Morgunblaðið - 20.01.2008, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að hefur löngum verið vitað að
Olof Palme starfaði á árum sínum
í stúdentapólitíkinni talsvert með
Bandaríkjamönnum og sam-
kvæmt skjölum sem leynd hefur
verið létt af og sænska dagblaðið Dagens
Nyheter hefur fjallað um, lét Palme á fimmta
og sjötta áratugnum Bandaríkjamönnum í té
upplýsingar um róttæk stúdentafélög í Evr-
ópu og sænska róttæklinga, þ.á m. gaf hann
Bandaríkjamönnum upp nöfn þriggja
sænskra róttæklinga. Hann hafði frumkvæði
að stofnun alþjóðlegra sósíaldemókratískra og
andkommúnískra stúdentasamtaka og studdi
CIA stofnun þeirra og vildi fá Palme til for-
ystu, en því hafnaði hann þar sem hugur hans
stóð til stjórnmálafskipta á heimavelli. CIA
fjármagnaði starfsemi alþjóðlegu stúdenta-
samtakanna að stórum hluta en Palme sagði
síðar að honum hefði verið ókunnugt um fjár-
hagsstuðning CIA. En svo vel leizt forráða-
mönnum CIA á unga Svíann að þeir vildu fá
hann í sínar raðir, en Palme afþakkaði.
Palme dvaldi í Bandaríkjunum 1948 en
hann hafði þá þegar átt samstarf við banda-
ríska leyniþjónustumenn um athuganir á rót-
tækum stúdentafélögum í Evrópu, m.a.
Þýzkalandi. Hann gaf líka sænskum yfirvöld-
um skýrslur um ferðir sínar utanlands.
Palme hreifst af mörgu í fari Bandaríkja-
manna og var um leið einlægur andstæðingur
kommúnista. Þegar hann sneri heim frá
Bandaríkjunum gerðist hann talsmaður þess
að stofna andkommúníska stúdentahreyfingu
og á stúdentaþingi í Prag skynjaði hann að
tíminn væri kominn fyrir sósíaldemókratísk
stúdentasamtök. Palme lýsti þinginu í Prag
sem einhliða kommúnískum áróðri þar sem
þingfulltrúar spruttu á fætur í hvert sinn sem
nafn Stalíns var nefnt! Sjálfur sat hann sem
fastast. Strax eftir heimkomuna skrifaði hann
greinar um Pragþingið í sænsk blöð og vöktu
þær mikla athygli; m.a. voru þær lesnar í
heild í útvarpsstöðinni Voice of America sem
sendi út um Austur-Evrópublokkina.
Nefndi þrjá af sjö
sænskum fulltrúum
Haustið 1950 hittust þeir Robert F. Wo-
odward, starfsmaður bandaríska sendiráðsins
í Stokkhólmi, og Palme, þá 23ja ára. Það er á
þessum fundi sem Palme nafngreinir þrjá
Svía, sem sóttu Pragþingið, en bar við
gleymsku um nöfn hinna fjögurra. Þeir sem
Palme nafngreindi voru allir félagar í róttæka
félaginu Clarté; Gunnar Claesson, Gunnar
Svantesson og Hans Göran Franck. Það eru
þessar upplýsingar sem hafa legið í láginni
þar til leyndinni var nýlega létt af skjali þar
sem þær eru tíundaðar.
Í grein Dagens Nyheter segir að Hans
Göran Franck hafi um 1950 haft kommúnísk-
ar tilhneigingar og ekki verið félagi í sósíal-
demókratíska flokknum, sem hann síðar sat á
þingi fyrir. 1968 var hann nefndur eitt af
dómsmálaráðherraefnum sósíaldemókrata.
Gunnar Claesson var á þessum tíma ritari
Clarté og skrifaði í Ny dag með lögfræði-
námi.
Gunnar Svantesson var læknir í Uppsölum
og um hann eru nákvæmustu upplýsingarnar
í skýrslu bandaríska sendiráðsins í Stokk-
hólmi. Ekkju Svantesson, Helena Zymler,
sem er pólskur gyðingur, var illa brugðið,
þegar Dagens Nyheter sagði henni frá því að
Palme hefði nefnt mann hennar við fulltrúa
bandaríska sendiráðsins og það hefði beint at-
hygli Bandaríkjamanna að þeim hjónum.
Kjell Österberg, prófessor í samtímasögu
við Södertörns-háskóla og höfundur vænt-
anlegrar ævisögu Palme, bendir á að það sé
athyglisvert að Palme nefni bara þrjú nöfn
við bandaríska sendiráðsstarfsmanninn, en
vafalaust hefur hann þekkt til hinna líka; í
þeim hópi var Ingjerd Lindgaard-Franck,
eiginkona Göran Franck. Palme hefur hins
vegar talið nóg að fylgjast með þremenning-
unum og þess vegna þagað um hina.
