Morgunblaðið - 10.01.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, jóga, botsía, útskurður, mynd-
list, vídeóstund.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, jóga, almenn
handavinna, myndlist, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð,
hádegisverður, bókband, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Lýður og harmonikkan kl. 14, guðsþjón-
usta annan hvern fimmtudag kl. 15.10.
Félag eldri borgara í Kópavogi | FEBK. Gleðigjafarnir
syngja í Gullsmára 11. janúar kl. 14. Stjórnandi Guðmundur
Magnússon. Kaffiveitingar gegn vægu gjaldi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Ekkó-kórinn æfir í
Kennaraháskólanum kl. 17. Nýjar raddir velkomnar.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55,
rammavefnaður kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30, há-
degisverður, bókband kl. 13, bingó kl. 13.45 og myndlist-
arhópur kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9, ganga kl.
10, hádegisverður, handavinna og brids kl. 13, jóga kl. 8.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Jónshús opið kl. 10-
16.30. Hægt að panta hádegismat, uppl. í síma 617-1501.
Kvenna-, karla- og vatnsleikfimi hefst í næstu viku. Skrán-
ing í önnur námskeið í Jónshúsi fr.o.m. morgundegi. Föst
námskeið hefjast 21. jan. nema gler. 17. jan.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund í samstarfi við Fella
og Hólakirkju kl. 10.30. Frá hádegi vinnustofur opnar, m.a.
myndlist umsj. Nanna Baldursd. Dagana 6.-10. febr. er
menningar- og listahátíð eldri borgara í Breiðholti tengd
Vetrarhátíð í Reykjavík, fjölbreytt dagskrá.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9, aðst. við böðun, alm.
handavinna, smíðar og útskurður. Samverustundin með
handavinnuívafi kl. 13.15, kaffiveitingar.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9-16, nýr leiðbeinandi,
Jóhanna. Botsía kl. 10, félagsvist kl. 13.30, böðun fyrir há-
degi, hádegisverður. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Hláturjóga, magadans, skapandi skrif,
ókeypis tölvukennslu, myndlist, postulínsmálun, framsögn
eða glerlist eða þá söng eða morgunandakt? Lumarðu á
nýrri hugmynd í félagsstarfið? hugmyndabankinn opinn kl.
9-16. Kynningarfundur á föstudag kl. 14. Sími 568-3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun kl. 9.30 er sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug og listasmiðja á Korpúlfsstöðum er
opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og spjall kl. 9.45,
botsía karlahópur kl. 10.30, handverks og bókastofa og
postulínsnámskeið kl. 13, kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan og handavinnustofa opin kl.
9-16, leirlist kl. 9-12, botsía kl. 10, hugmynda- og listastofa
kl. 13-16. Hárgreiðslustofa sími 588-1288. Fótaaðgerðar-
stofa sími 568-3838.
Sjálfsbjörg | Skál kl. 19, í félagsheimili Sjálfsbjargar á
höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Sjálfsbjörg – félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Skál
kl. 19, í félagsheimili Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu,
Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir og aðstoð v/
böðun. Botsía, handavinna, spænska framhald, hádegis-
verður, kóræfing, leikfimi og kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, bókband kl. 9,
morgunstund kl. 9.30, botsía kl. 10, fleiri þátttakendur
vantar. Upplestur kl. 12.30, handavinnustofan opin, spilað
kl. 13.
Kirkjustarf
Áskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, opið hús kl. 14, söng-
stund með Magnúsi organista. Klúbbur 8 og 9 ára barna
kl. 17 og TTT-starfið kl. 18.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur í umsjá dr. Sigurjóns Árna
Eyjólfssonar.
Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12, 6 9 ára starf
kl. 16-17, Meme junior kl. 19.30 21.30. www.digranes-
kirkja.is
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bænastundir
kl. 20.30 og 21.30. Prestur á staðnum og hægt er að
kveikja á bænarkerti.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12, kaffi, djús
og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára kl. 15 í Víkurskóla.
Grensáskirkja | Hversdagmessa með Þorvaldi Halldórs-
syni kl. 18. Bænin, orð Guðs og altarisganga eru uppistaða
messunnar, lögð er áhersla á að stilla töluðu máli í hóf.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgelleikur, íhugun.
