Morgunblaðið - 10.01.2008, Page 17
Morgunblaðið/Golli
Rafeindavirkinn Marinó Kristinsson kennir fólki á gsm-símana sína og
segir námskeiðin einkar skemmtileg.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Það þykir náttúrlega hálfgerðskömm að kunna ekki ásímana sína. Menn þurfahinsvegar ekkert að vera
miður sín yfir því enda eru þessi tæki
að verða sífellt flóknari og gefa okkur
alls konar valmöguleika sem við átt-
um okkur ekkert endilega á að séu til
staðar þegar við festum kaup á þess-
um tólum,“ segir Marinó Kristinsson,
rafeindavirki og verkefnastjóri hjá
Símanum.
Marinó hefur nú í nokkur ár haldið
fimm stunda námskeið tvisvar á ári
sem skiptist á tvö kvöld hjá Mími – sí-
menntun í samvinnu við Símann und-
ir yfirskriftinni Lærðu betur á gsm-
símann þinn. Auk Marinós eru þau
Jóhanna H. Viðarsdóttir og María
Pétursdóttir leiðbeinendur á nám-
skeiðunum, en öll eru þau starfsmenn
Símans.
Þjóðarsálin er nýjungagjörn
„Afskaplega vel er mætt á þessi
námskeið sem eru að heita má þau
skemmtilegustu sem ég hef nokkru
sinni tekið að mér. Fólk upp úr
miðjum aldri og eldra kemur gjarnan
hikandi með símana sína á nám-
skeiðin til að fræðast um gagnsemi
þeirra og virkni. Það kannski kann
aðeins að svara og hringja úr sím-
unum sínum í byrjun, en vill líka fá að
fræðast um aðra valmöguleika til að
opna fyrir sér fleiri víddir og aukið
frelsi. Við förum í gegnum síma-
skrána, bætum og eyðum tengiliðum,
lærum á vekjarann og helstu still-
ingar auk þess sem við sendum
myndir úr myndavélasímum, svo
dæmi séu tekin.
Unga fólkið sést hinsvegar ekki á
svona námskeiðum enda er sú kyn-
slóð einkar dugleg við að pikka upp
og prófa óhikað að fikta við nýjungar,
sem þeir eldri eru mun hræddari við,
af ótta við að klúðra einhverju. Þó að
ákveðin prósenta fólks sé haldin
tækjafóbííu, viðurkenna þeir sömu
innst inni að nauðsynlegt sé að fylgja
nútímanum. Við þurfum bæði að
kunna á bíla og farsíma til þess að
„fitta inn“ í daglega lífið enda má með
sanni segja að nýjungagirni fylgi
þjóðarsálinni. Og almennt eru menn
nú komnir með nýjustu tækni þó að
þriðja kynslóð farsíma fari frekar
hægt af stað,“ segir Marinó.
Tónlist, myndir og upptaka
Enginn þarf að skammast sín fyrir
að fara á námskeið til að læra al-
mennilega á gsm-símana sína, að
sögn Marinós. „Fólk ætlar gjarnan í
fyrstu bara að nota símana sína sem
tæki til að hringja úr og svara í, en
uppgötvar svo þegar fram líða stund-
ir að símarnir búa yfir fjölmörgum
öðrum kostum. Flottustu símarnir
búa yfir geysimiklu minni, þar sem
hægt er að hrúga bæði tónlist og
myndum inn auk þess sem margir
símar búa yfir þeirri tækni að geta
myndað alvöru fréttaatburði, sem
sýndir eru á sjónvarpsstöðvum.
Kunningi minn var til að mynda að
fá sér gemsa um daginn með fimm
megapixla myndaupplausn, sem þótti
bara nokkuð flott atvinnumyndavél
ljósmyndara fyrir tveimur árum eða
svo,“ segir Marinó, sem sjálfur segist
vera kominn með þriðju kynslóðar
farsíma í vasann. „Auk þess að nota
nýja gemsann minn sem síma, get ég
nú horft á sjónvarpið í símanum mín-
um, náð í og hlustað á tónlist, náð í og
horft á myndir, lesið póstinn minn og
vafrað um Netið á jafnmiklum ef ekki
meiri hraða en ég fæ með ADSLteng-
ingunni minni heima.“
Smáskilaboðin koma sér vel
Marinó minnist þess að samstarfs-
maður á Símanum hafi fengið það
verkefni að þýða bæklinga þegar
gsm-tæknin var að ryðja sér til rúms.
