Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 19
Kristján Bersi Ólafsson segirgömlum starfsfélögum og
vinum úr blaðamennskunni fækka
með hverjum degi. Hann yrkir um
„teiknarann snjalla“ Ragnar
Lárusson sem verður jarðsettur á
morgun:
Í fjölmiðlum er stopp og stans
og staldur án langrar tafar
er höfundur Bogga blaðamanns
borinn er til grafar.
Á jólaföstu kom Ólína
Þorvarðardóttir á fund
Kvæðamannafélagsins Iðunnar
vestan frá Ísafirði og kynnti bók
sína „Vestanvindur“. Sigurður
Sigurðarson dýralæknir orti til
hennar:
Ólína kveður um vestanvindinn
vasklega stefnir hún upp á tindinn
ljóðaperlurnar letrað fær.
Létt er í spori hún sem hindin,
hnarreist eins og fjallakindin.
Eldur í hári og augun skær.
Auðunn Bragi Sveinsson vekur
máls á því að fólki sé oft illa við að
embætti og frægð erfist:
Hillary bregst hjálparlið;
hún það ætti að muna,
að oft er fólki illa við
arfa-kenninguna.
Og enn um kosningarnar vestra:
Forsetans að feta stig
fylgir mikið drama.
Hillary má herða sig,
ef hyggst ’ún sigra Obama!
Allt logar í átökum í Napólí á
Ítalíu út af sorpi sem þar hrannast
upp á götunum. Auðunn Bragi
yrkir um sorpstríðið:
Nú er svart í Napólí;
nóg er þar af skrani.
Óþefur af öllu því
ýmsra verður bani.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af Bogga
blaðamanni
Mig langar til að kaupa mér ódýr
fargjöld á netinu með lágfar-
gjaldaflugfélögum. Hvað þarf ég
að vita?
Einkenni lágfargjaldaflug-félaga (t.d. Iceland Express)eru að þau bjóða ekki upp á
tengiflug, fljúga oftast til og frá minni
flugvöllum (stundum í nokkurri fjar-
lægð frá stærri borgum), bjóða ekki
ókeypis mat og drykk, hafa þrengri
reglur varðandi farangur og hvetja
farþega til að kaupa miða aðra leið-
ina. Á móti kemur að þau bjóða lægri
fargjöld. Félögin brutu á sínum tíma
upp fákeppni varðandi flugmiða sem
lengi hafði ríkt og árangur þeirra hef-
ur verið mikill. Hefðbundið flugfélag
eins og Icelandair hefur nú tekið upp
sumar þessara nýjunga og nú er
stundum erfitt að greina á milli lág-
fargjaldafélaga og venjulegra flug-
félaga.
Þarf oft tvo miða
Önnur einkenni þessara nýju flug-
félaga er að þau taka ekki þátt í hefð-
bundinni bókunarsamvinnu flug-
félaga og fæstar flugleitarvélar birta
upplýsingar um flugferðir þeirra. Þó
má finna upplýsingar um sumar
þeirra á leitarvélunum www.dohop-
.com og www.skyscanner.net. Að
öðru leyti verður yfirleitt að bóka
beint á vefsíðum félaganna. Vefsíðan
www.whichbudget.com birtir góðan
lista yfir lágfargjaldaflugfélög víða
um heim sem gott er að styðjast við.
Íslendingar þurfa einatt að skipta
um flugvél til að komast alla leið til
áfangastaða sinna. Vandamálið er að
þá þarf oft að bóka tvo aðskilda miða.
Ef fyrra fluginu seinkar umtalsvert
tekur flugfélagið sjaldnast ábyrgð á
því þó að farþeginn missi af seinna
fluginu. Þar með verður að kaupa
nýjan miða sem getur verið mjög
dýrt. Stundum er þó hægt hjá Ice-
landair að kaupa miða alla leið þar
sem félagið sér um að útvega hinn
miðann og tryggir tengiflugið. Það
getur þó verið dýrara en ella. En hjá
lágfargjaldafélögum þarf alltaf að
kaupa tvo miða.
Það á að vera í lagi að kaupa tvo
aðskilda miða ef þess er gætt að hafa
nægan tíma milli fyrra og seinna
flugsins. Ef lent er á London Stans-
ted kl. 10 og ekki flogið áfram fyrr en
kl. 18 er mjög líklegt að allt gangi
upp. En ef lent er í New York kl. 18
og flogið áfram kl. 21 er tekin áhætta.
Ein leið til að minnka hana er að gista
á leiðinni. Gistingin þarf ekki að vera
svo dýr miðað við hvað flugmiðar
geta stundum kostað. Að vísu tapast
tími, sem reikna þarf inn í dæmið.
London Stansted er ein stærsta
miðstöð lággjaldaflugfélaga, s.s.
ryanair.com og easyjet.com. Við höf-
um nokkrum sinnum gist eina nótt í
nágrenninu og tekið síðan tengiflug
daginn eftir. Hentug gisting:
www.stansted.radissonsas.com (rétt
hjá flugstöðinni en frekar dýrt),
www.stansted-bandb.co.uk og
www.phoenixlodge.co.uk (ódýrari
gistihús nálægt flugvellinum).
Önnur lágfargjaldaflugfélög sem
nýtast Íslendingum vel eru JetBlue
(frá New York-JFK og Boston), We-
stJet (frá Halifax og Toronto), Sterl-
ing (frá Kaupmannahöfn) og
GermanWings (frá Berlín-Schöne-
feld).
