Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 2

Morgunblaðið - 20.01.2008, Side 2
2 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÞÓTT nóg sé af snjó á höfuðborg- arsvæðinu tókst ekki að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum í vikunni. Mannekla háði skíðasvæðinu en þótt margir hafi boðið sig fram til aukastarfa vantar enn fast starfs- fólk. Magnús Árnason, fram- kvæmdastjóri skíðasvæðisins, seg- ir að til að hægt eigi að vera að reka svæðið með góðu móti þurfi 10 til 13 manns að vera í fastri vinnu við skíðalyfturnar. Þeir séu nú þrír. „Ég get með herkjum opn- að eina skíðalyftu með mínu fasta fólki.“ Nokkuð af fólki var við vinnu á skíðasvæðinu í gær en flest er ekki fastir starfsmenn. „Auka- fólkið kemst þegar það kemst en þá er mjög erfitt að manna virka daga og kvöldin. Kannski auðveld- ara um helgar.“ Verið er að leggja lokahönd á þjónustusamning um uppsetningu og rekstur snjóframleiðslukerfis í Bláfjöllum en slíkt gæti fjölgað verulega þeim dögum sem opið væri. Er sú framkvæmd næsta skrefið í uppbyggingu svæðisins. Magnús segir að forsenda þess að hægt verði að framleiða snjó í Bláfjöllum sé að setja upp snjó- girðingar til að minnka fok. Þær verði reistar í sumar, burtséð frá því hvort ákveðið verði að hefja snjóframleiðslu á skíðasvæðinu. Þrír fastamenn í Bláfjöllum Lokað í Skálafelli og skert starf- semi í Bláfjöllum Árvakur/Árni Sæberg Lokað Mannekla kemur í veg fyrir að fleiri lyftur í Bláfjöllum séu opnar. Í HNOTSKURN »Skyndilokun var í Bláfjöll-um í gær vegna hvassviðris en þá stefndi í að veður yrði gott í dag, sunnudag. »Þar til mönnunarmál batnaí Bláfjöllum verður lokað í Skálafelli. „VIÐ leggjum höfuðáherslu á að Frístundakortinu er ætlað að auka jöfnuð meðal barna og ung- linga í borginni varðandi þátt- töku í skipulögðu félags-, menn- ingar, og íþróttastarfi,“ segir Sólveig Valgeirsdóttir, verk- efnastjóri Frístundakorts hjá ÍTR. Nýtt tímabil kortsins er nú hafið og mun upphæðin tvöfald- ast og nemur nú 25.000 krónum á barn. Nú er unnið að því að kynna kortið í hverfum borgarinnar og verður ýmsum verkefnum hrund- ið af stað, meðal annars aukinni kynningu á meðal innflytjenda. Sólveig og Björn Ingi Hrafnsson, formaður ÍTR, hittu félaga úr sundfélaginu Ægi við Laug- ardalslaugina í gær, en nærri all- ir félagar Ægis nýttu sér Frí- stundakortið á síðasta ári. Árvakur/G. Rúnar Frístunda- kortin jafna tækifærin Upphæð styrks ÍTR til frístundastarfs barna í Reykjavík tvöfaldast TÖLUVERÐ umræða fer nú fram um hvað gera megi við húsin á Laugavegi 4-6 gangi friðun þeirra eftir. Björn G. Björnsson, leik- mynda- og búningahönnuður og stjórnarmaður Leikminjasafns Ís- lands, hefur viðrað þá hugmynd að Laugavegur 6 gæti verið kjörin stað- setning fyrir Leikminjasafnið. „Leikminjasöfn eru með skemmti- legustu söfnum hvarvetna,“ segir Björn og nefnir söfn í Englandi og Finnlandi sem dæmi. „Þar fær skóla- fólk innsýn í sögu sviðslista, börn fá að bregða sér í búninga og gervi og haldið er úti margvíslegri og fróð- legri starfsemi með útgáfu, sýning- um og annarri miðlun.“ Lifandi miðl- un og lítið kaffihús með nýtingu á bakgarði hússins gæti skapað mikla og góða stemningu á svæðinu. „Ís- lendingar halda alltaf að söfn þurfi að vera leiðinleg en svo þarf ekki að vera.“ Nýlega hafi verið fjallað um að Stefanía Guðmundsdóttir, ein fremsta leikkona Íslendinga, hefði fæðst í húsinu og aðrir frægir leik- arar úr leiklistarsögu Íslands ættu margvísleg tengsl við húsið. Hefur Björn viðrað hugmyndina við ýmsa innan borgarkerfisins og fengið jákvæð viðbrögð. Vill Leikminja- safnið í húsið Íslendingar van- meta lífið sem getur fylgt söfnum Árvakur/Ómar Safn? Var búð, gæti orðið safn. „ÉG TEK undir það að það þarf að auka gæða- eftirlit og gæðakröfur í skólunum,“ segir Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra um þá niðurstöðu stjórnsýsluúttektar Ríkis- endurskoðunar á Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga og grunnskólunum, að gæða- eftirliti sé ábótavant í skól- unum. „Það er alveg ljóst og ég hef sagt það að mikilvæg- asta hlutverkið núna í ráðu- neytinu er gæðaeftirlitið og það á að auka það á öllum stigum. Það höfum við verið að gera á rannsóknarstiginu og á framhalds- skólastiginu og þurfum að gera það á grunn- skólastiginu. Á þessu er einmitt meðal annars verið að taka í nýjum frumvörpum sem eru til með- ferðar í þinginu, í grunnskólafrumvarpinu og framhaldsskólafrumvarpinu. Þetta er alveg í takt við það sem ég hef verið að segja. Við erum að fjárfesta mjög mikið í kerfinu. Bæði sveitarfélögin og ríkið og allir sem koma að skólakerfinu hafa mikinn metnað til að fá sem mest út úr því þannig að við verðum á meðal fremstu þjóða í heimi varðandi mennt- un, nýsköpun og þekkingu. Þá þurfum við að hafa og koma upp öflugu eftirlitskerfi og það er hægt að gera með margvíslegum hætti.“ Ekkert ferli fyrir hendi til að grípa inn í Í úttekt Ríkisendurskoðunar segir að vís- bendingar séu um að fáeinir grunnskólar skeri sig úr að því leyti að árangur nemanda sé end- urtekið langt undir meðaltali og að þrátt fyrir eftirlitsskyldu menntamálaráðuneytisins sam- kvæmt lögum sé ekkert ferli fyrir hendi sem grípi inn í þegar ástæða sé til. Jöfnunarsjóð- urinn geti nýst til að styrkja það ferli. Einkar mikilvægt að auka gæðaeftirlit Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir KRISTJÁN Möller sam- gönguráðherra ætlar ekki að tjá sig um ólíka afstöðu Vegagerðarinnar og meirihlutans í borg- arstjórn Reykjavíkur til þess hvaða leið skuli far- in við lagningu Sunda- brautar, að sögn aðstoð- armanns hans, Róberts Marshall. Ráðherrann gæti ekki tjáð sig um mál sem hann ætti eftir að úrskurða um. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær er Vegagerðin hlynnt svokallaðri eyjalausn sem talin er níu milljörðum króna ódýrari en að leggja hluta Sunda- brautar í jarðgöng. Vill ekki tjá sig um Sundabraut Kristján Möller FARSÍMAFYRIRTÆKIÐ Nova telur aug- ljóst að Síminn hafi brotið samkeppnislög og reyni að hindra innkomu Nova á íslenskan far- símamarkað. Hefur fyrirtækið kært Símann til Samkeppnis- eftirlitsins fyrir brot á sam- keppnislögum. Tilefni kærunnar er hækkun Símans á verði á símtölum frá viðskiptavinum Símans í far- símakerfi NOVA. Vísar fyrir- tækið til 11. gr. samkeppnislaga í kærunni á hendur Símanum. Telur Nova að með því að hækka verð á símtölum til eins samkeppnisaðila brjóti Síminn samkeppnislög. Byggist kæran á ákvæði sam- keppnislaga um bann við samkeppnishömlum. Segir í tilkynningu frá Nova að Síminn telji sér augljóslega ógnað með innkomu Nova á mark- að og beiti markaðsráðandi stöðu sinni á ólög- mætan hátt til að hindra nýja samkeppni. Far- símamarkaðurinn á Íslandi hafi til þessa einkennst af stöðnun og hárri verðlagningu. Innkoma Nova hafi aftur á móti nú þegar haft áhrif til hins betra. Sérlega alvarlegt Telur fyrirtækið brot Símans vera sérlega alvarlegt í ljósi þess að þegar Síminn tilkynnti verð- hækkun sína í farsímakerfi Nova hafi Síminn látið í veðri vaka að Nova réði þeirri verðlagningu. Síminn geti ekki skýlt sér á bak við samkeppnisaðila þegar fyrir- tækið ákveður að hækka verð til eigin viðskiptavina og mismuna aðilum á mark- aði. Verðhækkun Símans sem vísað er til í kær- unni tók gildi 15. desember 2007 en Nova kom inn á íslenska farsímamarkaðinn tveimur vik- um fyrr. Nova kærir Símann Telja Símann reyna að hindra innkomu Nova á far- símamarkaðinn og brjóta þannig samkeppnislög AÐSTOÐA þurfti ökumenn nokkurra bif- reiða á Melrakkasléttu aðfaranótt laug- ardags, eftir mikinn skafrenning á veg- unum. Að sögn lögreglunnar á Húsavík þurfti að aðstoða ökumenn á leiðinni til Raufarhafnar og Þórshafnar sem urðu strandaglópar í ófærðinni og voru nokkrir bílar skildir eftir á vegunum. Fastir í blindhríð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.