Morgunblaðið - 10.01.2008, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2008 35
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8 úr-
ræðis, 9 bræði, 10 ung-
viði, 11 staði, 13 út,
15 ósoðið, 18 reik,
21 máttur, 22 rifa,
23 grenjar, 24 glaðvær.
Lóðrétt | 2 fiskar, 3 nirf-
ilslegi, 4 hlífði, 5 sívinn-
andi, 6 reitur, 7 sigra,
12 op, 14 pinni, 15 ræma,
16 dögg, 17 skánin,
18 herskipamergð,
19 graman, 20 groms.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 glæta, 4 hlýri, 7 tuddi, 8 ristu, 9 næm, 11 nóri,
13 hrun, 14 neita, 15 görn, 17 lund, 20 egg, 22 lifur,
23 ryðja, 24 sorti, 25 temja.
Lóðrétt: 1 gætin, 2 ældir, 3 alin, 4 harm, 5 ýmsir, 6 Iðunn,
10 æfing, 12 inn, 13 hal, 15 gulls, 16 ræfur, 18 urðum,
19 draga, 20 ergi, 21 grút.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ætlast til að fólkið þitt standi sig
jafn vel og þú. En fólk er ólíkt. Reyndu að
taka fólki á þess eigin forsendum. Í kvöld
kemur þú erfiðu verki frá sem bíður þín.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólk kemur hlaupandi í leit að ráð-
um. Sumir munu hlýða á visku þína en aðr-
ir eru bara að spyrja af gömlum vana og
nenna varla að hlusta á svarið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Er kunnátta afl? Það fer eftir
hvernig þú notar hana. Hugsaðu stórt.
Pældu í hvernig margir geta hagnast af
kunnáttunni í stað fárra. Þú gætir haft
áhrif á komandi kynslóðir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Aðlögunarhæfni er aðalsmerkið
þitt. Þú átt ekki í vandræðum með að
breyta stílnum til að hæfa núverandi að-
stæðum. Tvíburi og vog kunna að meta
það.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú hleypir heiminum framhjá í dag
og hann þakkar fyrir sig. Með öðrum orð-
um ætlast þú ekki til að neinn standist
væntingar þínar og aðrir gera engar kröf-
ur til þín.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þegar þú gerir eins vel og þú getur
ertu himinlifandi. Það er betra en pen-
ingar, betra en frægð. Ekkert jafnast á við
þig á góðum degi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Aldrei að lofa upp í ermina sína. Og
aldrei að segja aldrei. Það getur verið að
þú sért ekki hæfur til að dæma hvar tak-
mörkin liggja hjá þér. Hafðu trú á þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Kannski ertu alls ekki að
reyna að vera svalur – en fólkinu í kringum
þig finnst þú svalur. Kannski er það af því
að þú tekur gamalgróna hluti nýjum tök-
um.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ef samskipti við aðra eru hluti
af mannlegum þörfum finnst þér þú frekar
vera björn í dag. Þú ert alls ekki á útopnu
og þarft smátíma í híðinu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Taktu þátt í verkefnum annarra
og hleyptu öðrum inn í þín. Í samvinnu,
sérstaklega tveggja manna, eru afköstin
fjórum sinnum meiri.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Ef þú hræðist ekki að hafa
rangt fyrir þér, vera heimskulegur og óvin-
sæll, geturðu það sem fáir geta í dag: talað
minna og sagt meira.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þegar maður horfir á ballett langar
mann til að hoppa, teygja og snúast. Darr-
aðardans dagsins kallar á fágaða fram-
göngu hjá þér. Þú sigrast á hlutum sem þú
féllst um áður.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7
5. Bg2 Be7 6. O–O O–O 7. Rc3 Re4 8.
Bd2 d5 9. cxd5 exd5 10. Bf4 Rd7 11.
Dc2 Rxc3 12. bxc3 c5 13. Had1 Rf6
14. Be5 Dc8 15. Rg5 g6 16. Dd2 Rh5
17. Rh3 De6 18. Kh1 f6 19. Bf4 Had8
20. Be3 Bc6 21. Dc2 Hfe8 22. Hfe1
Bf8 23. Db3 c4 24. Dc2 b5 25. Bd2 a5
26. f3 f5 27. e4 fxe4 28. fxe4 dxe4 29.
Rg5 Df5 30. Hf1 Dd7 31. Be3 Bd5 32.
g4 Dxg4 33. Bh3 Dh4 34. Dg2 Bh6 35.
Hde1
Staðan kom upp á rússneska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Moskvu. Evgeny Tomashevesky
(2646) hafði svart gegn Konstantin
Sakaev (2634). 35… Rf4! 36. Bxf4
svartur hefði einnig unnið eftir 36.
Hxf4 Dxe1+. 36… e3 37. Dxd5+
Hxd5 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Ginning.
Norður
♠43
♥D106
♦ÁD1098
♣DG10
Vestur Austur
♠KD1087 ♠G965
♥754 ♥G984
♦64 ♦KG5
♣652 ♣K7
Suður
♠Á2
♥ÁK2
♦732
♣Á9843
Suður spilar 3G.
