Morgunblaðið - 10.01.2008, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ALDARMINNING
Í DAG, 10. janúar
2008, eru 100 ár liðin
frá fæðingu Björns
Pálssonar flugmanns
sem var frumkvöðull í
sjúkraflugi á Íslandi
og þjóðsagnapersóna í
lifanda lífi.
Þessi fátæki sveita-
piltur fékk óviðráðan-
legan flugáhuga og
nánast köllun til að
starfa við flug, hóf
flugstarfsferil sinn af
eigin rammleik þá orð-
inn fertugur að aldri
og náði á 25 ára starfsferli sínum að
skrá merkan kafla í flugsögu Íslend-
inga. Saga Björns Pálssonar flug-
manns er án efa ein merkasta saga
íslensks flugmanns, líf hans og flug-
mannsstarf var helgað því að koma
fólki til hjálpar í neyð og að hjálpa
veikum og slösuðum og æði oft var
aðkoma Björns eini möguleikinn til
bjargar. Það er því við hæfi núna á
þessum tímamótum, að rifja upp
nokkra þætti sem varða þennan
merkilega, hógværa og eftirminni-
lega mann.
Björn var sonur hjónanna Páls
Jónssonar frá Vindfelli í Vopnafirði
og Sólrúnar Guðmundsdóttur frá
Hauksstöðum á Jökuldal. Þau hjón
bjuggu á Hauksstöðum á Jökuldal, á
Sleðbrjót í Jökulsárhlíð og á Arn-
hólsstöðum í Skriðdal, en lengst af á
Ánastöðum í Hjaltastaðaþinghá og
þar fæddist Björn hinn 10. janúar
1908. Hann var þriðja barn þeirra
hjóna, sem eignuðust alls sex börn er
öll komust til fullorðinsára. Að loknu
barnaskólanámi var Björn tvo vetur í
Alþýðuskólanum á Eiðum og síðan
veturinn 1927-1928 í Samvinnuskól-
anum í Reykjavík.
Sumarið 1936 urðu kaflaskipti í
flugsögu Íslendinga þegar eldhuginn
og brautryðjandinn Agnar Kofoed-
Hansen fór að láta til sín taka. Agnar
skildi að byrja yrði á grunninum og
rækta grasrótina en þá um sumarið
stofnaði hann Flugmálafélag Íslands
og Svifflugfélag Íslands. Meðal
stofnfélaga beggja var Björn Páls-
son, bifreiðarstjóri hjá Ríkisspít-
ölunum, en hann hafði þá fengið mik-
inn áhuga á flugi og svifflugið var
heillandi. Hinn 31. janúar 1937 var
fyrsta svifflugsæfingin í Vatnsmýr-
inni, síðan var æft á ýmsum stöðum
um sumarið, svo sem uppi á Kjalar-
nesi, við Sauðafell og svo á Sand-
skeiðinu. Björn Pálsson starfaði sem
bifreiðarstjóri hjá Ríkisspítölunum í
Reykjavík árin 1934 til 1942 og þetta
sumar átti hann stóran þátt í að þess-
ar æfingar gátu farið fram en á
sunnudögum var farið á bifreið Rík-
isspítalanna til æfinganna. Bifreiðin
kom þar heldur betur í góðar þarfir,
en Björn hafði fengið leyfi húsbænda
sinna til þess að þeir svifflugmenn-
irnir mættu nota hana.
„Sólóskírteini“ númer 1
Sumarið 1938 var mikið um að
vera í íslensku svifflugi, en þá var
þýski svifflugleiðangurinn hér á
Sandskeiðinu og Björn lét sig ekki
vanta þegar hann átti möguleika á
því að fara austur á Sandskeið. Hann
hafði þá þegar tekið A-próf í svifflugi
hjá Agnari Kofoed-Hansen, B-prófið
tók hann hjá Carl Reichstein, þýsk-
um svifflugkennara sem Agnar hafði
ráðið haustið 1937 til þess að kenna
hér svifflug og C-prófið tók hann 14.
júlí 1938 þegar þýski svifflugleiðang-
urinn var hér.
