Morgunblaðið - 20.01.2008, Page 40
40 SUNNUDAGUR 20. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
NÝLEGA skrifaði námsmaður við
Háskólann á Akureyri grein í Morg-
unblaðið um skipulag
þróunarmála innan ut-
anríkisráðuneytisins.
Hann fjallar um mik-
ilvægi þess að utanrík-
isráðherra Íslands geri
þarfar skipulagsbreyt-
ingar og taki Þróun-
arsamvinnustofnun Ís-
lands (ÞSSÍ) inn í
ráðuneytið þannig að
það hafi jafnframt fullt
forræði yfir tvíhliða
þróunarsamvinnu Ís-
lendinga. Best væri að
sérstök deild innan
ráðuneytisins annaðist bæði tvíhliða
og marghliða þróunarsamvinnu, en
að ráðherrar málaflokksins virðist
ekki hafa gert sér grein fyrir því.
Ég fagna sérstaklega þessum
skrifum Sölmundar Karls Pálssonar
þar sem hann kemst að nákvæmlega
sömu niðurstöðu og ég gerði þegar
ég gegndi embætti utanrík-
isráðherra.
Vaxandi vægi
þróunarsamvinnu
Nú eru nær fjórir áratugir síðan
íslensk stjórnvöld hófu fyrst að veita
tvíhliða þróunaraðstoð til annarra
ríkja. Með lögum frá árinu 1971
hófst nýtt tímabil þar sem mörkuð
var stefna og áherslur í þróunarsam-
vinnu. ÞSSÍ var síðan
sett á fót árið 1981. Á
árinu 2004 ákvað rík-
isstjórnin að stórauka
framlög til þróun-
armála. Frá þeim tíma
hafa fjárveitingar til
málaflokksins meira en
tvöfaldast úr u.þ.b. 1,5
milljörðum kr. árið
2004 í 3,2 milljarða kr.
á árinu 2007. Náist
markmið fyrrverandi
ríkisstjórnar munu
framlögin nema um 4,6
milljörðum kr. á árinu
2009 eða sem svarar til 0,35% af
vergri landsframleiðslu. Hér er um
mikið fjármagn að ræða og því mik-
ilvægt að koma í veg fyrir óhagræði
og varast tvíverknað.
Þátttaka Íslands í þróunarsam-
starfi er í dag veigamikill þáttur í ut-
anríkisstefnu Íslands og fer mik-
ilvægi þróunarsamvinnu okkar mjög
vaxandi. Eins og málum er háttað í
dag þá fer ÞSSÍ, í umboði utanrík-
isráðherra, með framkvæmd tvíhliða
þróunarsamvinnu í samstarfi við
stjórnvöld í þeim löndum sem sér-
staklega hafa verið valin til sam-
starfs og gilda um það tvíhliða milli-
ríkjasamningar við hlutaðeigandi
lönd. Marghliða þróunarsamvinna er
hins vegar á forræði utanríkisráðu-
neytisins og svo á einnig við um
starfsemi Íslensku friðargæslunnar,
samstarf við frjáls félagasamtök,
ekki síst vegna neyðar- og mann-
úðaraðstoðar. Þá teljast framlög til
Jarðhitaskóla og Sjávarútvegsskóla
Háskóla Sameinuðu þjóðanna til
marghliða þróunarsamvinnu og eru
skólarnir fjármagnaðir af fjár-
lagaliðum utanríkisráðuneytisins.
Tillögur að nýjum leiðum
Okkur stjórnmálamönnum ber
skylda til að horfa á bestu leiðirnar
til að ná árangri í þróunarsamvinnu
og sem bestri nýtingu fjármagns og
ég gerði mér fljótt grein fyrir því, í
tíð minni sem utanríkisráðherra, að
þetta fyrirkomulag þróunarsam-
vinnu skilar ekki þessum mikilvæga
málaflokki bestum árangri. Tví-
verknaður er of mikill og gagn-
kvæmur stuðningur of lítill. Því
ákvað ég að skipa nefnd sem skyldi
skoða hvaða leiðir væru mögulegar í
því augnamiði að auka skilvirkni og
árangur í okkar þróunarsamvinnu.
Við höfum einfaldlega ekki leyfi til
að láta stjórnast af öðrum hags-
munum eða hvötum.
