Morgunblaðið - 10.01.2008, Page 18

Morgunblaðið - 10.01.2008, Page 18
ferðalög 18 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ gerðir væri að ræða hjá þeim, enda þekktist fólkið ekki neitt og sat hvort í sínum enda sal- arins. Aðferðir þeirra voru harla ólíkar. Karl- inn stóð upp og þrum- aði ergilegur yfir allan salinn í átt að sýning- arlúgunni og skipaði sýningarstjóra með þjósti að slökkva nú ljósin. Konan stóð hins- vegar hljóðlaust upp og gekk út úr salnum, á fund sýningarstjórans til að segja honum ró- lega hvað væri að. x x x Víkverji telur aðfriðsamleg aðferð konunnar hafi dugað betur því þegar hún kom aftur inn í salinn, deyfðust ljósin eins og hlýðin jólabörn og allir gátu farið að haldast í hendur. Já, konur leysa vandamál öðruvísi en karlar. En mikilvægum spurningum er samt ósvarað: var sýning- arstjórinn kannski kona? Heyrði hún vel reiðiöskrin í karlinum en ákvað að láta ekki bjóða sér svona vit- leysu? Leystist málið fyrst þegar friðsama konan gekk á hennar fund og ræddi málið af virðingu og réttlæti? Víkverji þekkir hvorki sýningarstjórann né umrædda konu. En pirraði karlinn – var víst Víkverji sjálfur. Það er nú bara ekki boðlegt að láta svona, sérstaklega vegna þess að Víkverji var við- staddur tendrun friðarsúlu Yoko Ono í Viðey? Hvað hefði Yoko eig- inlega sagt ef hún hefði séð til Vík- verja í bíóinu? Sem bíógestur hefur Víkverji lentí því í tvígang undanfarið að ljós eru ekki slökkt í salnum fyrr en myndin er löngu byrjuð. Að sjálf- sögðu er þetta ákaflega bagalegt fyrir áhorfendur sem greitt hafa hátt í þúsund krónur fyrir að- göngumiða. Einnig getur verið leið- inlegt að hafa allt kveikt ef fólk vill haldast í hendur í bíói og er ekki vel við að allir sjái hvað er um að vera. Hljómar smásmugulega en allir eiga rétt á að gera kröfur um þægilegt umhverfi. Nóg um það. x x x Þegar Víkverji var í bíói um dag-inn rann upp fyrir honum að karlar eru frá Mars og konur frá Venus. Aðstæður voru þannig að myndin var hafin en ljós kveikt í salnum. Eðlilega var þónokkur kurr í fólki og fór pirringurinn vaxandi ef eitthvað var. Skyndilega tóku tveir bíógestir til sinna ráða, kona og karl, án þess þó að um samræmdar að-         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Ítölsku Dólómítarnir eru vin-sælt skíðasvæði yfir vetrar-tímann og þessa dagana blasaþessi tignarlegu fjöll líklega við mörgum ferðalanginum inn- römmuð af snævi þöktum skíða- brekkum. Aðrir kjósa hins vegar brekk- urnar auðar og loftslagið hlýrra enda eru Dólómítarnir ekki síður vinsæll viðkomustaður fjallagarpa. Strax í byrjun 19. aldar léku þeir raunar stórt hlutverk í einhverjum fyrstu könnunar- og klifurferðum í Alpana, og lögðu þannig grunninn að núverandi vinsældum svæðisins sem ferðamannastaðar. Dagsetning á dagatali er þó langt í frá trygging fyrir auðri jörð er upp í fjöllin er komið. Þannig upplifðum við snjó- komu, haglél, regn og þrumuveður í bland við sumarlegra veðurfar þeg- ar ég var þar á ferð með ÍT-ferðum í lok júní á síðasta ári. Klingjandi kúabjöllur Það er þó ekki bara veðrið sem er fjölbreytilegt á þessu svæði því að landslagið býr ekki yfir minni marg- breytileika. Sem dæmi má nefna að að þessu sinni var lagt af stað í steikjandi hita úr grónu umhverfi Welschnofen og haldið sem leið lá eftir vel merktum göngustígum upp í hrikalega fegurð hins berangurs- lega umhverfis Rosengarten- fjallagarðsins og þar minnti nístandi kuldi á köflum óþyrmilega á hæðina, sem þó var ekki nema tæpir 2.600 metrar. Bleikar brekkur, þaktar alparósa- runnum sem steyptust niður í Du- ron-dalinn virtust svo tilheyra enn öðrum heimi, ekki síður en grónar brekkur í nágrenni Plattkofel- og Langkofel-fjallanna þar sem klingj- andi kúabjöllur voru oft það eina sem truflaði kyrrðina. Það var líka ekki laust við að sagan af svissnesku stúlkunni henni Heiðu kæmi upp í hugann á þessum slóðum – bjálka- hús, kúabjöllur og grasi vaxnar hlíð- ar setja enda ekki í síður svip sinn á ítölsku Alpana en þá svissnesku. Sveitirnar eru raunar mun germ- anskari ásýndar en ítalskar og þarf e.t.v. ekki að koma á óvart þar sem Suður-Týról, sem Dólómítarnir eru að hluta til staðsettir í, tilheyrði Austurríki til ársins 