Morgunblaðið - 10.01.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 27
✝ Adda SigurlínaHartmanns-
dóttir fæddist í
Lyngholti á Ólafs-
firði hinn 13. janúar
1937. Hún lést á
heimili sínu að
morgni 2. janúar síð-
astliðinn. Foreldrar
Öddu voru Hart-
mann Pálsson, f. 5.1.
1908, d. 5.7. 1983, og
María Anna Magn-
úsdóttir, f. 17.11.
1909, d. 5.4. 1999.
Systkini Öddu eru
Kristín María, f. 3.12. 1929, Hall-
dóra Maggý, f. 4.3. 1931, Ásta Mar-
grét, f. 23.4. 1933, d. 24.12. 2007,
Guðrún Elín, f. 10.12. 1935, Erna
Sigurbjörg, f. 6.7. 1939, Ásdís, f.
9.1. 1945 og Haukur, f. 5.5. 1946, d.
16.5. 1946.
þeirra Hjördís, Halldór Logi, Bryn-
dís og Svandís. 4) Hartmann Páll, f.
19.1. 1969. 5) Ásdís, f. 18.4. 1970,
maki Magnús Þór Hrafnkelsson, f.
29.11. 1968, börn þeirra Sölvi Már,
Hlynur og Heiða María. 6) Auður, f.
28.11. 1973, maki Jens Letager, f.
4.1. 1972, sonur þeirra Oliver.
Adda og Halldór hófu sinn hjú-
skap í Ólafsfirði en fluttust til
Reykjavíkur árið 1971. Frá árinu
1977 bjuggu þau í Kópavogi. Sem
ung kona starfaði Adda við ýmis
störf en eftir að hún hóf hjúskap
með Halldóri var hún lengst af
heimavinnandi. Frá árinu 1983
starfaði hún á leikskólanum Kópa-
seli í Kópavogi en lauk starfsferli
sínum sem matráður á leikskól-
anum Marbakka í Kópavogi.
Útför Öddu fer fram frá Kópa-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Árið 1955 giftist
Adda Halldóri Ólafs-
syni frá Gimli í Hval-
látrum, f. 15.11. 1932.
Foreldrar hans voru
Anna Eggertsdóttir,
f. 15.4. 1894, d. 16.5.
1962, og Ólafur H.
Halldórsson, f. 1.9.
1893, d. 29.11. 1965.
Systir hans var Björg,
f. 7.11. 1927, d. 26.3.
1994. Adda og Hall-
dór eignuðust 6 börn,
þau eru: 1) Anna
María, f. 7.3. 1955. 2)
Ólafur, f. 10.1. 1957, sambýliskona
Anna Sigríður Pálmadóttir, f. 8.6.
1968, börn þeirra Adda María,
Daníel Ísak og Anna Lára, fyrir átti
Ólafur Bergþóru og Halldór. 3)
Logi, f. 14.11. 1960, maki Guðfinna
Brynjólfsdóttir, f. 22.4. 1963, börn
Elsku mamma.
Þessa vögguvísu söngstu svo oft
fyrir okkur:
Sofðu unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.
(Jóhann Sigurjónsson.)
Takk fyrir allt sem þú kenndir okk-
ur og alla hlýjuna
sem þú gafst okkur.
Anna María, Dísa og Auður.
Elsku mamma mín, nú ert þú farin
frá okkur eftir erfið veikindi. Lengi
vel héldum við í vonina um bata, jafn-
vel þegar þig þvarr kraftur. Svo kom
reiðarslagið þegar okkur var tilkynnt
að komið væri að leiðarlokum. Vonin
var farin á brott.
Ég mun ávallt muna allar góðu
stundirnar sem ég átti með þér.
Sumrin voru ætíð tilhlökkunarefni
þegar fjölskyldan lagði land undir fót
og ferðaðist vítt og breitt um landið.
Sérstaklega eru mér minnisstæðar
allar tjaldlegurnar við Miklavatn í
Fljótum og á Hvallátrum.
Ætíð ef eitthvað bjátaði á gat ég
leitað styrks hjá þér og ráða. Nú nýt
ég ekki lengur liðsinnis þíns í lífsins
ólgusjó. Tilveran mun verða þung-
bærari án þín en minninguna um þig
mun ég ávallt geyma í hjarta mínu.