Snjallt er að fara á vefsíður flug-
félaganna og gerast áskrifandi að
póstlista þeirra svo hægt sé að fylgj-
ast með „fargjaldaútsölum“ sem oft-
ast eiga sér stað á nokkurra vikna
fresti.
ferðaflugur
Flogið með lágfargjaldaflugfélagi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kostir og gallar Lágfargjaldaflugfélögin fljúga oft til minni flugvalla og
hafa þrengri reglur varðandi farangur, en eru líka oft ódýrari.
Þetta er fyrsti pistillinn af nokkr-
um þar sem þau Ian Watson og
Margrét Gunnarsdóttir munu taka
fyrir ýmsar spurningar sem ferða-
langar velta gjarnan fyrir sér áður
en af stað er farið.
Veröldin snýst í hringi; gærdagurinn
kemur alltaf aftur. „Veistsma þúsma
hvaðsma égsma ersma aðsma
segsma?“ spurði ung dóttir mín allt í
einu upp úr þurru á dögunum. Mér
fannst ég ungur í annað sinn.
Jóhannes Bjarnason, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins og hand-
boltaþjálfari, er gamansamur mað-
ur. Í blaði sem KA gaf út í tilefni 80
ára afmælis félagsins í vikunni rifjar
hann upp það sem eftirminnilegast
var á íþróttaferlinum: „Það er ótrú-
lega margt sem kemur upp í hugann.
Fyrst vil ég nefna úrslitaleik um Ís-
landsmeistaratitilinn í knattspyrnu í
fjórða flokki á Melavellinum gegn
Breiðabliki árið 1977. Sá leikur end-
aði 2-2. Viku síðar var spilaður annar
leikur og þá var ég tekinn út úr byrj-
unarliðinu. Við það hrundi leikur
liðsins og við töpuðum 4-1!“
Brynhildur Þórarinsdóttir flytur í
dag fyrirlestur sem vekur óneit-
anlega áhuga enda kallar hún fyr-
irlesturinn Axarmorðingi í móð-
urfaðmi. Uppeldisfræði Egils sögu
Skalla-Grímssonar. Brynhildur talar
á Fimmtudagshlaðborði Akureyr-
arAkademíunnar í gamla Hús-
mæðraskólanum við Þórunn-
arstræti. Fyrirlesturinn hefst kl. 17.
Tónlist með Pink Floyd hljómar á
Græna hattinum í kvöld, á fyrstu
tónleikum ársins. Það er húsvíska
hljómsveitin Echoes sem leikur lög
af plötunum Dark Side of the Moon,
Wish You Were Here og The Wall.
Kynningarfundur verður í dag um
nám á hraðlínu á almennri bóknáms-
braut í Menntaskólanum á Akureyri
fyrir nemendur sem koma úr 9.
bekk. Fundurinn, sem er ætlaður
bæði nemendum og foreldrum
þeirra, verður í Kvos MA og hefst kl.
17. Gengið inn frá Þórunnarstræti.
MA hóf kennslu á þessari braut
haustið 2005 og verkefnið hefur að
sögn gengið mjög vel.
Starfsmenn Framkvæmda-
miðstöðvar hafa undanfarna daga
safnað saman jólatrjám og halda því
áfram þar til á morgun. Setji fólk tré
út að lóðarmörkum við hús sín fjar-
læga starfsmenn bæjarins þau.
Einnig er hægt að setja tré í gáma
sem eru við Kaupang, Hagkaup,
Hrísalund og Sunnuhlíð.
Bærinn Grýta í Eyjafjarðarsveit
verður í framtíðinni foreldrahús þar
sem foreldrar með umgengnisrétt
og börn þeirra hittast. Frá þessu var
greint í svæðisfréttum RÚV í vik-
unni. Þar sagði að á þennan hátt
gætu börnin verið í sínu heima-
umhverfi og foreldrar sparað sér
umtalsverðar fjárupphæðir. „Félag
ábyrgra feðra á Akureyri samdi við
eigendur jarðarinnar um afnot af
húsnæði á jörðinni gegn vinnu við
viðhald og eftirlit. Tilgangurinn er
að auðvelda börnum og umgengn-
isforeldrum þeirra að njóta samvista
án mikilla ferðalaga og tilheyrandi
fjárútláta. Jóhann Kristjánsson, for-
maður félagsins, segir þetta vera
hugsjónastarf,“ segir á vef RÚV.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Uppeldi Brynhildur ætlar að ræða
um axarmorðingja í móðurfaðmi!
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
• Tækniþróunarsjóður er sjóður sem heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum
nr. 75/2007 um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun.
• Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og
tækniráðs.
• Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar.
• Sjóðurinn veitir framlög til nýsköpunarverkefna sem eru til þess fallin að auka samkeppnis-
hæfni íslensks atvinnulífs.
• Forsenda fyrir aðkomu sjóðsins er að fyrir liggi vel mótuð hugmynd um hagnýtt gildi og
líklegan ávinning sem þróun viðkomandi verkefnis getur leitt til.
• Framlag til framúrskarandi verkefna getur numið allt að 30 milljónum króna samanlagt á
þrem árum.
• Umsóknarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi.
Ný eyðublöð og nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð verða
á heimasíðu Rannís, www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is