Léttur málsverður í safnaðarsal á eftir.
Háteigskirkja | Íhugað í söng, bæn og lestri Guðs orðs kl.
20. Máltíð Drottins er höfð um hönd, fyrirbæn og smurn-
ing fyrir þá sem þess óska.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM kl. 20 á Holtavegi
28. Fulltrúar Hjálparstarfs kirkjunnar, Jónas Þórisson og
Bjarni Gíslason, kynna starfsemi hjálparstarfsins. Kaffi
eftir fundinn.
Kristniboðsfélag kvenna | Háaleitisbraut 58-60. Fyrsti
fundur ársins hefst með kaffi kl. 16.15. Gestur fundarins er
Margrét Hróbjartsdóttir kristniboði sem segir frá ferð
sinni til Eþíópíu. Allar konur velkomnar.
Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbænastund
kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna.
Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar.
85ára afmæli. Áttatíu ogfimm ára er í dag, 10. jan-
úar, Ragnhildur Haraldsdóttir,
Hjúkrunarheimilinu Sólvangi, 4.
hæð. Í tilefni dagsins tekur hún á
móti vinum og ættingjum á heimili
dóttur sinnar og tengdasonar milli
kl. 14 og 16, í dag, 10. janúar, í
Arnarási 12b, Garðabæ.
50ára afmæli. Auður J. Sig-urðardóttir, Eystra-
Seljalandi, verður fimmtíu ára 13.
janúar. Af því tilefni býður fjöl-
skyldan ættingjum og vinum að
gleðjast með henni í Heimalandi
laugardaginn 12. janúar frá kl. 20.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 10. janúar, 10. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.)
Félagið JCI Esja heldur í jan-úar og febrúar byrjenda-námskeið í ræðumennsku.Tómas Hafliðason er for-
seti félagsins: „JCI á Íslandi hefur
staðið fyrir ræðunámskeiðum frá því
kringum 1960. Því er óhætt að segja að
komin sé mikil reynsla á námskeiðin,
og byggist þjálfunin enn á sama vand-
aða grunninum,“ segir Tómas.
Byrjendanámskeiðið í ræðumennsku
er kennt samtals sex kvöld, kl. 20 til
22.30 í hvert skipti, tvö kvöld í viku.
Fyrsta kennslustund er 15. janúar, og
sú síðasta 10. febrúar.
„Námið er bæði bóklegt og verk-
legt,“ segir Tómas. „Í fyrsta tíma er
farið yfir grundvallaratriði ræðu-
mennsku, s.s. hvernig byggja á upp
ræðu og hvaða algengu mistök ber að
varast. Nemendur undirbúa sína eigin
ræðu fyrir næsta tíma, og í annarri
kennslustund er farið yfir fleiri góð ráð,
ræðurnar fluttar og veitt leiðsögn um
hvernig má gera betur. Um leið eru
nemendur þjálfaðir í að ná tökum á
feimni og streitu og læra leiðir til að ná
betra sambandi við áheyrendur.“
Auk þess að fá þjálfun í flutningi
skrifaðra ræðna læra nemendur einnig
að flytja tækifærisræður án blaðs.
„Námskeiðinu lýkur svo með því að
skipt er í hópa og haldin lítil keppni í
mælsku þar sem liðin njóta leiðsagnar
liðsstjóra frá JCI,“ segir Tómas. „Í
námskeiðslok fá nemendur umsögn um
eigin frammistöðu, og leiðbeiningar um
hvernig þeir geta bætt sig sem ræðu-
menn á eigin spýtur.“
JCI eru samtök ungs fólks á aldrin-
um frá 18 til 40, og starfa deildir JCI
um allt land: „JCI eru alþjóðleg samtök
ungs fólks sem á það sameiginlegt að
vilja efla leiðtoga- og samskiptahæfi-
leika sína og vaxa í starfi og leik,“ segir
Tómas. „Meðlimir JCI eru um 200.000
um allan heim, og mikið samstarf á
milli félaga JCI í ólíkum löndum.“
Ræðunámskeið JCI eru öllum opin,
og þarf ekki að gerast meðlimur í félag-
inu til að taka þátt: „Fyrir þá sem vilja
bæta getu sína enn frekar býður JCI
upp á framhaldsnámskeið í ræðu-
mennsku og ræðutækni. Einnig stend-
ur félagsmönnum til boða að sækja
námskeið JCI erlendis undir leiðsögn
heimsklassa kennara.“
Finna má nánari upplýsingar á slóð-
inni www.jciesja.org.