Nefndin leitaði ráða víða og skilaði
mér skýrslu á síðastliðnu vori. Í
skýrslunni eru tilgreindar tvær leið-
ir til úrbóta. Önnur var sú, og með
henni var mælt, að gera ráð fyrir
fullum samruna á starfsemi ÞSSÍ og
utanríkisráðuneytisins. ÞSSÍ yrði
þannig hluti af þróunarsam-
vinnusviði ráðuneytisins. Hin til-
lagan var að ÞSSÍ starfaði áfram
sem sjálfstæð undirstofnun, en
tengsl hennar við utanríkisráðu-
neytið yrðu efld.
Ég gerði fyrri tillöguna að minni
og kynnti hana fyrir forsætisráð-
herra, Geir H. Haarde, sem var sam-
mála mér um leiðir. Síðan kynnti ég
þessa niðurstöðu mína fyrir utanrík-
ismálanefnd. Ég sagði jafnframt að
skýrslan væri fyrst og fremst fram-
lag til nauðsynlegrar umræðu um
þennan mikilvæga málaflokk og að
ég hygðist ekki leggja fram frum-
varp til breytinga á skipulagi þróun-
arsamvinnu fyrir kosningar, enda
naumur tími til stefnu. Þannig kæmi
það í hlut nýrrar ríkisstjórnar og Al-
þingis að vinna málið áfram.
Hvað gerir utanríkisráðherra?
Aðeins örfáir klukkutímar liðu. Þá
glumdu í eyrum viðbrögð fram-
kvæmdastjóra Þróunarsam-
vinnustofnar Íslands og guðföður
Samfylkingarinnar, Sighvats Björg-
vinssonar, sem staddur var í Afríku.
Framkvæmdastjórinn taldi að sér
vegið og hafði uppi stór orð í fjöl-
miðlum í minn garð. Hef ég hvorki
fyrr né síðar orðið vitni að öðrum
eins gífuryrðum embættismanns í
garð pólitísks yfirmanns síns. Í um-
ræðu í þjóðfélaginu var skýrslunni
hins vegar vel tekið í hvívetna, enda
vel til hennar unnið og tillögur mínar
að leiðum ekki ósvipaðar þeim sem
mörg okkar nágrannalanda hafa far-
ið.
Nýr utanríkisráðherra og formað-
ur Samfylkingarinnar hefur boðað
nýja löggjöf um fyrirkomulag þróun-
arsamvinnu. Fróðlegt verður að sjá
hvort Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
metur meira hagsmuni þróunarsam-
vinnu Íslendinga, og þar með íbúa
þróunarlanda, eða eiginhagsmuni
pólitísks samherja. Það verður líka
áhugavert að fylgjast með hvort
Geir H. Haarde forsætisráðherra
skiptir um skoðun.
Um skipulag þróunarsamvinnu
Valgerður Sverrisdóttir fjallar
um þróunarsamvinnu »Hef ég hvorki fyrr né síðar orðið vitni
að öðrum eins gíf-
uryrðum embættis-
manns í garð pólitísks
yfirmanns síns.
Valgerður Sverrisdóttir
Höfundur er þingmaður og
fyrrverandi utanríkisráðherra.
OPIÐ HÚS Í DAG SUNNUDAG KL. 16-17
SÖRLASKJÓL 94 – VESTURBÆR
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson
sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090
jöreign ehf
Glæsileg algerlega endurnýjuð sérhæð í góðu steinsteyptu húsi. Sérstæð-
ur bílskúr. Stærð 134,3 fm. Ný gólfefni og innihurðir. Nýjar vatns- og frá-
rennslislagnir. Allt nýtt í eldhúsi og baði. Tvö rúmgóð herbergi og tvær
bjartar og rúmgóðar stofur. VERÐ 49,0 MILLJ. FRÁBÆR STAÐSETNING
MEÐ MIKLU SJÁVARÚTSÝNI. LAUS STRAX.
SÖLUMAÐUR KJÖREIGNAR TEKUR Á MÓTI ÁHUGASÖMUM Í DAG
MILLI KL. 16 OG 17.
Gott og vel staðsett 183,8 fm einbýli á einni hæð, þar af 31,6 fm bíl-
skúr. Húsið er klætt að utan með steni og hefur fengið gott viðhald.
