Morgunblaðið - 10.01.2008, Síða 44
KALLA þurfti til lögreglu við
grunnskóla í Reykjavík eftir há-
degið í fyrradag. Þá hafði nemandi
á unglingsaldri veist að einum
kennara skólans og veitt honum
áverka.
Að sögn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu skakkaði lögreglu-
maðurinn sem kom á staðinn leik-
inn. Haft var samband við föður
nemandans sem kom í skólann og
sótti hann. Í skýrslu lögreglu-
mannsins kom fram að áverkarnir
hefðu verið minniháttar.
Veittist að
kennara
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 10. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Óvissa um viðræður
Mikil óvissa er um framgang
kjaraviðræðna á almenna vinnu-
markaðinum og Flóabandalagið,
sem samanstendur af Eflingu,
Verkalýðsfélagi Keflavíkur og Hlíf,
samþykkti á fjölmennum fundi í
gærkvöldi að vísa kjaradeilunni til
ríkissáttasemjara. » Forsíða
Vísitala upp á við
Lengi vel stefndi í að metlækkun
yrði í kauphöllinni í gær en þegar
langt var liðið á daginn nam lækkun
dagsins 5,8%. Stuttu fyrir lokun tók
úrvalsvísitalan hins vegar kipp upp á
við og varð niðurstaðan 3,3% lækk-
un. Tilkynning barst síðdegis frá
Gnúpi fjárfestingarfélagi þess efnis
að félagið hefði náð samningum við
lánardrottna sína og selt helstu
eignir sínar, þ.m.t. stóran hlut í FL
Group. » Forsíða
Gagnrýna ákvörðun Árna
Dómnefnd, sem mat hæfni um-
sækjenda um embætti dómara við
Héraðsdóm Norðurlands, segir
ákvörðun setts dómsmálaráðherra,
Árna Mathiesen, ómálefnalega og
langt utan þeirra marka sem
ákvörðunarvaldinu séu sett. » 8
SKOÐANIR»
Staksteinar: Af friðun, húsum og …
Forystugreinar: Hrun eða raunsæi?
Nefndin, sem sagði ekki af sér
Ljósvaki: Al-Jazeera í hópi … bestu
UMRÆÐAN»
Ríkisstjórnin stikkfrí – launamenn …
Deilur um skipan dómara veikja …
Stjórnmálamenn og þeirra nánustu
Reykjavík brennur
Hrunið heldur áfram í kauphöll
Hrávöruviðskiptum of lítið sinnt
Með útsýni yfir Mumbai af 60. hæð
Lækkun leikur eignir Existu grátt
VIÐSKIPTI »
4!!
4&
4! &4
4 &&4 & 5%" ",6'%/#"+#,
7%#$"#"#$&#
4&
4!
4 4! &4
4
&&4 & 4
."8 2 '
4&
4
4!!
&4!
4!
&&4!
& 9:;;<=>
'?@=;>A7'BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA'88=EA<
A:='88=EA<
'FA'88=EA<
'3>''AG=<A8>
H<B<A'8?H@A
'9=
@3=<
7@A7>'3+'>?<;<
Heitast 3°C | Kaldast -5°C
Norðaustlæg átt, 8-
13 m/s. Skýjað að
mestu og sums staðar
dálítil él, einkum úti
við ströndina » 10
Fátt nýtt er á Tón-
listanum enda gætir
timburmanna í ís-
lenskri plötusölu um
þessar mundir eftir
jólasöluna. » 41
TÓNLIST»
Tón- og
lagalistinn
LEIKLIST»
Halldór Gylfa leikstýrir
Star Wars-söngleik. » 36
Helgi Snær Sigurðs-
son varð ekki mikils
vísari um ævi og
störf Bobs Dylans
eftir að hafa séð I’m
not there. » 39
AF LISTUM»
Bob Dylan
var ekki þar
MYNDLIST»
Ingirafn er með sýningu
í D-salnum. » 38
FÓLK»
Viktoría valin verst
klædda konan. » 40
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Skilur ekki hvað Vilhjálmi …
2. Gáfu tárin Clinton byr …?
3. Ákærður fyrir peningaþvætti
4. Fækkar um 650 í …?
ÞRÍR íslenskir
ökuþórar verða á
kappakst-
ursbrautunum í
Englandi í sum-
ar. Táningarnir
Kristján Einar
Kristjánsson og
Viktor Þór Jen-
sen munu vænt-
anlega mætast í
formúlu-3 kapp-
akstri og Jón Ingi Þorvaldsson ætl-
ar að reyna á ný fyrir sér í Palmer
Audi-formúlunni. Kristján Einar er
þessar vikurnar á Nýja-Sjálandi við
æfingar og keppni. | Íþróttir
Þrír keppa í
formúlunni
Kristján Einar
Kristjánsson
SÖLUMET var sett í gær hjá Leik-
félagi Akureyrar þegar forsala
miða hófst á sýninguna Fló á skinni,
sem frumsýnd verður 8. febrúar.