Björn hafði árið 1937 keypt hlut í
tveggja sæta einkaflugvélinni G-AA-
OF af gerðinni Blackburn Bluebird,
sem flaug fyrst hérlendis í júní það
ár en stöfum hennar var breytt í TF-
LOA eftir að Björn kom til sögunnar.
Í desember 1937 hóf hann að læra
vélflug á flugvélina hjá Agnari Kofo-
ed-Hansen, flugmálaráðunaut ríkis-
ins, og einnig hjá Birni Eiríkssyni
flugmanni. Björn Pálsson hlaut svo
fyrstu flugréttindi sem veitt voru hér
á landi, þegar hann lauk fyrstur Ís-
lendinga einliðaprófi í flugi hérlendis
hinn 30. ágúst 1938 og fékk „sóló-
skírteini“ númer 1. Hann fékk svo
einkaflugmannsréttindi á Íslandi,
einnig fyrstur manna sömuleiðis hjá
Björn Pálsson
Agnari, hinn 19. júní
1939.
Hinn 14. október
1939 kvæntist Björn
Sveinu Sveinsdóttur, f.
9. maí 1916. Hún var af
rangæskum og skaft-
fellskum ættum og
foreldrar hennar
bjuggu þá á Heiði við
Kleppsveg í Reykja-
vík.
Nokkru fyrir brúð-
kaupið, eða í byrjun
ágúst, fór Björn með
Sveinu sína í hringferð
um landið á TF-LOA. Aðaltilgang-
urinn var að heimsækja fjölskylduna
austur í Skriðdal og kynna henni
Sveinu.
Þetta flug var mjög merkilegt í
flugsögunni og er með því fyrsta, ef
ekki fyrsta einkaflug sem farið var á
Íslandi.
Björn sagði m.a. svo sjálfur frá
ferðinni, í viðtali í Vikunni árið 1963:
„Suðaustanátt og bólgin regnský
lágu yfir Hengli og Bláfjöllum, en
þótt himinninn væri þungbrýnn eins
og oft taldi ég ferðaveður og eftir há-
degið vorum við tilbúin til flugtaks.
Flugvélin var opin og sæti voru fyrir
tvo, hlið við hlið. Við vorum vel búin
til ferðarinnar, í þykkum vattgöllum
og með fluggleraugu, sem auðvitað
voru ómissandi í hverri flugvél þá.
Flugvélin hóf sig af vellinum, ég
hækkaði flugið til norðurs og setti
stefnuna fyrir norðan Eiríksjökul.
Við höfðum engar veðurfregnir haft
frá þeim stöðum, sem leið okkar átti
að liggja um en þegar á reyndi var
besta flugveður. Eftir rúmlega
tveggja tíma flug, komum við til
Akureyrar og ég lenti á túninu í
Lundi, hjá Jakobi Karlssyni.
Það var orðið nokkuð áliðið dags
þegar við vorum tilbúin til flugtaks á
Akureyri. Veðurútlit var sæmilegt
eftir því sem ég hélt en skýjafar
nokkurt. Þó held ég nú að verst af
öllu hafi verið það að þekkingin á
veðurfari og landslaginu hér hafi
verið takmörkuð. Ég hafði farið
þessa leið á hestum nokkrum sinnum
og treysti mér því til þess að rata og
því lögðum við af stað í hálfgerða tví-
sýnu. Ef ég ætti að fara þessa leið í
dag væri það auðvelt, því ótalmargt
hefur breyst, en þá þurfti ég víða að
krækja til þess að hafa hreint borð
við veðurguðina. Litla flugvélin lét
vel að stjórn, flughraðinn var ekki
nema 100 km á klst. og undir kvöld
komum við að Arnhólsstöðum í
Skriðdal sem var áfangastaðurinn.
