Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ 22. janúar 1978: „Þær ákvarðanir, sem þannig voru teknar á öllum sviðum kjara- mála á síðasta ári, voru rang- ar og munu hafa verulegar afleiðingar á þessu ári. Þetta er öllum ljóst – hverjum ein- stökum þjóðfélagsþegn verð- ur þetta ljóst, þegar hann íhugar málið. Hvaða vit er í því að hækka kaupgjald um 60-80% til þess að ná fram 8% aukningu kaupmáttar á einu ári? Ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokks og Framsókn- arflokks, sem hafði þegar náð umtalsverðum árangri, hlýt- ur að taka hér í taumana. Mörgum kann að sýnast, að það hefði hún átt að gera áð- ur en kjarasamningar voru gerðir sl. sumar og koma þannig í veg fyrir að þeir hefðu stefnumarkandi áhrif á aðrar kjaraákvarðanir. Það var ekki gert og um það þýðir ekki að fást úr þessu. Við er- um nú að nálgast endapunkt verðbólguæðisins. Hingað til hefur verðbólgan verið fjár- mögnuð m.a. með mjög veru- legum erlendum lántökum. Það er ekki lengur hægt og nú er komið að skuldadög- um.“ . . . . . . . . . . 17. janúar 1988: „Hingað til hafa neytendur á Íslandi staðið í þeirri trú, að allt eft- irlit með matvælaframleiðslu hér væri mjög fullkomið og nánast útilokað að alvarleg mistök gætu orðið. Smátt og smátt hefur komið í ljós, að ástandið er ekki eins óaðfinn- anlegt og fólk hefur haldið, þótt það sé vafalaust betra en víða annars staðar. Það er orðið tímabært að fjalla um það, hvernig hægt er að bæta eftirlit með framleiðslu mat- væla og tryggja rétt neytand- ans og að skýrt komi fram hver ábyrgð framleiðanda og seljanda er. Þetta er eitt þeirra mála, sem Alþingi þarf að fjalla um á þessum vetri.“ . . . . . . . . . . 17. janúar 1998: „Annars eru landvinningar íslenskra söngvara ekki alveg ný saga. Íslenskir söngvarar áttu góðu gengi að fagna á er- lendri grund fyrr á öldinni og má með sanni segja að þeir hafi rutt brautina. Hér nægir að nefna nöfn Péturs Á. Jóns- sonar, sem starfaði við óperu- hús í Kiel, Berlín og Bremen 1914 til 1929 við fádæma vin- sældir, Maríu Markan, sem starfaði meðal annars í Kaup- mannahöfn, Ósló, Stokk- hólmi, Berlín, Lundúnum og New York þar sem hún var fastráðin við Metropolit- anóperuna árin 1941 til 1944, Stefáns Íslandi, sem átti glæsilegan söngferil við Kon- unglega leikhúsið í Kaup- mannahöfn og varð þar kon- unglegur hirðsöngvari 1949, og Einars Kristjánssonar, sem söng víða í Evrópu. Það er einnig gömul saga og ný að á hátíðarstundum minnast ráðamenn á að efla þurfi íslenska menningu því að hún sé skjöldur og krúna stoltrar og sjálfstæðrar þjóð- ar. Það hefur hins vegar vilj- að brenna við að einungis daufur ómur af þessum hátíð- arorðum heyrðist í lögum þeirra sem fara með sameig- inlegt fé landsmanna.“ Úr gömlum l e iðurum Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HVERFUM FRÁ BÚTASAUMSHUGSUNINNI Þeirri skoðun hefur verið lýst íMorgunblaðinu að jarðgöng séubyggðarlögum ómetanleg teng- ing, ekki veigaminni en brýr voru áður fyrr. Sameining atvinnusvæða auk ör- yggis vegfarenda hefur verið leiðar- ljósið. Á Vestfjörðum hefur reynslan sýnt að jarðgöng eru byggðarlögunum bráðnauðsynleg samgöngubót og for- senda aukins sveigjanleika í mannlíf- inu. Hið sama á auðvitað við um jarð- göng á þéttbýlasta svæði landsins – á höfuðborgarsvæðinu og í nágranna- sveitum þess. Umferð um Hvalfjarð- argöng hefur, svo nærtækt dæmi sé tekið, verið mun meiri en menn þorðu að spá þrátt fyrir að þar þurfi að greiða vegatoll. Undanfarið hefur enn og aftur verið rætt um jarðgöng í Reykjavík í tengslum við Sundabraut. Þær tvær leiðir sem hafa verið í umræðunni eftir að hugmynd um háa brú var slegin af, eru títtnefnd eyjalausn og síðan jarð- göng. Eyjalausnin hefur mætt mikilli andstöðu íbúa beggja vegna Klepps- víkur sem telja að mannvirkið muni vega að lífsgæðum þeirra. Jafnframt hefur verið bent á þau sjónrænu lýti sem slíkt mannvirki væri í Kleppsvík og í námunda við náttúruperlu á borð við Elliðaárnar. Þar að auki er ljóst að beggja vegna Kleppsvíkur verður mun þrengra um allar tengingar eyjalausn- arinnar við gatnakerfið heldur en ef jarðgöng verða grafin utar í Klepps- víkinni. Þótt gallar eyjalausnarinnar séu flestum ljósir er það kostnaðurinn við jarðgöng sem Vegagerð ríkisins setur helst fyrir sig, þrátt fyrir að borgarráð hafi nú ítrekað stuðning sinn við jarðgangagerð. Í ljósi þeirrar ítrekunar myndi það sæta nokkrum tíðindum ef Reykvík- ingar fengju ekki þá samgöngubót sem þessi jarðgöng óneitanlega eru. Arð- semi þeirra þegar til lengri tíma er litið hlýtur hreinlega að réttlæta kostnað- inn rétt eins og í öðrum borgum sem eru eða hafa verið í örum vexti. Hvort Reykvíkingum ber að standa undir þeim kostnaði sem jarðgöng hafa í för með sér umfram eyjalausnina er enn álitamál, en hafa ætti í huga við ígrundun þess þáttar hvort sá háttur hafi verið hafður á í öðrum byggðarlög- um. Eins og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bendir á í Morgunblaðinu í dag er vandséð hvers vegna annað ætti að gilda um Reykjavík en aðra staði. Öll þessi umræða er að einhverju leyti angi af þeirri vitundarvakningu sem vart hefur orðið um mikilvægi skipulagsmála – því samgöngur eru vitaskuld hluti af þeim. Í því samhengi hefur mikið verið rætt um bútaskipu- lag í Reykjavík og þá fyrst og fremst varðandi byggingarreiti víðs vegar um borgina. Bútasaumslíkingin á einnig við um vegaframkvæmdir á höfuðborg- arsvæðinu, rétt eins og bent var á í tengslum við nýju Hringbrautina þeg- ar framkvæmdir stóðu yfir þar. Það er ekki seinna vænna að skoða Sunda- braut í samhengi við framkvæmdir á hafnarbakkanum í miðborginni sem og tengingu hennar við Grafarvogssvæðið – hvað eigi að gera við þá tugi þúsunda bíla sem koma til með að fara um þenn- an nýja veg. Augljóst virðist að umferð um Sæbrautina mun aukast til muna og skapa miðborginni sóknarfæri. En með hvaða hætti verður tekist á við það flæði? Ekki er búið að leysa vandann við Geirsgötu og vestur úr nema að hluta til. Sömuleiðis þarf að huga að því hvað borgaryfirvöld hugsa sér með Lækjargötu vegna uppbyggingar í ná- vígi við hana í nánustu framtíð. Það má ekki dragast lengur að skoða hlutina heildstætt með þessi sjónarmið í huga. