Morgunblaðið - 10.01.2008, Side 23

Morgunblaðið - 10.01.2008, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 23 Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Íeina tíð þótti það til marks umað vera orðin fullorðin, aðsetja upp hatt. Komin í full-orðinna manna tölu; hætt að vera á leiðinni þangað og loks orðin alvöru manneskja. Hatturinn er löngu fyrir bí, og manndómsvígslurnar með öðrum hætti. Það er varla hægt að bera það saman að tylla hattkúfi á höfuð sér og að æfa einleikshlutverk í stórum konserti og leika með sinfón- íuhljómsveit á opinberum tónleikum. Þau eru búin að máta hattana, og í kvöld er komið að tónleikunum. Ter- esa Bokany fiðluleikari, Arndís Árnadóttir klarinettuleikari, Hákon Bjarnason píanóleikari og Joaquín Páll Palomares fiðluleikari standa á sviði Háskólabíós í kvöld; öll korn- ung, og leika hvert sinn konsert með hljómsveitinni. Theresa hefur stundað sitt fiðlu- nám í útlöndum en á sterkar rætur á Íslandi; hin þrjú eru við nám í Listaháskóla Íslands. Fjórmenning- arnir urðu hlutskörpust í forkeppni sem hljómsveitin og Listaháskóli Ís- lands stóðu fyrir. Þetta er ungs manns verk „Ég er sérstaklega mikið fyrir þessa rússnesku kalla; Prokofijev, Sjos- takovitsj, Rakhmaninov, Stravinskíj og Skrjabin, og valdi konsertinn þess vegna,“ segir Hákon Bjarnason píanóleikari, sem spilar Píanókons- ert nr. 1 eftir Prokofijev. „Ég byrj- aði að æfa konsertinn fyrir ári og mér finnst hann alveg hafa staðið undir væntingum. Mér finnst ennþá mjög gaman að spila hann, þótt ég hafi verið að æfa hann í heilt ár og er alls ekkert að verða þreyttur á hon- um. Konsertinn býr bæði yfir því að vera hraður, tæknilegur, rytmískur og fjörugur, en líka lýrískur og fal- legur. Svo finnst mér líka gaman að því að Prokofijev samdi konsertinn þegar hann var tuttugu og þriggja ára og frumflutti hann sjálfur, þann- ig að þetta er ungs manns verk,“ segir Hákon, en hann hefur þá rós í sínu hnappagati að hafa unnið til verðlauna í öll þrjú skiptin sem pí- anókeppni Íslandsdeildar EPTA hefur verið haldin hér á landi. Get ekki falið mig bak við neitt „Mig hefur alltaf langað til að spila þetta verk,“ segir Joaquín Páll Pa- lomares, sem leikur einn vinsælasta einleikskonsert allra tíma, fiðlukons- ert eftir Sibelius. „Í hvert skipti sem ég æfi finn ég eitthvað nýtt og nýtt sem ég get gert og það sýnir bara hversu flott verkið er. Það er hægt að spila það á marga mismunandi vegu en ég spila mína eigin túlkun. Það truflar mig ekkert að verkið skuli vera svona þekkt, mér finnst það bara ennþá meira spennandi. Þá reynir maður ennþá frekar að gera eitthvað nýtt. Ég get heldur ekki fal- ið mig á bak við neitt – það þekkja þetta allir. En það er bara fínt. Sibelius lærði á fiðlu og það var draumur hans að verða fiðluleikari. En konsertinn liggur ekki alls staðar vel, sérstaklega þriðji kaflinn, sem er frekar snúinn. Sumir staðir eru þannig, að það skiptir engu máli hvað maður æfir þá mikið, þeir verða alltaf erfiðir. En konsertinn er nú flottur samt og það flottasta er nú eiginlega að það er sama hversu erf- ið tæknilegu atriðin eru sem maður er að glíma við, þá er þetta alltaf músík. Maður verður auðvitað að einbeita sér að því að spila allar nót- ur rétt, en maður getur líka alltaf gert eitthvað úr því sem maður er að spila og hugsað um tónlistina. Svo er hljómsveitarparturinn rosalega flottur líka. Það er frábært að spila konsertinn – sérstaklega með svona góðri hljómsveit,“ segir Joaquín Páll, en hann hefur komið fram sem konsertmeistari í Ungfóníu, Strengjasveit Tónlistarskóla Kópa- vogs og Sinfóníuhljómsveit Tónlist- arskólanna auk þess sem hann lék með Orkester Norden sumarið 2004. Auk fiðlunámsins útskrifaðist hann úr Verzlunarskóla Íslands síðasta vor og hefur leikið með drengja- landsliðinu í knattspyrnu. Fiðlukonsert með stóru effi Theresa Bokany á íslenska móður og ungverskan föður og hefur verið búsett