Ég fór nú að undirbúa lendinguna
sem gat orðið erfið. Engar bremsur
voru á hjólunum eins og nú tíðkast og
mótstaða vinds og brautar skammt-
aði því brautarlengdina. Lenti ég svo
á árbakka og tókst það vel. Það varð
upp fótur og fit á bæjunum. Fólkið
hafði séð flugvél „hrapa“ niður við á
og hélt að það hefði orðið slys. Kom
undrunarsvipur á menn þegar þeir
báru kennsla á flugliðið. Þarf ekki að
orðlengja það að okkur var tekið
opnum örmum og gistum við hjá for-
eldrum mínum yfir nóttina. Næsta
dag var svo flugsýning í Skriðdal. Við
fórum í nokkrar flugferðir með fólkið
í sveitinni og höfðu menn af hina
mestu skemmtan enda má segja að
flug hafi fram að þessu verið óþekkt
fyrirbæri í Skriðdal.
Hinn 11. ágúst kvöddum við svo
ættingja og vini. Gömul kona bað
mér allrar blessunar og tók af mér
loforð um að fljúga nú alla tíð bæði
hægt og lágt svo mér mætti auðnast
að halda lífi og limum. Það rumdi í
mótornum og vélin þaut af stað eftir
áreyrunum og í loftið. Fáskrúðs-
fjörður var næsti áfangastaðurinn,
en þar átti konan mín systur bú-
setta.“
Frá Fáskrúðsfirði flugu þau Björn
og Sveina til Hornafjarðar þar sem
þau gistu eina nótt. Næsta dag hugð-
ist Björn fljúga alla leið til Reykja-
víkur, en honum leist ekki á skýjafar
og veður yfir Reykjanesfjallgarðin-
um, svo þau lentu á Loftsstöðum í
Flóa og gistu þar eina nótt en héldu
svo til Reykjavíkur að morgni 7. dags
ferðarinnar. Flugtíminn varð sam-
tals 11 klst. og 25 mínútur.
Eins og áður sagði starfaði Björn
sem vörubifreiðarstjóri hjá Ríkis-
spítölunum frá því um 1930, þar til
snemma á stríðsárunum, að hann
eignaðist eigin vörubifreið og stund-
aði akstur á Vörubifreiðastöðinni
Þrótti um árabil og vann meðal ann-
ars við gerð Reykjavíkurflugvallar.
Ásamt bifreiðaakstrinum vann Björn
við húsbyggingar allt til ársins 1951.
Börn þeirra hjóna voru orðin fjög-
ur, fjárráðin af skornum skammti og
brauðstritið var krefjandi fyrir heim-
ilisföðurinn, en Birni tókst samt að
koma upp húsnæði fyrir fjölskyld-
una.
En flugið átti hug Björns Pálsson-
ar allan og kallaði á hann.
Fyrsta sjúkraflugið
Árið 1948 sannaði Björn, að allt er
fertugum fært, þegar hann réðst í
það einn og óstuddur að kaupa litla
2-3 sæta, einshreyfils flugvél TF-
KZA, af gerðinni KZ-III. og hugðist
stunda atvinnuflug með henni ásamt
byggingarvinnunni. Málin þróuðust
fljótlega þannig að brátt var leitað til
Björns um að sækja sjúklinga út á
land og í desember 1949 fór hann
fyrsta sjúkraflugið vestur að Reyk-
hólum á Barðaströnd. Þörfin fyrir
sjúkraflugið var mikil, hann sá líka
möguleikana á að sjá sér og fjöl-
skyldunni farborða og á vettvangi
sjúkraflugsins átti Björn Pálsson eft-
ir að vinna stórvirki. Nú varð ekki
aftur snúið en þá þegar hafði starf
hans vakið athygli alþjóðar.