Hartmann Páll.
Elsku amma.
Þú varst frábær og góð í alla staði
og varst alltaf til staðar þegar ég
þurfti þína hjálp. Það er erfitt til þess
að hugsa að fá ekki lengur að njóta
samverustunda með þér. Þú hefur
skipað stóran sess í lífi mínu og verið
minn góði vinur. En nú þegar leiðir
skilja er mér efst í huga þakklæti fyr-
ir að hafa átt þig sem ömmu og allt
sem þú varst. Guð geymi þig, elsku
amma.
Svandís Logadóttir.
Mig langar að minnast tengdamóð-
ur minnar, Öddu Sigurlínu, með
nokkrum orðum en hún lést á heimili
sínu 2. janúar sl. Frá því að ég hitti
Öddu fyrst eru nú liðin tuttugu og sjö
ár en strax við fyrstu kynni mín af
fjölskyldu piltsins, sem átti eftir að
verða eiginmaður minn, kom í ljós að
þar var á ferðinni elskuleg og sam-
hent fjölskylda sem tók mér opnum
örmum. Umhyggja og hjálpsemi voru
alla tíð einkennandi fyrir Öddu og
Dóra og á heimili þeirra átti fjölskyld-
an ómetanlegt athvarf.
Adda var einstaklega heilsteyptur
persónuleiki og hlýja og umhyggju-
semin voru ríkjandi eiginleikar í fari
hennar. Fjölskyldan átti hug hennar
allan og ást hennar á börnunum og
barnabörnunum var ótakmörkuð.
Hún fylgdist vel með hverju þeirra og
var í nánu sambandi við þau öll uns
yfir lauk. Hún gladdist með þeim þeg-
ar vel gekk og stóð með þeim þegar
móti blés.
Adda var alla tíð mjög hraust,
henni varð sjaldan misdægurt þar til
hún fékk krabbameinið, sem að lok-
um sigraði eftir rúmlega árs þrauta-
göngu. Það er gott að eiga fallegar
minningar um elskulega og hjálp-
sama tengdamóður, um allar
skemmtilegu tjaldútilegurnar, sum-
arbústaðaferðirnar og kennslustund-
irnar í handavinnu sem ég og dætur
mínar fengum að njóta. Hafðu þökk
fyrir allar góðu stundirnar, Adda mín.
Elsku tengdapabbi, Anna María, Óli,
Logi, Hartmann, Ásdís og Auður,
megi guð gefa ykkur styrk í sorginni.
Guðfinna Brynjólfsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Blessuð sé minning þín.
Kæri Dóri, Anna María, Óli, Logi,
Hartmann Páll, Dísa, Auður og fjöl-
skyldur, ykkur sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Gunnhildur.
Adda Sigurlína Hartmannsdóttir
Fleiri minningargreinar um Öddu
Sigurlínu Hartmannsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
ist honum mjög vel og eru þeim færð-
ar bestu þakkir frá ættingjum. Á af-
mælisdegi hans ár hvert hittumst við
frænkurnar og haldin var vegleg af-
mælisveisla. Það kunni hann vel að
meta og var honum mikils virði. Eftir
að hann fluttist til Reykjavíkur kom
það í hlut Gyðu systur hans og fjöl-
skyldu að aðstoða hann og eru þeim
færðar hinar bestu þakkir.
Hvíl í friði kæri frændi.
Björk Garðarsdóttir.
Mig langar í fáeinum orðum að
minnast góðs vinar sem fallinn er frá.
Gísli og pabbi voru bestu vinir og
nutum við systkinin þess í ríkum
mæli. Þegar ég var smástelpa var allt-
af tilhlökkun þegar pabbi gekk niður á
Vallargötu í heimsókn til Gísla. Alltaf
var á boðstólum Póló, Hi-spot og
tyggjó. Gísli var mjög barngóður og
börnin hændust að honum. Hann átti
alltaf fína bíla og fór oft með börnin út
að keyra. Þegar foreldrar mínir fluttu
norður keyrði Gísli þangað í heimsókn
á sumrin. Alltaf hringdi hann í pabba
einu sinni í viku eftir að mamma lést
og ef hann svaraði ekki hringdi hann í
bróður minn í næsta húsi til að vita
hvort ekki væri nú allt í lagi með hann
Braga. Hér er farinn tryggur og góð-
ur vinur sem verður sárt saknað.