Ingjerd Lindgaard-Franck segir í samtali
við Dagens Nyheter að hún muni vel eftir
Palme frá þinginu í Prag. Hann hafi haft mik-
il áhrif á fólk og hún hafi trúað því að hann
væri góður maður. Hún segist hafa tekið
morðið á honum ákaflega nærri sér. Um sam-
band hans við bandaríska sendiráðið, segir
hún að það sé erfitt að meta umfang þess en
líta verði á hlutina í spegli tímans. Svipuð um-
mæli hefur Dagens Nyheter eftir Kjell Öster-
berg sem segir að líta verði á nafngjöf Palme
í ljósi kalda stríðsins.
Eftir stendur að Palme átti náið samstarf
við Bandaríkjamenn en var ekki CIA-njósn-
ari. Hann var fyrst og fremst Svíi og mátaði
alla hluti við sjálfan sig og land sitt. En það
að hann skyldi gefa Bandaríkjamönnum upp
nöfn þriggja Svía hefur farið misjafnlega í
menn þótt margir bendi á sem málsbætur það
andrúmsloft sem kalda stríðið skóp.
Gekk fremstur gegn
stríðinu í Víetnam
En Bandaríkjamenn áttu eftir að líta Palme
öðrum augum. 1968, þegar Palme var orðinn
menntamálaráðherra, fór hann í fylkingar-
brjósti göngu í Stokkhólmi gegn stríðsrekstri
Bandaríkjamanna í Víetnam og gekk þá við
hlið sendiherra Norður-Víetnams í Moskvu..
Þau spor Palme fóru mjög fyrir brjóstið á
Bandaríkjamönnum og kældu samband land-
anna; Bandaríkjamenn kölluðu sendiherra
sinn heim til skrafs og ráðagerða og stöðvuðu
útflutning á hergögnum til Svíþjóðar. Síðar
meir varð Palme formaður sósíaldemókrata
og forsætisráðherra 1969-76 og 1982-86.
Palme var vinsæll stjórnmálamaður heima
fyrir, en umdeildur sem og erlendis. Hann
var myrtur á götu í Stokkhólmi þegar þau
hjónin komu úr kvikmyndahúsi 28. febrúar
1986.
Sagði til róttækra Svía
Bauðst njósnara-
staða hjá CIA
en hafnaði henni
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Forystumaður Olof Palme kom til Íslands, m.a. á Norðurlandaráðsfundi og fundi forsætisráð-
herra Norðurlanda. Þá tók Ólafur K. Magnússon þessa ljósmynd.
UPPLJÓSTRANIR»
Í HNOTSKURN
» Olof Palme varð forystumaður ístúdentapólitík sænskra sósíal-
demókrata og vann að því að stofna al-
þjóðlegt sósíaldemókratískt stúdenta-
samband til mótvægis við kommúnista.
Hann hafnaði því að vera þar í forystu
því hann ætlaði sér pólitískan frama í
heimalandi sínu.
» Palme var menntamálaráðherra ogsíðar forætisráðherra 1969-76 og
1982-86, þegar hann var myrtur á götu í
Stokkólmi.
»Skjöl sem leyndinni hefur verið léttaf sýna að Palme átti náið samstarf
við Bandaríkjamenn í stúdentapólitíkinni
en hafnaði því að gerast njósnari CIA.
Hann var fyrst og fremst Svíi og mátaði
alla hluti við sjálfan sig og land sitt.
»Palme bakaði sér ónáð Bandaríkja-manna þegar hann 1968 tók þátt í
mótmælagöngu í Stokkhólmi gegn stríðs-
rekstri Bandaríkjamanna í Víetnem.
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson
audur@jonsdottir.com og totil@totil.com
T
ískugúrúar vilja nú klæða okkur í
umhverfisvæn föt, sagði Auður
með áherslu.
Þýðir það að við getum borðað
fötin okkar í framtíðinni? spurði
Þórarinn og leit græðgislega upp úr tölvunni.
Það er ekki svo gott, svaraði hún. En af
Politiken.dk að dæma verður í framtíðinni
hægt að velja sömu flík í mismunandi um-
hverfisvænum útgáfum með lítils háttar verð-
muni. Á sama hátt og við veljum nú úr mis-
munandi smjöri í kjörbúðum.