Hann vann áfram við húsbygging-
ar ásamt fluginu, allt til ársins 1951,
en þá sneri hann sér alfarið að því og
flugrekstur varð starf hans þaðan í
frá til æviloka. Þetta ár keypti Björn
með hjálp Slysavarnafélags Íslands,
þriggja sæta, eins hreyfils flugvélina
TF-LBP af gerðinni Auster-5 og árið
1954 keypti hann ásamt Slysavarna-
félagi Íslands, flugvélina TF-HIS,
fjögurra sæta, eins hreyfils Cessna
180, sem reyndist alla tíð einstakt
happafar og hann notaði til sjúkra-
flugs allt til æviloka. Þessi flugvél er
enn í góðu ástandi, í eigu flugklúbbs
atvinnuflugmanna og ber nafnið
Björn Pálsson til heiðurs honum. Í
heilan áratug flaug Björn eins hreyf-
ils flugvélum sem ekki tóku nema
einn sjúkling og lækni eða fylgdar-
mann. Kalla mátti það byltingu þeg-
ar tveggja hreyfla flugvélin TF-
VOR, af gerðinni Beech Twin-Bon-
anza kom til skjalanna árið 1960.
Björn stofnaði ásamt Flugfélagi Ís-
lands hf. fyrirtækið Flugþjónustuna
hf. árið 1965, gerðist framkvæmda-
stjóri þess og rak það til dauðadags.
Hann hafði nokkra flugmenn í vinnu
síðasta áratuginn sem hann lifði og
fyrirtækið gerði út nokkrar fleiri
tveggja hreyfla flugvélar
Aðstæður til flugs af því tagi sem
Björn stundaði voru svo sem gefur
að skilja oftar en ekki afar erfiðar í
fjöllóttu og strjálbyggðu landi,við
óblítt og síbreytilegt veðurfar. Út-
köllin og beiðnir um flug komu fyr-
irvaralítið, jafnt á nóttu sem á degi
og í öllum veðrum og oftar en ekki
þegar flestar aðrar bjargir voru
bannaðar. Á fyrsta áratugnum sem
Björn stundaði sjúkraflug út á lands-
byggðina voru leiðsögukerfi og stað-
setningartæki ekki jafnöflug og
örugg og síðar varð og það var ekki
heiglum hent að ráða farsællega
fram úr óvæntum og erfiðum vanda
sem sífellt steðjaði að.
Björn Pálsson var um langa hríð
náinn ráðgjafi Agnars Kofoed-Han-
sen flugmálastjóra þegar gerðar
voru og merktar flugbrautir fyrir
sjúkraflugið vítt um landið á sjötta
og sjöunda áratug aldarinnar. Í
sjúkrafluginu lenti Björn þar að auki
á fjölmörgum og ótrúlegustu stöðum
á landsbyggðinni og á mörgum
þeirra hafði flugvél aldrei lent áður
og kannski aldrei síðan.
Hinn þjóðkunni maður Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur, þekkti
land sitt einnig flestum betur og
hann lét sig ekki vanta þegar atburð-
ir urðu sem snertu náttúru Íslands.
Ótaldar voru þær ferðir sem Björn
flaug með Sigurð á vettvang slíkra
atburða og báðir mátu þeir hvor ann-
an mikils. Sigurður Þórarinsson var í
fyrirlestraferð erlendis þegar honum
bárust tíðindin af sviplegu láti
Björns og hann ritaði þá Sveini syni
hans ógleymanlegt bréf. Þar segir
m.a.:
… „Hefði ég getað aflýst fyrir-
lestri mínum sem ég átti að halda
næsta dag hefði ég gert það. Ég var
andvaka um nóttina sem ég þó sjald-
an verð. Fyrir hugskotssjónum svifu
allar þær ferðir sem ég hef átt í lofti
með föður þínum um áratugi, fyrst-
um á vettvang í hverju eldgosinu eft-
ir annað, ótal Surtseyjarferðir, fjöl-
margar ferðir til Grímsvatna. Saman
höfum við upplifað allar náttúruham-
farir sem orðið hafa hér síðustu ára-
tugina …
Ég hefi mörgum manninum
kynnst á minni ævi sem þegar er orð-
in nokkuð löng og viðburðarík, en fá-
ir hafa auðgað mitt líf meir en Björn
Pálsson. Þó að ég hafi ekki kynnst
djarfari flugmanni er mér þó jafn
ofarlega í minni hvað hann var gæt-
inn og að hann tók aldrei áhættu að
ástæðulausu, eins og hann var óhik-
andi að taka hana ef með þurfti.