erlendis allt sitt líf en oft dvalið lengri og skemmri tíma hér heima. Fyrsti fiðlukennarinn hennar var ungverski fiðlusnillingurinn Ti- bor Varga. Hún spilar Fiðlukonsert nr. 2 eftir Henryk Wieniawski. „Ég þekkti konsertinn ekkert þar til fyr- ir ári. Þá var hringt í mig; áhuga- hljómsveit í Amsterdam var búin að æfa þennan konsert, en einleikarinn þeirra hafði óvart tvíbókað sig og gat ekki spilað. Hljómsveitin var bú- in að æfa þetta lengi og ætlaði bara að spila einu sinni, þannig að þetta var alveg ómögulegt. Stjórnandinn spurði hvort ég gæti ekki lært ein- leikshlutverkið í hvelli og ég var al- veg til í það. Ég hafði sjö vikur til stefnu, fór svo til Amsterdam og spilaði konsertinn með þeim. Það voru fyrstu kynni mín af verkinu. Ég ákvað að spila konsertinn á þessum tónleikum, vegna þess að mér finnst hann skemmtilegur – þetta er fiðlu- konsert með stóru effi – mjög fiðlu- legur, enda fiðluvirtúós sem samdi hann. Hann er fullur af fiðlutækni, en annar þátturinn er líka mjög fal- legur og lýrískur. Það er allt í hon- um, bæði tækni og tilfinningar og þess vegna langaði mig að spila hann aftur. Það er munur á því þegar fiðlukonsert er saminn af fiðluleik- ara eins og Wieniawski var. Þessi konsert er tæknilega erfiður en þó þannig að hann liggur vel í hendi. Mér finnst Sibelius-konsertinn, sem Palli er að spila til dæmis miklu erf- iðari af því að hann liggur svo skringilega sums staðar. Sibelius spilaði eitthvað á fiðlu, en ekkert mikið þannig – og þar munar heil- miklu,“ segir Theresa Bokany. Hún hefur komið fram sem einleikari með ýmsum tónlistarhópum og hald- ið tónleika með píanóleikaranum Önnu Solovievu Drubich í Þýska- landi, Ítalíu, Ungverjalandi, Rúss- landi, Hollandi og Sviss. Hér hefur hún meðal annars leikið í Tíbrárröð Salarins. Skringilegt – eins og Debussy „Ég valdi mitt verk vegna þess að ég er svo hrifin af því. Ég hafði æft það í sjöunda stiginu mínu, en mig lang- aði alltaf að taka það upp aftur og gera það betur,“ segir Arngunnur Árnadóttir klarinettuleikari, en verkið sem hún leikur með hljóm- sveitinni er Première Rhapsodie eft- ir Claude Debussy. „Af einleiks- verkum fyrir klarinett með hljómsveit eru þetta og Mozart- konsertinn í algjöru uppáhaldi. Ég var búin að spila Mozart-konsertinn með Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík og hafði dreymt um að spila þetta líka. Þetta er rosalega fallegt verk, svolítið skringilegt – eins og De- bussy – hann er í uppáhaldi hjá mér og tónlistin hans á mjög vel við mig. Hann skrifar rosalega fallega fyrir hljómsveit og hefur sérstakan stíl, er undir austrænum áhrifum og tónlist- in hans er fíngerð og litrík, öðru vísi en önnur tónlist. En verkið mitt … það er þetta með lit- ina … maður verður að vera dugleg- ur að mála með tónunum. Það er mikið af hægum, dreymandi línum – það er jafnvel erfiðara að spila það en það sem er hratt; en þetta er rosalega gaman,“ segir Arngunnur, en tilefni þess að hún lék Klarinettu- konsert Mozarts sem hún sagði frá, var það, að hún bar sigur úr býtum í einleikarakeppni skólans. Fjórir ungir einleikarar með Sinfóníuhljómsveitinni í kvöld Einleikarar Theresa Bokany fiðluleikari, Arngunnur Árnadóttir klarinettuleikari, Hákon Bjarnason píanóleikari og Joaquín Páll Palomares fiðluleikari. Tónleikarnir verða í Háskólabíói kl. 19.30, Kristofer Wahlander stjórnar. Framtíðarstjörnur lega slegnir yfir úrslitunum, svo óvænt sem þau voru og þvert á allar spár. Hann bar sig þó vel á kosningavöku stuðningsmanna sinna. „Ég er í miklum ham og held ótrauður áfram,“ sagði hann og kvaðst þess fullviss að hann yrði forsetaframbjóðandi demókrata í kosningunum í haust. John Edwards, fyrr- verandi öldungadeildarþingmaður, sem varð annar í Iowa en þriðji í New Hampshire, sagðist mundu halda sínu striki og taka þátt í forkosningunum til enda. Allt galopið hjá repúblikönum Upprisa John McCains, sem er 71 árs að aldri og var á