„Þessi ágæti kunningi minn var
ekkert á því að vera að eyða kröftum í
að fjalla um sms-kaflann því hann
taldi þá harla ólíklegt að þessi smá-
skilaboð yrðu nokkurn tíma notuð af
almúganum. En svo kom á daginn að
staðreyndirnar urðu aðrar. Persónu-
lega finnst mér afskaplega þægilegt
að geta sent krökkunum mínum sms-
skilaboð án nokkurra málalenginga
og þá fá þau ráðrúm til að hugsa mál-
ið. Og þegar ég sem afi þarf að passa
barnabörnin mín, senda dæturnar
mér smáskilaboð tveimur dögum fyrr
því þær vita það mætavel að þó að ég
sé ekki í pössunarstuðinu þegar ég fæ
skilaboðin er ég örugglega dottinn í
svaka stuð þegar stundin kemur,“
segir Marinó og hlær.
„Það er ekkert skammarlegt við
að kunna ekki á gemsann sinn“
Nútíminn Flottustu gsm-símarnir,
sem nú eru á markaði, krefjast tals-
verðrar þekkingar svo eigendur
þeirra geti nýtt sér alla þá val-
möguleika, sem þeir bjóða upp á.
|fimmtudagur|10. 1. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Bónus
Gildir 10. jan.-13. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Óðals ferskar svínakótilettur ........ 898 1.169 898 kr. kg
Óðals ferskur úrb. svínahnakki .... 898 1.169 898 kr. kg
Óðals ferskt svínahakk ............... 498 598 498 kr. kg
Óðals fersk svínarifjasteik ........... 498 598 498 kr. kg
Óðals borgarar, 4 stk. m. brauði .. 298 449 75 kr. stk.
KB ferskt ísl. 100% ungn.hakk .... 798 1.197 798 kr. kg
Bónus lýsi, 500 ml .................... 298 359 298 kr. kg
NF sjófryst ýsuflök, roðlaus ......... 808 899 808 kr. kg
Goða pylsur, 10 stk.................... 335 464 33 kr. stk.
Froosh smoothie, 250 ml ........... 159 198 636 kr. ltr
Fjarðarkaup
Gildir 10. jan.-12. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Ali Party skinka, soðin ................ 1.422 1.896 1.422 kr. kg
FK hamborgarhryggur, pakkaður.. 998 1.298 998 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.......... 974 1.298 974 kr. kg
Matfugl kjúklingaleggir ............... 454 699 454 kr. kg
Matfugl kjúklingavængir ............. 191 319 191 kr. kg
4 x80 g hamborgarar m/brauði... 398 498 398 kr. pk.
Grape hvítt/rautt ....................... 109 149 109 kr. kg
Appelsínur ................................ 99 129 99 kr. kg
Gular melónur ........................... 99 169 99 kr. kg
Hagkaup
Gildir 10. jan.-13. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Holta kjúklingabringur, magnpk... 1.819 2.798 1.819 kr. kg
Holta læri m/legg kryddl. í álb. ... 493 759 493 kr. kg
Holta wok-réttur......................... 1.259 1.799 1.259 kr. kg
Óðals reyktar svínakótilettur........ 1.398 1.998 1.398 kr. kg
Kjötb. lambalæri ........................ 1.098 1.595 1.098 kr. kg
Kjötb. lambainnralæri ................ 2.198 3.281 2.198 kr. kg
Kjötb. svínalundir....................... 1.498 2.559 1.498 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 10. jan.-13. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Goði reykt folaldakjöt ................. 499 656 499 kr. kg
Goði beikonbúðingur.................. 499 694 499 kr. kg
Borgarnes helgarlamb m/kr. ....... 1.490 1.825 1.490 kr. kg
Íslandsfugl kjúkl.br., magnkaup .. 1.999 2.799 1.999 kr. kg
Ísfugl lúxus veisluvængir............. 299 498 299 kr. kg
Jacobs pítubrauð, fín og gróf....... 99 140 99 kr. pk.
Egils kristall sítrónu, 2 l .............. 119 167 59 kr. ltr
Melóna, gul............................... 89 179 89 kr. kg
Skinney ýsubitar, 1 kg. ............... 749 899 749 kr. kg
Coop kakómalt, 800 g ............... 99 359 99 kr. pk.
Þín verslun
Gildir 10. jan.-16. jan. verð nú verð
áður
mælie. verð
Ísfugl kjúkl.bringur úrb., án
skinns ......................................
1.769 2.527 1.769 kr. kg
Cheerios, 518 g ........................ 289 329 558 kr. kg
Sammy’s couscous, 4 teg., 250
g ..............................................
215 289 860 kr. kg
Úrvals múslí, 450 g.................... 179 225 398 kr. kg
Daloon Kínarúllur, 720 g ............ 439 565 610 kr. kg
Granini appelsínusafi, 750 ml .... 169 215 226 kr. ltr
Alpen Musli, 750 g .................... 419 509 559 kr. kg
Corny choco. banana, 6 x 25 g ... 209 269 35 kr. stk.
Jacob’s píta, gróf, 6 stk. ............. 119 159 498 kr. kg
Tilda Basmati, 500 g ................. 249 289 498 kr. kg
helgartilboðin
Veisluréttir og hversdagsmatur
Morgunblaðið/Golli
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100