Næg bílastæði eru við húsið. Flísalögð forstofa með skáp, gesta-
snyrting, gott þvottahús, parketlagt hol notað sem sjónvarpshol (væri
hægt að nota sem herbergi). Parketlögð stofa hátt til lofts. Eldhús með
ágætri innréttingu/korkur á gólfi, góð parketlögð borðstofa. Á sérgangi
er hjónaherbergi með skáp og þrjú góð barnaherbergi öll með parketi
á gólfi. Baðherbergi með baðkari og innréttingu (gluggi á baði). Í borð-
stofu er gengið út í garð með góðri verönd. Nýtt gler er í öllu húsinu.
Þetta er í heild sinni fallegt hús á góðum stað í Árbæ. Skipti möguleg
á minni íbúð. Verð 49,5 millj.
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Sími 588 4477
Hlaðbær 5
Opið hús í dag frá kl. 14-16
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Kjarrvegur - við Fossvogsdalinn
Glæsilegteinbýlishús/tengihús
staðsett við opið svæði, skógi
vaxið með útsýni yfir Fossvogs-
dalinn og til sjávar. Húsið er um
380,0 fm þ.m.t. 30,7 fm bílskúr, kj.
og tvær hæðir, innréttað á
vandaðan og smekklegan hátt.
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar.
Granít, parket og flísar á gólfum.
Suðursvalir. Ræktuð lóð með
fallegu holtagrjóti.
Mikil timburverönd með skjólveggjum. Verðtilboð.
Mýrarás
235 fm einbýlishús á einni hæð vel
staðsett á útsýnisstað innst í
lokaðri götu. Eignin skiptist í
forstofu, sjónvarpshol, gesta wc,
stofu með arni og mikilli lofthæð,
eldhús, þvottaherbergi innaf eld-
hús, 5 herbergi og baðherbergi.
943 fm ræktuð lóð með timbur-
verönd og skjólveggjum. Hitalagnir
í stéttum. Tvöfaldur bílskúr. Stutt í
skóla og þjónustu. Verð 68,0 millj.
Grettisgata-neðri sérhæð
Mjög falleg og mikið endurnýjuð
151 fm neðri sérhæð í þríbýlishúsi í
miðborginni. Íbúðin er með góðri
lofthæð og skiptist í þrjú góð her-
bergi, tvennar bjartar samliggjandi
stofur með rennihurðum og því
möguleiki að nýta aðra stofuna
sem herbergi, eldhús með eyju
klædda grásteini og flísalagt
baðherbergi. Tvær sér geymslur.
Góð eign í miðborginni.
Laus við kaupsamning. Verðtilboð
Rauðagerði-efri sérhæð ásamt bílskúr
Efri sérhæð ásamt bílskúr, samtals
163 fm. Hæðin er mikið endur-
nýjuð, hönnuð af Rut Káradóttur
innanhússarkitekt. Rúmgóð stofa,
opið eldhús í borðstofu, 3 svefn-
herbergi og vel hannað bað-
herbergi. Gólf eru flotuð og lökkuð.
Suðursvalir út af borðstofu og til
vesturs frá einu herb. Sér geymsla í
kjallara. Verð 39,5 millj.
Laugarnesvegur-neðri sérhæð
Laugarnesvegur-neðri sérhæð
Glæsileg 110 fm neðri sérhæð í
nýlegu þríbýlishúsi. Hellulögð
verönd með skjólveggum út af
stofu/borðstofu, eldhús með eyju
og nýrri innrétttingu úr eik, hjóna-
herbergi með góðu skápaplássi og
flísalagt baðherbergi. Ein íbúð á
hæð. 2 sér bílastæði fyrir framan
hús. Verð 35,9 millj.
www.domus.is Laugavegi 97 | 101 Reykjavík | sími 440 6000
SKIPHOLT 29B – 105 REYKJAVÍK
SÖLUSÝNING KL. 15:00-15:30 Í DAG
Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli við Skipholt í Reykjavík. Um er að
ræða nýtt og vandað hús með lyftu. Skiptist eignin í forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús,
stofu og þvottahús. Á þaki hússins er skemmtilegur sólskáli sem er sameiginlegur. Hægt
er að ganga út á þakið úr sólskálanum, en þar er einstaklega mikið og gott útsýni.
Eignin er fullbúin með fallegu eikarparketi og flísum. Verð 33,9 millj.
Björgvin Víðir Guðmundsson
Viðskiptastjóri
vidir@domus.is
s. 664 6024/440 6024