Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 37

Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 37 Þýska dagblaðið Süddeutsche Zeitung segir það „syndsamlega fagra upplifun“ að heyra hana spila og að hæfileikar hennar séu ein- stakir. Annað þýskt blað, Frank- furter Allgemeine Zeitung, segir að Korsakova sé samnefnari fyrir „full- komnaða tækni, stórkostlega tilfinn- ingu fyrir stíl, einstaka músíkgáfu og persónutöfra.“ Og í Freies Wort var skrifað: „Natasha Korsakova kveikti í áheyrendum með leik sínum á fyrsta fiðlukonsert Sjostakovitsj, sem er ekki auðvelt verk, en hún spilaði af slíkum tækniyfirburðum og slíku listfengi að henni misfórst hvergi í kraftmikilli túlkun sinni.“ Um tólf plötur hafa komið út með leik Natöshu Korsakovu. Sú fyrsta kom út í Rússlandi þegar fiðluleik- arinn var á fermingaraldri, og þar leikur hún þrælerfiðan en undurfal- legan fiðlukonsert eftir Max Bruch og Árstíðir Vivaldis. Á næstu plötu sem kom út skömmu síðar léku þau saman hún og faðir hennar; hvort sinn Mozart-konsertinn en svo sam- an Bach-konsertinn fyrir tvær fiðl- ur. Fáum árum síðar gaf hún út plötu þar sem móðir hennar lék með henni á píanó. Flauelstónn á ferð og flugi Korsakova þykir hafa sérdeilis fallegan tón. Gagnrýnendur lýsa honum sem flauelsmjúkum og segja að hann geti bæði verið bjartur og heitur og dimmur og mystískur. Hún er sólgin í að spila Mozart og Sjostakovitsj en auðvitað spilar hún margt annað – síðustu árin hefur hún ekki gert annað en að ferðast um heiminn og spila. Enn er hún þó ekki orðin stórt nafn í Bandaríkj- unum; hún fór þangað fyrst í tón- leikaferð árið 2005, en hún hefur oft farið til Mið- og Suður-Ameríku, og árið 1998 var hún valin tónlist- armaður ársins í Chile. Hún tengist mörgum þeim stöðum sem hún spil- ar á og í Mexíkó og Chile hefur hún oft haldið masterklassa fyrir fiðl- unemendur. Hún er líka vinsæll gestur tónlistarhátíða og árið 2000 bað Irina Sjostakovitsj, ekkja tón- skáldsins mikla, hana sérstaklega að gera sér þann heiður að spila á hátíð þar í borg í minningu hans. Henni þykir líka einstaklega vænt um að hafa fengið tækifæri til að spila í Moskvu undir stjórn Mstisl- avs Rostropovitsj, sellóleikarans og hljómsveitarstjórans fræga, eftir að hann kom aftur heim til Rússlands eftir áralanga útlegð. Það sem er heillandi við Natöshu Korsakovu er hversu illa hún passar í sniðið „virtúós“, þótt leikur hennar gefi ekki neitt annað til kynna en að einmitt það sé hún. Fiðluleikarinn Laurent Korcia, sem lék í Salnum fyrir helgi og var í eyrum þeirra sem heyrðu ekkert annað en virtú- ós, sagði í viðtali að orðið „virtúós“ væri gamaldags og ætti frekar við um snillinga liðinna alda en fram- úrskarandi listamenn dagsins í dag. Trúlega eru hann sjálfur og Natasha Korsakova með bestu „sýnishornum“ sem við höfum séð af þessari nýju tegund undurhæfi- leikaríkra tónlistarmanna. Og fyrir áhugafólk um fiðluna er það ein- stakt að fá tvo slíka listamenn í sama mánuði.Ný ímynd Natasha Korsakova tilheyrir nýrri kynslóð afburðalistamanna. Þriðja skáldsaga hennar er í smíðum.                    ! "# !  $!% &   %  '             !  " #    "   $  !%&&' (              !   !   )  $         *  !  + *"    ! ( "   * *  ,  * * - !  "" .&&/'0'1 "   2  3  4  0 555 / !*                ! "# %"#$& '" (  $  SÝNINGARDAGAR: Frumsýning Föstudag 8. febrúar 2. sýning Sunnudag 10. febrúar 3. sýning Föstudag 15. febrúar 4. sýning Sunnudag 17. febrúar 5. sýning Miðvikudag 20. febrúar 6. sýning Föstudag 22. febrúar 7. sýning Sunnudag 24. febrúar 8. sýning Laugardag 1. mars 9. sýning Föstudag 7. mars 10. sýning Lokasýning Sunnudag 9. mars. Sýningar hefjast kl. 20.00 LA TRAVIATA eftir Giuseppe Verdi, sagan af hinni fögru og dauðvona Violettu Valéry sem leggur allt í sölurnar fyrir ástina, verður frumsýnd í Íslensku óperunni 8. febrúar 2008. Sagan er færð í stórbrotna tóna af meistara Verdi og það þekkja trúlega flestir eitthvert stef úr óperunni, hvort sem þeir gera sér grein fyrir því eða ekki. Það er mál manna að allir verði að sjá LA TRAVIATA einu sinni á ævinni – að minnsta kosti. Námskeið Vinafélags Íslensku óperunnar og Endurmenntunar Háskóla Íslands um La traviata eftir Giuseppe Verdi hefst þriðjudaginn 5. febrúar kl. 20.00. Á námskeiðinu verður óperan og efni hennar kynnt, helstu einkenni tónlistarinnar rædd og skoðuð með tóndæmum. Námskeiðskvöld eru 5. og 12. febrúar og námskeiðið endar á ferð á sýningu á La traviata 20. febrúar þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að hitta tónlistarstjóra ásamt einsöngvurum í lok sýningar. Nánari upplýsingar og skráning hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sími: 525 4444 - Netfang: endurmenntun@hi.is Vinafélag Íslensku óperunnar er félag áhugafólks um óperutónlist og óperustarfsemi á Íslandi. Með því að ganga til liðs við félagið stuðla menn að áframhaldandi uppbyggingu Íslensku óperunnar og standa vörð um það góða starf sem þar er unnið. Vinafélag Íslensku óperunnar Netfang: vinafelag@opera.is Sími: 511 6400 KYNNING FYRIR SÝNINGU Vinafélag Íslensku óperunnar býður óperugestum upp á kynningu fyrir sýningu þar sem fjallað verður um La traviata og sagt frá uppfærslunni í Óperunni. Kynningin fer fram í Íslensku óperunni og hefst kl. 19.15. Bergþór Pálsson söngvari annast kynninguna. NÁMSKEIÐ UM LA TRAVIATA LA TRAVIATA eftir Giuseppe Verdi LA TRAVIATA MIÐASALA Í SÍMA 511 4200OG Á WWW.OPERA.IS Kennari: GARÐAR CORTES Nú er 50% afsláttur á útsölunni v/Laugalæk • sími 553 3755

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.