Ég votta systrum hans og öðrum
aðstandendum mína dýpstu samúð.
Þorbjörg Bragadóttir.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN EINARSDÓTTIR
frá Borg,
Tunguvegi 4,
Njarðvík,
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 11. janúar kl. 14.00.
Friðrik Pétur Valdimarsson,
Ólafía Sigríður Friðriksdóttir, Birgir Vilhjálmsson,
Þórunn Friðriksdóttir, Ragnar Halldórsson,
Oddbjörg Friðriksdóttir, Erlendur Borgþórsson,
Anna Hulda Friðriksdóttir, Árni Eiðsson,
Sigrún Alda Jensdóttir, Snorri Snorrason,
Hafdís Friðriksdóttir, Árni Hjaltason,
ömmu- og langömmubörn.
✝
SIGFÚS INGIMUNDARSON
húsasmíðameistari
sem lést að morgni 22. desember á Hrafnistu í
Hafnarfirði verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði föstudaginn 11. janúar kl. 13:00.
Unnur Elísdóttir,
Bryngeir Sigfússon, Ásta Margrét Kristinsdóttir,
Jónas R. Sigfússon, Hrafnhildur Óskarsdóttir,
Guðni B. Sigfússon, Anna Margrét Björnsdóttir,
Ingólfur A. Sigfússon, Wenche Raknes,
Örn Sigfússon,
Ingimundur Sigfússon, Hjördís Árnadóttir,
Sigurjón B. Sigfússon,
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
✝
Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug
við andlát og útför okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BERGÞÓRU STEFÁNSDÓTTUR
(Lóu),
áður búsettrar á Akureyri.
Útför hennar fór fram frá Dalvíkurkirkju
mánudaginn 7. janúar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dalbæjar
fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Sigurlína Árnadóttir, Páll Sveinsson,
Áslaug Eva Árnadóttir, Hafsteinn Vilhjálmsson,
Stefán Árnason,
Sigurbjörg Árnadóttir,
Jón Árnason, Þórdís Guðmundsdóttir,
Óskar Árnason, Ásdís S. Jónasdóttir,
Kristján B. Árnason, Margrét Stefánsdóttir,
Ósk Jórunn Árnadóttir, Guðmundur H. Jónsson,
Sveinn Árnason, Margrét Guðmundsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Ástkær fósturfaðir minn, tengdafaðir og afi,
BJARNI JÓNSSON
listmálari,
Ægisíðu 101,
lést að heimili sínu þriðjudaginn 8. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erna Svala, Kristján,
Tryggvi, Ragnar og María.
✝
Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN EIRÍKSSON
bifvélavirki,
Urðarbraut 11,
Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi föstudaginn
4. janúar.
Útför hans fer fram frá Blönduóskirkju föstudaginn
11. janúar kl. 13:00.
Alda S. Theódórsdóttir,
Vigdís Björnsdóttir, Albert Stefánsson,
Eiríkur Ingi Björnsson, Kristín Guðmannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
RAGNAR LÁRUSSON
teiknari,
Grænlandsleið 43,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 31. desember, verður
jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn
11. janúar kl. 13.00.
Kristín Pálsdóttir,
Freyja Ragnarsdóttir, Örvar D. Marinósson,
Ingibjörg Ragnarsdóttir,
Kári Ragnarsson,
Kristín Lára Ragnarsdóttir, Tómas Örn Stefánsson,
Gísli Ragnarsson, Guðbjörg Ósk Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELFA VILBORG BJÖRNSDÓTTIR,
Miðholti 1,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju föstudaginn
11. janúar kl. 13.00.
Björn Birgir Ingimundarson,
Bjarnheiður Margrét Ingimundardóttir, Björgvin Sigurðsson,
Þorgils Björn Björgvinsson og Margrét Björgvinsdóttir.