Hann yppti öxlum og spurði hvort fólk héldi
ekki bara áfram að kaupa það sem væri óhollt
og ódýrt – líkt og vanalega. Hún áleit það full-
mikla svartsýni í honum og benti á að meðvit-
und um umhverfið færi óðum vaxandi á Vest-
urlöndum.
Þessi meðvitund getur farið út í öfgar, full-
yrti Þórarinn. Ibyen.dk segir frá því að rót-
tæklingarnir í Enhedslisten í Kaupmannahöfn
vilji banna útihitalampa sem hefur fjölgað
stórkostlega eftir að reykingar voru bannaðar
inni á veitingastöðum. Þeir eru víst óumhverf-
isvænir og eyða mikilli orku. Einhver myndi
segja að forræðishyggja hinna grænu væri
komin á hættulegt stig.
Kannski, sagði Auður. Á móti kemur að
þessi útilampamenning eyðir sér að öllum lík-
indum sjálf þar sem veitingamenn hafa upp-
götvað að það þarf að selja ansi marga kaffi-
bolla til að lamparnir borgi sig. Því miður.
Þórarinn setti upp spekingssvip þegar hann
sagði: Auðvitað þurfa hlutirnir að sanna sig
sjálfir, forræðishyggja er stórvarasöm að mínu
viti og hættulegt að rembast við að stjórna
öllu. Hundavinur í Norðvestur-Þýskalandi
komst að þeirri niðurstöðu um daginn. Spie-
gel.de/international greinir frá því að þessi 47
ára ógæfumaður hafi drukkið ótæpilega marga
bjóra og fengið þá flugu í höfuðið að kenna
hundi vinar síns hver réði í heimi hér. Hann
gerði sér lítið fyrir, lagðist á fjórar lappir á
gólfið og gæddi sér á hundamat hvuttans sem
varð að vonum furðu lostinn. Náttúrlega brást
hann heldur illa við uppátækinu og beit andlit-
ið því sem næst af aumingja manninum.
Hrelld á svip sagði Auður: Guardian.co.uk
fjallar einmitt um yfirvöld sem skirrast ekki
við að sýna vandræðaunglingum hver ræður.
Þýskur afbrotaunglingur var nýlega sendur til
Síberíu í endurmenntun. Honum var komið
fyrir í vinnubúðum í ömurlegu þorpi sem kall-
ast Sedelnikovo og tekur marga klukkutíma að
heimsækja á bíl frá borginni Omsk. Þarna
verður hann að dúsa í níu mánuði, netlaus og
allslaus sem hlýtur að vera ansi erfitt fyrir nú-
tímaungling. Fylkisstjórnin í Hessen í Þýska-
landi segir þetta vera örþrifaráð til að koma
pörupiltinum á réttan kjöl. Undanfarið hafa
hundruð annarra unglinga verið send til staða
eins og Grikklands og Kyrgyzstan.
Nú rak Þórarinn upp stór augu. Það er ein-
mitt í Hessen sem fylkisstjórinn og kristilegi
demókratinn Roland Koch hefur gert allt vit-
laust í baráttu sinni fyrir endurkjöri 27. janúar
næstkomandi, sagði hann. Spiegel.de/
international greinir frá því að Koch vilji
senda alla unga innflytjendur sem hafa brotið
af sér til Síberíu, enda séu þeir ábyrgir fyrir
u.þ.b. helmingi allra afbrota í Hessen. Þessi
uppástunga hans tryllti stjórnarandstöðuna og
Angela Merkel kanslari þurfti að boða til
fréttamannafundar í hvelli til að breiða klæði á
vopnin.
Kímin sagið Auður: Aftenposten.no fjallar
líka um fólk í framboði. Því er slegið upp að
Barack Obama hafi 80 sinnum ráðist persónu-
lega á Hillary Clinton í kosningabaráttu demó-
krata í Bandaríkjunum – samkvæmt eig-
inmanni Hillary, Bill Clinton. Súrt
andrúmsloft, að mati frænda okkar Norð-
manna. Greininni fylgir nokkuð kostuleg mynd
þar sem Obama horfir morðingjaaugnaráði
aftan á hnakka Hillary meðan hún skellihlær.
Spurning hvort þessi mynd verður söguleg?
Hmm, heyrðist í Þórarni. Hvað ætli Bill
Clinton hafi talið upp að miklu áður en hann
fór úr buxunum fyrir Monicu Lewinsky um ár-
ið? Kannski þremur?
FÖST Í FRÉTTANETI»
Grænt er vænt
Höfundar eru heimavinnandi hjón í Barcelona.
Þýðir það að við getum
borðað fötin okkar í fram-
tíðinni? spurði Þórarinn.