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ U ndir árslok 2005 og veturinn og vorið 2006 birti Morgunblaðið ítarlegar fréttir af umsögnum greiningadeilda erlendra fjár- málafyrirtækja um stöðu ís- lenzka bankakerfisins og ein- stakra banka. Þessar umsagnir voru býsna gagnrýnar en bankarnir brugðust við þeim af skynsemi og talsmenn þeirra segja nú almennt, að þær umræður hafi verið gagnlegar fyrir þá og að viðbrögð þeirra hafi orðið til þess að styrkja og efla bankana og auðvelda þeim að standa af sér þann óróa, sem nú er á alþjóð- legum fjármálamörkuðum. Til marks um það er umsögn eins þeirra fyr- irtækja, sem komu við sögu þá og sagt er frá í Morgunblaðinu í dag, laugardag, en í nýrri álitsgerð Credit Insight kemur fram að skulda- tryggingaálagið á íslenzku bankana sé mun hærra en nokkurt tilefni sé til. Viðbrögð forráðamanna sumra íslenzku bank- anna við fréttaflutningi Morgunblaðsins undir árslok 2005 og fram á vorið 2006 einkenndust hins vegar ekki af sömu skynsemi og viðbrögð þeirra við vandanum sjálfum. Blaðið lá undir þungri gagnrýni úr þeirri átt. Því var haldið fram að allt of mikið væri gert úr þessum frétt- um og meiri áherzla lögð á hið neikvæða í álits- gerðum erlendu greiningadeildanna en hið já- kvæða. Einmitt af þeim sökum lagði Morgunblaðið áherzlu á að birta langa kafla úr þessum álitsgerðum í heild, þýddar af fagmanni utan ritstjórnar, til þess að lesendur Morg- unblaðsins gætu af eigin raun lagt mat á hvort sjálfar fréttirnar, sem unnar voru upp úr þess- um gögnum, einkenndust fremur af því nei- kvæða en því jákvæða, sem fram kom. Harkaleg viðbrögð sumra bankanna komu m.a. fram í því, að einn þeirra tók ákvörðun um að hætta að auglýsa í Morgunblaðinu um skeið en það eru viðbrögð sem einkenna í vaxandi mæli afstöðu nýrrar kynslóðar í viðskiptalífinu. Að hætta að auglýsa í fjölmiðli sem birtir eitt- hvað sem kemur viðkomandi fyrirtæki illa eða tala ekki við þann sama fjölmiðil eða starfs- menn hans. Þetta er gömul saga sem er rifjuð upp nú að gefnu tilefni vegna þess að í einstaka tilvikum eru viðbrögð við fréttum Morgunblaðsins af fjármálamarkaðnum heima og erlendis um þessar mundir áþekk og fyrir tveimur árum. Það er algengara en ekki, þegar blaðamenn Morgunblaðsins hringja í forráðamenn ein- stakra fjármálafyrirtækja, að spurningum þeirra sé mætt með athugasemdum um að Morgunblaðið sé að „kynda undir“ óróa á fjár- málamarkaðnum eða „auka á erfiðleika“ á markaðnum. Og spurningum er oftar en ekki svarað með athugasemdum sem augljóslega eru efnislega rangar eða villandi og til þess fallnar að gefa aðra mynd af þeim veruleika sem við blasir en tilefni er til. Tvær fréttir, sem birzt hafa hér í blaðinu síð- ustu vikur, hafa vakið óvenju sterk viðbrögð af þessu tagi. Annars vegar frétt um að búast mætti við uppsögnum í íslenzkum fjármálafyr- irtækjum á þessu ári og hins vegar frétt sem birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkrum dögum þess efnis að Glitnir hefði lent í erfiðleikum með hugsanlegt skuldabréfaútboð á erlendum fjármálamörkuðum og orðið að hætta við. Nú er auðvitað ljóst að Morgunblaðið hefði aldrei birt fréttina um hugsanlegar uppsagnir í fjármálafyrirtækjum nema vegna þess að á bak við þá frétt voru öruggar heimildir. Engu að síður voru hafðar uppi ásakanir á hendur blaðinu um að frétt þess væri tilbúningur einn, sem er auðvitað fáránlegt. Í síðara tilvikinu hafði Morgunblaðið upplýs- ingar undir höndum frá því um síðustu helgi sem bentu til að Glitnir hefði lent í vanda með fyrirhugað skuldabréfaútboð, ekki vegna þess að bankinn gæti ekki fengið peninga heldur