Menntun | Námskeið í ræðumennsku hefst hjá JCI Esju 15. janúar
Kanntu að flytja ræðu?
Tómas Hafliða-
son fæddist í
Reykjavík 1977.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1998,
B.S. gráðu í verk-
fræði frá Háskóla
Íslands 2001 og
leggur nú stund á meistaranám í iðn-
aðarverkfræði. Tómas varð forseti
JCI Esju í janúar 2007. Unnusta Tóm-
asar er Aðalheiður Sigbergsdóttir
verkfræðingur.
TVEIR ónafngreindir
íþróttamenn keppa hér í
4 x 6 kílómetra boðhlaupi
kvenna á heimsbik-
arkeppninni í skíðaskot-
fimi sem fer nú fram í
suðurhluta Bæjaralands í
Þýskalandi.
Keppt í
boðhlaupi
Reuters
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ályktun frá stjórn Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi þar sem m.a. er
fjallað um Hvalfjarðargöng, tvöföld-
un vegar á Kjalarnesi og Sunda-
braut. Í ályktuninni segir m.a.:
„Fyrir einu ári voru tryggðir fjár-
munir til að hefjast handa við und-
irbúning að tvöföldun vegarins um
Kjalarnes og tvöföldun Hvalfjarðar-
ganga. Það er því tímabært að hefj-
ast nú þegar handa við vegabætur á
Kjalarnesi þar sem þjóðvegur 1 ann-
ar ekki lengur umferð og hefur
reynst vegfarendum hættulegur.
Stjórn SSV áréttar mikilvægi
Sundabrautar fyrir höfuðborgarbúa,
Vestlendinga og landsmenn alla og
hvetur til þess að framkvæmdir við
Sundabraut hefjist að norðanverðu
frá Kjalarnesi, svo unnt sé að byrja
að nýta þá fjármuni sem þegar eru
ætlaðir til verksins.
Hvalfjarðargöng, sem fagna 10
ára afmæli sínu í ár, hafa verið ómet-
anleg lyftistöng fyrir Vesturland og
höfuðborgarsvæðið. Göngin hafa
verið fjármögnuð af notendum og er
eina umferðarmannvirkið á Íslandi
sem þannig háttar um. Nú eru teikn
á lofti að sambærileg göng á Norður-
landi um Vaðlaheiði verði fjármögn-
uð af ríkinu og skattgreiðendum öll-
um. Verði sú raunin, bresta allar
forsendur fyrir notendagjöldum í
Hvalfjarðargöngum.“
Tímabært að hefja tvöföldun
vegarins á Kjalarnesi
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á
netfangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn Senda inn
efni". Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla, Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
UMFERÐARÓHAPP varð laugar-
daginn 29. desember síðastliðinn um
klukkan 14.35 á mótum Kringlumýr-
arbrautar og Háaleitisbrautar, en
umferð þar er stjórnað með umferð-
arljósum. Lentu þar saman fólksbif-
reið af Lada-gerð, rauð að lit, sem ek-
ið var norður Kringlumýrarbraut
með fyrirhugaða akstursstefnu vest-
ur Háaleitisbraut og fólksbifreið af
gerðinni Toyota Avensis, dökkgrá að
lit, sem ekið hafði verið suður
Kringlumýrarbraut með fyrirhugaða
akstursstefnu áfram suður brautina.
Ágreiningur er uppi um stöðu um-
ferðarljósa þegar áreksturinn varð
og því eru þeir vegfarendur, sem
kunna að hafa orðið vitni að óhapp-
inu, beðnir um að hafa samband við
lögreglu í síma 444 1000.
Vitni vantar að bílslysi
MENNINGARSJÓÐUR KVENNA Á ÍSLANDI
Fyrsta úthlutun Hlaðvarpans
fer fram á morgun
ÚTHLUTUN
www.hladvarpinn.is
Fyrrverandi og núverandi Hlaðvarpakonur
hjartanlega velkomnar
11. JANÚAR kl.17 í IÐNÓ