Þekking hans á landinu var með ein-
dæmum og mér stöðugt aðdáunar-
efni er ég flaug með honum.“
Gjörkunnugur landinu
Björn lagði sig frá því fyrsta alveg
sérstaklega fram um að þekkja land-
ið og landslagið. Allir sem þekktu
Björn, vissu hve hann var gjörkunn-
ugur hvar sem var á landinu og
þekkti það vel, byggðir jafnt sem
óbyggðir. Athyglisgáfa hans var með
ólíkindum og ósjaldan hringdi alls
ókunnugt fólk í hann og bað hann til
dæmis um að svipast um eftir týnd-
um hestum eða fé, næst þegar hann
ætti leið yfir tiltekið svæði. Hann
lagði sig eftir að fylgjast með vexti
og viðgangi hreindýrastofnsins og
stundaði um langt árabil talningu á
þeim úr lofti á vegum menntamála-
ráðuneytisins. Einnig fylgdist hann
með beitarþoli á afréttum landsins
og hafði oft samband við bændur ef
sauðfé var tekið að safnast að girð-
ingum neðan afréttanna og svo
mætti lengi telja, því víða var áhug-
inn. Hann þekkti og skildi flestum
betur staðbundið veður- og vindafar
tengt fjöllum og landslagi, til dæmis í
dölum og fjörðum og hann var meist-
ari í að lesa í skýjafarið yfir fjöllum.
Ég leyfi mér að fullyrða, að enginn
maður annar á hans tíð hafi verið
jafnoki hans í því að staðsetja sig í
sjónflugi og rata eftir kennileitum úr
lofti séð.
Djúp og einlæg vinátta ríkti milli
Björns Pálssonar og dr. Friðriks
Einarssonar læknis. Þeir fóru oft
saman í erfitt sjúkraflug og dr. Frið-
rik rifjaði m.a. upp eina þeirra ferða í
endurminningum sínum „Læknir í
þrem löndum“.
Dr. Friðrik segir frá því að eitt
sinn er þeir voru á leið með sjúkling
frá Neskaupstað til Reykjavíkur,
birtist skyndilega skýjarof og dr.
Friðrik sá grilla í lækjarsprænu á
jörðu og segir: „Hvar skyldum við
vera núna“? Björn svarar um hæl:
„Séð hef ég skrautleg suðræn blóm,
sólvermd í hlýjum garði, áburð og
ljós og aðra virkt, enginn til þeirra
sparði. Mér var þó löngum meir í
hug, melgrasskúfurinn harði, runn-
inn upp þar sem Kaldakvísl, kemur
úr Vonarskarði?“! Vart hafði Björn
lokið þessu erindi úr Áföngum pró-
fessors Jóns Helgasonar, þegar rofið
var aftur hulið skýjum.
Öllum sem til þekktu og ekki síst
Birni Pálssyni sjálfum var það full-
ljóst að æði oft tefldi hann á tæpasta
vaðið þegar neyðin kallaði og líf
manns var í veði. Hann hélt alltaf ró
sinni og þar kom ekki aðeins sífellt
fram hin meðfædda þörf og sterkur
vilji hans að verða öðrum að liði og
hjálpa nauðstöddum, heldur einnig
mikill andlegur styrkur og áræði,
gjörþekking á landinu og aðstæðum,
heilbrigð skynsemi og sterk skap-
höfn. Allir vissu mætavel, ekki síst
hann sjálfur, að oft fór hann við slík-
ar aðstæður út fyrir takmörk starf-
rækslu venjulegs farþegaflugs og
lagði sig sjálfan sannarlega í lífs-
hættu.
Björn Pálsson flugmaður við flugvélina TF-KZA.
Flugvélin TF-LOA á Sandskeiðinu.