifað, er um sekt og
sakleysi, rétt og rangt og krefur
mann um að svara stórum siðferði-
legum spurningum.“
Sólveig segir þau Pálma mjög
spennt að fara með sýninguna í leik-
ferðalag. Hugmyndin hafi komið
upp því Pálmi er frá Bolungarvík og
því hafi þeim dottið í hug að fara
með hana vestur og þá einnig austur
og á Suðurlandið.
Greinileg gróska í leikhúsunum
„Ég starfa með hóp sem heitir
Kvenfélagið Garpur. Ég keypti rétt-
inn að þessu verki fyrir tveimur ár-
um og fór svo með það í Hafn-
arfjarðarleikhúsið og fékk það til að
koma í samstarf við okkur í Kven-
félaginu Garpi.“ Garpur er kvenna-
hópur sem stofnaður var af Sólveigu
og nokkrum leikkonum öðrum.
Hann hefur m.a. sett upp Gunnlað-
arsögu og þrjár aðrar sýningar.
Sólveig segir bæði atvinnu- og
áhugamannaleikhúsin í landinu dug-
leg að setja upp ný og nýleg leikverk
eftir íslenska og erlenda höfunda.
„Það verður æ algengara og það er
bara mikið framboð af leikhúsi á Ís-
landi. Það er greinileg gróska og
mikið af allskonar ólíkum hlutum að
gerast. Góðar sýningar hvetja fólk til
að fara meira í leikhús sem er svo
mikil upplifun. Við þurfum líka að
ala upp leikhúsáhorfendur, fá unga
fólkið inn. Svartur fugl er mjög á
þann veginn, t.d. kom hópur af 15
ára krökkum á sýninguna hjá okkur
í haust og hreifst mjög og við lentum
í heilmiklum umræðum um verkið
við þá.“
Svartur fugl verður sýndur í Slát-
urhúsinu 12. og 13. janúar kl. 20
bæði kvöldin. Verkið tekur um eina
og hálfa klukkustund án hlés og er
ætlað 14 ára og eldri. Miðaverð er
2.900 kr. og eru miðar seldir á vefn-
um www.midi.is og við innganginn.
Pálmi og Sólveig fara í framhaldinu
með verkið til Ísafjarðar og Vest-
mannaeyja.
Svartur fugl í Sláturhúsinu
Morgunblaðið/Sverrir
Sársauki Pálmi Gestsson og Sólveig Guðmundsdóttir í hlutverkum Ray og
Unu í leikritinu Svörtum fugli eftir David Harrower. Verkið var fyrst sýnt
á Íslandi í Hafnarfjarðarleikhúsinu sl. haust og er nú sýnt á Egilsstöðum.
Sekt og sakleysi ástarinnar í kraftmiklu leikverki