Eftir sagnirnar 1G–3G kemur út
♠K, sem sagnhafi dúkkar af rælni, en
fær svo næsta slag á ♠Á. „Eitt af þess-
um 50% geimum,“ hugsar suður og
spilar tígli á ás með þeirri áætlun að
svína fyrir laufkóng.
Vörnin hefur það fram yfir sagnhafa
að sjá strax hvort svíning gengur eða
ekki. Hér er austur með stöðuna á
hreinu. Hann veit að laufsvíningin
heppnast og gerir sér jafnframt grein
fyrir því að sagnhafi hyggst gera út á
laufið. Samningurinn stenst því nema
hægt sé að fá sagnhafa til að skipta um
skoðun. Og góð tilraun til þess er að
láta tígulkónginn undir ásinn!
Mjög líklega bítur sagnhafi á agnið –
fer heim á laufás (♣K gæti verið stak-
ur) og svínar fyrir tígulgosa. En þá
kemur gosinn upp úr kafinu og sagn-
hafi áttar sig á að hann hefur verið
hafður að ginningarfífli.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Hver er formaður Húsafriðunarnefndar sem óskaðhefur eftir friðun húsanna við Laugaveg 4 og 6?
2 Hvaða vísindatímarit telur uppgötvun Yngva Björns-sonar varðandi damm-tafl meðal þeirra merkustu á
síðasta ári?
3 Hver er þjálfari landsliðs karla í handknattleik?
4 Hver var á þriðjudag tímabundið skipaður forstöðu-maður fangelsisins á Litla-Hrauni?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Kona hefur boðist
til að endurbyggja
Laugaveg 4 og 6 á
eigin kostnað á sínum
stað eða annars stað-
ar. Hvað heitir konan?
Svar: Anna Sigurlaug
Pálsdóttir. 2. Nýr
stjórnandi Útvarps-
leikhússins hefur ver-
ið ráðinn. Hver er
hann? Svar: Viðar
Eggertsson. 3. Hjón á Suðurlandi fögnuðu stór-brúðkaups-
afmæli. Hversu lengi hafa þau verið gift? Svar: Í 70 ár. 4. Frægur
kvikmyndaleikstjóri hyggst gera kvikmynd um leiðtogafundinn í
Höfða. Hver er leikstjórinn? Svar: Ridley Scott.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
Þróunarsamvinnustofnun Íslands
hefur á síðustu mánuðum afhent
fjórar þjónustumiðstöðvar við
löndunarstaði á Srí Lanka en
byggingarnar eru hluti af þróun-
araðstoð við fiskimannasamfélög á
eyjunni. Kvenfélög hafa í auknum
mæli tekið að sér rekstur mið-
stöðvanna.
Á dögunum var afhent þjón-
ustumiðstöð í Ulhitiya, sú fjórða
af tuttugu og fimm sambærilegum
miðstöðvum sem reistar eru á veg-
um Þróunarsamvinnustofnunar. Í
þjónustumiðstöðvunum er aðstaða
fyrir skrifstofu samvinnufélags
fiskimanna, aðstaða fyrir funda-
höld, skrifstofa veiðieftirlitsmanns
og rými fyrir veiðarfæraaðgerðir.
Í byggingunni er neysluhæft
drykkjarvatn, rafmagn og salern-
isaðstaða. Öflug frjáls félagasam-
tök á Srí Lanka sem nefnast
Sewalanka hafa í samstarfi við
Þróunarsamvinnustofnun tekið að
sér að vinna með íbúum fiski-
mannasamfélaganna að nýtingu á
þjónustumiðstöðvunum, styðja
íbúana til sjálfshjálpar og styrkja
innviði og mannauð samfélaganna.
Dagamunur Efnt var til hátíðahalda í fiskimannasamfélaginu í Ulhitiya í
tilefni af afhendingunni. Þjónustumiðstöðin er lengst til hægri.
Fiskimanna-
samfélag
fær þjón-
ustumiðstöð Í VINDÁSHLÍÐ í Kjós verður boð-ið upp á fræðandi helgardvöl dag-
ana 1.-3. febrúar annars vegar og
15.-17. febrúar hins vegar þegar
vetrarfrí eru í mörgum grunn-
skólum landsins. Sérfræðingur á
sviði uppeldismála flytur upp-
byggjandi fyrirlestra um samskipti
í fjölskyldum, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Verð er krónur 5.900 á mann,
ókeypis fyrir börn yngri en þriggja
ára. Hámarksverð á fjölskyldu er
23.000 krónur. Innifalið er matur,
gisting og öll dagskrá.
Nánari upplýsingar um dagskrá
má finna á www.kfum.is og í síma
699 1056. Skráning fer fram á
Holtavegi 28, Reykjavík og í síma
588 8899.
Síðustu skráningardagar eru 29.
janúar og 12. febrúar eða meðan
húsrúm leyfir.
Fjölskyldan
í vetrarfrí í
Vindáshlíð