sínum tíma stríðsfangi í Víet- nam í næstum sex ár, hefur hleypt aukinni spennu í forkosningabaráttu repúblikana. Fékk hann 37% atkvæða í New Hampshire en Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri í Massachusetts, sem var annar í Iowa á eftir Mike Huckabee, varð nú einnig annar með 32%. Honum hafði þó verið spáð sigri í báð- um ríkjunum og hann var með 12 prósentu- stiga forskota á keppinautana í New Hamps- hire rétt fyrir jól. Það segir sína sögu um það, sem var kjós- endum repúblikana í New Hampshire efst í huga, að 46% þeirra, sem studdu McCain, töldu Íraksmálið mikilvægast en mikill meirihluti þeirra, sem studdu Romney, setti innflytjendamálin á oddinn. Úrslitin geta ráðist á „Stóra þriðjudegi“ Næstu forkosningar verða í Michigan 15. janúar og í Nevada hinn 19. Þá verða einnig forkosningar repúblikana í Suður-Karólínu en hjá demókrötum hinn 26. 29. janúar verð- ur kosið í Flórída en 5. febrúar er „Stóri þriðjudagurinn“ en þá verður kosið í rúm- lega 20 ríkjum, þar á meðal í New York, Kaliforníu og New Jersey. Þá geta úrslitin ráðist. Talið er að repúblikaninn Mike Huckabee, sem sigraði í Iowa, eigi góða möguleika í S- Karólínu þar sem trúmálin skipa stóran sess, en Rudy Giuliani, sem sneiddi alveg hjá Iowa og New Hampshire, vonast til að komast aft- ur inn í baráttuna með góðu gengi í Flórída. Þá á Obama að margra mati sigurinn vísan meðal demókrata í ríkinu en þar er helm- ingur kjósenda þeirra blökkumenn. ama stuðning 35% kvenna en Clinton n í New Hampshire studdu 45% Clinton en 36% Obama. on naut þess líka að fólk, sem komið jan aldur eða eldra, er duglegast við a á kjörstað. Í New Hampshire voru rra demókrata, sem komu á kjörstað, eða eldri og meirihluti þeirra studdi ma og stuðningsmenn hans voru eðli- n hleypir ráttuna ur McCains í New Hampshire AP enni ákaflega er ljóst var orðið, að t ofan í allar spár. Segja má, að for- OTSKURN Næst verður kosið í Michigan 15. m. en í Suður-Karólínu þann 19. hjá blikönum og þann 26. hjá demókröt- tóra stundin, sem hugsanlega getur áðið úrslitum, verður 5. febrúar en rður kosið í meira en 20 ríkjum og meðal þeim stærstu. til ráðherra.“ Spurður hversu langan herra hafi til að taka afstöðu til tillög- egir Nikulás það óskilgreindan tíma mt lögunum. gr. laga um húsafriðun kemur fram að sem verði fyrir fjártjóni vegna fram- a húsafriðunarnefndar eigi rétt til skaðabóta úr ríkissjóði. Ef samkomulag náist ekki um bætur skulu þær ákveðnar eftir reglum laga um eignarnám. Aðspurður hvort þetta þýði að ríkið muni bera fjárhagslega ábyrgð komi til þess að menntamálaráðherra ákveði að friða húsin á Laugavegi 4 og 6 segir Nikulás það alls ekki einsýnt. Bendir hann á að í framhaldi af friðun ráðherra á húsinu við Hafnarstræti 98 á Akureyri, þ.e. gamla Hótel Akureyri, hafi húsafriðunarnefnd falið Tryggva Þórhallssyni lögfræðingi að vinna greinargerð um 19. greinina. Aldrei reynt á 19. greinina áður Að sögn Nikulásar er það túlkun lögfræð- ings að sveitarfélag geti orðið bótaskylt sam- kvæmt ákvæðum skipulags- og byggingar- laga ef það þurfi að endurskoða skipulags- eða framkvæmdaákvörðun vegna rökstuddra til- mæla húsafriðunarnefndar eða ákvörðunar menntamálaráðherra um lögformlega friðun. Hins vegar getur aðeins ríkið orðið bótaskylt samkvæmt 19. gr. húsafriðunarlaga vegna þess tjóns sem fram komi við framkvæmd friðunarkvaðar af hálfu friðunaryfirvalda. Það tekur, eftir því sem blaðamaður kemst næst, væntanlega til þess ef endurgerð, endurbætur eða viðgerð á húsi verður kostnaðarsamari vegna friðunarkvaða. Aðspurður segir Nikulás aldrei hafa reynt á 19. greinina. Hins vegar sé ekki loku fyrir það skotið að nú gæti farið að reyna á þessa laga- grein, bæði vegna friðunar hússins við Hafn- arstræti sem og húsanna við Laugaveg. nar ráðherra Morgunblaðið/Frikki með Degi B. Eggertssyni borg- úsanna að Laugavegi 4 og 6.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.