1918 og þýskan því útbreidd tunga. Þríréttað á hverjum degi Gönguferð um Dólómítana mun líklega aldrei kalla fram samskonar „útilegustemningu“ og ferðir um há- lendi Íslands geta gert. Mun fleira göngufólk verður til að mynda á vegi ferðalanga og því ekki beint hægt að tala um að vera aleinn í óbyggðum. Vel merkt og þéttriðið net göngustíga felur sömuleiðis í sér að öllu minni hætta er á að göngu- garpurinn villist af leið og gisti- og veitingaskála er að finna það víða að óþarfi er að burðast með tjald og vistir aðrar en föt til skiptanna. Það er heldur ekki amalegt að geta gætt sér á heitri máltíð þegar áð er í hádeginu, svalað þorstanum síðdegis með ísköldum radler (blöndu af bjór og límonaði) eftir góða göngu og gætt sér síðan á þrí- réttuðum kvöldverði í skála fyrir svefninn. Nei, það er víst nokkuð öruggt að slíka þjónustu er ekki að finna uppi á Fimmvörðuhálsi. Staðsetning fjarri byggðu bóli virðist meira að segja hafa lítil áhrif á þá þjónustu sem í boði er. Vistir eru þannig fluttar með þyrlu upp í Antermoia-skálann, í nágrenni And- termoia-vatns, og í enn öðrum til- fellum er notast við kláf – flutnings- leiðirnar virðast hins vegar hafa hverfandi áhrif á verðlagið. Voldugir skálarnir, sem í sumum tilfellum eru komnir vel til ára sinna, eru líka skemmtilegir heim að sækja. Er við vorum þar á ferð fagn- aði Grasleiten-skálinn til að mynda 120 ára afmæli og þó að honum væri vissulega vel við haldið bar hann aldurinn engu að síður með sér. Gistiaðstaðan minnti þannig nokkuð á baðstofur íslenskra torfbæja og rýmið fyrir einkalíf var af álíka skornum skammti. Þeir sem búast við dásemdum ítalska eldhússins uppi í fjöllunum gætu sömuleiðis orðið fyrir nokkr- um vonbrigðum. „Knödel“ eða kartöflubollur og svínakjöt er nefni- lega öllu algengari fæða – og verður að viðurkennast að á þriðja degi get- ur hún orðið nokkuð leiðigjörn. Ekki skyldi hins vegar alhæfa í þeim efn- um frekar en öðrum og má þannig nefna að í Plattkofel-skálanum í ná- grenni við Plattkofel-tindinn reynd- ust kokkarnir færir um að vekja á sér matarást jafnvel vandfýsnustu gesta. Fjölbreytt úrval göngustíga Gönguleiðirnar, ekki gisti- og veitingastaðir, eru hins vegar ástæða Dólómítaheimsóknar flestra sem þangað koma og fjölbreytt úr- val göngustíga felur í sér að það er alls ekki nauðsynlegt að vera í neinu ofurformi til að ferðast þar um. Þeir sem vilja ganga þar styttri slóða geta t.d. komi sér fyrir í einum skála og notið þess að kanna göngu- leiðirnar í kring á meðan þeir sem að kjósa meiri átök og vilja ná yfir stærra svæði ættu ekki heldur að lenda í neinum vandræðum með að finna leiðir við hæfi. Með göngukort í hendi ætti síðan flestum að vera leiðin fær, en fyrir þá sem kjósa fjölmennari félagsskap er fjöldi ferða í boði með íslenskum ferðaskrifstofum sem og erlendum og vissulega er þægilegt að njóta leiðsagnar á framandi slóðum og þurfa ekki að hafa áhyggjur af að leita uppi gistingu sjálfur. Það verður líka að segjast að til- finningin við að standa á toppi tinds á borð við Roterd Spitze er alveg einstök. Djúpir dalir og háir fjall- garðar blasa þar við allt um kring og ekki laust við að fiðrings gæti í mag- anum þegar horft er niður snar- brattar hlíðar sem eiga endimörk sín hundruðum metra neðar og vita að maður hefur lagt annað eins að baki og það er ekki svo lítið afrek fyrir flest okkar. Í fjallasal Náttúrufegurðin var víða slík að ferðalangar tóku andköf og munduðu myndavél- arnar í gríð og erg. Þessi mynd er tekin úr Rosengarten-fjallgarðinum. Bjölluhljómur Klingjandi kúabjöllur voru víða það eina sem truflaði kyrrðina, þó ekki hafi þessir ungu bolar sem við mættum hátt í hlíðum Duron-dalsins skartað slíku skrauti. Morgunblaðið/Anna S. Einarsdóttir Á fjallsbrún Það var ekki laust við að maður fengi smá fiðring í magann er horft var niður í dali ofan af tindunum. Af hæstu tindum ofan í djúpa dali Skref fyrir skref Þótt fjöldi stíga sé í Dólómítunum er misgreiðfært. Dagsetning á dagatali er þó langt í frá trygging fyrir auðri jörð er upp í fjöllin er komið. Þannig upplifðum við snjókomu, haglél, regn og þrumuveður í bland við sumarlegra veðurfar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.