vegna hins að þeir reyndust vera svo dýrir. Þetta þurfti ekki að koma nokkrum manni á óvart sem fylgzt hefur með þróun alþjóðlegra fjármálamarkaða á undanförnum mánuðum. Raunar mátti ganga út frá því sem vísu að svo færi. En fyrstu tvo dagana sem Morgunblaðið reyndi að fá staðfestingu á þessum móttökum fékk blaðið þau svör ein að þetta mál væri á byrjunarstigi og móttökur hefðu verið ágætar og má lesa þau svör hér í blaðinu á fyrstu dög- um síðustu viku. Á þriðja degi komu önnur svör, sem var skynsamlegt af forráðamönnum bankans. Auðvitað eru fjölmiðlar sem birta fréttir sem þessar ekki að kynda undir óróa eða leitast við að auka á erfiðleika. Þeir eru einfaldlega að segja frá því sem er að gerast í kringum okkur. Það er þeirra hlutverk. Í báðum tilvikum, fyrir tveimur árum og nú, var um að ræða vandamál sem áttu rætur að rekja til annarra landa. Í fyrra tilvikinu var um að ræða álitsgerðir margra fjármálafyrirtækja beggja vegna Atlantshafs, þó sérstaklega í Bretlandi, Dan- mörku og Bandaríkjunum. Í síðara tilvikinu var og er um að ræða fréttir af miklum sviptingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum sem hafa áhrif hér á Íslandi. Er það raunverulega skoð- un þeirra, sem hafa að undanförnu gagnrýnt Morgunblaðið fyrir þennan fréttaflutning, að það eigi að þegja um þessar sviptingar?! Halda þeir í raun og veru að á tímum gervihnattasjón- varps og nets sé hægt að halda upplýsingum um þessa þróun leyndum fyrir íslenzkum al- menningi?! Auðvitað er það ekki hægt en það er merki- legt rannsóknarefni að kynslóðir nútímans skuli halda að í opnu lýðræðislegu samfélagi sé eitt- hvað athugavert við fréttaflutning af þessu tagi. Um þetta er fjallað hér sem eins konar til- raun til að eiga skoðanaskipti við þá sem gagn- rýnt hafa Morgunblaðið af þessum sökum bæði nú og fyrir tveimur árum. Þau viðbrögð sem hér hefur verið lýst eru til marks um ótrúlegt þroskaleysi ef reynt er að horfa á þau með já- kvæðum augum en verra er ef einhver heldur að það sé hægt að koma í veg fyrir umræður sem eru óþægilegar fyrir fjármálageirann með því að reyna að þagga þær niður. Víðtækar umræður U m annað hefur ekki verið meira rætt í erlendum fjölmiðlum, bæði dagblöðum og í sjón- varpsfréttum, en þau snöggu umskipti sem hófust á alþjóð- legum fjármálamörkuðum snemma í ágúst vegna vandamála sem upp komu á bandarískum húsnæðislánamarkaði. Öll helztu dagblöð í Bandaríkjunum og í Bretlandi, svo og á Norðurlöndum, ekki sízt í Danmörku, hafa fjallað um þessa framvindu mála. Þessar fréttir byrjuðu í smáum stíl og í upphafi var ljóst að fáir sérfræðingar trúðu því að áhrifin af húsnæðislánakreppunni yrðu jafn víðtæk og raun hefur orðið á. Smátt og smátt hefur þetta mál orðið að einhverri mestu kreppu sem upp hefur komið á fjármálamarkaðnum úti í löndum í tvo áratugi. Það dettur engum manni í hug í öðrum lönd- um að ekki sé sjálfsagt og eðlilegt og jafnframt nauðsynlegt að fjölmiðlar í þeim löndum fjalli um þessa atburði. Enda ekki hægt að láta sem ekkert hafi gerzt. Á forsíðu síðasta heftis brezka tímaritsins The Economist er mynd af þyrlubjörgunar- sveitum koma fljúgandi frá Miðausturlöndum, Laugardagur 19. janúar Reykjavíkur Hálslón við Kárahnjúka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.