Alls seldust um 3.000 miðar og er
uppselt á fyrstu 15 sýningarnar.
Aldrei hafa fleiri miðar verið seldir
á einum degi hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar. Fló á skinni er einn vinsæl-
asti farsi allra tíma en hann birtist
á sviði LA í nýrri leikgerð Gísla
Rúnars Jónssonar og leikstjóri er
María Sigurðardóttir sem meðal
annars leikstýrði Sex í sveit hjá
Borgarleikhúsinu.
Hljómsveitin Sprengjuhöllin hef-
ur verið fengin til að semja tónlist-
ina við sýninguna. | 43
Enn sölumet
hjá LA MATTHÍAS Benjamínsson, sem er aðeins þriggja ára,
steig sín fyrstu opinberu spor í söngnámi í gær, þegar
hann innritaðist í Krúttakór Langholtskirkju. Hann er
jafnframt 1.000 barnið sem innritast í Kórskóla Lang-
holtskirkju, en svo skemmtilega vill til að móðir hans,
Harpa Barkardóttir, var nemandi númer 164 og syngur
nú í Graduale Nobili kór kirkjunnar.
Kórskóli Langholtskirkju tók til starfa haustið 1991.
Jón Stefánsson, organleikari, segir að nú séu 146 börn
og unglingar í skólanum, sem skiptist í Krúttakór fyrir
4 til 7 ára, Kórskóla fyrir 7 til 10 ára, Graduale Futuri
fyrir 10 til 14 ára, Drengjakór Langholtskirkju og
Gradualekór Langholtskirkju fyrir 14 til 18 ára.
Jón Stefánsson segir að þó kórinn sé ekki gamall séu
börn þegar farin að feta í fótspor foreldra sinna og
Matthías, sem er lengst til hægri á myndinni, sé því
ekki sá fyrsti. Krakkarnir séu mjög áhugasamir. Þeir
yngstu mæti einu sinni í viku og leiki við hvern sinn
fingur, en álagið tvöfaldist við sjö ára aldur og þá fái
börnin einstaklingsbundna raddþjálfun og tónfræði.
Þúsundasta krúttið í kórinn
Fetar í fótspor mömmu í Krúttakór Langholtskirkju
Morgunblaðið/Ómar
Spenna Matthías Benjamínsson, lengst til hægri, með nokkrum kórfélögum sínum í Langholtskirkju í gær.
♦♦♦
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„VIÐ LEITUM að röskum fé-
lagsráðgjafa til afleysinga í 3-4
mánuði,“ sagði í atvinnuauglýsingu
á vegum Félagsþjónustu Hafn-
arfjarðar sem birt var í desem-
bermánuði, bæði í prentmiðlum og
á vefsíðu Hafnarfjarðarbæjar.
Orðalagið þótti Stöðugildanefnd
Félagsráðgjafafélags Íslands ótækt
og niðrandi og var sent kvört-
unarbréf til forstöðumanns Fé-
lagsþjónustunnar á þriðjudag.
Hann auglýsir að nýju eftir ráð-
gjafa í næstu viku en mun ekki
breyta orðalaginu. Aftur verður
auglýst eftir röskum einstaklingi.
Sæmundur Hafsteinsson, for-
stöðumaður Félagsþjónustunnar í
Hafnarfirði, segir að í bréfinu hafi
nefndin lýst óánægju sinni með
niðrandi orðalag í auglýsingunni og
var þar átt við lýsingarorðið rösk-
ur. Sæmundur segir það á margan
hátt merkilegt, ekki síst út frá mál-
tilfinningu og þróun tungumálsins,
og á von á því að orðið verði notað í
auknum mæli á vinnustaðnum í
kjölfarið.
Formaður nefndarinnar vildi
ekki tjá sig um málið en benti á for-
mann Félagsráðgjafafélagsins. Páll
Ólafsson, formaður, segir að stjórn-
in hafi ekki gert athugasemd við
auglýsinguna en nefndir félagsins
séu sjálfstæðar og Stöðugildanefnd
eigi í raun að hafa skoðun á slíkum
auglýsingum. „Kjarninn í því sem
Stöðugildanefnd bendir á er að
ekki er auglýst eftir röskum sál-
fræðingi eða röskum lækni. Af
hverju ætti þá að óska eftir röskum
félagsráðgjafa?“
Slæmt að vera röskur?
Óskað eftir röskum félagsráðgjafa Stöðugildanefnd
Félagsráðgjafafélagsins taldi orðalagið niðrandi og kvartaði
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt íslenskri orðabókmerkir röskur að vera ötull,
vaskur, hvatur, snar, duglegur
og tápmikill.
»Spurningin er hvort það hæfifagstéttum að auglýst sé eftir
röskum starfsmanni, s.s. röskum
héraðsdómara.